Dagur - 27.03.1974, Blaðsíða 5
4
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarma'ður:
ERLINGUR DAVlÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓHANN K. SIGURÐSSON
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
VAXANDIFYLGI
STJÓRNMÁLAFÉLÖGIN á Akur-
eyri eru að undirbúa bæjarstjórnar-
kosningamar, hvert eftir sinni getu.
Framsóknarmenn birtu sinn íram-
boðslista í janúar, Alþýðubandalagið
hefur birt sinn lista og framboðslisti
krata og frjálslyndra, eða hrossa-
kaupalistinn, sem svo er kallaður í
bænum, var birtur eftir helgina
Sjálfstæðismönnum gengur einna
verst að setja saman lista sinn og
verða vandamál þeirra ekki gerð að
umtalsefni.
Síðar munu svo flokksfélögin birta
stefnumál sín og biðja háttvirta kjós-
endur að styðja þau, en síðan eiga
kjömir bæjarfulltrúar að hafa þau
að leiðarljósi.
Við síðustu bæjarstjórnarkosning-
ar hlaut listi Framsóknarmanna mest
fylgi bæjarbúa og er hið vaxandi
fylgi lians meðal annars því að
þakka, að bæjarbúarfulltrúar Fram-
sóknar taka starf sitt alvarlega og
vinna heilshugar að framgangi allra
þeirra meginmála, sem sameiginleg-
um sköpum skipta fyrir íbúana. Og
þeir vinna samkvæmt þeirri stefnu í
ölium umtalsverðum málum, sem
þeir voru kosnir til að vinná. Því
hefur farið saman og mjög að von-
um, vaxandi fylgi við þennan flokk
og vaxandi áhrif hans í stjórn bæjar-
málanna, og sér þess mörg merki.
Minna má á, að í síðustu bæjar-
stjórnarkosningum var enn tíma-
bundið atvinnuleysi á Akureyri,
gamall íhaldsarfur, bæði frá stjóm
landsins og á einstökum stöðum þar
sem íhaldið hafði of lengi ráðið ferð-
inni og atvinnuleysi var í þess aug-
um talið jafn sjálfsagt og skannn-
degið. Eitt af markmiðum Fram-
sóknarfulltrúanna í bæjarstjórn var
að afmá þennan blett og geta bæjar-
búar dæmt uin árangurinn. Bærinn
hefur tekið vaxtarkipp eftir að hann
losnaði úr álögum íhaldsins.
Framsóknarmenn beittu sér fyrir
endurreisn Slippstöðvarinnar, sem
var að stöðvast. Það tókst vel. Fram-
kvæmdasjóður bæjarins var efldur.
Endumýjun togaranna hófst og fram
undan em e. t. v. enn þáttaskil í
togaraútgerðinni. Húsnæðisvand-
ræðin voru leyst að verulegu leyti
með því að greiða fyrir íbúðabygg-
ingum með nýju átaki. Skólar. rísa,
gatnakerfið tekur breytingum, til
skipulagsmála er varið miklum fjár-
munum, byrjað er á sjúkrahúsbygg-
ingu, aukin aðstoð veitt íþróttafólki
og menningarleg félög ríkulega
studd.
Framsóknarmenn stefna að enn
auknu fylgi, meiri ábyrgð og áhrifum
í málefnum bæjarins. □
ÞEGAR blaðamaður Dags lagði
leið sína í Hraðfrystihús Út-
gerðarfélags Akureyringa h.f. á
laugardaginn, var enginn frí-
dagur þar, og framleiðsla í full-
um gangi, og jafnframt var ver-
ið að ljúka við að landa góðum
afla úr togaranum Sólbaki, 200
tonnum.
Um 150 manns unnu í Hrað-
frystihúsinu við fiskinn, konur
á öllum aldri og einnig karlar.
