Dagur - 12.06.1974, Blaðsíða 5
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓHANN K. SIGURÐSSON
Prentverk Odds Bjömssönar h.f.
UM HVAÐ
VERÐUR KOSID ?
ÁÐUR en kjósendur ganga að kjör-
borðinu hinn 30. júní n. k. ættu þeir
að íhuga vel höfuðeinkenni tveggja
kjörtímabila og bera þau saman,
árin 1967—1971 og núverandi kjör-
tímabil, því þá kemur í ljós, hvort
hyggilegra muni að treysta Fram-
sóknarflokknum eða Sjálfstæðis-
flokknum til stjórnarforustu, en
annar hvor þessara tveggja flokka
munu fara með stjórnarforustuna á
næsta kjörtímabili, aðrir flokkar
koma þar ekki til greina. Það er aug-
ljós blekking, sem talsmenn Alþýðu-
bandalagsins halda fram, að þeir sem
vilji vinstri stjórn, geti ekki látið
vilja sinn í ljós á annan hátt en að
kjósa Alþýðubandalagið. Hefur ekki
verið vinstri stjórn í landinu í tæp
3 ár? Er það ekki Framsóknarflokk-
urinn, sem hefur haft stjórnarfor-
ustu í þessari vinstri stjórn? Er það
hugsanlegt að vinstri stjórn verði
aftur mynduð að kosningum lokn-
um, ef Framsóknarflokkurinn fær
ekki tilskilinn þingstyrk? Getur
nokkrum blandast hugur um þetta?
Þegar fjórir af fimm þingmönnum
Frjálslyndra og vinstri manna höfðu
snúið baki við stjórn Ólafs Jóhannes
sonar svo að liún hafði misst meiri-
hluta sinn á Alþingi, var um tvennt
að velja. Að stjómin segði af sér eða
að rjúfa þingið og efna til kosninga.
Sá kostur var valinn að rjúfa þingið,
fremur en að láta gömlu viðreisnar-
flokkana taka við stjóm landsins
ásamt ævintýramönnunum Hanni-
bal, Birni og Karvel. Á það skal
reyna, hvort þjóðin kýs heldur slíka
stjórn eða vinstri stjórn, sem fengi
umboð nægilega margra til að halda
uppbyggingarstarfi sínu áfram. Um
þetta er kosið. Það er því kosið um
stjórn og stjórnarforustu Framsókn-
arflokksins, um það hvort hann eigi
að halda áfram forustu um atvinnu-
uppbygginguna í landinu. Hvort
hann eigi að fá tækifæri til að koma
landhelgismálinu heilu í höfn, svo
þjóðin fái notið þess, að efnahagslög-
sagan verði 200 sjómílur áður en
langt um líður. En þannig hefur
verið haldið á því máli að hálfu ráð-
herra Framsóknarflokksins að ekki
virðist nema seiling í að 200 mílna
efnahagslögsagan náist. Hver vill
svo hætta á að láta þá flokka, sem
gerðu samningana við Breta og
Vestur-Þjóðverja 1961 hafa forastu
um að ná þessu marki. □
Landsbyggðarfó
vill vinstri stjórn
SVAR TIL ISLENDINGS:
isflokkurinn skildi vii
STEFAN VALGEIRSSON SVARAR N0KKRUM
SPURNINGUM BLAÐSINS UM BYGGÐASTEFNUNA
S T E F Á N VALGEIRSSON,
bóndi að Auðbrekku, Hörgár-
dal, skipar 2. sæti á lista Fram-
sóknarflokksins í Norðurlands-
kjördæmi eystra. Stefán hefur
setið á Alþingi, eins og kunnugt
er, síðastliðin 7 ár og liggur
ekki á liði sínu. Hann er fæddur
áð Auðbrekku 20. nóv. 1918.
Foreldrar hans, Anna Einars-
dóttir og Valgeir Árnason,
bjuggu á Auðbrekku, en 1948
tóku synir þeirra við jörðinni,
þeir Stefán og Þórir og hafa
búið þar síðan félagsbúi. Stefán
er búfræðingur frá Hólum í
Hjaltadal. Árið 1948 kvæntist
hann Fjólu Guðmundsdóttur
frá Bölmóðsstöðum í Laugardal
ög hafa þau eignast 6 börn, 3
syni og 3 dætur. Elsti sonur
þeirra, Valgeir, fórst í flugslysi
fyrir nokkrum árum.
