Dagur - 29.05.1974, Page 4
Skriístofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Súnar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÖHANN K. SIGURÐSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
Tvennar kosningar
BÆJAR- og sveitarstjómarkosning-
ar fóru fram á sunnudaginn. Alþing-
iskosningar fara fram 30. júní. I’essi
mikla kosningahryna eykur umræð-
ur um stjórnmálin, kemur nokkm
róti á hugi manna og á að skýra
kjósendum hin ýmsu þjóðfélagsmál,
sem nú eru á baugi.
Bæjarstjórnarkosningarnar færðu
Sjálfstæðisflokknum verulegan sigur
í heild, Framsóknarflokkurinn hélt
sínu fylgi nokkurn veginn, einnig
Alþýðubandalagið og vel það, en Al-
þýðuflokkurinn og Samtök frjáls-
lyndra töpuðu verulega og er ljóst,
að það fylgi hefur að verulegu leyti
aukið fylgi Sjálfstæðisflokksins.
í Reykjavík kom þetta glöggt í
ljós og þar jók Sjálfstæðisflokkurinn
fylgi sitt vemlega. Markmið vinstri
fíokkanna, að fella íhaldsmeirihlut-
ann, mistókst. Virðist þetta meðal
annars svar borgarbúa við nýjum
flokksbrotum og valdabrölti hinna
ýmsu, er telja sig öðrum betur til
foringja fallna og freista þess að
safna um sig fylgi í nýjum flokkum
eða samtökum. Þessum foringjum er
trúlofunarhætt fyrir kosningár og
sumir visna með flokksbrotum sín-
um að þeim loknum.
Hér á Akureyri hefur komið upp
sama staða í bæjarstjórn, sem vinstri
flokkarnir í borgarstjórn Reykjavík-
ur hafa lengi þráð og kej)j)t að, þ. e.
vinstri flokkarnir hafa meirihlutann
í bæjarstjóm, hver sem framvinda
málanna verður.
Framundan eru svo alþingiskosn-
ingamar. Sigur Sjálfstæðisflokksins í
bæjarstjórnarkosningunum var ekki
eigin verðleikum að þakka og er frá-
leitt að taka of mikið mið af þeim
við alþingiskosningar. Jafn stefnu-
laus hentistefnuflokkur og íslenski
Sjálfstæðisflokkurinn er, er ekki vax-
andi trausts verður, enda mun það
sýna sig í kosningum 30. júní, að úr-
slit verða á arinan veg. Um það er að
sjálfsögðu kosið hvort vinstri öflin í
landinu eigi að fara áfram með völd,
til þess að tryggja byggðastefnuna í
verki á næstu árum. Til þess einnig
að fylgja landhelgismálinu eftir og
tryggja farsæla lausn varnarmálanna,
en ekkert þessara mála má þjóðin
lcggja í hendur SjálfstæðLsflokksins.
Síðast en ekki síst verður svo að fást
við vanda efnahagsmálanna, sem er
verkefni allra ríkisstjórna í landinu.
Valið verður landsbyggðarfólki
auðveldara nú en fyrr, svo mjög sem
hagur þess hefur batnað síðan geng-
isfellingum, atvinnuleysi og land-
flótta gömlu viðreisnarstjórnarinnar
linnti og ný og djörf framfarastefna
var ujjp tekin. □
Landgræðsluáætlnn 1974
•'■?**'*
VIÐTAL VIÐ JONAS JONSSON, AÐSTOÐARRAÐHERRA
FRÁ því var skýrt fyrir nokkru
hér í blaðinu að svonefnd Land-
nýtingar- og landgræðslunefnd
hefði skilað áliti — þar sem er
„Landgræðsluáætlun 1974—
1978“.
Skýrt var frá nokkrum helstu
atriðum áætlunarinnar, en hún
hefur vakið verðskuldaða
athygli. Blaðinu þótti því
ástæða til að kynna áætlunina
nokkru nánar og fékk því Jónas
Jónsson aðstoðarráðherra til að
svara nokkrum spurningum um
áætlunina og störf nefndarinn-
ar. Jónas var ritari nefndarinn-
ar en.formaður hennar var sem
kunnugt er Eysteinn Jónsson
alþingisforseti, auk þeirra voru
í nefndinni Haukur Ragnarsson
skógfræðingur, Ingvi Þorsteins-
son magister, Pálmi Jónsson
bóndi og alþingismaður, Sigurð-
ur Blöndal skógarvörður og Þor
valdur Jónsson bóndi á Guð-
rúnarstöðum.
