Dagur - 12.06.1974, Blaðsíða 2
2
~ Húsmæðraskólinn
(Framhald af blaðsíðu 8)
Ráðskonunámskeið er nú
hálfnað og á það komu tveir
fyrirlesarar frá Reykjavík, þau
Elísabet Magnúsdóttir, hús-
mæðrakennari og sérfræðingur
í sjúkrafræði, og dr. Björn Dag-
bjartsson, matvælaverkfræð-
ingur.
Magdalena Sigurþórsdóttir
kenndi á námskeiði í flosi og
postulínsmálun.
Nemendur voru 117 á sauma-
og hnýtingarnámskeiði, en hnýt
ingar hafa ekki áður verið
kenndar við skólann og vöktu
þær sérstaklega mikinn áhuga
í vetur, enda eru hnýtingar
gamall íslenskur iðnaður.
Fjörutíu konur sóttu vefn-
aðarnámskeið skólans.
Og að síðustu er frá því að
segja, að í skólanum var haldið
fimm mánaða hússtjórnarnám-
skeið og var það eina deildin,
sem ekki var fullskipuð í vetur.
Aðsókn er þegar orðin mikil
að ýmsum fyrirhuguðum nám-
skeiðum húsmæðraskólans
næsta vetur. □
- VARNARMÁLIN
OG KOSNINGARNAR
' (Framhald af blaðsíðu 1)
né heldur stefna Kommúnista
um varnarlaust land, sem býður
hættunni heim. Þetta er hin
ábyrga, farsæla og sjálfstæða
stefna fyrir íslenska þjóð, sem
vill halda sjálfstæði sínu og
frelsi, þótt smá sé, tryggja stöðu
sína í hópi vestrænna þjóða,
gæta öryggis síns með veru í
varnarsamtökum Atlantshafs-
bandalagsins, láta Bandarikjun-
um í té aðstöðu til öryggiseftir-
lits fyrir Atlandshafsbandalagið
á Norðurhöfum og viðhalda hér
varnaraðstöðu af öryggisástæð-
um, sem gripa má til, ef ófriðar-
blika kæmi á loft, og það er
sannfæring mín að þetta sé eina
leiðin til að binda á hæfilegum
varnartíma enda á dvöl varnar-
liðsins hér.
Samhliða þessu viljum við
gera allt, sem í okkar valdi
stendur, til þess að örfa þá frið-
samlegu þróun alþjóðasam-
skipta, sem átt hefur sér stað að
undanförnu. Þess vegna leggj-
um við megináherslu á jákvæða
þátttöku í starfi Sameinuðu
þjóðanna. Við fögnum friðsam-
legri samskiptum stórþjóðanna,
m. a. Bandaríkjanna og Sovét-
ríkjanna og Bandaríkjanna og
Kína. Við tökum virkan þátt í
Evrópuráðstefnunni um frið og
öryggi í álfunni og vonum að
Vínarráðstefnan um samdrátt í
vígbúnaði megi bera árangur.
Jafnframt rekum við vinsam-
lega utanríkisstefnu gagnvart
öllum ríkjum, þótt nánast sam-
starf sé eðlilega á milli okkar og
Norðurlanda og Atlantshafsríkj
anna. Þessi utanríkisstefna okk-
ar sem er stefna Framsóknar-
flokksins hefur leitt til þess, að
við eigum enga óvini meðal
ríkja heims, ekkert ríki ógnar
öryggi okkar og sjólfstæði en
við eigum góð samskipti og við-
skipti við alla nágranna okkar,
bæði vestan og austan Atlants-
hafs. Einar Ágústsson.
rSfænmtanm
Eldri dansa klúbburinn
heldur dansleik í Al-
þýðuhúsinu laugardag-
inn 15. júní.
Húsið opnað kl. 21.
Miðasala við inngang-
inn.
Stjórnin.
