Dagur - 01.06.1974, Blaðsíða 8
Akureyri, laugardaginn 1. júní 1974
Silfurfingur-
bjargir.
Fermingar-
gjafir,
mikið úrval.
4 Áhugamenn um landgræðslu munu senn taka sér fræ og áburð í hönd til að græða gróðurlaust
<*> land og vel sé öllum, er það gera. Þessi mynd er frá siðasta sumri og þarf ekki skýringar við.
^ (Ljósm.: Fr. V.)
í heimsókn
ÓLAFUR Noregskonungur
kemur til Akureyrar 5. júní
með fríðu föruneyti, norsku,
ásamt íslensku forsetahjónun-
um,^oitanríkisráðherra og ýms-
um iiðrum gestum, í opinbera
heimsókn.
Komið verður á Akureyrar-
flugvöll kl. 15.55 og mun þar,
ef aö líkum lætur, verða margt
um manninn. Um 20 manns
verður í föruneyti konungs og
fjöldi norskra fréttamanna. Þá
verða þarna einnig margir ís-
lenskir blaðamenn og verður
sérstaklega greitt fyrir starfi
þeirra, að því er ráðuneytið
tjáði blaðinu.
Klukkan 14.30 verður komið
að Hótel KEA og hálftíma síðar
verður farin skoðunarferð um
Alcureyri. Lýkur henni klukk-
an fyrir kvöldverð á Hótel
KEA, og er hann kl. 19.30, í
Koði bæjarstjórnar Akureyrar.
Kvöldverði lýkur kl. 22.30 og
þá verður ekið til Akureyrar-
flugvallar og er heimsókninni
þar með lokið. Áætlaður komu-
t'ími til Reykjavíkur er klukkan
23.40 eða tuttugu mínútum fyrir
miðnætti.
Ymsir fyrirmenn bæjarins,
svo sem bæjarstjóri, bæjar-
fógeti, bæjarfulltrúar og ýmsir
aðrir verðugir, verða í boði
bæjarstjórnar og með í för um
Akureyri.
Frá skrifstofum bæjarins hef-
ur eftirfarandi borist:
ÍLUGVÉL konungs og forseta
íslands kemur kl. 15.45. Aðal
móttakan fer fram á Akureyrar
flugvelli. Móttökunefnd bæjar-
ins: Jón G. Sólnes, Bjarni Ein-
arsson, Stefán Reykjalín og
Gísli Jónsson. Auk þessara
manna og eiginkvenna þeirra
r
Áfifælt Imb
ÁTTFÆTT lamb eða tvö lömb
samvaxin, þó með eitt höfuð,
fæddist á Gunnarsstöðum í
Þistilfirði. Það drapst í fæðing-
unni. Q
taka á móti konungi Ófeigur
Eiríksson og frú.
Á flugvelli leikur Lúðrasveit
Akureyrar og Gígjurnar ásamt
félögum úr karlakórum bæjar-
Ólafur Norcgskonungur.
Ekið frá flugstöð um Eyja-
fjarðarbraut að Hótel KEA.
Þaðan eftir stutt stopp upp
Kaupvangsstræti, Eyrarlands-
veg, vestur Hrafnagilsstræti,
norður Þórunnarstræti, vestur
Þingvallastræti, norður Hamra-
gerði, suður Kotárgerði, austur
Akurgorði, norður Mýrarveg,
austur Hamarsstíg, norður Þór-
unnarstræti, norður Glerár-
götu, austur Tryggvabraut,
suður Hjalteyrargötu, vestur
Strandgötu, norður Brekkugötu
að Amtsbókasafni. Þaðan að
Hótel KEA um Gránufélags-
götu, Hólabraut og Hafnar-
stræti.
Að Hótel KEA verður kvöld-
verður til heiðurs Noregskon-
ungi og þaðan verður farið um
miðnættið aftur að flugvelli,
þaðan sem konungur og fylgdar
lið flýgur til Reykjavíkur.
(F réttatilkynning)
FRAMSÓKNARFLOKKUR-
INN hefur markað sér skýra
stefnu í kjaramáum adraðra og
mótað afstöð sína mjög greini-
lega í þeim efnum. í því sam-
bandi ber fyrst og fremst að
nefna hina ýtarlegu ályktun
flokksþings Framsóknarmanna
1971 um velferðarmál aldraðra.
