Dagur - 22.06.1974, Blaðsíða 7
7
Þegar íhaldið tilbað áli
en missti frúna á íslenska atvinnuvegi
STEFÁN Valgeirsson lýsti því
á fundi þegar íhaldið missti
trúna á íslenska atvinnuvegi en
tilbað álbræðslur og erlenda
auðhringa. Þá herjaði atvinnu-
leysi óg þá fluttu þúsundir
manna af landi burt. Hér er
stuttur kafli úr ræðu Stefáns
um þetta efni:
Ég held að það hafi verið árið
1965, sém fyrst var borið fram
á Alþingi frumvarp um kaup á
3 skuttogurum. Árið eftir var
frumvarpið endurflutt, en þá
var lagt til að skuttogararnir
yrðu 6. Síðan var þetta frum-
varp, eða frumvarp eitthvað því
líkt, flutt flest árin til 1970. En
stjórnarvöld höfðu þá lítinn
skilning á slíkum málum, öll
þeirra athygli beindist að bygg-
ingu álvera eins Qg kunnugt er.
Á árunum 1967 til 1971 voru
verkföll hér tíð og atvinnuleysi
mikið, sérstaklega þó á ýmsum
þéttbýlisstöðum út um land og
samkvæmt alþjóðlegum skýrsl-
um voru verkföll hér hlutfalls-
lega meiri en í nokkru landi
heims á þessum árum og ísland
átti einnig Evrópumet í atvinnu
leysi á sama tímabili. Sam-
kvæmt skýrslum kjararann-
sóknarnefndar töpuðust 1844000
vinnudagar af þessum sökum á
árunum 1967 til 1970 eða rúm-
lega 600 þúsund vinnudagar á
ári. Á þessum tíma var rætt
mikið um það, þó ekki síst af
stjórnvöldum, að á næstu árum
kæmu mjög stórir árgangar á
vinnumarkaðinn ár hvert. En
hver voru viðbrögð viðreisnar-
stjórnarinnar til að afstýra at-
vinnuleysi uppvaxandi æsku og
öðrum landsmönnum? Ráðherr-
ar hennar sögðu að okkar
gömlu atvinnuvegir gætu aldrei
tekið við þessum mannmörgu
árgöngum og vegna þess trú-
leysis á getu og möguleika okk-
ar undirstöðuatvinnuvega, van-
ræktu þeir uppbyggingu þeirra
en í þess stað beindist öll þeirra
athygli að byggingu álveranna,
sem erlend auðfélög skyldu
byggja í landi okkar. Á árinu
1969 urðu umræður á Alþingi
um aðgerðarleysi stjórnvalda á
því að rannsaka virkjunarmögu
leika til raforkuframleiðslu hér
á Norðurlandi. Þá lofaði þáver-
andi fjármálaráðherra því að á
næsta sumri skyldi verða veitt-
ar 5 millj. kr. til rannsókna á
Dettifossvirkjun. Þetta var svik
ið en í stað þess var veitt stór-
um fjárupphæðum til rann-
sókna á að veita Jökulsá á Fjöll
um austur á land, og þá var
hinn stóri draumur stjórnvalda
að reisa orkuver á Austurlandi
og byggja óteljandi álver þar.
Það er furðulegt er þeir Sjálf-
stæðismenn ræða nú um seina-
gang f virkjunarmálum hér á
Norðurlandi, eins og þeir stóðu
að þeim á viðreisnarárunum.
Hún er vægast sagt ekki falleg
sagan um afskipti þeirra af
þeim málum ef öll væri sögð.
Þessari mynd er nauðsynlegt að
bregða upp til að varpa ljósi á
það sem var og þá miklu breyt-
ingu sem varð við stjórnarskipt-
in, ekki síst í sambandi við at-
vinnuuppbygginguna í landinu.
1 umræðum á Alþingi um kaup
á skuttogurunum sagði eitt sinn
talsmaður viðreisnarinnar á þá
leið, að líklega væri rétt að
reyna að fá leigðan 1 eða 2 skut
togara til að reyna hvort svona
skip hentuðu okkur. Þetta var
nú allur stórhugurinn þá. Ekki
var heldur á dagskrá hjá þess-
um herrum að aðhafast neitt í
landhelgisníálinu, þótt erlendir
togarar sæktu fast á okkar fiski
mið m. a. vegna aflatregðu í
Barentshafi. En 1970 kom loks
fram stjórnarfrumvarp um
kaup á 6 stórum skuttogurum
vegna vaxandi þrýstings útgerð
armanna og tillöguflutnings á
Alþingi um þetta mál. En hvert
áttu þessi skip að fara? Þau
áttu öll að fara á Faxaflóasvæð-
ið. Nú eru liðin tæp 3 ár síðan
stjórnarskiptin urðu og nú eru
komin til landsins um eða yfir
50 skuttogarar en 40 þeirra hafa
farið á staði utan Faxaflóasvæð
isins og 10 í Norðurland eystra.