Blaðið átti við Stefán eftirfar-
andi viðtal um helgina.
Er ekki kosningabaráttan haf-
in að fullum krafti?
Við höfum haldið fundi á
Grenivík og Melum í Hörgár-
dal og við munum mæta á ýms-
um stöðum í kjördæminu flest
kvöld fram að kosningum, ann-
að hvort á fundum eða á sam-
komum. Þessir tveir fundir hafa
verið mjög ánægjulegir, og það
er þá fyrst og fremst þrennt
sem ég vil nefna, sem fram kom
á fundunum. í fyrsta lagi eru
menn ánægðir með hina alhliða
uppbyggingu, sem hófst með til
komu núverandi ríkisstjórnar,
t. d. í þessu kjördæmi og hvað
henni hefur miðað ótrúlega vel,
þó ekki séu liðin nema tæp 3 ár
síðan stjórnarskiptin urðu. f
þessu sambandi tala menn um
að verkin tali og það er það
mál sem almenningur ætti að
skilja og skilur. Menn leggja
ríka áherslu á að þessi uppbygg
ing verði að halda áfram. En af
reynslu viðreisnaráranna óttast
menn mjög að það verði ekki,
ef sú ógæfa ætti að henda þjóð-
ina að Reykjavíkurauðvaldið
næði tökum á stjórn landsins að
kosningum loknum. Þetta við-
horf speglast í gegnum viðræð-
ur við mjög marga án tillits til
þess hvar í flokki þeir standa
eða hafa staðið. Hitt er svo ann-
að mál að það finnst alltaf einn
og einn, sem er svo lokaður að
engar staðreyndir geta lokið
upp augum hans. í öðru lagi eru
menn sammála um það að for-
ustumenn Framsóknarflokksins
hafi teflt landhelgismálið af
raunsæi og festu og að það sé
fyrst og fremst þeirra verk og
ekki síst Olafs Jóhannessonar
forsætisráðherra og Einars
Ágústssonar utanríkisráðherra,
sem leiddi til þess að bjarga
þessu máli heilu í höfn. Margir
telja að sigurinn í landhelgis-
NÚ á 1100 ára afmæli íslands-
byggðar hefur Lögmannafélag
fslands ákveðið að reisa minnis-
varða að Breiðabólstað í Vestur
hópi í Húnavatnssýslu með
áletrun, er minni á að landslög
voru fyrst skrásett á Breiðaból-
stað veturinn 1117—1118 „at
Hafliða Mássonar".
. Mál þetta hefur verið í undir-
búningi í vetur og var endanleg
ákvörðun tekin á aðalfundi fé-
lagsins, sem haldinn var 30.
mars sl., og var stjórn félagsins
falið að sjá um framkvæmdir.
Steiniðja S. Helgasonar h.f. hef-
ur tekið að sér að gera og reisa
deilunni sé einn stærsti sigur,
sem þjóðin hefur unnið fyrr og
síðar. í þriðja lagi vakti það
mjög athygli mína hvað hlut-
fallslega stór hluti fundar-
manna hefur verið ungt fólk, en
það er mikil breyting frá því
sem áður var.
Vaxandi áhugi ungs fólks?
Yfirleitt hefur unga fólkið
sýnt stjórnmálabaráttunni mik-
ið tómlæti. En nú er sýnilega
að vakna áhugi þess í vaxandi
mæli á þessum málum og það
er mikil uppörvun að tala við
þetta fólk og fá tækifæri til að
skyggnast inn í hugarheim þess.
Ég hygg nú að hin mikla fylgis-
aukning, sem Sjálfstæðisflokk-
urinn fékk í bæjar- og sveitar-
stjórnarkosningunum hafi ýtt
við ýmsum, sem fram að þeim
tíma létu sig stjórnmál litlu
skipta. Og meira að segja sumir
þeirra, sem létu ginna sig til að
kjósa Sjálfstæðisflokkinn í bæj-
ar- og sveitarstjórnarkosningun
um geta nú vart til þess hugsað
að viðreisnarstjórnin með þeim
Geir og Gylfa í öndvegi verði
endurvakin að kosningum lokn-
um. Ég hef orðið áþreifanlega
var við þetta undanfarna daga,
ekki síst hjá ungu fólki.
