Dagur - 12.06.1974, Blaðsíða 8
Akureyri, miðvikudaginn 12. júní 1974
STÚ-
DENTA-
SKEIÐAR
SMÁTT & STÖRT
Nemcndur og skólastjóri á matsveinanámskciðinu í vctur. (Ljósniyndastofa Páls)
Frá Húsmæðrdskóla Akureyrar
KONUR OC KARLAR SÓTTU SKÓLANN
HÚSMÆÐRASKÓLA Akureyr
ar var slitið 31. maí. Geysi mikil
aðsókn var að skólanum í vetur
og komust mun færri að en
sóttu.
Skólinn var rekinn í nám-
skeiðsformi og standa hin mis-
munandi námskeið yfir í allt
frá 1 viku til 5 mánaða.
Starfsáætlun skólans miðast
bæði við kennslu fyrir byrjend-
ur í matreiðslu, hússtjórn, saum
um og vefnaði og endurhæfingu
fullorðinna í sömu greinum, þar
sem t. d. í matreiðslu og nær-
ingarefnafræði eru kynntar og
kenndar ýmsar nýjungar sem
stuðla að hollari mataræði.
Bæði karlar og konur sóttu
skólann frá öllum landsfjórðung
um, þó flestir frá Akureyri og
nágrenni.
Meðal annars eru rekin nám-
skeið fyrir matsveina á fiski- og
flutningaskipum á hverjum
vetri og fyrirlestranámskeið fyr
ir starfandi ráðskonur og að-
stoðarfólk þeirra.
Verið er að endurbæta skóla-
húsnæðið smátt og smátt og er
öll aðstaða til kennslu að verða
hin ákjósanlegasta.
Tyeir fastir kennarar starfa
við skólann, þær Ingunn Björns
dóttir og Ólöf Þórhallsdóttir,
auk skólastjóra, Margrétar
Kristinsdóttur.
Mikill áhugi ríkir meðal Akur
eyringa á starfsemi skólans,
sem sýnir sig meðal annars í
því að 360 nemendur sóttu skól-
ann í vetúr og þegar hafa 214
LÖGREGLAN lét blaðinu í té
eftirfarandi í gær:
í fyrrinótt valt bíll á Öxna-
dalsheiði og skemmdist, en öku-
maður, sem var einn í bílnum,
slapp ómeiddur. Hann var á
vesturleið, hafði tekið bílinn í
heimildarleysi á Akureyri og
var grunaður um ölvun.
Annar bíll valt skammt frá
Moðruvöllum í Hörgárdal. Þrír
farþegar sluppu ómeiddir og
ökumaður lítt meiddur.
Þá lenti bíll út af veginum
nemendur verið skráðir á nám-
skeið fyrir næsta vetur.
Ástæða er til að greina frá
skiptingu námskeiðanna nokkru
nánar, því að það gefur innsýn
í skólastarfið.
Sýnikennslunámskeið í
smurðu brauði og stutt nám-
skeið fyrir húsmæður í glóðar-
steikingu, gerbakstri og síldar-
SUÐUR-Þingeyingar ætla að
halda tvöfalda hátíð um næstu
helgi og slá saman 17. júní-
hátíðahöldum og þjóðhátíð sýsl-
unnar. Formaður þjóðhátíðar-
nefndar cr Jóhann Skaptason,
en framkvæmdastjóri Arnaldur
Bjarnason.
Blaðið ræddi örlítið um þessa
fyrirhuguðu stórhátíð, sem hald
in verður ó Laugum, við fram-
kvæmdastjórann.
Á sunnudaginn 16. júní verða
á Laugum sýningar þingeyskra
bókmennta, málaralistar og
vefnaðar. Þá verður og sýnd
héraðskvikmynd, sem gerð hef-
ur verið í tilefni þjóðhátíðar.
Sennilega standa sýningarnar
fleiri daga.
Á mánudaginn 17. júní verð-
ur aðal hátíðin. Hátíðina setur
Jóhann Skaptason, hátíðakvæði
flytur Heiðrekur Guðmunds-
son, en séra Sigurður Guð-
mundsson prófastur flytur guðs
þjónustu. Kirkjukórasambandið
skammt frá og annar hjá Kamb
hóli, en ekki urðu þar slys á
fólki.
Einn var tekinn fastur á
fimmtudag, í bænum, grunaður
um ölvun við akstur, annar á
föstudag og fjórir um .helgina
til viðbótar.
Þá komu um helgina fram
tvær kærur út af líkamsárásum
í heimahúsum. Urðu hjón fyrir
meiðingum á öðrum staðnum,
en maður einn á hinum. Ölvun
gesta er um kennt. Q
og fiskréttum voru haldin.
