Dagur - 20.06.1974, Síða 5
4
5
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Simar 1-11-66 og 1-11-67
Bitstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓHANN K. SIGURÐSSON
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
Samanburður
LÝÐRÆÐINU, sem við öll viljum
í heiðri halda, getur stafað hætta af
pólitísku kæruleysi kjósendanna. En
kæruleysið sprettur oftast af hugs-
analeti og þeirri nægjusemi, að
treysta manni eða flokki án sjálf-
stæðrar íhugunar um helstu mál og
þjóðmálastefnur pólitískra flokka.
Lýðræðið byggist á frjálsri skoðana-
myndun, og því, að menn kjósi eftir
málefnum og um stefnur en ekki um
smámál.
Það sem einna mest skilur á milli
tveggja síðustu kjörtímabila í stjórn
landsins er þetta: Viðreisnarstjórnin
hafði ekki þá grundvallarstefnu að
nýta að fullu vinnuafl þjóðarinnar.
Hún gætti þess ekki að auka atvinnu
tækin, og framleiðsluna í undirstöðu
greinum atvinnulífsins, þ. e. í land-
búnaði, sjávarútvegi og iðnaði. At-
vinuleysið varð geigvænleg stað-
reynd. Jarðir urðu verðlausar því að
fólk missti trú á framtíð landbúnað-
ar. Fólk yfirgaf þær, og húseignir í
þorpum slippt og snautt og negldi
fyrir glugga. í sjávarútvegi grotnaði
togaraflotinn niður, kjark skorti til
að færa út landhelgina og frystihús-
in hættu að svara kröfum tímans.
Iðnaðurinn barðist í bökkum en iðn
aðarmenn flúðu land þúsundum
saman. Innanlands lá fólksstraumur-
inn til Faxaflóasvæðisins.
Núverandi stjórn tók upp nýja
stefnu, er byggist á því að hver vinn-
andi hönd hafi vinnu og vinnuaflinu
sé beint til framleiðslunnar, jafn-
hliða eflingu atvinnutækjanna til
lands og sjávar. Þessi stefna markast
af trúnni á landið, fólkið og framtíð
þess, og að undirstaða allra framfara
og velmegunar, einnig mennta og
menningar, sé efling atvinnuveg-
anna og nýting landsins gæða í öll-
um landsins byggðum. Arangurinn
er; næg atvinna og atvinnuöryggi
um land allt. Eólksstraumurinn til
Faxaflóasvæðisins er stöðvaður.
Landhelgin var færð út, 50 nýir tog-
arar keyptir þar af komu 10 í þetta
kjördæmi og frystihús byggð. Lífs-
kjörin hafa verið jöfnuð og bætt
verulega, tryggingar auknar, átök
gerð í heilbrigðis- og skólamálum.
Fólkið öðlaðist á ný trú á landið og
framtíð sína. Um þessar tvær stefn-
ur í verki er kosið 30. júní.
Það vill svo til, að í þetta sinn hafa
menn staðreyndirnar fyrir augunum,
og á það að auðvelda kjósendum val-
ið á kjördegi hinn 30. júní. □
Kenningin um umframatkvæði
Framsóknar er
SÁ furðulegi boðskapur hefur
enn skotið upp kollinum hjá
Alþýðubandalaginu og þó enn
frekar hjá Samtökum frjáls-
lyndra og vinstri manna, að
heppilegt sé að framsóknarfólk
taki þátt í atkvæðaverslun við
þessa flokka. Er skorað á fram-
sóknarfólk í öllum kjördæmum,
þ. á. m. Norðurlandskjördæmi
eystra, að taka þátt í þessum
„viðskiptum“. Röksemdin fyrir
nauðsyn þessarar atkvæðaversl-
unar er sú, að Framsóknarflokk
urinn hafi yfir að ráða „umfram
atkvæðum“ í flestum eða öllum
kjördæmum, þ. e. að hann sé
viss með sína 17 þingmenn, og
að allt, sem fram yfir sé nauð-
synlegt atkvæðamagn, til þess
að tryggja 17 þingmönnum sæti
á Alþingi, séu „dauð atkvæði“,
eins og það er orðað svo smekk-
lega,
Þessi boðskapur getur reynst
hættulegur, ef hann nær að
festa rætur. I fyrsta lagi er það
í hæsta máta ósiðlegt og lág-
kúrulegt að ástunda atkvæða-
verslun af þessu tagi. í öðru lagi
er þessi boðskapur blekking og
reistur á röngum forsendum.
