Dagur - 29.05.1974, Qupperneq 1
Sauðárkróki, 28. maí. í sjö
manna bæjarstjórn ' okkar á
Sauðárkróki eru þrír Fram-
sóknarmenn af lista okkar og
Alþýðubandalagsins, þrír Sjálf-
stæðismenn og einn Alþýðu-
flokksmaður og er þetta hlut-
fall óbreytt. Okkar menn eru
Marteinn Friðriksson, Stefán
Guðmundsson og Sæmundur
Hermannsson. Guðjón Ingi-
mundarson gaf ekki kost á sér
ÓLAFUR Jóhannesson forsætis
ráðherra sagði m. a. í viðtali við
Morgunblaðið í gær:
Ætli það sé ekki best að óska
Sjálfstæðisflokknum til ham-
ingju með sigurinn, þótt ég telji
hann nú ekki verðskuldaðan.
Við hefðum gjarnan viljað fá
betri kosningaútkomu, þegar
miðað er við málefnin, sérstak-
lega landsmálin.
Spurningu um það hvort auk-
ið fylgi Sjálfstæðisflokksins
væru mótmæli gegn ríkisstjórn-
inni eða þingrofinu, svaraði for-
sætisráðherra á þessa leið:
Varla hafa það nú verið mót-
mæli gegn þingrofinu, nú hljóta
Sjálfstæðismenn að hlakka til
þingkosninganna og hætta að
vera á móti þingrofinu. Menn
hafa ekki verið að mótmæla
ríkisstjórninni, því að það voru
fyrst og fremst Alþýðuflokkur
og SFV, sem töpuðu.
Um það hvort hann áliti, að
aðeins þrír flokkar ættu sæti á
nsésta Alþingi, sagði forsætis-
ráðherra m. a.:
Það gæti litið þannig út, mið-
að við kosningatölurnar. En ég
teldi það nú ekki heppilegt, að
Alþýðuflokkurinn hyrfi alveg.
í viðtali við Tímann sagði for-
sætisráðherra, að Sjálístæðis-
flokkurinn færi með stóra vinn-
inginn. Of sterkar ályktanir um
alþingiskosningarnar, af þessu,
væru þó mjög hæpnar, og að
hann væri bjartsýnn um íram-
tíð Framsóknarflokksins og
alþingiskosningarnar. □
að þessu sinnir en hann hefur
verið okkar fulltrúi síðan 1950.
Fram að helginni var sérstak-
lega hlýtt og sprettan ör, enda
rigndi þá ofurlítið og örvaði það
grasvöxtinn.
Skafti og Hegranes eru að
landa og komu skipin með 100
tonn hvort. Svo er hér kominn
síðasti áburðarfarmurinn og hef
ur þurft að smala mönnum út
um allar sveitir í uppskipunar-
vinnu. Það er mikið að gera á
Sauðárkróki.
Sauðburðurinn hefur gengið
mjög vel og tvær ær af hverjum
þrem tvílembdar. Hryssurnar
eru sem óðast að kasta og ekk-
ert amalegt fyrir þessa nýju
borgara að fæðast inn í gróand-
ann á þessu góða vori.
Hestamenn eru farnir að und-
irbúa landsmót hestattiaYina á
Vindheimamelum, sem verður
haldið þar 10.—14. júlí. Tamn-
ingastöðin hér á Sauðárkróki
starfar enn og hefur fjöldi
hrossa verið tamin í vetur og
vör, sum mikil gæðingsefni.
Einhverjir hafa þegar farið til
eggjatöku í Drangey, sam-
kvæmt gömlum vana. En bjarg-
sig og eggjataka hefur þar verið
stunduð um aldir. Þó mun lítt
eða ekki hafa verið farið út í
eyna þeirra erinda í fyrra. Þar
er björgulegt á þessum tíma.
Sennilegt er, að hin mikla at-
vinna komi í veg fyrir að fugla-
björgin séu nytjuð, svo sem
áður var. G. Ó.