Hver eru mestu áhugamál
þessa fólks?
Þau eru nú æði mörg, enda
ástæður og viðhorf mismun-
andi. Það er mikið spurt um
frumvarp það, sem forsætisráð-
herra lagði fram á Alþingi um
efnahagsmál og þá fyrirvara,
sem við það voru gerðir. Sumt
af þessu fólki er í þann veginn
að stofna heimili og er þá að
velta fyrir sér hvaða möguleik-
Túnsbergi, 10. júní. Líklega hef
ur fáa órað fyrir því í vetur,
þegar þykk klakahella huldi
alla jörð, að vorið yrði slíkur
draumur, sem raun hefur á orð-
ið, hvað þá að komið yrði sláttu
hæft gras á tún í byrjun júní-
mánaðar. Þetta er þó staðreynd
og mun sláttur hefjast á næstu
dögum, ef til þess viðrar.
Sauðburður gekk vel og án
teljandi vanhalda nema á ein-
um bæ, þar sem talsvert margt
fullorðið fé drapst, auk ung-
lamba. Ekki er kunnugt hvað
valdið hefur. Bændur munu
ekki gera nóg af því að senda
varðann, sem afhjúpa á laugar-
daginn 20. júlí n. k.
Stjórn félagsins hefur nýlega
farið norður að Breiðabólstað
og valið varðanum stað með
samþykki dóms- og kirkjumála-
ráðuneytisins og ábúanda, en
Breiðabólstaður er kirkjujörð.
Stjórn L.N.F.Í. skipa nú eftir
síðasta aðalfund hæstaréttarlög
mennirnir: Páll S. Pálsson for-
maður, Sveinn H. Valdimarsson
varaformaður, Skúli Pálsson rit
ari, Guðjón Steingrímsson gjald
keri og Ragnar Aðalsteinsson
meðstjórnandi. O
ar séu fyrir hendi og verði fyrir
hendi að kosningum loknum til
að komast yfir húsnæði. Fáir
eru í vafa um hvað viðreisnar-
flokkarnir muni gera, komi það
í þeirra hlut að hafa forustu.
Það verði gengisfelling og vaxta
hækkun.
Stefán Valgeirsson.
En hvað munið þið gera?
Það er alltof langt mál til þess
að fara út í það í svona viðtali.
En í frumvarpi um viðnám
gegn verðbólgu og aðrar ráð-
stafanir til að stuðla að jafn-
vægi í efnahagsmálum, sem for-
sætisráðherra lagði fram og tal-
aði fyrir á síðustu dögum þings-
ins, felast okkar tillögur og fólk
ætti að kynna sér efni þeirra.
Framsöguræða forsætisráð-
herra, sem hann flutti fyrir
þessu frumvarpi var birt í Tím-
anum 1. júní sl.
Þetta fólk spyr einnig mikið
um þennan sýndarmálflutning
Sjálfstæðismanna, er þeir báru
fram tillögur um miklar fjár-
sýni til rannsókna að Tilrauna-
stöðinni á Keldum, en það er þó
megin forsenda þess, að komast
megi fyrir orsök sjúkdóma og
girða fyrir útbreiðslu þeirra, ef
smithættir reynast.
Kartöflur munu vera ræktað-
ar í líkum mæli og sl. ár, en sú
ræktun fer þó frekar minnk-
andi. Á sama tíma eykst kart-
öflurækt í Höfðahverfi og til
dæmis um það mun um 16—17
hekturum meiri kartöflurækt á
Áshóli og Laufási en áður og
þar er véltæknin að halda inn-
reið sína við uppskerustörfin,
sem gerir mögulegt að hafa
stærri svæði undir.