í þessum boðskap er gengið
út frá því sem staðreynd, að
núverandi þingmannatala Fram
sóknarflokksins sé föst og
óhagganleg. Það er látið í veðri
vaka, að Framsóknarflokkurinn
eigi nánast ekki rétt á fleiri
þingmönnum en 17. Það er a. m.
k. sagt, að Framsóknarflokkur-
inn geti vel við þessa tölu unað
og að hann eigi ekki að sækjast
eftir meira kjörfylgi eða þing-
styrk.
Slíkur málflutningur er auð-
vitað ekki annað en fáviskuhjal.
Hann nær í rauninni engri átt.
Framsóknarflokkurinn er ekki
í neinu kosningabandalagi við
einn eða annan flokk og sættir
sig ekki við atkvæðaverslun af
nokkru tagi. Samt gerir Alþýðu
bandalagið sig sekt um að ala á
áróðri um „umframatkvæði
Framsóknar“. Og Samtök frjáls
lyndra og vinstri manna biðla
til framsóknarkjósenda um
fylgi til þess að fá borgið veik-
burða lífi sínu. Þeir herrar, sem
að samtökum þessum standa,
halda því fram, að vinstri meiri-
hluti í þinginu velti á því, að
smáflokkur þessi fái 3—5 menn
kjörna. Þeir vísa til úrslita síð-
ustu kosninga máli sínu til sönn
unar. Þeir segja líka, að Fram-
sóknarflokkurinn hafi ekki
möguleika á fylgisaukningu
vegna þess, hversu hann sé stór
og öflugur fyrir.
Við þetta er margt að athuga.
Ég nefni fyrst það atriði að
Framsóknarflokkurinn hafi
ekki möguleika á fylgisaukn-
ingu. Þetta er aðeins fullyrðing
og verður ekki studd veigamikl-
um rökum. Helsta röksemdin á
að vera sú, að Framsóknarflokk
urinn hafi ekki bætt við sig
atkvæðamagni í alþingiskosning
unum 1971, heldur tapað
nokkru fylgi og misst eitt þing-
sæti. Hins vegar hafi hinn nýi
flokkur, Samtök frjálslyndra og
vinstri manna, unnið mikinn
kosningasigur, fengið 5 menn
kjörna og þannig riðið bagga-
muninn um myndun vinstri
stjórnarinnar. Rétt er, að flokk-
ur Hannibals Valdimarssonar
og Björns Jónssonar vann
óvæntan kosningasigur 1971,
óneitanlega á kostnað Fram-
sóknarflokksins, því að sigur
Hannibalista kom í veg fyrir
ATKVÆÐAVERZLUN MILLI IHALDSAND-
STÆÐINGA Á EKKI AÐ EIGA SÉR STAÐ
fylgisaukningu Framsóknar að
því sinni. Og rétt er, að Hanni-
balistar tóku að lokum þátt í
myndun vinstri stjórnarinnar
undir forsæti Ólafs Jóhannes-
sonar. En hitt muna menn líka,
að verulegur ágreiningur var
meðal Hannibalista um þá
stjórnarmyndun, og flokkurinn
var alla tíð erfiður og ótryggur
samstarfsmaður. Samtökin
klofnuðu á stjórnartímabilinu
— ekki einu sinni, heldur tvisv-
ar — og við það missti ríkis-
stjórnin starfhæfan meirihluta
á Alþingi. Sókn Hannibalista
1971 var því Pyrrusarsigur og
raunar verra en það. Hún upp-
fyllti allavega ekki vonir manna
um traust og langvarandi sam-
starf íhaldsandstæðinga. Mál-
tækið segir eitthvað á þá leið,
að engin keðja sé sterkari en
veikasti hlekkurinn. Það má
sannarlega herma þetta mál-
tæki upp á vinstra samstarfið
1971—1973. Framsóknarflokkur
inn myndaði þar sterkasta
hlekkinn, en Samtök frjáls-
lyndra og vinstri manna voru
veiki hlekkurinn, sem brást.