Hópreið hestamanna á Akureyri.
(Ljósm.: E. D.)
Kappreiðar og
verða annan í hvítasunnu
NÚ á annan í hvítasunnu heldur
Hestamannafélagið „Léttir" á
Akureyri kappreiðar og góð-
hestakeppni á skeiðvelli félags-
ins og eru skráð um 100 hross
til keppni í hlaupum og sýning-
um víðsvegar af Norðurlandi.
Þess má geta að í skeiði keppa
Um 15 hross og er slíkt nýlunda
hér fyrir norðan og vonandi
vísir að aukinni rækt við
skeiðið.
Jarðýturnar fundu engan snjó á
Axarf j ar ðarheiðinni
Gunnarsstöðum, 28. maí. Frost-
kali hefur verið hér tvær næt-
ur, stillt og öðru hverju hríðar-
veður, veður af því tagi, sem
margir nefna dauðafjúk.
Sauðburður gengur vel það
ég veit og hef ég ekki frétt um
néin áföll í sambandi við hann.
Tvílembur eru margar og sauð-
burðurinn er ákaflega mislangt
kominn hjá bændum og nýlega
byrjaður hjá þeim, sem síðastir
eru. Hjá þeim fyrstu er sauð-
burðurinn langt kominn.
Spaugsamur náungi sagði um
daginn: Það var misráðið að
leggja niður z-una, því að ég sé
ekki betur en að með þessari
þróun veiti ekki af öllu staf-
Síðustii fréttir
BJORN Jónsson, fyrrum félags- og samgönguráðherra, hefur
sagt sig úr Samtökum frjálslyndra og vinstri manna og
gengið í Alþýðuflokkinn. Hann verður í þriðja sæti á lista
þess flokks í Reykjavík við næstu alþingiskosningar.
Líkur eru á, samkvæmt útvarpsfregnum, að stór hópur í
Samtökum frjálslyndra og vinstri manna segi sig í Reykja-
vík úr Samtökunum á næstunni og gangi í Alþýðuflokkinn.
Formaður Alþýðuflokksins segir, að í alþingiskosningun-
um 30. júní komi ekki annað til mála en að Alþýðuflokkur-
inn hafi hrein flokksframboð í öllum kjördæmum, þar sem
sú sundrung og upplausn, er skapast hafi undanfarið, hafi
bitnað hörmulega á samstarfi Alþýðuflokksins og Samtaka
"frjálslyndra og vinstri manna. Q
rófinu til að allir flokkar geti
fengið sinn listabókstaf. En ný-
afstaðnar sveitarstjórnarkosn-
ingar ættu að gefa vísbendingu
um, að fólkið er almennt and-
vígt nýjum flokkum og flokks-
brotum. Mun þetta á ný þjappa
flokkum saman og fækka fram-
boðslistum og væri það vel. Það
er óheppileg þróun að vera með
tíu flokka í framboði og fáir eru
nokkurs megnugir.
Flestir hættu á netunum um
10. maí og nú er verið að laga
bátana og búa sig undir sumar-
vertíðina. Einn bátur hefur róið
með línu og hefur hann aflað
dável, 6—10 tonn í róðri.
Grásleppuveiði var góð. Færri
stunduðu þær veiðar en áður og
sú vertíð byrjaði seinna en fyrir
farandi ár. Einn mann hitti ég
fyrir skömmu, er stundaði grá-
sleppuveiði einn á báti og hafði
þá saltað hrogn í 60 tunnur.
Hann fær góðan skilding fyrir
sína vinnu yfir þennan tíma.
Um Axarfjarðarheiði er það
að segja, að snjór er þar ekki
til fyrirstöðu. Veit ég það af
því, að tvær jarðýtur voru ný-
lega sendar á heiðina til snjó-
moksturs og lögðu þær upp sín
hvoru megin heiðar. En þær
fundu engan snjó og fengu ekki
verkefni. Það hefði verið skyn-
samlegra að senda bíl til að
rannsaka snjóalögin.