Sex ibúðarhús eru jrú í bygg-
ingu í hreppnum, þar af fjögur
á Svalbarðseyri. Húsbyggjend-
ur þar tóku snemma til starfa
í vor, sem vænta mátti. Sáust
stundum barnavagnar við hús-
grunna á meðan mæðurnar
lögðu hönd að smíði. Þá eru tvö
stórfjós (kútel) í byggingu,
annað á Efri-Dálksstöðum en
hitt á Gautsstöðum, fyrir meira
en 100 gripi hvort. Þá eru uppi
hugmyndir um byggingu
hænsnasláturhúss og iðnaðar-
húsnæðis á Svalbarðsströnd, en
ekki hef ég glöggar fréttir af
því að sinni.
Sjósókn hér er vart hægt að
telja. Þó hafa nokkrir eldri
menn það fyrir sitt trimm að
róa til fiskjar og afla þeir oft
drjúgt, þeirra á meðal fyrrv.
veitingar til ýmissa verkefna,
t. d. hér í kjördæminu, en vilja
jafnframt lækka skattheimtu
ríkisins um 4 milljarða á árs-
grundvelli, samanber frumvarp
er þeir lögðu fram á Alþingi í
vetur. Og til eru þeir, sem átta
sig ekki íullkomlega á því að
þetta tvennt getur engan veg-
inn farið saman.
Hverju viltu spá um niður-
stöður kosninganna? Verður
vinstri stjóm áfram?
Ég held að það sé best að spá
engu. Mér dettur ekki í hug að
leyna því að mér urðu það sár
vonbrigði hvað Sjálfstæðisflokk
urinn bætti víða miklu við sig
í bæjar og sveitarstjórnarkosn-
ingunum í síðasta mánuði, sér-
staklega á Akureyri. Mér finnst
hin málefnalega staða okkar
það sterk að þessi niðurstaða sé
tæplgea skýranleg. Hitt kom
mér ekki eins á óvart, fylgis-
aukning þeirra Sjálfstæðis-
manna á suðvestur horninu, því
það er mála sannast að þar er
uppi hafður sá áróður, að á sl.
þremur árum hafi allt of miklu
fjármagni verið beint út á land-
ið, skattheimta ríkisins ætti að
stórlækka, og má þá ljóst vera,
niður á hverjum það myndi
koma, ef framkvæmt yrði. Það
er sýnilegt að þessi áróður hef-
ur náð sínum tilgangi og ætti
að verða til þess að vara lands-
byggðarfólkið við. Sjúkrahús-
bygging, vegagerð og hafnir
verða tæpast byggðar án mikils
fjármagns, og er það öllum
Ijóst. Faxaflóasvæðið er orðið
sæmilega sterkt að þessu leyti.
Við Norðlendingar höfum greitt
í hinn sameiginlega sjóð eins og
aðrir, hver eftir efnum og ástæð
hreppstjóri vor, Jóhannes í
Tungu, 83 ára og er manna harð
astur í sókninni.
Ábúendaskipti urðu á Veiga-
stöðum í vor. Eiríkur Geirsson
bóndi þar og systkini hans,
Ragnar og Halldóra, munu flytj
ast til Svalbarðseyrar þar sem
þau eiga nú hús í smíðum. Nýr
ábúandi Veigastaða er Jóhann-
es Halldórsson frá Sveinbjamar
gerði. Hyggst hann stunda þar
uxaeldi í Texas-stíl.
Vegagerðin hefur fyrir
skömmu hafið framkvæmdir
við endurbyggingu þjóðvegar-
ins frá Halllandi, áleiðis norður
eftir. Vænta menn þess, að rösk
legar verði unnið en á sl. hausti,
en þá þóttu vinnubrögðin í lak-
asta lagi. Þó tókst Vegagerðinni
að búa til eina blindhæð í við-
bót við þær, sem fyrir voru, og
er framkvæmdin sögð hafa
kostað „aðeins fjórar milljónir".
í sambandi við umferðarslys
sl. fimmtudag, er Skodabíll með
A-merki fór í loftköstum yfir
urð og grjót og eina girðingu,
uns hann stöðvaðist gjörónýtur,
er öruggt að það er ekki Vega-
gerðinni að þakka, að þá og oft-
ar urðu ekki banaslys á blind-
hæðum vegarins. Má það heita
furðulegt, að ekki skuli fyrir
lifandi löngu verið gerðar tvær
akreinar á þessum stöðum, því
víðast er það hægt án mikils
kostnaðar. * Sv. Lax.