Viltu skýra frá því fyrst hvert
var lilutverk Landnýtingar- og
landgræðslunefndar?
Nefndin var skipuð af land-
búnaðarráðherra 30. nóvember
1971. Verkefnið var að vinna að
því atriði stjórnarsáttmálans,
þar sem segir að gera skuli
„heildaráætlun um alhliða land-
græðslu og skipulega nýtingu
landsgæða.“
Nefndinni var falið að miða
tillögur sínar við það að hægt
yrði að minnast ellefu alda
byggðar í landinu með verðugu
heildarátaki í landgræðslu og
gróðurvernd svo og alhliða
skipulagningu á notkun lands-
gæða.
Nefndin gerði sér strax grein
fyrir að verkefnið var ákaflega
yfirgripsmikið og ekkert
áhlaupaverk að gera því nokkur
viðhlítandi skil. Það var í eðli
sínu tvíþætt: Að gera tillögur
um landgræðsluáætlun sem
væri byggð á þeirri þekkingu
sem fyrir hendi var og kostur
var að afla og í öðru lagi að
gera tillögur um það hvernig
unnið yrði að nauðsynlegri
"skiþulagningu á landnýtingu í
’ vlðfækustu merkingu þess orðs.
Ég hygg að öllum hafi strax
verið ljóst að á síðara sviðinu
yrði vart um annað að ræða frá
nefndarinnar hálfu en ábend-
ingar til að vekja umræður og
umhugsun um þetta umfangs-
mikla mál og að gera tillögur
um það hvernig að því verði
unnið í framtíðinni, og það tel
ég að nefndin hafi vissulega
gert.
Meginstarf nefndarinnar
beindist vissulega að fyrri þætt-
inum, landgræðsluáætluninni,
en hinum var þó verulegur
gaumur gefinn. Nefndin stóð að
ráðstefnu um landnýtingu, sem
haldin var á vegum Landvernd-
ar og fleiri aðila í Reykjavík 6.
og 7. apríl 1973. Erindi sem þar
voru flutt voru gefin út í bók,
er nefnist „Landnýting“ og er
3ja rit Landverndar. Landnýt-
ingarnefnd studdi útgáfu þeirr-
ar bókar og má líta á hana sem
fylgirit með nefndarálitinu.
Auk þess var leitað til Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga og
landshlutasamtaka sveitarfélaga
um tillögur í þessum efnum.
í nefndarálitinu eru svo
ákveðnar tillögur um það hvern
ig að þessum málum skuji unnið
í framtíðinni. Lagt er til að mál-
in verði í höndum sveitar- og
sýslufélaga, en landshlutasam-
tökum þeirra verði veittur fjár-
stuðningur til að aðstoða þau og
undirbúa áætlanir um landnýt-
ingarskipulag.
Hvað svp nieð aðal þátt nefnd
arálitsins, landgræðsluáætlun-
ina?
Nefndin ákvað strax í upphafi
starfsins að leita samstarfs við
heimaaðila í hverju héraði
landsins, þannig að áætlunin
kæmi eftir því sem tök væru á
frá þeim. Því var leitað til
stjórna allra búnaðarsambanda
og gróðurverndarnefnda í
hverju héraðp og þær beðnar
um sameiginlegt álit á ástandi
og nýtingu gróðurs í viðkom-
andi héraði og yfirlit yfir hvers-
konar landskemmdir sem þar
kynnu að eiga sér stað svo og
um tillögur til úrbóta. Farið var
fram á þetta fyrst með bréfum
en síðan voru haldnir furtdir
með stjórnum búnaðarsam-
banda og gróðurverndarnefnd-
um, og oft einnig öllum oddvit-
um af viðkomandi svæðum, og
málin rædd með þeim.
Skýrslur og álit bárust síðan
úr öllum héruðum landsins.
Þær eru birtar, sem fylgiskjöl
með nefndarálitinu. Þar er að
finna mjög mikinn fróðleik um
þessi efni, því að mörg búnaðar
sambönd og gróðurverndar-
nefndir lögðu í þetta mikla
vinnu. Oruggt er að þessum mál
um er nú verulega mikill gaum-
ur gefinn hvarvetna um landið
og menn gera sér ljóst að fara
verður með landið af skynsemi
og með fullri aðgát þannig að
það haldi gæðum sínum en
gangi ekki úr sér fyrir ranga
meðferð.
