Dagur - 12.06.1974, Blaðsíða 1
DAGUR
LVII. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 12. júní 1974 — 25. tölublað
Sláttur hafinn
SLÁTTUR hófst á nokkrum
bæjum í Eyjafirði í síðustu viku
og er spretta víða að verða góð,
jafnvel komið kafgras á friðuð-
um, nýlegum og vel ræktuðum
túnum. Er heyskaparbyrjun nú
allt að mánuði fyrr en á síðasta
sumri. Fyrst mun hafa verið
slegið 4. júní. □
Háiíðdrhöldin
17. júní 1974
f ÁR sér íþróttafélagið Þór um
hátíðarhöldin 17. júní, en venja
hefur verið að íþróttafélögin og
skátafélögin hafi séð um hátíðar
höldin á 17. júní til skiptis.
Hátíðarhöldin hefjast með
skrúðgöngu frá Ráðhústorgi á
íþróttavöllinn, en þar fara aðal
hátíðarhöldin fram. Auk fastra
liða eins og ávarps Fjallkonunn
ar, hátíðarræðu og ávarps ný-
stúdents, fer þar fram fimleika-
sýning 200 stúlkna úr skólum
Akureyrar, kórsöngur og knatt-
spyrna. Barnadansleikur verður
á Ráðhústorgi milli kl. 17 og 19
og almennur dansleikur um
kvöldið frá kl. 21—01 ef veður
leyfir.
Vegna þjóðhátíðarhaldanna
seinna í sumar verður ekki um
neina sérstaka kvölddagskrá að
ræða.
Dagskráin verður auglýst
nánar í blöðum og með götu-
auglýsingum.
(Fréttatilkynning)
Dagum
kemur næst út á laugardaginn,
15. júní.
■iiiiiiiiiiiiiiiiiiiii iii iiiiiiiiiiiiinnmii n iiiii ii
| Æftjörðin þarfnast
j landsbyggðar. Lands- j
| byggðin þarfnast ör- |
| uggrar forystu, eins og |
! hún hefur notið síðustu |
! árin. !
■ iliilmiimiin iiii tiiniiii iii iiiiiini n ii in i in 11111111 ■n>i
SJOMANNADAGURINN var
að vanda haldinn hátíðlegur á
Akureyri. Á laugardaginn fór
Ólafur Jóhannesson.
r
ÓLAFUR Jóhannesson forsætis
ráðherra mætir á almennum
stjórnmálafundi B-listans á
Hótel KEA föstudaginn 14. júní
og ræðir stjórnmálaviðhorfið.
Sjá auglýsingu á öðrum stað.
kappróður fram og tóku 12
sveitir þátt í honum. í kvenna-
keppninni sigruðu konur frá
Kjötiðnaðarstöð KEA, í keppni
milli byggðarlaga sigruðu ræð-
arar af Árskógsströnd eins og
vanalega, af sveitum land-
manna sigraði Vatnsveitan og
áhöfn Súlunnar bar sigur af
áhöfnum annarra skipa og ungl-
ingasveit sigraði Stormsveit,
sem er skellinöðruklúbbur.
Á sunnudaginn hófust hátíða-
höldin með sjómannadagsguðs-
þjónustu sem séra Birgir Snæ-
björnsson flútti. En klukkan
FYRSTI fundur nýkjörinnar
bæjarstjórnar Akureyrar var
haldinn í gær. Með fundi þess-
um var tekinn í notkun nýr
fundarsalur bæjarstjórnar á
efstu hæð ráðhússins.
Bæjarstjórnarfundurinn hóst
klukkan fjögur. Bjarni Einars-
son bæjarstjóri las upp kjörbréf
hinnar nýkjörnu bæjarstjórnar,
en síðan tók aldursforsetin, Jón
G. Sólnes, við fundarstjórn. Þá
kvaddi sér hljóðs utan dagskrár
hálf tvö safnaðist fólk að Sund-
lauginni, en þar lék Lúðrasveit-
in og Gígjan söng. Ávarp fyrir
hönd útgerðarmanna flutti Vil-
helm Þorsteinsson og fyrir hönd
sjómanna Baldvin Þorsteinsson.
Heiðraðir voru Friðþjófur
Gunnlaugsson og Karl Krist-
jánsson.
í stakkasundi sigraði Kristján
Vilhelmsson og bestur í björg-
unarsundi var Örn Birgisson.