Þó að ekki hafi tekist á hinum
stutta valdarerli ríkisstjórnar
Ólafs Jóhannessonar að koma á
æskilegu íramtíðarskipulagi líf-
cyrismála. og annarra velferðar-
mála aldraðs fólks, þá er það
eigi að síður eitt af afrcksverk-
um vinstri stjórnarinnar,
hversu miklar réttarbætur hafa
náð fram að ganga í þágu aldr-
aðra á þriggja ára valdatíma
hennar. Þar ber hæst þá ákvörð
un ríkisstjórnarinnar að jafna
og bæta kjör gamals fólks með
svonefndri tekjutryggingu og
með því að vísitölutryggja elli-
lífeyri. Bæði þessi atriði voru
skýr stef nuskrármál F ram-
sóknarflokksins, þegar núver-
andi ríkisstjórn var mynduð,
enda er það kjarninn í stefnu
Framsóknarflokksins að því er
varðar velferðarmál, að öldruðu
fólki séu tryggðar lÍLvænlegar
lágmarkstekjur og sæmandi að-
búð og aðhlynning. Vegna þess-
arar stefnu og ráðstafana ríkis-
stjórnarinnar hefur einhleyping
ur möguleika á því að fá u. þ. b.
225 þús. kr., en hjón full 400
þús. kr. sem árlegar peninga-
tekjur. Tekjutryggingin cr fvrst
og fremst því fólki til hagsbóta,
sem ekki nýtur réttinda í líf-
eyrissjóði. Tekjutryggingar-
ákvæðin eru því nauðsynlegt
réttlætismál meðan ekki er
komin réttlót skipan á lífeyris-
kerfið í heild.
í þessu sambandi vil ég
minna á, að það er gamalt og
nýtt stefnuskráratriði Fram-
sóknarflokksins að koma upp
samræmdu lífeyrissjóðakerfi
fyrir alla landsmenn. Núver-
SMATT & STORT
VORU MEÐ POKA
Margt er haft í poka og það
sem er í poka þykir stundum
grunsamlegt. Fyrir skömmu
gerðist það, ekki langt frá bæn-
um, að það sást til fólks með
poka úti á víðavangi og var þá
fylgst með ferðum þes. En það
kom þá í Ijós, að þetta var fólk
frá Akurcyri, í pokunum
snemmslegin lóöataða og þetta
fólk fann sér gróðurlausa bletti,
losaði þar poka sína og dreifði
innihaldinu. Það vildi græða
gróðursárin, og þökk sé því.
ANNAÐ ERINDI
Sama dag og á svipaðar slóðir
komu einnig menn úr bænum.
Þeir voru með skotvopn og
mikið af tómum flöskum. Skot-
mennirnir Iétu sér ekki annt
um fósturjörðina eins og poka-
fólkið, því að glerbrotin, skot-
hylkin og raunar fleiri óæskileg
ir lilutir báru því vott, er þeir
yfirgáfu staðinn. Þessir lilutir
vitnuðu um kærulausa sóða.
BRETAR IÐNIR VIÐ
BJÓRINN
Atvinnuleysi, verkföll og orku-
skortur virðast síður en svo
draga úr bjórþambi Breta.
Fyrstu 10 mánuði ársins, sem
leið, hafði bjórsalan aukist um
5,8% frá árinu áður.
Drykkjuskapur unglinga hef-
ur færst í aukana, og afbrotuin
fjölgar þá einnig. Slík afbrot
unglinga innan 18 ára hafa tvö-
faldast á sjö árum.
(Heimild: The Journal)
Áfengisvarnaráð.
GAMLAR VÖRUR
Stundum berast kvartanir yfir
því að vörur, t. d. niðursoðnar,
séu orðnar of gamlar þegar þær
eru seldar. Blaðið hefur engin
tök á að sannprófa þá hluti.
Þar sem öflug neytendasamtök
starfa, svo sem í nágrannalönd-
unum, þarf fólk almennt minni
^líyffgjur að hafa af þessum
hlutum og á auðvelt með að
reka réttar síns þegar út af ber.