Nú á enn að leika sama leik-
inn og fyrir 3 árum. Samtök
frjálslyndra og vinstri manna
segja nákvæmlega það sama og
áður. Þeir boða þá kenningu, að
Framsóknarflokkurinn sé svo
«tór og öflugur, að hann „þurfi“
ekki á meira fylgi að halda,
enda séu líkurnar litlar fyrir
fylgisaukningu hans. Eina ráð-
ið, segja þessir menn, til þess að
tryggja íhaldsandstæðingum
meirihluta sé að kjósa 3—5
frambjóðendur Samtaka frjáls-
lyndra og vinstri manna. Sér-
staklega er þessum boðskap
beint til framsóknarfólks, sem
er áhugasamt um vinstra sam-
starf. Því er sérstaklega ætlað
að trúa þessari kenningu. Fram-
sóknarfólki er boðið upp á at-
kvæðaverslun, því að ekki hafa
þessir boðberar fagnaðarenrind-
isins um umframatkvæðin
manndóm í sér til þess að ráð-
leggja fólki að segja fullkom-
lega skilið við Framsóknarflokk
inn. Nei, menn geta verið fram-
sóknarmenn áfram, en þeir eiga
ur framsóknarfólks við Samtök
frjálslyndra og vinstri manna
eða Alþýðubandalagið yrði til
þess að veikja Framsóknarflokk
inn og draga úr líkum fyrir því,
að hann geti' haldið áfram að
vera forystuafl íhaldsandstæð-
inga. Og menn verða að átta sig
á því, að án Framsóknarflokks-
ins verður ekki mynduð vinstri
stjórn.
Ég vil að lokum minna Fram-
sóknarfólk á, að Framsóknar-
flokkurinn hefur engu minni
möguleika til fylgisaukningar
og hærri þingmannatölu en
hver annar flokkur íhaldsand-
stæðinga. Það er eintóm blekk-
ing að halda því fram, að íhalds
andstæðingum sé betra að efla
smáflokka og styðja sprengi-
framboð, heldur en að standa
heilshugar að baki Framsóknar-
flokknum. Eini flokkurinn, sem
Sjálfstæðisflokkurinn hræðist í
raun og veru er Framsóknar-
flokkurinn. Ef Framsóknar-
flokkurinn er sterkur, þá skelf-
ur íhaldið á beinunum. Ef Fram
sóknarflokkurinn er veikur, þá
fitnar íhaldið eins og púkinn á
fjósbitanum. Framsóknarflokk-
inn vantar víða í kjördæmum
tiltölulega litla fylgisaukningu
til þess að vinna þingsæti.
Mætti þar nefna a. m. k. 4—5
kjördæmi. Það er engin goðgá
að halda því fram, að við góðar
aðstæður gæti flokkurinn bætt
við sig nokkrum þingsætum.
Hins vegar auðveldar það
flokknum ekki baráttuna að
þurfa enn að ganga til kosninga
með blekkingaáróðurinn um
umframatkvæðin á bakinu og
verða að þola það, að menn, sem
skipað hafa ábyrgðar- og trún-
aðarstöður innan Framsóknar-
flokksins gerist boðberar þessa
áróðurs með því að taka þátt í
framboðum flokksbrota, sem
sett eru til höfuðs Framsóknar-
flokknum og ætla að ala líf sitt
á því að ná frá honum fylgi.
Ingvar Gíslason.
Möðruvellinsfar
Ingvar Gíslason.
bara ekki að kjósa Framsóknar-
flokkinn!
Ég vara sterklega við þessum
lævíslega áróðri. Hann er byggð
ur á bekkingu, — þeirri blekk-
ingu, að Framsóknarflokkurinn
hafi fast og nánast óhagganlegt
fylgi og að hann sé nú þegar
nógu öflugur flokkur. Víst er
Framsóknarflokkurinn stór
flokkur og þróttmikið stjórn-
málaafl. En hann þarf þó enn að
vaxa. Og hann getur vaxið,
nema sundrung vinstri manna,
smáflokkadekur og sprengifram
boð geri honum það illkleift.