Atlastöngina, sem nú var um
keppt eftir nokkurra ára hlé,
vann Kristján Vilhelmsson. í
reiptogi yfir laugina vann sveit
Sigurður Óli Brynjólfsson og
las upp svofellda yfirlýsingu:
Bæjarfulltrúar Fram-
sóknarflokksins (B-listans),
Samtaka vinstri manna og
Alþýðuflokksins (J-listans)
og Alþýðubandalagsins (G-
listans) lýsa yfir, að þeir
munu starfa saman í bæjar-
stjórn Akureyrar á kom-
andi kjörtímabili.
Flokkarnir munu vinna.
Slippstöðvarinnar og drógu þeir
áhöfn Súlunnar í laugina. Verð-
laun fyrir best verkaðan fisk,
fluttan að landi á sl. ári, hlaut
Harðbakur, skipstjóri Sverrir
Valdimarsson.
Dansleikið voru á laugardags-
og sunnudagskvöldið.
Fjölmenni var á útihátíðinni
við Sundlaugina.
Formaður Sjómannadagsráðs
var Jónas Þorsteinsson, og
stjórnaði hann hátíðahöldunum.
E. D. tók þessa mynd af há-
tíðarhöldunum við Sundlaugina
á Sjómannadaginn. Q
að framgangi ákveðinna
verkefna, sem grundvallast
á stefnuyfirlýsingum þeirra
og samkvæmt nánara sam-
komulagi þeirra í milli.
Forseti bæjarstjórnar var
kjörinn Valur Arnþórsson,
fyrsti varaforseti Freyr Ófeigs-
son og annar varaforseti Soffía
Guðmundsdóttir. Bæjarstjóri
var kjörinn Bjarni Einarsson
mðe atkv. allra bæjarfulltrúa.
Fyrsti bæjarstjórnarfundurinn
Varnarmálin og kosningarnar
Einar Ágústsson,
utanríkisráðherra.
í MOLDVIDRI kosningabarátt-
unnar hefur aftur og aftur verið
reynt að afflytja stefnu Fram-
sóknarflokksins í varnar- og
öryggismálum. Þess vegna
finnst mér ástæða til þess í ör-
stuttu máli að skýra hana nokk-
uð nánar.
Það hefur aldrei verið mein-
ing okkar Framsóknarmanna
að rjúfa samstarfið við vestræn-
ar þjóðir. Það er beinlínis tekið
fram í málefnasamningnum að
samstarfinu við Atlantshafsrík-
in skuli haldið áfram. Við Fram
sóknarmenn höfum alltaf lagt á
það höfuðáherslu, að eiga sam-
vinnu og samstarf við Atlants-
hafsríkin og að Island verði
áfram aðili að NATO. Það hefur
aldrei komið til greina að rjúfa
þessa samstöðu.
Eins er þessu farið að því er
varðar herstöðvarmálin. Enda
þótt við stefnum að því, að hér
verði ekki her á friðartímum,
þá hefur það verið og er ásetn-
ingur olckar að vinna að þessu
stefnumáli okkar í fullri sam-
vinnu við Bandaríkin og fram-
kvæma það í fullri vinsemd við
þá. Þannig hefur verið haldið á
málinu og þannig verður haldið
á því meðan við Framsóknar-
menn förum með það. Við leggj-
um höfuðáherslu á, að eiga góð
samskipti og samvinnu við
Bandaríkin og Atlantshaísríkin
og munum því vinna að stefnu-
málum okkar um herlaust land
á friðartímum í fullri vinsemd
við Bandaríkin og finna lausn á
því máli í samræmi við það.
Þetta á ekki að vera erfitt í
framkvæmd, enda hafa Banda-
ríkjamenn sýnt skilning á sjén-
armiðum okkar. Markmið okk-
ar er að tryggja sjálfstæði og
öryggi íslands og íslensku þjóð-
arinnar fyrst og fremst með
aðild að Atlantshafsbandalag-
inu og meö því að tryggja banda
mönnum okkar aðstöðu til þess
að halda áfram eftirliti sínu í
Norðurhöfum, jafnframt því
sem aðstaða sé fyrir hendi til
varna með skjótum hætti, ef
ófriðarblika skyldi koma upp,
en á friðartímum verði hér ekki
erlendur hér.
Þessi stefna er hvorki stefna
Sjálfstæðisflokksins um varan-
lega hersetu og óbreytt ásand,
(Framhald á blaðsíðu 2)