Því iniður virðist það koma
fyrir hér á Akureyri, að vörur,
sem erlendis liafa gengið úr
km aSdrsðra
andi skipulag þessara mála er
stórgallað Qg fullt af misrétti,
sem hingað til hefur verið erfitt
að leiðrétta að fullu vegna and-
spyrnu forráðamanna lífeyris-
sjóða þeirra, sem best kjör geta
veitt. Má segja, að þessi and-
spyrna sé ágætt dæmi um það
„smákóngaveldi“, sem ríkis-
stjórn og Alþingi eiga iðulega í
höggi við, •— og gildir þá einu
hverjir sitja í ríkisstjórn og
hafa méirihluta á Alþingi. Ég
vil leggja áherslu á það, að
endursk ipulagning lífeyrissj óða
kerfisins er nauðsynja- og rétt-
lætismál. Að því vilja Fram-
sóknarmenn vinna. Það ber að
steína að sem mestum jöfnuði
að því er varðar ellitekjur
manna og tryggja öldruðu fólki
líívænlegar peningatekjur á
grundvelli réttláts lífeyrissjóða
kerfis og almannatrygginga.
Ingvar Gíslason.
gildi fyrir mánuðum, svo sem
ujnbúðir greina, séu seldar hér
við fullu verði.
VERÐMERKIN G AR
Verðmerkingum í auglýsinga-
gluggum verslana er víða ábóta
vant þótt sltyldugar séu. Ilinir
ahnennu kaupendur gera eklci
kröfur til þessa, og þeir gera of
lítið að því að bera saman vöru-
verð verslananna. Eflaust á hin
mikla og langvinna verðbólga
og síbreytilegt verðlag verulega
sök á þessu. Hinir almennu
neytendur eiga örðugt með að
fylgjast nægilega vel með vöru-
verðinu, svo sem þó er nauð-
synlegt, og haía auk þess mikil
áuraráð. En allt þetta slævir til-
finninguna fyrir vöruverði og
virðingu fyrir peningum. Al-
menningur veitir ekki verslun-
um nægilegt aðhald hvað snert-
ir vörugæði og verðlag.
ÁSTIN f AUGLÝSINGUM
Ást og kyntöfrár er meðal hins
algengasta í auglýsingum
margra vara. Falleg stúlka borð
ar eitthvað gómsætt á auglýs-
ingamyndum eða er látin njóta
sín vel við hliðina á þeirri vöru,
sem verið er að auglýsa til sölu
og á þessu sviði fækkar fötun-
um jafnt og þétt, og er það eins-
konar áherslumerki á gæðum
vörunnar.
ÞAÐ NÝJASTA
Það nýjasta í þessu efni er loðn-
an, sá ágæti nytsemdarfiskur,
sem Japanir kaupa við háu
verði og borða með góðri lyst.
Nýlega var haldin kynning á
íslenzkum vörum í Höfn, m. a.
niðursoðinni kvenloðnu. Þar
var sagt frá hinum sérstæðu
áhrifum, sem þeir njóta er
neyta, og þar vitnað til karla í
Japan, er lengi hefðu neytt þess
arar töfrafæðu til að auka kyn-
máttinn. Þar í landi væri það
auk heldur talin ástarjátning, ef
kona gæfi karlmanni fisk þenn-
an til átu.
SÁRREIÐUR SÍMNOTANDI
Húsmóðir í bænum, sárreiður
símnotandi, hringdi til blaðsins
í gær og kvartaði undan þjón-
ustu Landssímans. Hún sagði,
að frá því breyting var gerð á
símnúmerum í bænum væri hið
mesta ólag á þeim símum. Mað-
ur kemur inn á samtöl, jafnvel
símarifrildi á milli hjóna, þetta
er eins og sveitasími þar sem
öll sveitin getur hlustað á sam-
tölin. Það geta e. t. v. einhverjir
haft af því skemmtun að hlusta
á hvað aðrir segja í síma, en þá
verður maður einnig að hugsa
til þess, að segja ekkert það í
síma, sem óæskilegt er að fjölcli
manns geti hlustað á, sagði
konan.
LÉLEG ÞJÓNUSTA
Nú vil ég leggja fram þá spurn-
ingu, hvort mönnum finnist það
réttlátt að greiða fullt verð fyr-
ir svona þjónustu, sagði konan
ennfremur. í verslunum fær
maður afslátt á skemmdri eða
gallaðri vöru. Eigum við ekki
rétt á því einnig, aö fá afslátt
á þessari keyptu þjónustu hjá
Landssímanum?
Blaðið kemur þessari ádrepu
sárrciðs símnotanda hér með á
framfæri og vísar í því efni til
(Framhald á blaðsíðu 2)