Segir þetta ekki sína sögu? Ekk
ert skal fullyrt um hvenær
fyrsta greiðslan fór fram frá
okkar hálfu til byggingar skip-
anna, en í skýrslu sem ég hef
undir höndum þá kemur í ljós
að búið var að greiða 165 millj.
kr. í árslok 1971. Hér er um að
ræða jafnvirði greiðslu fyrir
einn togara af þeirri stærð sem
fyrst var samið um byggingu á.
Þessi greiðsla mun hafa farið
fram á árinu 1971, en hvort hún
var gerð fyrir eða eftir stjórnar-
skiptin, er ekkert aðalatriði.
Hitt liggur að minnsta kosti á
borðinu að annað var þá ógreitt
í sambandi við þessi skipakaup.
Ég vil vekja á þessu athygli
vegna þess að stjórnarandstöðu-
blöðin eru sífellt að klifa á því
hvað mikil skuldaaukning hafi
orðið á þessum árum, en þá
verða menn að hafa í huga hvað
hefur verið gert, hvers vegna
skuldirnar hafa aukist. Og í
þessu sambandi er rétt að gera
sér ljóst, hvað þessi skip hefðu
kostað nú, ef ríkisstjórnin hefði
ekki ráðist í skipakaupin af stór
hug og þeirri framsýni sem hún
gerði. Á þessum tíma hefur t. d.
stál um það bil þrefaldast í
verði og annað efni til skipa-
bygginga hefur einnig stór-
hækkað. Það liggur því í augum
uppi að kostnaður við byggingu
þessara skipa hefur hækkað
sem nemur verulegum upphæð-
um. Á þessum tæpum 3 árum
hefur einnig verið gerð stórfelld
uppbygging í hraðfrystihúsun-
um, sem hefur gjörbreytt öllu
atvinnuástandi landsbyggðar-
innar til hins betra, og fært
þessa atvinnugrein upp á hærra
framleiðslustig, því það er ekki
nóg að byggja og kaupa skip,
það þarf að gera ráðstafanir til
að fullvinna þann afla, sem á
land berst hverju sinni og gera
hann að sem verðmætastri
vöru. Á síðari hluta sjöunda ára
tugsins kom í ljós, að við vorum
í verulegri hættu með að missa
okkar besta freðfiskmarkað, þ.e.
að segja í Bandaríkjunum,
vegna þess að erlendir kaup-
endur töldu margt ábótavant
við okkar vinnslustöðvar. Þegar
stjómarskiptin urðu eða í árs-
lok 1971 var ekki búið að leysa
nema lítinn hluta þessa brýna
verkefnis, eða um 10%. Á þeim
þremur árum, síðan stjórn Ólafs
Jóhannessonar var mynduð, hef
ur verið varið til þessa verk-
efnis rúmum 3 milljörðum
króna. En samkvæmt áætlun á
að ljúka þessu verkefni 1976, og
eftir næstu áramót er talið að
IVz milljarð þurfi til að Ijúka
þessu verkefni til fulls. Ég vil
geta þess í þessu sambandi að
uppbygging hraðfrystihúsanna í
þessu kjördæmi var talin að
mundi kosta tæpar 400 millj. kr.
en um næstu áramót á aðeins
að vera eftir verkefni sem kost-
ar 27 millj. króna. Q
Skoðanakönnun
um kirkju og kristni
Rödd úr Bárðardal.
a
■ ■
HÉR á Akureyri mun í sumar
fara fram skoðanakönnun á veg
um guðfræðideildar Háskóla
íslands. Tilgangurinn er sá, að
kynnast almennum viðhorfum
Hjálmar Jónsson,
stud. theol.
til kirkjunnar og trúmála yfir-
leitt.
Hjálmar Jónsson stud. theol.
mun annast framkvæmd þess-
arar skoðanakönnunar og mun
sérnámsritgerð hans byggjast á
niðurstöðum hennar.