Þeir, sem í reynd vilja áfram-
haldandi samstarf íhaldsand-
stæðinga, ættu að hugsa sig um
tvisvar áður en þeir gera eitt-
hvað það, sem veikir stöðu
Framsóknarflokksins. Stuðning
ÞAÐ hefur vafist fyrir mörgum
manninum að átta sig á nýjum
stjórnmálasamtökum og fram-
boðsflokkum, þótt flokksbrot og
brotabrot flokka hafi allir sem
einn og einn sem allir lýst yfir
því, að þeir séu að skapa nýtt
og betra stjórnmálaafl og sam-
einingarafl í landinu. Eitt af
þessum nýju stjórnmálaöflum,
sem þeir svo nefna sig, eru
Möðruvellingarnir. í Nýju landi
eru þeir m. a. gerðir að umtals-
efni á eftirfarandi hátt:
„Möðruvellingar, sem eru
undir leiðsögn Ólafs Ragnars
Grímssonar, áunnu sér um
skeið nokkurt traust víða út um
sveitir meðal framsóknar-
manna. Þeir voru svo vígfúsir
og baráttuglaðir, að menn lögðu
við hlustir. En brátt kom í ljós,
að baráttuaðferðir þeirra, t. d.
skrif þeirra í Tímanum, voru
með þeim hætti, að menn fóru
að efast um, að hér væri allt af
heilindum gert. Komst brátt
það orð á, að hér væru frama-
gosar á ferð, sem ekki hefðu
Hvað er að vera fanatískur?
BINDINDISMÖNNUM og þó
sérstaklega góðtemplurum, er
oft brugðið um það, að þeir séu
alltof „fanatískir“ í afstöðu sinni
til áfengisins. Þetta heyrist
stundum meira að segja hjá ein-
staklingum og jafnvel samtök-
um, sem hafa bindindi á sinni
stefnuskrá. Góðtemplarar og
aðrir þeir, sem eru bindindis-
menn, afneita allri áfengisnautn
fyrir sig persónulega. Eru það
öfgar? Sumir menn vilja telja
sig bindindismenn, sem fá sér
einstöku sinnum örlítið í glasi,
við fermingu eða giftingu sína
og sinna, eða ef þeir eru svo
heppnir að fá boð í kokkteil-
gleðskap hjá ráðherra, en eru
annars svo aðgætnir að þeir
láta aldrei sjá sig ölvaða. Eru
þetta bindindismenn? Ég segi
nei, en þeir eru líklega það sem
kallað er hófdrykkjumenn, en
sá hópur manna getur engan
veginn orðið „stikkfrí“ í augum
okkar templara í baráttu okkar
við áfengisöflin og áfengisdýrk-
endurna. Er það það, sem eru
kallaðar öfgar hjá okkur templ-
urum, að vilja ekki líta framhjá
þessari hófdrykkju hins æru-
og værukæra góðborgara, sem
aldrei fremur óspektir, sem
ekki hefur valdið hneyksli með
hegðun sinni? Ef það er að vera
öfgafullur, að vilja ekki viður-
kenna eða líta framhjá þessari
lífsvenju í baráttunni móti
áfengisneyslunni, þá er ég ásátt
ur með það að vera nefndur
öfgafullur.