Auk þessa leitaði nefndin til
fjölmargra aðila, félaga og stofn
ana, sem gáfu álitsgerðir, veittu
aðstoð og góð ráð. Nefndin naut
fullrar aðstoðar Landgræðslu
ríkisins og þar með allrar þeirr-
ar reynslu og þekkingar á þess-
um málum sem þar var fyrir
hendi. Við Landgræðsluna var
besta samstarf bæði á meðan
Páls heitins Sveinssonar naut
við, og síðan við þá Svein Run-
ólfsson og Stefán H. Sigfússon,
eftir að Sveinn varð land-
græðslustjóri en Stefán land-
græðslufulltrúi. Þeir hafa báðir
unnið mjög mikið fyrir nefnd-
jna og með henni, og eiga stóran
hlut að verkinu.
Mikilvægar upplýsingar fékk
nefndin af gróðurkortum og úr
niðurstöðum af beitar- og gróð-
urrannsóknum Rannsóknar-
stofnunar landbúnaðarins, en
einn nefndarmanna, Ingvi Þor-
steinsson, hefur veitt þeim rann
sóknum forstöðu svo sem kunn-
ugt er. Ingvi stóð fyrir því á
vegum nefndarinnar að mæling
ar voru gerðar á gróðurlendi
eftir kortum í öllum þeim hér-
uðum, þar sem talið er að um
ofbeit kunni að vera að ræða.
Einn meginkafli nefndarálits-
ins, III. kafli, fjallar um gróður
og gróðurnýtingu í sýslum lands
ins. Þar er fjallað um hverja
sýslu fyrir sig, land flokkað með
tilliti til ástands gróðurs og jarð
vegs og þarfar fyrir landgræðslu
og gróðurvernd. Þar er lýst og
lagt mat á eftir því sem tölu-
legar upplýsingar eða aðrar
lágu fyrir. 1. Gróður- og jarð-
vegseyðingu. 2. Gróðurlendum
og nýtingu þeirra. 3. Jafnvægi
á milli eyðingar og græðslu.
4. Möguleika til hagsbóta.
5. Stærð óróins lands. Svo eru
birtar tillögur heimamanna til
úrbóta.
Þessi kafli er unninn með því
að draga saman þá þekkingu
sem ég nefndi að framan: Úr
skýrslum heimamanna, nirður-
stöðum gróðurrannsókna og
gróðurkorta, en þau hafa nú
verið gerð af öllu miðhálendinu
og meira til), skýrslum Land-
græðslu ríkisins og svo þeim
mælingum sem nefndin lét gera.
Varðandi skógræktarþáttinn
þá nutum við reynslu og þekk-
ingar skógræktarstjóra og starfs
manna hans, auk þess sem tveir
af nefndarmönnunum eru sér-
fræðingar í skógræktarmálum.
Jónas Jónsson.
Nú er þetta alhliða land-
græðsluáætlun. Hvernig var
samstarfið í nefndinni, þar sem
saman unnu menn Landgræðsl-
unnar, Skógræktarinnar og svo
sauðfjárræktarbændur?
Það var mjög gott. Allir voru
sammála um að við leituðumst
við að gera áætlun fyrir landið,
sem að fólkið allt sem í landinu
býr gæti staðið að.
Áætlunin á að miða að því að
bæta landið — ekki aðeins frá
búskaparsjónarmiði — ekki að-
eins fyrir bændur heldur fyrir
alla landsmenn. Bæjarbúarnir
taki þannig þátt í því að við
stöndum í skilum við landið og
þeir njóta þess einnig á marg-
víslegan hátt.
Það komu vissulega fram mis-
munandi sjónarmið á því í
nefndinni á hvað ætti að leggja
mesta áherslu í áætluninni. En
það réði að allir vildu sameinast
um áætlun, sem væri fyrir land
ið allt og fólkið allt í landinu.
Við nefnum þetta tillögur um
endurgjald þjóðarinnar til lands
ins.
Viss er ég um að við allir, sem
störfuðum í nefndinni með Ey-
steini Jónssyni og undir hans
forystu, erum þakklátir fyrir þá
reynslu að starfa með honum.
Það er hollur lærdómur yngri
mönnum að kynnast eldlegum
áhuga og hugsjónum sér eldri
manns eins og Eysteins.