Þá var tveggja mánaða kvöld
námskeið í matreiðslu og voru
á því 5 karlar og 11 konur.
Þá var haldið í skólanum
tveggja mánaða námskeið í mat
reiðslu fyrir matsveina á fiski-
og farskipum og voru þar 8
piltar og 4 konur. Mikill hluti
nemendanna voru nemendur
M. A. og fengu þeir þetta nám-
skeið viðurkennt sem valgrein
sinni í námi. (Framh. á bls. 2)
og Karlakór Reykdæla syngja.
Dr. Jónas Kristjánsson frá
Fremstafelli flytur hátíðarræðu.
Keppt verður við Víkverja í ís-
lenskri glímu, þjóðdansar sýnd-
ir og sýning verður ó hrossum
og búnaði þeirra frá fyrri tím-
um, er þeir voru „þarfasti þjónn
inn“. Og að sjálfsögðu verður
dansað af miklu fjöri.
Svo sem sjá má á upptalning-
unni verður margt að heyra og
sjá ó Laugum um helgina, þótt
blaðið kunni ekki að segja röð
skemmtiatriðanna á mánudag-
inn. Á þennan hátt ætla Þing-
eyingar að halda reglulega
mikla og myndarlega hátið og
hefðu e. t. v. fleiri átt að hafa
þennan hátt á. Q
FÖSTUDAGINN 7. þ. m. var
fundur haldinn að Meium í
Hörgárdal. Ingvar Gislason setti
þennan fund og tilnefndi sem
fundarstjóra Stefán Halldórs-
son, hreppstjóra á Hlöðum.
Frummælendur á fundinum
voru Valgerður Sverrisdóttir á
Lómatjörn, Ingvar Gíslason,
Akureyri, Stefán Valgeirsson í
Auðbrekku og Ingi Tryggvason,
Kárhóli. Það urðu fjörugar um-
ræður- á þessum fundi og til
máls tóku: Arnsteinn Stefáns-
son í Stóra-Dunhaga, Ingimar
Brynjóll'sson á Ásláksstöðum,
Árni Haraldsson frá Hallfríðar-
stöðum, Aðalsteinn Guðmunds-
son frá Flögu, Þórir Valgeirsson
í Auðbrekku og Gunnar Jósa-
vinsson í Búðarnesi. Það voru
ÞARFT VERK
Ungt fólk gerir sér eitt og ann-
að til skennntunar um helgar,
sumt hvorki guði eða mönnum
þóknanlcgt, að því er fregnir
herma. En þar sem vondar frétt
ir þykja oftast meiri fréttir en
góðar fréttir, er lítt frá því fólki
sagt, ungu og gömlu, sem eyðir
helgum að kristinna guðsbarna
liætti.
Gamall bóndi úr Öngulsstaða
hreppi sagði blaðinu frá því, að
á laugardaginn fyrir hvítasunnu
hafi ungir menn úr ungmenna-
félögunum Ársól og Árroða fjöl-
mennt með vörubíla og dráttar-
vélar og hreinsað óæskilega
hluti við veginn um sveitina,
meira að segja fjarlægt girðing-
ar og girðingaslitur — og þökk
sé þeim.
VONBRIGÐI Á LEIKVELLI
Á vettvangi íþrótta skiptast á
sigrar og ósigrar, gleði og von-
brigði. Akureyringar eru manna
mestir knattspyrnuunnendur
hér á landi og sækja íþrótta-
völlinn ágæta vel þegar knatt-
spyrna er þar hóð. Á laugardag-
inn keppti þar ÍBA-liðið við
Víkinga frá Reykjavík og tap-
aði. Þetta var stund mikilla von
brigða fyrir hina fjölmörgu,
áhugasömu áhorfendur, ekki að
eins yfir því að tapa leik, held-
ur yfir lélegri knattspyrnu
lieimamanna.
MYNDARLEG MÓTTAKA
Vestmannaeyingar tóku mynd-
arlega á móti Ólafi Noregskon-
ungi á laugardaginn, er hann
sigldi á konungsskipinu og í
fylgd tveggja herskipa og ís-
lensks varðskips til Eyja. Þeir
fóru til móts við hann í tveim
skipulegum röðum á öllum báta
flota sínum, fánum prýddum og
kvöddu liann á sama hátt er
hann fór.
EINS OG VÆNGBROTNIR
FUGLAR
Fátt er aumkunarverðara en
vængbrotnir fuglar, nema ef
vera skyldi drukkið fólk á al-
mannafæri. Margir Akureyr-
ingar striða við þann veikleika,
að kunna ekki að nota áfengi,
en notar það þó. Þetta kemur
jafnvel fram í drottningar- og
konungsveislum, sem eiga þó,
öllu eðli samkvæint, að vera
virðulegar og ón stórra lýta.