í nýlegu dönsku blaði las ég
grein eftir danskan lækni um
áfengisvandamál meðal ungl-
inga í Danmörku, en þar segir
hann, að í sumum borgum þar
sé nokkuð um það að unglingar
á aldrinum 14 til 15 ára, séu
orðnir áfengissjúklingar. Rann-
sóknir og viðtöl við þessa ungl-
inga hafa í mö.rgum tilfellum
leitt í ljós, að ölneysla er undir-
rótin og ölsins hefur verið neytt
(oft á tíðum) me.ð vitund og
samþykki föður eða foreldra, er
hafa sagt: Það er allt í lagi að
þú drekkir öl, bara ef þú lætur
eiturlyfin vera. — Og svo bætir
læknirinn við: „Hvenær ætlar
almenningur í okkar bjórþyrsta
samfélagi að átta sig á því, að
áfengi er eiturlyf.“
Það er vísindaleg staðreynd
og nú almennt viðurkennt með-
al vísindamanna, að áfengið er
í flokki ávana- og fíknilyfja,
sem kölluð eru ýmáum nöfnum,
svo sem vímugjafar, fíknilyf og
eiturlyf. Hefur fjöldi íslenskra
lækna látið þetta í ljós í skrif-
um sínum hin síðari ár, svo
nefndir séu nokkrir eins og Guð
steinn Þengilsson, Baldur John-
sen, Jóhannes Bergsteinsson og
Þorkell Jóhannesson, Tómas
Helgason og Vilhjálmur G.
Skúlason lyfjafræðingur. Allir
þessir menn hafa látið þá stað-
reynd í ljósi í skrifum sínum að
áfengi væri ávana- eða fíknilyf.
Hver vill viðurkenna „hóflega“
neyslu fíknilyfja, sem lífsvenju,
er ástæðulaust sé að vara við
eða telja athugaverða? Hvenær
ætla íslenskir áfengisneytendur
að fara að gera sér ljósan þenn-
an sannleika?
Og hvenær ætla íslendingar
að hætta að telja það öfgar hjá
templurum að hvers konar
neysla fíknilyfja, (jafnvel „hóf-
drykkja“ áfengis) sé óæskileg
og þess eðlis að full ástæða sé
til að bindast ennþá miklu al-
mennari samtökum en nú er til
þess að koma á breyttum sið-
venjum í þessu efni? Hvar eru
rökin fyrir því, að barátta
templara gegn fíknilyfinu
áfengi sé öfgafull?
Indriði Indriðason.
eflst til þeirra áhrifa í Fram-
sóknarflokknum, sem þeir töldu
sér bera. Nú hefur komið á dag-
inn, að sú ásökun á hendur
þeim virðist eiga við rök að
styðjast.
Eins og fyrr segir, var ein
aðalákæran á hendur Fram-
sóknarflokknum, að hann væri
kominn of langt til hægri. Þrátt
fyrir að Framsóknarflokkurinn
hafi nú verið aðili að vinstri
stjórn í þrjú ár og staðið fyrir
þingrofi í því skyni að tryggja
áframhaldandi vinstri stjórn,
snúast Möðruvellingar gegn eig
in flokki og ganga til bandalags
við Samtök frjálslyndra og
vinstri manna í væntanlegum
alþingiskosningum. Hver skilur
þetta?
Þeir segjast vilja sameina
samvinnumenn, en þeir kljúfa
flokk samvinnumanna. Hver
skilur þetta? Þeir segjast vilja
sameina jafnaðarmenn, en
ganga til liðs við Samtökin, sem
vilja ekki undir neinum kring-
umstæðum vinna með helsta
flokki jafnaðarmanna, Alþýðu-
flokknum. Hver skilur þetta?
Það verður ekki annað sagt
en málefnaágreiningur Möðru-
vellinga innan Framsóknar-
flokksins hafi því verið tilbún-
ingur einn, því að þeir hlaupast
brott frá öllum baráttumálum
sínum til að reyna að ná fram
innan Samtakanna.
í raun og veru fer vel á því,
að þeir skuh finna hugsjónaleg-
an skyldleika innan Samtak-
anna og þar eiga þeir heima, því
að Samtökin eru nú orðin tákn
glundroðans í íslenskum stjórn-
málum. Þar logar allt í illdeil-
um, endalausu karpi, og nú er
svo komið, að óvíst er hvort
Samtökin hafi rétt til þess að
halda úti aðalmálgagni sínu,
Þjóðmálum, því að fyrrverandi
félagar í Samtökunum telja sig
hafa rétt til nafnsins. Saga Sam-
takanna sýnir, að þar er eitt-
hvað meira en lítið bogið við
vinnubrögðin og það væri furðu
legt, ef íslendingar kysu slíka
menn til að hafa á hendi stjórn
landsmála.“
Margir munu hugsa eitthvað
svipað og hér er sagt. Q
11111111111111111111
iiiiiiiiiiiiii
1 Ósjálfstæðir menn trúa I
| vísbendingum að
isunnan.
iiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiimiiimiiMiiiiiiiimimiiiiiimii
Unga fólkið hefur orðið
VINNUM AÐ NÝRRI VINSTRI STJÓRN FLOKKURINN SEM TRÚIR Á LANDIÐ
ÓLAFUR Friðriksson, Sunnu-
felli, Kópaskeri, var 21 árs 5.
júní 1974. Hann kýs því í fyrsta
sinn. Hann er Samvinnuskóla-
genginn og hefur lokið námi.
Hann var hér á ferð og var för
hans heitið til Englands, þar
sem hann dvelur í sumar.
Ólafur Friðriksson.
Telur þú vinstri stjórn æski-
lega eftir kosningar?
Það tel ég alveg tvímælalaust.
Núverandi ríkisstjórn hefur
komið mörgum nauðsynjamál-
um í gegn og vil ég sérstaklega
nefna byggðamálin, uppbygg-
inguna úti á landsbyggðinni,
þar á meðal í minni heima-
byggð, Norður-Þingeyjarsýslu,
en í tíð viðreisnar var tímabund
ið atvinnuleysi á ýmsum stöð-
um, sérstaklega fyrir austan, en
nú hefur atvinnuástandið gjör-
breytst og allir hafa næga vinnu
og fólksflóttinn, sem áður var
til annarra staða landsins, er nú
ekki fyrir hendi, og nú flytur
fólkið af höfuðborgarsvæðinu
hingað norður. En skortur á
íbúðarhúsnæði er mikill og
kemur í veg fyrir að það fólk,
sem hingað vill flytjast geti það.
Ég treysti þessari ríkisstjórn til
að halda áframhaldandi byggða-
stefnu og aukinni uppbyggingu
atvinnulífsins úti á landsbyggð-
inni. Því ég tel æskilegast að sú
þróun haldi áfram að allir
Norður-Þingeyingar fái verk að
vinna í sinni heimabyggð en
þurfi ekki að flytjast til höfuð-
borgarsvæðisins til að leita sér
atvinnu.
Að lokum vil ég heita á alla
landsmenn að sameinast um nú-
verandi stjórnarflokka til að
treysta áframhaldandi vinstri
stjórn í landinu.
Blaðið þakkar viðtalið.
TREYSTUM BYGGÐASTEFNUNA 30. JUNI
HREIÐAR Hreiðarsson frá
Laugarbrekku í Hrafnagils-
hreppi, búsettur á Akureyri,
húsasmiður að iðn og nú starfs-
maður bjá Vegagerð ríkisins,
leit inn á skrifstofur blaðsins
um helgina.
Talið barst þá að alþingis-
kosningunum og fór hann ekki
dult með þá skoðun sína, hvaða
stjórnmálaflokk hann ætlaði að
styðja. Rökstuðningur hans fyr-
ir því, að Framsóknarflokkur-
inn væri trausts verður, var á
þessa leið:
Vegna þeirrar frjálslyndu
framfara- og umbótastefnu, sem
flokkurinn hefur fylgt og undir-
strikað í stjórnarsamstarfinu
undanfarin þrjú ár, styð ég
hann.
Ég treysti Framsóknarflokkn-
um best til að fylgja eftir því
samkomulagi, sem náðist innan
ríkisstjórnarinnar um brottför
hersins í áföngum. Og ég treysti
Framsóknarflokknum best til
stjórnarforystu vegna þess at-
vinnuöryggis, sém ríkt hefur og
flokkurinn hefur átt ríkastan
þátt í, með stórkostlegri atvinnu
uppbyggingu um allt land.
Nú er atvinnuleysið horfið?
Já, næg atvinna allra vinn-
andi manna á íslandi, ætti ekki
aðeins að vera það sjálfsagða
takmark, sem fyrri stjórn þó
vanrækti en núverandi stjórn
náði svo farsællega á þrem síð-
- Aldraðir í..