Svo að við víkjum að áætlun-
inni sjálfri, getur þú sagt frá
aðalþáttum hennar?
í inngangi að sjálfri áætlun-
inni segir um markmiðið:
„Nefndin Icggur áherslu á, að
takmarkið hlýtur að vera:
a) að stöðva uppblástur, sand
fok og aðrar jarðvegseyðingu,
b) koma í veg fyrir hvers-
konar gróðurskemmdir og gróð-
urrýrnun,
c) koma gróðurnýtingu og
beit í það horf að gróðri fari
fram,
d) að friða þau skóglendi, sem
þess eru verð og tryggja, að þau
gangi hvergi úr sér,
e) leggja grundvöll að nýjum
skógum til fegrunar, nytja,
skjóls og útivistar, þar sem það
lientar,
f) stuðla að endurgræðslu ör-
foka og ógróinna landa, scm
æskilegt er að breytist í gróður-
lendi,
g) efla rannsóknir á þessum
sviðum, þannig að sem traust-
astur grundvöllur sé undir öllu,
sem gert er til að ná þessum
markmiðum:“
Áætlunin skiptist annars í
fjóra þætti.
I. Almenna gróðurvernd og
Iandgræðslu, það er þann hluta
málanna, sem er á vegum Land
græðslu ríkisins. Þar er lögð
mesta áhersla á stöðvun gróð-
urs- og jarðvegseyðingar og
stöðvun sandfoks. Til þess ætti
samkvæmt áætluninni að fara
505 milljónir eða helmingur alls
áætlunarfjárins. En eitt hundr-
að milljónir eru ætlaðar sem
mótframlög til einstaklinga og.
félaga sem leggja fé til land-
græðslu og gróðurverndar. Svo
sem upprekstrarfélaga, hrepps-
félaga eða annarra. Til land-
græðsluáveitna eru ætlaðar 45
millj. kr. og til ýmissa annarra
hluta 55 millj. kr.
II. Skógræktarþátturinn er
samanlagt upp á 165 milljónir,
þar vegur mest að ætlað er að
verja 100 milljónum til nýrra
svæða til skógræktar og skóg-
verndar, og sem jafnframt gætu
verið útivistarsvæði. Endur-
skipulagning plöntuframleiðsl-
unnar er næst stærsti liðurinn
með 32.5 milljónir. Er þar við
það miðað að teknar verði upp
nýjar aðferðir og meiri tækni
við framleiðslu skógarplantna,
sem gerði þær verulega ódýr-
ari, að mati kunnugra manna.
III. Þá er þriðji þáttur áætlun-
arinnar, sem fjallar um rann-
sóknir á sviði landgræðslu,
gróðurverndar og gróðurnýting
ar. Þar er gerð jarða- og gróður-
korta, með 20 millj. kr. í undir-
búningi hefur verið að taka upp
nýja tækni við gerð korta í stór-
um mælikvarða og er ætlunin
að gera gróður- og jarðakort af
öllum byggðum landsins með
þeirri aðferð.
Tilraunir með nýtingu og
aukningu beitargróðurs eru
gildur liður með 40 millj. kr.
Gerð hefur verið með aðstoð
sérfræðinga frá FAO víðtæk
áætlun um beitarrannsóknir á
afréttum, úthaga og ræktuðu-
landi. Þar verður kannað hvað
hagabætur — svo sem fram-
ræsla, áburðargjöf og græðsla
við mismunandi aðstæður gefa
af sér mælt í auknum afurðum
búfjárins — og hvaða áhrif mis-
munandi beitarálag hefur á
gæði og afrakstur gróðurlendis-
ins.
Til þessara víðtæku tilrauna
fæst stuðningur frá tækniaðstoð
Sameinuðu þjóðanna UNDP),
bæði í formi tækja, efnis og sér-
fræðilegrar aðstoðar. Það sem
hér er lagt til er hugsað sem
mótframlag íslands.
Þá er hugsað að verja nokkr-
um fjármunum til vistfræði-
legra rannsókna svo sem til at-
hugana á vistfræðilegum áhrif-
um áburðargjafar og framræslu
á úthaga o. s. frv. Einnig er
ætlað fé til að standa straum að
söfnun og prófun innlends og
erlends fræs til landgræðslu.
IV. í fjórða kafla áætlunar-
innar eru talin ýmis verkefni,
sem miða að því að bæta með-
ferð landsins, og að auðvelda
fólki að njóta þess og auka þekk
ingu þess á landniu og því
hvemig eigi að umgangast það
Kristján Ármannsson,
Kópaskeri.