Lögin fyrst skráð
Fréttabréf af Svalbarðsströnd
vegamál Eyfirðinga í algjörum ólestri
Hindraði framgang vegaáætlunar í vor og
neitaði að fylgja f járöflun til vegamála.
um og þannig staðið undir
þeirri uppbyggingu sem gerð
hefur verið þar á liðnum árum.
En nú er komið að okkur með
sjúkrahús, vegagerð, hafnir,
heilsuhæli og margt fleira. Get-
ur það verið að einhverjir Norð
lendingar hti svo á, að það sé
eitthvert réttlæismál að nú,
þegar loksins er komið að okk-
ur, verði gerðar ráðstafanir til
að torvelda framkvæmdir hér á
þessum sviðum? Að vísu hefur
það sýnt sig að fólk kýs ekki
eins til bæjar- og sveitarstjórn-
ar, og til Alþingis. En enginn
vafi er á því að þessar kosning-
ar geta komið ýmsum á óvart.
Ef stjórnarflokkarnir fá meiri-
hluta í kosningunum, þá liggur
það beint við að stjórnarsam-
starfið haldi áfram, ef samkomu
lag næst um lausn þeirra vanda
mála sem fyrir hendi verða að
kosningum loknum. Við eigum
að vinna eftir málefnum. Það
þarf að jafna kjörin og minnka
aðstöðumuninn í þjóðfélaginu.
Ég tel að því marki verði frem-
ur náð í samstarfi við Alþýðu-
bandalagið en Sjálfstæðisflokk-
inn. Um aðra flokka þarf tæp-
ast að tala eins og nú er komið.
Framsóknarflokkurinn er eini
landsbyggðaflokkurinn. Það er
að segja; hann er eini flokkur-
inn sem hefur aðal fylgi sitt
utan Faxaflóasvæðisins. Af því
leiðir að oft verða árekstrar á
milli okkar og allra hinna flokk
anna um ýmis mál er varða
landsbyggðina. Þar vilja rekast
á hagsmunir. Um slík mál verð-
Mývatnssveit, 10. júní. í Skútu-
staðahreppi hafa komið fram
tveir listar við sveitarstjórnar-
kosningarnar, sem fram eiga að
fara 30. júní n. k. Þeir eru: H-
listi, borinn fram af Jóni B.
Sigurðssyni og Sigurbirni Sör-
enssyni, og I-listi, borinn fram
af Jónasi Sigurgeirssyni, Þor-
grími Starra Björgvinssyni,
ívari Stefánssyni o. fl.
Fimm efstu menn H-listans
skipa: Jón Illugason, fyrrv. úti-
bússtjóri, Helluhrauni 15, Arn-
þór Björnsson, hótelstjóri, Aust
urhlíð, Jón Aðalsteinsson, Vind-
belg, Hallgrímur Þórhallsson,
bóndi, Vogum og Hólmfríður
Pétursdóttir, húsfrú, Víðihlíð.
Fimm efstu sæti I-listans
skipa: Sigurður Þórisson, odd-
viti, Grænavatni, Arngrímur
Géirsson, kennari, Skútustöð-
um, Böðvar Jónsson, bóndi,
Gautlöndum, Björn Ingvason,
bóndi, Skútustöðum og Ey-
steinn Sigurðsson, bóndi, Arnar
vatni.
í kosningu til sýslunefndar
hefur komið fram einn listi. Á
honum er núverandi sýslu-
nefndarmaður, Helgi Jónasson,
hreppstjóri á Grænavatni, og er
hann því sjálfkjörinn.
Hafinn er undirbúningur á
rannsóknum þeim, sem fara
eiga fram við Kröflu í sumar.
Lagning vegar norður að
iiiiiiiiiiiiiiiiiiMiimiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiuiii
I Sundruð flokksbrof
! lengsf til vinstri gera I
jengum gagn nema
i íhaldinu. j
iiiiiiiniiiiiiiiiiii ■11111111111111111111 iiiiiiiiiiiiiiiiíiiiiiiii
ur að semja í stjórnarsamstarfi.