(Framhald af blaðsíðu 8)
hinir öldnu að lifa upp að
nokkru hinar gömlu góðu stund
ir húslestranna.
Eins og áður sagði skulu vænt
anlgeir þátttakendur hafa sam-
band sem allra fyrst við sumar-
búðastjórann að Vestmanns-
vatni og gefur hann allar nánari
upplýsingar. Þess skal og getið
að hjúkrunarkona verður dval-
argestum til halds og trausts og
mun annast þá gesti er þess
þurfa með.
(Fr éttatilky nning)
ustu árum, að sumir hafa
gleymt atvinnuleysinu og land-
flóttanum undir „viðreisn“ fyrir
örfáum árum — heldur líka
stolt íslensku þjóðarinnar, sem
öll þjóðin getur nú fagnað, og
Hreiðar Hreiðarsson.
fyrst og fremst er að þakka
breyttri stjórnarstefnu. Breyt-
ingin er fólgin í því, að það var
horfið frá gömlu og úreltu
íhaldsstefnunni og í staðinn tek
in upp sú byggðastefna í verki,
sem hvarvetna blasir við. Sú
stjórnmálastefna, sem nú er, og
hefur skapað atvinnuöryggi
fólksins jafnt í sveit sem við
sjávarsíðuna um land allt, sam-
rýmist ekki gamalli og úrsér-
genginni íhaldsstefnu, eins og
hún er í reynd. Þrátt fyrir yfir-
lýsingar og jafnvel yfirboð Sjálf
stæðisflokksins í landhelgismál-
inu, hefur það komið mjög
greinilega fram, að í því stór-
máli er flokkurinn mjög óheill,
og áhugi hans á útfærslu land-
helginnar var ekki meiri en svo,
að hann lét algerlega hjá líða að
undirbúa stækkun landhelginn-
ar hvað þá að færa hana út á
12 ára valdaferli sínum. Mér
finnst ekki auðvelt að treysta
þeim flokki fyrir forystu í fram-
vindu landhelgismálanna.
Ég skora á yngri sem eldri
menn að standa saman um
áframhaldandi atvinnuöryggi
og byggðastefnuna.
Blaðið þakkar svörin. E. D.
ÞÓRA Hjaltadóttir frá Hrafna-
gili er 23ja ára gömul húsmóðir
á Akureyri og býr í Skarðshlíð
27, ásamt manni sínum Gunnari
Austfjörð, sem áhugamenn um
knattspyrnu hér í bæ kannast
við, en hann vinnur í Raflagna-
deild KEA. Þau eiga eitt barn.
Frú Þóra Hjaltadóttir er gagn
fræðingur og nam einnig við
Húsmæðraskólann á Lauga-
landi. Hún gerði sér það svo til
Þóra Hjaltadóttir.
gamans í vetur að taka meira-
próf ökumanna, en ekki hefur
hún haslað sér völl á sviði bif-
reiðaaksturs, heldur vinnur
hún venjuleg húsmóðurstörf og
auk þess fullt starf á skrifstofu
hjá Þórshamri h.f. hér í bæ.
Talið berst að landsmálunum
er fundum bar saman og spurn-
ingunni um það, hvers vegna
hún styðji Framsóknarflokkinn,
svarar hún á þessa leið:
Ég tel að hann hafi unnið best
að landsmálefnum og þá sérstak
lega gagnvart dreifbýlinu og
atvinnumálum þess. Ég tel að
fólksflutningur úr þéttbýlinu
við Faxaflóa út á landsbyggð-
ina beri þess glögg merki.
Telur þú vinstri stjóm æski-
lega og hvers vegna?
Ég er þess fullviss að stækk-
un landhelginnar í 50 mílur
hefði aldrei verið framkvæmd
svona fljótt og farsællega nema
af því að vinstri stjórn var við
völd, og til að tryggja áfram-
hald útfærslu og friðun fiski-
miðanna mun ég styðja Fram-
sóknarflokkinn. Einnig tel ég að
betur hafi verið unnið að at-
vinnumálum landsbyggðarinn-
ar á þessum síðustu árum og
fólk hafi almennt meiri trú á
búrekstri víðsvegar um landið,
því næg atvinna er allsstaðar.