Grírnur Jónsson,
Ærlækjarseli.
Nú hefur þessi áætlun enn
enga staðfestingu hlotið. Hvað
telur þú að um hana verði?
Henni hefur eftir því sem ég
best veit verið hvarvetna vel
tekið — og ekkert komið fram
sem bendir til annars en að um
hana geti orðið fullkomin ein-
ing. Það ætti að verða yfir öll
dægurmál hafið að þjóðin gerði
slíkt átak til að standa í skilum
við landið. Ég vona að sú
ákvörðun verði tekin á þjóð-
hátíðarfundi, segir Jónas Jóns-
son að lokum, og þakkar Dagur
hinar ágætu upplýsingar.
Ingi Tryggvason,
Kárhóli.
Grein þessi átti að birtast
fyrr en varð að bíða. Greinar-
höfundur mun leggja sitt lið
fram í núverandi kosninga-
baráttu og rita um stjórnmál.
Ritstjóri.
Hilmar Daníelsson,
Dalvík.
Heimir Hannesson,
Reykjavík.
Aðalfundir tryggingafélaganna
Valgerður Sverrisdóttir,
Lómatjöm.
Guðmundur Bjarnason,
Húsavík.
Jónas Jónsson,
Reykjavík.
Ingvar Gíslason,
Akureyri.
AÐALFUNDIR Samvinnutrygg
inga, Líftryggingafélagsins And-
vöku og Endurtryggingafélags
Samvinnutrygginga h.f. voru
haldnir að Hótel Sögu 10. maí.
Meðal fundarmanna voru að
þessu sinni í fyrsta skipti tveir
fulltrúar starfsmanna félaganna,
en tryggingafélög samvinnu-
manna munu vera þau einu hér
á landi, sem hafa á aðalfundum
sínum sérstaka fulltrúa úr hópi
starfsmanna.
Iðgjaldatekjur.
í skýrslu stjórnarformanns,
Erlendar Einarssonar forstjóra,
og framkvæmdastjóra, Ásgeirs
Magnússonar, kom m. a. fram,
að heildariðgjaldatekjur Sam-
vinnutrygginga sl. ár námu
661,8 millj. kr. Höfðu þær auk-
ist um 58,7 millj. kr. eða tæp
10% frá fyrra ári, en þá ber
þess að gæta, að vegna breyttra
gjalddaga ábyrgðartrygginga
bifreiða voru bókfærð iðgjöld
þessara trygginga á árinu 1973
aðeins fyrir 10 mánuði á móti
16 mánaða iðgjöldum, sem bók-
færð voru árið 1972.
Heildargjaldatekjur Líftrygg-
ingafélagsins Andvöku námu
15,6 millj. kr. og höfðu aukist
um 3,9 millj. eða 32,8% frá fyrra
ári. Bókfærðar iðgjaldatekjur
Endurtryggingafélags Sam-
vinnutrygginga h.f. námu 217,5
millj. og höfðu aukist um 118,1
millj. eða 118,9%. Námu því
iðgjaldatekjur allra félaganna
samtals á árinu 1973 894,9 millj.
kr. á móti 714,2 millj. 1972 og
jukust um 180,7 millj. eða rösk
25%.
Tjón og endurgreiðslur.
Heildartjón Samvinnutrygg-
inga, greidd og áætluð ógreidd,
námu 506,5 millj. kr., og varð
tjónaprósentan 76,54 á móti
63,63 1972. Verulegur halli varð
á bifreiðatryggingum áttunda
árið í röð, og óvenjulega slæm
útkoma og tap varð á fiskiskipa-
tryggingum og slysatryggingum
bátasjómanna vegna mikilla
skipstapa og fjölda sjóslysa.
Þrátt fyrir aukin tjón í þessum
greinum og hækkandi reksturs-
kostnað • varð hagnaður af
rekstri Samvinnutrygginga, sem
að vísu nam ekki nema rúmlega
1% af heildariðgjaldatekjunum,
og verður endurgreiddur tekju-
Þorsteinn Björnsson,
Ólafsfirði.
Björn Hólmsteinsson,
Raufarhöfn.
Stefán Valgeirsson,
Auðbrckku.
afgangur til tryggingartaka 6,4
millj. kr.
Stjórn og framkvæmdastjóra-
skipti.