Ég geri ráð fyrir vegna reynslu
undanfarinna ára þá verði að
gera nýjan stjórnarsáttmála ef
umræddir flokkar fá hreinan
meirihluta að kosningum lokn-
um. Eftir því sem þingstyrkur
okkar verður meiri er líklegra
að okkur takist að þoka fram
þeim málum, er við berum mest
fyrir brjósti.
Klofningur á vinstri væng?
Víst gæti hann leitt til þess,
og á því leikur enginn vafi, að
ein ástæðan fyrir sigri Sjálf-
stæðisflokksins í bæjar- og
sveitarstjórnarkosningunum er
þetta umrót og brölt fámennra
hópa og þó sérstaklega forustu-
manna þeirra, sem vilja telja
þjóðinni trú um að þeir, og
eigin sögn barist fyrir því langa
lífdaga að sameina alla jafnaðar
og samvinnumenn í flokk. Hann
hefur að eigin sögn hætt öllum
afskiptum af stjórnmálum. En
hver er árangur af hans við-
leitni? Reynsla hans ætti að
kenna öðrum. Það ætti að liggja
ljóst fyrir að skipting þeirra,
sem hafa lík lífsviðhorf, í marga
flokka, er fyrst og fremst hagur
Sjálfstæðisflokksins.
Stefán Valgeirsson hefur ekki
að sinni tíma til að ræða stjórn-
málin frekar því að margir
aðrir eiga við hann erindi, og
þakkar blaðið viðtalið. Q
Kröflu er hafin. Boranir munu
líklega hefjast seint í þessum
mánuði eða um næstu mánaða-
mót. Kröflusvæðið er af þeirri
gerð, sem jarðfræðingar nefna
öskjur og eru á því mjög fjöl-
breytilegar jarðmyndanir frá
hinum ýmsu skeiðum jarðsög-
unnar, þær yngstu frá Mývatns
eldunum, sem hófust með
sprengigosi í Kröflu 17. maí
1724 eða fyrir réttum 250 árum.
Undanfarin ár hefur lítillega
borið á því að um hvítasunnu-
helgar að ungt fólk hafi heim-
sótt Mývatnssveit í þeim til-
Sauðárkróki, 10. júní. Aðalfund
ur Kaupfélags Skagfirðinga var
haldinn á Sauðárkróki 31. maí
og 1. júní. 52 fulltrúar frá 13
félagsdeildum sóttu fundinn,
auk deildarstjóranna og félags-
stjórnar.
Formaður kaupfélagsstjórnar,
Gísli Magnússon, setti fundinn
og minntist í upphafi Tobíasar
Sigurjónssonar fyrrv. stjórnar-
formanns, sem lést á sl. ári, er
gegnt hafði því starfi lengur en
nokkur annar. Formaður flutti
síðan skýrslu félagsstjórnar og
gerði grein fyrir framkvæmd-
um kaupfélagsins á árinu og
ber þar hæst bygging hins nýja
og fullkomna sláturhúss, sem
tekið var í notkun á sl. hausti.
Helgi Rafn Traustason, kaup-
félagsstjóri, flutti ítarlega
skýrslu um rekstur og hag fé-
lagsins á liðnu ári. Kom þar
m. a. fram, að sl. ár var heildar-
velta K. S., innlendra og er-
lendra vara ásamt þjónustusölu,
947 milljónir króna og hafði sú
velta hækkað um 294 milljónir
„ÍSLENDINGUR“ býsnast yfir
því nýlega, að dráttur verður á
nokkrum vegaframkvæmdum í
landinu, m. a. í Eyjafjarðar-
sýslu.
En hver er orsökin?
Hún er m. a. sú, að Sjálfstæð-
ismenn gerðu allt, sem þeir
gátu til þess að hindra fram-
gang vegaáætlunar í vor og
sýndu engan lit á því að styðja
nauðsynlega og eðlilega endur-
skoðun á fjáröflun til vegafram-
kvæmda á árinu 1974 og næstu
einsdæmi í þingsögunni, að fjár
öflun til vegamála sé stöðvuð
með þessum hætti.
Sjálfstæðismenn geta sjálfum
sér um kennt, ef dráttur verður
á vegaframkvæmdum í ár. Það
má „þakka“ það Sjálfstæðis-
mönnum, ef ekki tekst að halda
vegaframkvæmdum áfram með
þeim hraða, sem áætlað var.