í Fiskverkunarstöðinni unnu þá
um 30 manns, í saltfiskinum og
um 20 manns voru við löndun
fisks úr togaranum. Á fimm
togurum Ú. A. eru 130 manns.
Gunnar Lórenzson verkstjóri
sagði blaðinu, að hjá sér ynnu
fimm konur, er komnar væru
yfir sjötugt, sú elzta 73 ára og
tveir karlar yfir sjötugt væru
þar að störfum og léti þetta
aldna fólk ekki sitt eftir liggja,
enda vinnunni vant, flest eða
allt búið að vinna lengi hjá
fyrirtækinu, jafnvel frá upphafi.
En þarna voru þó líka ungar
stúlkur í vinnu, 15—16 ára, úr
éinúm bekk Gagnfræðaskólans,
og nokkrir piltar á sama aldri,
og enn yngra fólk var hér í gær,
sagði verkstjórinn. En kjarni
þessa stóra vinnuhóps, eru þó
húsmæðurnar. Það er vandséð
hvernig færi, ef þær legðu ekki
fram vinnu sína við þessa þýð-
. ihgarmiklu framleiðslu.
Þá mátti sjá nokkurn hóp
nemenda úr Menntaskóla Akur
. eyrar að störfum í Hraðfrysti-
húsinu. Og þó vantar 50—100
manns til viðbótar í vinnu hjá
Útgerðarfélagi Akureyringa h.f.
Vegna vinnuaflsskorts hefur
orðið að senda tvo togara félags
ins til Dalvíkur með afla sinn
til löndunar.
Margar húsmæður vinna að-
eins hálfan daginn og getur sú
tilhögun verið báðum aðilum
hagstæð, og e. t. v. gæti enn
fundist aukinn vinnukraftur
með því fyrirkomulagi, meðal
húsmæðranna.
Það er ekki þægilegt að taka
konur tali, þar sem þær keppast
við í hinum stóra vinnusal, og
þó er skotið einni og einni
spurningu til kvenna, um leið
og gengið er um.
Hvað er vikukaupið núna?
Svona 8200 krónur fyrir dag-
vinnuna, en miðað við rúma tvo
eftirvinnutíma á dag verður
vikukaupið rúmar 11 þúsund
krónur.
Þetta er mikil hækkun?
Ætli það sé ekki um það bil
28% hækkun.
Eruð þið ánægðar?
Við erum ánægðar yfir kaup-
hækkuninni, en ekki eins
ánægðar yfir öðrum hækkun-
um.
Þær yngstu hlæja bara að
alvarlegum spurningum og láta
það nægja og það nægir að sjá,
að þær vinna vel og líta naum-
ast upp þó að á þær sé kastað
orði. Þær eru að vinna sér inn
aura í einhverju sérstöku augna
miði, enda má margt með pen-
inga gera, og það er góð til-
breyting að fást við fiskflök í
stað þess að fletta bókarblöðum,
lesa þau og læra.
Fyrir þær konur, sem að stað-
aldri vinna í Hraðfrystihúsinu,
fellur naumast dagur úr, og
þessa vikuna, eða vikuna 18.—
23. marz, er unnið fjóra daga
til klukkan 11 að kveldi.
Þá hækkar vikukaupið veru-
lega?
Já, þá verður kaupið 3500
krónur yfir daginn, en það er
alltof mikil vinna fyrir flestar
þær
sé yrt.
Þær líta ekki upp þótt á
Kristín Aðalsteinsdóttir frá Lyngholti.
eða allar konur að vinna svo
lengi, nema sem undantekn-
ingu. Við þurfum nú flestar líka
að grípa í verk heima.
Hvað greiðir Ú. A. í vi.nnu-
laun á viku? spyrjum við verk-
stjórann.
Síðast var það á fjórðu
milljón, en nú fer það sjálfsagt
yfir á fimmtu milljónina.