Sjálfkjörið var í hreppsnefnd
Þórshafnar, því aðeins einn listi
kom fram. í hreppsnefndinni
eru: Pálmi Ólafsson, Bjarni
Aðalgeirsson, Jóhann Jónasson,
Sigurbjörg Sigurjónsdóttir og
Kristján I. Karlsson. Þetta er
blandað og ágætt lið. Ætli við
eigum ekki meirihlutann? O. H.
Veðbanki mun starfa í sam-
bandi við kappreiðar, en það
eykur spennu og stemningu.
Þá munu góðhestar verða
dæmdir eftir nýju kerfi, svo-
kölluðu spjaldakerfi, en þá er
hesturinn dæmdur fyrir framan
áhorfendur og geta þeir fylgst
nákvæmlega með fyrir hvað
verið er að gefa hverju sinni og
séð hvernig staðan er eftir
hverja umferð.
Þéir hestar sem best standa
sig munu síðan verða fulltrúar
,,Léttis“ á landsmótinu á Vind-
heimamelum í sumar.
Glæsileg verðlaun verða veitt
að fullyrða að þarna mun verða
í öllum greinum og mun óhætt
margan fagran gæðing að líta.
(Fréttatilkynning)
Frá lögreglunni
Á LAUGARDAGINN varð harð
ur bifreiðaárekstur í Öxnadal
klukkan 14.00, skammt sunnan
Engimýrar. Mættust þar jeppa-
bíll með fjórum mönnum á leið
vestur og vörubíll á leið austur
og voru tveir menn í honum.
Bílarnir köstuðust báðir út af
veginum og vörubíllinn valt á
hliðina og skemmdust þeir
mikið. Okumaður jeppans var
lagður í sjúkrahús vegna
meiðsla en aðrir slösuðust ekki
að heitið gat.
Bifreið fór út af veginum
sama dag norðan Engimýrar og
skemmdist hún, en ökumaður,
sem var einn, slapp ómeiddur.
Aðiararnótt sunnudags var
bifreið stolið frá Holtagötu 9 á
Akureyri og fannst hún síðar
utan vegar á Vaðlaheiði, að því
er virtist eftir veltu. Ekki er
upplýst hverjir voru þarna að
verki, en það eru tilmæli lög-
reglunnar til þeirra, sem gefið
geta upplýsingar um mál þetta,
að láta um það vita. Bifreiðin
er A 3873, hvít að lit af Peugeot-
gerð, árgerð 1971.
Nokkrir hafa verið kærðir
fyrir ölvun við akstur, þrír um
helgina og tíu manns voru í
fangageymslum lögreglunnar
um síðustu helgi.
Þá gerðist það aðfararnótt
sunnudagsins, að maður einn ók
um á ofsahraða og hélt síðan
austur í Þingeyjarsýslu. Lög-
reglan elti hann bæði hér og
fyrir austan en missti af honum.
Síðdegis á sunnudag var þessi
ökumaður stöðvaður af lögregl-
unni á Akureyri, skammt frá
bænum, og er mál hans nú í
rannsókn. Er maðurinn grunað-
ur um ölvun við akstur, en var
ódrukkinn er hann náðist síð-
degis á sunnudag.
(Samkvæmt viðtali við Gísla
Ólafsson yfirlögregluþjón).
Kartöflugrösin farin
að stinga upp kolli
ÞRJÁR vikur eru liðnar síðan
fyrstu kartöflurnar voru settar
niður í garðlönd þau, sem bær-
inn leigir bæjarbúum. í fyrstu
görðunum voru kartöflugrösin
komin upp fyrir kuldakastið.
Bærinn leigir út um 3 ha. af
garðlöndum og skilar þeim full-
unnum til niðursetningar og
sáningar matjurta.