Til upprifjunar mætti minn-
ast þess, að Sjálfstæðismenn,
sem réðu vegamálum í 12—13
ár samfleytt, skildu við vega-
mál Eyfirðinga í megnasta
ólestri. Núverandi ríkisstjórn
og stuðningsflokkar hennar
hafa í reynd aðeins haft mögu-
gangi einkum að þjóna Bakkusi.
Núna um hvítasunnuna voru
heldur meiri brögð að þessu en
áður og þegar hópur, sem tjald-
aði nálægt Grjótagjá yfirgaf
staðinn, sáu menn ljótari við-
skilnað á tjaldstæði en áður hef-
ur sést hér. Ægði þar saman alls
konar rusli, tómum brennivíns-
flöskum og reiðhjólum, sem
stolið hafði verið af krökkum
hér á staðnum. Fulltrúar Nátt-
úruverndarráðs, sem hér voru
staddir í síðustu viku, skoðuðu
vegsummerkin og tóku myndir
af ósómanum. J. I.
eða um 34%. Þegar lagt hafði
verið í varasjóð og eignir félags
ins afskrifaðar um 62 milljónir,
sýndi reikningsuppgjör 6,4
millj. kr. hagnað, sem aðalfund-
urinn ráðstafaði þannig, að 300
þús. kr. voru lagðar í Menning-
arsjóð K. S., 100 þús. kr. til
Skógræktarfélags Skagfirðinga
og 6 milljónir voru greiddar í
stofnsjóð félagsmanna.
Félagsmenn í K. S. eru 1351
í þrettán félagsdeildum. Fjöl-
mennasta deildin er Sauðár-
króksdeild með 530 félagsmenn.
Fastráðið starfsfólk um síðustu
áramót var 158 og hafði fjölgað
um 13 á árinu.
Úr stjórn félagsins áttu að
ganga Jón Eiríksson, Djúpadal,
og Gunnar Oddsson, Flatar-
tungu. Kosnir voru Gunnar
Oddsson og Jónas Haraldsson,
Völlum, þar sem Jón Eiríksson
gaf ekki kost á sér til endur-
kjörs. í varastjórn eru: Magnús
Gíslason, Geirmundur Jónsson
og Árni Bjarnason. G. Ó.
leika til þess að ákveða frám-
lög til vegamála í 2 ár, þ. e. árin
1972 og 1973. Það var sannar-
lega ætlunin að halda áfram á
sömu braut á þessu ári og hin-
um næstu, en eftir að ríkis-
Ingvar Gíslason.
stjórnin missti meirihluta sinn
í neðri deild Alþingis og íhaldið
fékk vald til þess að stöðva mál
í deildinni, reyndist ógerningur
að koma þeirri stefnu fram með
fullum þunga.
Reynt að halda í horfinu.
Rétt er að taka fram, að ríkis-
stjórnin hefur ákveðið, að stefnt
verði að vegaframkvæmdum á
þessu ári sem næst þeim tillög-
um, um hækkun fjárveitinga
vegna verðbreytinga eins og
gengið var út frá í tillögu til
þingsályktunar um vegaáætlun
fyrir árin 1974—1977, enda fyrir
hugað að leggja vegaáætlunina
ÞAR sem afmælishátíðir fara
að hefjast um land allt á elfefu
alda afmæli byggðar á íslandi
vill þjóðhátíðarnefnd 1974 nOta
tækifærið, og þakka samstarf
við byggðanefndir um mikils-.
verðan undirbúning, sem nú er
að ljúka.
Fyrstu þjóðhátíðirnar hefjast
17. júní. Þann dag verður efnt
til afmælishátíða á sjö stöðum á
landinu. Hátíðirnar verða að
Varmá í Mosfellssveit, í Ólafs-
fjarðarkaupstað, að Laugum' í
Reykjadal, Höfn í Hornafirði,
Kleifum við Kirkjubæjarklaust
ur, Selfossi og í Garðahreppi.
Hátíðin á Selfossi stendur dag-
ana 15.—17. júní, en hinar
standa einn dag.
Síðan verður efnt til hátíða
um hverja helgi í júní og júlí og
í byrjun ágústmánaðar víðsvég-
ar um landið.