Friðrik Vestmann hefur sleg-
izt í förina og tekur myndir
fyrir blaðið á meðan ég ræði við
fólkið, og svo förum við Gunnar
inn í litlu kompuna hans, þar
sem er þó hægt að heyra manns
ins mál. Ung kona kemur þar
inn og biður um plástur á svo-
litla hnífstungu. Plástur liggur
á borðinu og það er fljótlegt að
setja hann yfir sárið.
Það eru ekkert lítil verðmæti-
dag hvern, sem fara í gegnum
hendurnar á öllum þessum kon-
um, og körlunum, sem eru þó
í minnihluta. Það er búið að
framleiða yfir 20 þúsund kassa
af fiskflökum frá áramótum og
eiga þieir að fara á Bandaríkja-
markað. Þessa viku er unnið úr
400 tonnum fiskjar.
Útgerðarfélag Akureyringa
h.f. var stofnað 1945 og fyrsti
togari félagsins, Kaldbakur
EA 1, kom hingað 1947 og svo
aðrir togarar hver af öðrum,
alls fimm talsins. Tveir þessir
togarai eru enn við veiðar, Sval
bakur EA 2 og Harðbakur EA 3.
Einhvern næsta dag fara tveir
gömlu togararnir, Kaldbakur
og Sléttbakur, hlaðnir brota-
járni og sjálfir brotajárn, sína
síðustu sjóferð, til Spánar. En
árið 1972 bættist Ú. A. fyrsti
skuttogarinn, Sólbakur, pólsk-
byggður, keyptur af Frökkum,
461 tonrj. Og á sl. ári bættust
við tveir aðrir skuttogarar,
norskbyggðir, 847 tonna, keypt-
ir í Færeyjum. Eru því þrír
skuttogarar og tveir síðutogar-
ar nú að veiðum hjá Útgerðar-
félagi Akureyringa h.f. Og afl-
inn hefur verið að glæðazt.
Þessir norsk-færeysku skuttog-
arar heita Sléttbakur og Sval-
bakur; Og enn er verið að smíða
tvo 1000 tonna skuttogara suður
á Spáni, sem væntanlega koma
til Akureyrar og munu þau skip
þá leysa síðustu gömlu síðutog-
arana af hólmi. Við snúum
okkur til Jóns Aspars skrifstofu
stjóra og spyrjum hann um
vinnulaun og aflamagn.
Vinnulaun á síðasta ári, sem
Ú. A. greiddi landverkafólki,
voru nær 94 milljónir króna og
sjómenn fengu tæpar 98 milljón
ir króna í sinn hlut, eða saman-
lagt rúmar 191 millj. kr.
Framleiðsla síðasta ár var 106
þús. kassar af freðfiski og 193
lestir af saltfiski.
Heildarafli, sem á land kom
úr eigin skipum Ú. A. var 9631
tonn. Þar af selt í Bretlandi
218 tonn,
Stutt heimsókn í Hraðfrysti-
hús Útgerðarfélags Akureyr-
inga h.f. gefur manni margvís-
leg umhugsunarefni. í huganum
er hinn stóri og bjarti vinnu-
salur, langar raðir af konum og
körlum við vinnuborðin, ung-
um og gömlum. Sum andlitin
eru hrukkótt og þreytuleg,
önnur ung og rjóð. Óteljandi
hraðvirkar hendur auka verð-
mæti aflans og skapa dýrmæta
útflutningsframleiðslu. Verður
er verkamaður launa sinna, og
nú fá konur jafnhátt kaup og
karlár, við sömu störf. Fólk,
sem vinnur jafn mikilsverð
störf og þessi, má bera höfuð
hátt og njóta virðingar.
E. D.
Nýjasti hluti vinnslusalarins.
Úr eldri hluta vinnslusalarins.
! 5
Fermingarbörn
FERMINGARBÖRN í Akureyr-
arkirkju sunnudaginn 31. marz
kl. 10.30 fyrir hádegi.