Mikill menningarauki væri það
bornar fram margar fyrirspurn
ir, sem frummælendur svöruðu
og flestir þeir sem til máls tóku
lýstu ánægju sini yfir störfum
þessarar ríkisstjórnar, gagn-
rýndu þó hvernig til hefði tekist
í efnahagsmálum, en lögðu þó
áherslu á það, að þessi ríkis-
stjórn hefði ekki ráðið við þann
vanda frekar en aðrar ríkis-
stjórnir á undanförnum árum.
Fundurinn var sæmilega sóttur
og ríkti þar áhugi á góðu gengi
Framsóknarflokksins.
Sunnudagskvöldið 9. þ.m. var
svo haldinn fundur á Svalbarðs
strönd. Þar setti Ingvar Gísla-
son fundinn og tilnefndi Hauk
Halldórsson i Sveinbjarnargerði
fundarstjóra. Ræðumenn voru
í þessum bæ, ef bæjarstjórnin,
sem stundum hefur boð og veit-
ir vín, hætti að gera sjálfa sig
og gesti sína vitlausa með því
að veita og drekka sterka
drykki. Kannski nýr bæjar-
stjórnarmeirihluti vilji taka
skarið af í þessu efni?
LJÓSAMEISTARI LÆRÐI
MEIRA
Norrænt leiklistarþing var liald
ið í Álaborg dagana 23.—26.
maí. I sambandi við þingið voru
námskeið og fyrirlestrar um
leiksviðstækni. Um 30 aðilar
sýndu þar framleiðslu sína á
tæknibúnaði leikhúsa. Akur-
eyringurinn Árni Valur Viggós
son, ljósameistari Leikfélags
Akureyrar, átti þess kost að
sækja þing þetta og námskeið,
ásamt fjórum Reykvíkingum,
með styrk frá Mcnntamálaráði,
og munu leikhúsgestir eiga eftir
að njóta þess.
BYSSUPILTAR
Sunnanblað sagði um daginn
fró byssupiltum, sem léku sér
að því að skjóta á sumarbústaði
og húsdýr í haga, svo sem hross
og sauðfé. Þeir voru loks hand-
teknir og játuðu. Þeim lék for-
vitni á að sjá viðbrögð hests,
sem þeir skutu á! Skotfæri
keyptu þeir án þess að sýna
byssuleyfi. En það eru ekki að-
eins byssupiltar syðra sem hafa
gaman af byssum, án þess að
kunna með þær aö fara. Piltar
í öðrum landshlutum láta stund
um freistast til svipaðra verka.
Hér á landi er fáum kennt að
fara með skotvopn og þau eru
„spennandi“, ekki síst fyrir þá,
sem ekki kunna á þeim skil og
ekki liafa þroska til að hafa
drápstæki í höndum. Fullorðið
fólk má aldrei hafa skotvopn á
glámbekk, né heldur skotfæri,
og yfirvöld þurfa að grípa fast
í taumana þegar út af ber.
MINNT ER Á
Þeir bæjarbúar, sem ekki hafa
enn hreinsað lóðir sínar og um-
ráðasvæði, eru minntir á að
ljúka því fyrir 17. júní. Mun
enn vanta noklcuð á, að fólk
hafi fullnægt þeirri skyldu, að
taka til, en það þurfa allir að
gera, hver hjó sér og ennfremur
mega forráðamenn atvinnufyrir
tækja og stofnana ekki van-
rækja snyrtilega umgengni
sinna lóða og landa.
Stefán Valgeirsson í Auð-
brekku, Ingvar Gíslason á Akur
eyri og Ingi Tryggvason á Kór-
hóli. Það voru bornar fram
ýmsar fyrirspurnir, sérstaklega
um símamál og vegamál og
menn voru ekki ánægðir með
það hvað s eint gengur bæði
með vegina og símann. En nú
er verið að byrja á vegalögn á
Svalbarðsströnd og verður unn-
ið í ár fyrir rúmar 20 millj. kr.
og á næsta ári er á áætlun að
vinna fyrir 28 millj. kr. Þessi
fundur var sæmilega sóttur.
(Fré'tt frá fundargestum)
Fleiri fundir eru auglýstir í
blaðinu í dag. Sem flestir þurfa
að sækja fundina og taka þátt
í fundarstörfunum. 7 Q
TYÖFÖLD HÁTÍÐ
Frá lögreglunni
Góðir fundir Framsóknarfólks