Nýstúdentar
Hafið þið hugsað fyrir myndatöku
17. júní. Pantið myndatökuna tíman-
lega í síma 2 28 07.
Það væri ráð að líta einnig
í gluggann.
Norðurmynd
Glerárgötu 20 - Sími 2 28 07
ill. *
Atvinna
Atvinna! Smyrjara vantar á Smurstöð B. P. Sími 1-12-43.
Barnapía óskast. Sími 1-17-87.
TRÉSMIÐIR ÓSKAST SEM FYRST Gott kaup. Gunnlaugur Jóhannsson, Álfabyggð 14, sími 1-14-79.
KONA ÓSKAST til starfa. Hálfsdags vinna kemur til greina eða .eftir samkomulagi. mjallhvít, sími 2-25-80.
wHúsnæði m
Óska eftir að leigja 2ja herbergja íbúð. Sími 1-15-07 eftir kl. 20.
HERBERGI Miðaldra, reglusamur maður óskar eftir herbergi, helst á Eyrinni Sími 2-25-59.
HERBERGI óskast til leigu strax. Helst nála^gt miðbænum. Eldunaraðstaða æskileg. Uppl. í síma 2-18-92 á kvöldin.
HERBERGI óskast til leigu strax. Uppl. í síma 1-17-75.
Ilerbergi óskast til
leigu.
Uppl. í síma 2-10-67.
FOKHELDAR
ÍBÚÐIR
Til sölu em 4ra her-
berja fokheldar íbúðir
í raðhúsi.
Uppl. í síma 1-17-67
eftir kl. 7 á kvöldin.
Fjölnir sf.
t Bifreiðin
A-290
ER TIL SÖLU,
Peugeot 504, árgerð’ 71.
Frímann Guðmundsson
Sími 1-17-21.
Rússajeppi til sölu.
Sími 1-17-87.
TIL SÖLU
Skoda 1000 de luxe,
nýskoðaður, árg. 1968.
Uppl. í símum 1-14-78
og 1-24-97.
TIL SÖLU
Volkswagen og
Moskvitsh ’66.
Uppl. í sírna 2-26-49.
Fæst í kaupfélaginu
i ■n■■■■•!
AUGLÝSINGASÍMI DAGS ER 11167
Góðir handfæra- cg
línubáfur fil sölu
2ja tonna hrognkelsabátur, 7 tonna dekkbátur,
8 tonna frambyggður bátur og 10 tonna
dekkbátur.
Upplýsingar gefur
FRIÐBERT PÁLL
í sírna 2-17-12 og 3-52-00, Reykjavík.
Atvinna
Konur eða karlmenn vantar til að veita forstöðu
leikja og íþróttanámskeiðum fyrir 6 til 11 ára
börn á Akureyri í júlí og ágúst.
Æskilegt, að viðkomandi ’hai'i alm. ikennarapróf
eða íþróttakennarapróf.
Upplýsingar á skrifstofu æskulýðs- og íþrótta-
ráðs, Hfnarstræti 100, milli kl. 10 og 12 daglega,
sími 2-27-22.
ÆSKULÝÐSRÁÐ AKUREYRAR
ÍÞRÓTTARÁÐ AKUREYRAR
Öngulssfaðahreppur
Kjörfundur til alþingiskosninga verður að Frey-
vangi sunnudaginn 30. júní n. <k. og ihefst
kl. 10 f. h.
Jafnframt verður kosið í hreppsnefnd og,
sýslunefnd til næstu fjögurra ára.
KJÖRSTJÓRNIN
TILKYNNING
Verð fjarverandi úr bænum til 15. júlí n. k.
Á rnieðan mun Haraldur Blöndal lögfræðingur
gegna störfum fyrir mig, og er viðtalstími hans
frá kl. 16—18 alla virka daga, svo og eftir
samkomulagi.
GUNNAR SÓLNES, héraðsdómslögmaður
Sími 2-18-20, pósthólf 530.