Þjóðhátíðarnefnd 1974 vill í
þessu sambandi b.enda fólki á,
að hinar ýmsu byggðir háfa lágt
í mikinn kostnað fyrir utan fyr-
irhöfn, við undirbúning hátíða-
haldanna. í flestum byggðum
hafa forráðamenn hátíða látið
gera minjagriþi, bæði til að
minna á merkan atburð í sögu
byggðarinnar, og einnig til að
afla fjár til hátíðahaldsins. Þá
hefur þjóðhátíðarnefnd 1974 gef
ið út minjagripi í sama skyni.
Það er von þjóðhátíðarnefndar
fyrir sumarþing að afloknum
kosningum og knýja á um sam-
þykkt hennar. Vonandi stendur
þá ekki á Sjálfstæðismönnum
að samþykkja óhjákvæmilega
fjáröflun til vegamála, ef þá
verður yfirleitt þörf fyrir at-
kvæði þeirra.
Með þessari ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar er reynt að halda
í horfinu um vegagerð sem
framast er unnt. M. a. verður
haldið áfram framkvæmdum
við hraðbrautina norðan Akur-
eyrar (um Lónsbrú) fyrir 46
milljónir kr. Þá er að því stefnt
að gera brú á Reykjadalsá í
Suður-Þingeyjarsýslu og aðra á
Seljadalsá hjá Einarsstöðum.
Ingvar Gíslason.
Nýr Ægir I
HIÐ nýja skiþ Landhelgisgæsl-
unnar, sem nú er í smíðum í
Árósum, verður væntanlega til-
búið til afhendingar í desember
á þessu ári.
Smíðin hefur gengið vel og
engar óvenjulegar tafir hafa
orðið þar á.
Teikningar að skipinu eru
fengnar frá skipasmíðastöðinni
í Álaborg og eins er mikið af
efni í smíðina fengið þaðan.
Skipið er af sömu stærð og
Ægir, og mun bera öll helstu
einkenni hans.
Meðal nýjunga i skipinu er
þverskrúfa í stefni, og þjónar
hún einkum þeim tilgangi, að
skipið geti betur snúið við í
þröngum höfnum — en sá ljóð-
ur virðist vera á, að skrúfan
kann að draga úr hraða skips-
ins. □
1974 að fólk láti sér annt um að
eign&st þessa 1 minjagripi, sem
bæði hafa mikið verðgildi sem
söfnunargripir og auðvelda auk
þess nefndum að standa fjár-
hagslega undir kostnaði við
hátíðahöldin.
Þegar þjóðhátíðirnar eru að
hefjast er þjóðhátíðarnefnd 1974
þó efst í huga að þær megi fara
vel fram og vera landi og þjóð
til sóma í hvívetna. Enginn und
irbúningur eða góður vilji ör-
fárra undirbúningsaðila getur
ráðið úrslitum í því efni. Þar
ráða þjóðhátíðagestirnir sjálfir
mestú. Því heitir þjóðhátíðar-
nefnd 1974 á landsmenn að taka
nú höndum saman og láta
hvergi koma blett á þær hátíðir,
sem fyrir dyrum standa.
Frá upphafi undirbúnings-
hátíðahaldanna í landinu hefur
það verið einn og óskiptur vilji
allra hátíðanefnda að áfengis
yrði ekki neytt á þjóðhátíðun-
um. Þjóðhátíðarnefnd 1974 skor
ar því á hátíðagesti um allt land
að þeir firri hátíðirnar þeim
vandkvæðum, sem fylgja áfeng-
isneyslu, enda nógir aðrir dagar
til slíkrar iðju.
Líf þjóðarinnar í ellefu aldir
rís hærra en svo að hægt sé að
óvirða minninguna um það með
vanhugsaðri framkomu og
drykkjulátum. Q
Fréttabréf úr MfyatnssYeitimii
J
raunar þeir einir, séu þess um-
komnir að leiða þjóðina út úr
öllum vanda. Hannibal hefur að ^ ^r. ® eftir. Mun það allt að því
Aðalfundur K. S., Sauðárkróki
ÁSKORUN FRA ÞJOÐHATIÐARNEFND:
Áfengislausar þjóðhátíðir