DRENGIR:
Eymundur Matthíasson, Vana-
byggð 4 E.
Guðbjartur Guðjónsson, Fjólu-
gölu 10.
Gunnar Hólmsteinn Guðmunds-
son, Stafholti 5.
Gunnlaugur Árnason, Fjólu-
götu 8.
Hallur Heiðar Hallsson, Ása-
byggð 2.
Ingólfur Klausen, Þórunnar-
stræti 103.
Jón Ingi Jónsson, Víðivöllum 16.
Óskar Tryggvi Kristjánsson,
Ægisgötu 29.
Páll Stefánsson, Suðurbyggð 1.
Sigurður Gunnarsson, Greni-
völlum 20.
Þengill Ásgrímsson, Ásvegi 18.
STÚLKUR:
Aldís Björg Arnardóttir, Ein-
holti 3.
Auður Ingimarsdóttir, Vana-
byggð 4 C.
Ásdis Björk Bragadóttir, Akur-
gerði 7 B.
Ásdís Sigurvinsdóttir, Suður-
byggð 15.
Elín Gautadóttir, Beykilundi 10.
Elín Guðrún Gunnarsdóttir,
Norðurgötu 41 A.
Emilía Jarþrúður Einarsdóttir,
Víðilundi 6 F.
Erla Baldursdóttir, Ægisgötu 17.
Eydís Ýr Guðmundsdóttir,
Byggðavegi 101 D.
Guðbjörg Ragnheiður Tryggva-
dóttir, Norðurgötu 42.
Guðrún Sigríður Marinósdóttir,
Austurbyggð 6.
Halla Halldórsdóttir, Ásvegi 16.
Halla Sif Svavarsdóttir, Áshlíð 8
Kristín Sigtryggsdóttir, Gránu-
félagsgötu 19.
Kristlaug Þórhildur Svavars-
dóttir, Mýrarvegi 116.
Margrét Þórisdóttir, Strand-
götu 13.
Rebekka Sigurðardóttir, Aðal-
stræti 40.
Sigríður Björk Guðmunds-
dóttir, Stórholti 4.
Soffía Hreinsdóttir, Norður-
byggð 15.
Unnur Ragnheiður Hauksdóttir,
Hrafnagilsstræti 35.
Þórhalla Halldórsdóttir, Víði-
lundi 12.
FARANGURSKERRUR
fyrir fölksbíla.
|: SÝNISHORN í ATLABÚÐINNI.
PANTANIR TEKNAR. ;
FERMINGARGJAFA
Tjöld - Yindsængur
Rakpokar - Svefnpolíar
Myndavélar - Myndaalbúm
Skíði - Skíðastafir - Lúffur
HAFNARSTR. 91—95
AKUREYRI
S(MI (96)21400
KRISTÍNARKVÖLD
NOKKRIR aðdáendur skáld-
konunnar Kristínar Sigfúsdótt-
ur frá Kálfagerði, hafa um
nokkurt skeið unnið að fjár-
söfnun í því augnamiði að minn
ast aldarafmælis hennar 1976.
Hugmyndin er, að tengja
nafn hennar á einhvern hátt
nýreistum skóla á Hrafnagili.
Er það mjög í anda skáldkon-
unnar, sem þráði menntun öll-
um til handa.
Sjóðurinn er nú 314 þúsund
krónur og söfnunini er haldið
áfram. Móttakendur eru: Lauf-
ey Sigurðardóttir, Hlíðargötu 3,
Akureyri, Angantýr Hjálmars-
son, kennari í Hrafnagilsskóla,
og Lilja Jónsdóttir, Kristnesi.
Kvöldvaka var haldin í félags-
heimilinu Sólgarði í Saurbæjar-
hreppi 14. apríl 1973. Þar voru
kynnt ritverk Kristínar og sagt
frá lífi hennár og störfum.
Margt fólk var þar saman
komið.