í stjórn félaganna voru endur
kjörnir þeir Erlendur Einarsson
forstjóri, formaður, Ingólfur
Olafsson kaupfélagsstjóri og
Ragnar Guðleifsson kennari.
Aðrir í stjórn eru Jakob Frí-
mannsson fyrrv. kaupfélags-
stjóri og Karvel Ogmundsson
útgerðarmaður.
Þá urðu framkvæmdastjóra-
skipti hjá félögunum hinn 15.
þ. m., eins og SF hafa áður
skýrt frá. Ásgeir Magnússon lét
af því starfi, og á fundinum og
í hófi, sem stjórn félaganna hélt
fulltrúaráðsmönnum og nokkr-
um gestum að honum loknum,
flutti stjórnarformaður félag-
anna, Erlendur Einarsson, hon-
um sérstakar þakkir fyrir góð
störf í þágu félaganna og óskaði
honum allra heilla í nýju starfi.
Jafnframt óskaði hann hinum
nýju framkvæmdastjórum félag
anna, þeim Hallgrími Sigurðs-
syni og Jóni Rafni Guðmunds-
syni, farsældar í störfum.
(Úr Sambandsfréttum)
•1978 Framboðslisti Fra
og hvað beri að varast í því
efni:
Hér kemur ýmislegt til. Stuðn
ingur við gerð afréttarvega um
landið, sem jafnframt yrðu úti-
vistarvegri. Þeir mundu auð-
velda rétta nýtingu afréttar-
landa og einnig gera fólki kleift
að komast víðar um óbyggðir og
njóta þeirra á friðsamlegan hátt.
Þá er ætlað. -fé til að launa
beitarráðunaut og til að styrkja
fraeðslu- og upplýsingastarfsemi
Landverndar.
Áæthmin er miðuð við fimm
ár og er fénu ekki skipt niður
á árin
Nei, en það er ætlast til að í
reynd verði peningarnir látnir
halda verðgildi sínu. Nefndin
leggur síðan til að komið verði
á fót samstarfsnefnd þeirra
stofnana, sem vinna að þessum
málum, ög mundu eiga hlut að
'framkvæmd landgræðsluáætlun
arinnar. Ráðherra skipi for-
mann þessarar nefndar en í
henni yrðu: landgræðslustjóri,
skógræktarstjóri og forstjóri
Rannsóknarstofnunar landbún-
aðarins. Ætlað er að samstarf
þessarra aðila að landgræðslu-
áætluninni gæti orðið upphaf
að varanlegra og víðtækara sam
starfi þessarra aðila.
í Norðuriandskjördæmi evstra
FRAMBOÐSLISTI Framsóknar
flokksins í Norðurlandskjör-
dæmi eystra var ákveðinn á
aukakjördæmisþingi í Félags-
heimili Glæsibæjarhrepps 19.
maí. Kosningaundirbúningur
fyrir þessar alþingiskosningar
er skammur að þessu sinni. Því
veldur brotthlaup Samtaka f.
og v. manna úr ríkisstjórn-
inni, sem leiddi til þingrofs og
nýrra kosninga, sem fram fara
30. júní næstkomandi. Núver-
andi ríkisstjórn hefur setið að
völdum í tæp þrjú ár.
Dagur hefur áður sagt frá
framboðslistanum en birtir nú
myndir af frambjóðendum
flokksins í þesu kjördæmi. Þar
sem bæjarstjórnarkosningum er
lokið hefst undirbúningur al-
þingiskosninganna af fullum
krafti, væntanlega með funda-
höldum, svo sem venja er, en
eflaust einnig með málflutningi
frambjóðenda hér í blaðinu.
Listann skipa:
1. Ingvar Gíslason, Akureyri.
2. Stefán Valgeirsson,
Auðbrekku.
3. Ingi Tryggvason, Kárhóli.
4. Kristján Ármannssqn,
Kópaskeri. " . ™
5. Hilmar Daníelsson, Dalvík.
6. Heimir Hannesson,
Reykjavík.
7. Grímur Jónsson, "t
Ærlækjarseli. |1
8. Valgerður Sverrisdóttir, ‘
Lómatjörn. '|
9. Þorsteinn Björnsson, v
Ólaísfirði. j
10. Guðmundur Bjarnason, |
Húsavík. 'I
11. Björn Hólmsteinsson, i'
Raufarhöfn. '
12. Jónas Jónsson, Reykjavík.