Viltu segja eitthvað um skóla
málin?
Þar er fyrst að geta, að unnið
er að því að bæta þann aðstöðu-
mun á menntunarmöguleikum
þeirra sem búa í þéttbýlinu og
þeirra sem búa á dreifbýlinu.
Óneitanlega hefur verið mikill
munur á því hve miklu dýrara
og erfiðara það hefur verið fyrir
þá sem búa í dreifbýlinu að afla
sér framhaldsmenntunar, en
hinum sem búa á stærstu þétt-
býlissvæðunum og þó sér í lagi
þá sem komnir eru með maka
og börn.
Bjartsýn á framtíð lands og
þjóðar?
Mér finnst Framsóknarflokk-
urinn byggja stefnu sína, frekar
en aðrir flokkar á trú á landið
gæði þess og uppbyggingu lands
ins alls, og mun ég því reyna að
stuðla að sigri hans í þeim kosn
ir.gum sem framundan eru.
Dagur þakkar svörin. E. D.
FOLK HELDUR AÐ VERÐI SPRENGING
HANN heitir Pálmi Björnsson
og stjórnar einu af mörgum úti-
búum KEA á Akureyri, Alaska,
þessa dagana, er 21 árs og kýs
til Alþingis í fyrsta sinn eftir
nokkra daga. Hann er heimilis-
faðir, segist hafa talsvert mikið
að gera í útibúinu og kaupið:
Já, það hækkar smám saman en
mætti auðvitað hækka örar,
segir hann.
Ertu alveg ákveðinn í pólitik-
inni?
Já, og ég fagna því að mega
nú loks taka alvarlegan þátt í
henni með því að neyta kosn-
ingaréttar míns. Ég hefði viljað
mega kjósa fyrr.
Hvað finnst þér meðal áhuga-
verðustu bæjarniála og þjóð-
mála?
Meðal þess, sem bæði er
áhugaverðast og mest um vert,
eru þau umskipti, er orðið hafa
í. atvinnulífinu, hér á Norður-
landi, Hin mikla atvinna skapar
aukna kaupgetu og bætt lífs-
kjör. Menn geta veitt sér eitt og
annað af þvi, sem menn létu sig
aðeins dreyma um áður. En af
einstökum þáttum, sem alla
snertir þó, vil ég nefna sjúkra-
húsmálin og heilbrigðismálin
almennt. Þar er að verða breyt-
ing á, t. d. hér á Akureyri og er
þegar orðin. Núverandi stjórn
setti lög, sem gera Akureyring-
um fært að.ráðast í sjúkrahús-
bygginguna, sem áður var
óframkvæmanlegt með öllu, og
nú er sjúkrahúsbyggingin hafin.
Bærinn þarf aðeins að greiða
15% af kostnaðinum. Á viðreisn
arárunum hjakkaði allt í sama
farinu í þessu máli.
Pálmi Björnsson.
Hefur þú áhuga á sjávarút-
veginum?
Ekki ætti að þurfa að deila
um það, hver munur það er og
verður fyrir íslendinga að hafa
yfirráð yfir fiskimiðunum um-
hverfis landið í stað þess að láta
erlend veiðiskip sækja þangað
aflann. Það á eftir að koma í
ljós, að nýju skuttogararnir
skila þjóðinni góðum tekjum.
Þessi nýju fiskiskip, sem gjör-
breytt hafa atvinnulífinu í öll-
um útgerðarstöðum, koma á
réttum tíma, er fiskveiðilögsag-
an hefur verið stækkuð. Þessa
gjörbreytingu í sjávarútvegi má
algerlega þakka vinstri stjórn-
inni.
Hamstrar fólk mikið?
Já, talsvert mikið, eftir að
landbúnaðarvörurnar voru
greiddar svona mikið niður,
eins og nú er. Fólk heldur að
það verði sprenging og allt verð
lag rjúki upp ef íhaldið kemst
til valda, segir Pálmi að lokum
og þakkar blaðið viðtalið. E. D,