Nú hefur kvenfélagið Iðunn
í Hrafnagilshreppi áformað að
hafa kvöldvöku með svipuðu
sniði fimmtiidaginn 28. marz
n. k. að Laugarborg. Kvöldvaka
þessi á jafnframt að vera til fjár
öflunar. Sjá nánar í auglýsinguj
TÝLI - nýtt hefti j
N Á T T Ú R U FRÆÐINGAR,
bændur og fleiri leggja til marg
þætt efni í síðasta hefti tíma-
ritsins Týli, sem gefið er út á
Akureyri af Bókaforlagi Odds
Björnssonar í samvinnu við
náttúrugripasöfnin á Akureyri
og í Neskaupstað. Ritstjóri er
Helgi Hallgrímsson, en meðrit-
stjórar Hjörleifur Guttormsson
og Ágúst H. Bjarnason.
Ávarpsorð ritstjóra nefnir
hann Sem hverfult hjól. Guð-
brandur Magnússon skrifar
greinina í leit að steingerving-
um, Leó Kristjánsson aðra sem
hann kallar Rauðu millilögin og
Hjörleifur Guttormsson skrifar
um Stokkhólmsráðstefnuna.
Þá er ýmislegt sagt af vett-
vangi rannsókna, bréf úr ýms-
um áttum og ritfregnir.
Rit þetta er um 80 blaðsíður
að stærð, -lítur vel út og er for-
vitnilegt. □
Kirk jutónleikar
KIRKJUTÓNLISTARSVEITIN
og Passíukórinn á Akureyri
munu flytja Jóhannesarpassí-
una eftir Alessandro Scarlatti
(1660—1725) laugardaginn 30.
marz kl. 21.00 í Akureyrar-
kirkju. Þetta mun vera í fyrsta
skipti, sem verk þetta er flutt
hér á landi.
Auk kórsins, sem er um 20
manns, koma fram 5 einsöngv-
arar í eftirfarandi hlutverkum:
Guðspjallamaður: Michael J.
Clarke, counter-tenor. Jesús:
Jón Hlöðver Áskelsson, baryton.
Pilatus: Þuriður Baldursdóttir,
alt. Pétur: Kristinn Jónsson,
tenor. Þerna: Lilja Hallgríms-,
dóttir, sopran.
Hljómsveitin, sem er kammer
hljómsveit, ásamt orgeli, skipar
einnig mikilvægan sess í verki
þessu.
Áætlað er, að flytja verk þetta
í Grenivíkurkirkju og Svalbarðs
kirkju sunnudaginn 31. marz
kl. 17.00 og 21.00.
Stjórnandi tónleikanna er
Roar Kvam. Q
TAKIÐ EFTIR:
Eins og undanfarin ár bjóðum við
margar fallegar gerðir af fermingar-
skeytum. Afgreiðsla fermingardagana
lrá kl. 10 f. h. til kl. 5 e. h. í VÉLA- og
RAFTÆKJASÖLUNNI, Glerárgötu 6.
Upplýsingasími: 2-28-67. — Allur ágóði
af sölu skeytanna rennur til sumarbúð-
anna að Hólavatni.
K.F.U.M. og K.
STÖÐIN
TRYGGVABRAUT 14
auglýsir:
Nýkomið úrval af vörum fyrir hinn vandláta
bif reiðareiganda:
ÚTVÖRP, m. gerðir — KASETTUTÆKI,
KASSAR f. kasettur - ÚTVARPSSTENGUR
ÁTTAVITAR - VACU U MMÆLAR
SMURMÆLAR
HVÍTAR AURHLÍFAR framan og aftan
SVARTAR- AURHLÍFAR framan og aftan
KRÓMADAR AURHLÍFAR *
BENSÍNBRÚSAR, fjórar stærðir
SPORTSTÝRI, leðurklædd
SKÍÐAGRINDUR á þak -
TOPPGRINDUR ódýaar.