Sá háttur er á hafður, að val-
inn verður á hlutlausan hátt
ákveðinn hópur fólks, 16 ára og
eldri og lagður fyrir hann spurn
ingalisti, sem er þannig úr garði
gerður, að fljótlegt er að útfylla
hann. Einnig verður leitað til
kirkjugesta með hinn sama
spurningalista, við almenna
guðsþjónustu einn sunnudag í
sumar.
Þeir, sem standa að könnun
þessari, vænta sér mikils af
niðurstöðum hennar. En skil-
yrði þess að vel takist til, er að
þeir sem leitað er til, bregðist
vel við og gefi greinargóð svör.
Öll svör verður farið með sem
trúnaðarmál, og geta menn því
sagt skoðanir sínar umbúða-
laust, til lofs eða lasts kirkjunni.
1 ráði er, að gerð verði sams-
konar skoðanakönnum í Ólafs-
firði í sumar. Pálmi Matthías-
son stud. theol. mun annast
framkvæmd hennar. Q
- Utanríkis- og
landhelgismál
(Framhald af blaðsíðu 4)
Þegar þessi mál eru athug-
uð nánar með ró og rökum
er ljóst, að hin farsæla stefna
Framsóknarflokksins hefur
tryggt þjóðinni framgang
þeirrar stefnu í landhelgis-
málinu, er yfirgnæfandi
hluti þjóðarinnar vill fylkja
sér um. Allt tal Sjálfstæðis-
flokksins um „forystuhlut-
verk“ hans í utanríkismál-
um fellur því niður dautt
og marklaust. □
(Framhald af blaðsíðu 8)
Framsóknarflokkurinn mótaði
mjög stefnuna. Raflína frá Laxá
er komin inri áð Mýri, stefna
Sjálfstæðismanna er að þeir
bændur sem búa inn í dalabotn-
um skuli sæta afarkostum fái
þeir svo sjálfsögð þægindi, líkt
og aðrir landsmenn, en rétt-
sýnir Framsóknarmenn vinna
markvisst að því að landið verði
allt byggt og auður landsins og
miðanna umhverfis verði nýtt-
ur af þjóðinni sjálfri.
Síðan núverandi ríkisstjórn
hóf sinn merka starfsferil hefur
mikil franifara- og umbótaalda
farið um allar byggðir þessa
lands, líkt og áður er frá sagt á
árunum eftir 1927.
Hlöður, fjárhús, fjós, nýjar
íbúðir eða gömlu húsin eru
byggð upp, þannig er ævintýrið,
þetta er veruleiki hinna síðustu
missira, nýjar dráttarvélar með
margskonar tengitækjum til
heyskapar og jarðvinnslu. Frá
áramótum er búið að kaupa inn
í dalinn 8 bíla stærri og smærri
og þessa dagana eru tveir vinnu
flokkar í dalnum við brúar- og
vegagerð, enda vantar mikið á
að vegakerfið sé sæmilegt. En
þegar snjóbreiðan mikla lá um
dalinn svo mánuðum skipti sl.
vetur, þá óku margir vélsleðum
sínum og fóru mikinn um hjarn
breiðuna, enda eru fast að því
tveir tugir vélsleða til í dalnum.
Svo er það sjónvarpið. Sjón-
varpstæki er á nær hverjum
bæ, þar sem þess nýtur, en það
vantar mjög endurvarpsstöð
fyrir suðurdalinn.
Svo er það landgræðslan, þar
er von á áburðarflugvélinni inn
an skamms, til að dreifa fræi og
áburði um austurhlíðar dalsins,
það verður stórkostlegt að sjá
þær grónar og grænar.
Sunnudaginn 30. júní rennur
senn upp, e. t. v. hefur þú það
í hendi þinni hvor stefnan verð-
ur ráðandi í þjóðmálum okkar
næstu árin, stefna Framsóknar-
flokksins, stefna þeirra manna
sem staðið hafa að glæsilegri
uppbyggingu hvarvetna um
fjörð og dal allra landshluta,
eða stefnu Sjálfstæðismanna í
Reykjavík, þeirra manna sem
farið hafa niðrandi orðum um
grundvallar atvinnuvegi þjóð-
arinnar, landbúnað og fiskveið-
ar, en hafa markvisst sótt að því
marki að hneppa meginhluta
þjóðarinnar í verksmiðjuþræl-
dóm erlendra auðhringa, álverk
smiðjurnar margumræddu. Um
þetta verður kosið sunnudaginn
30. júní.
Lesandi góður, ég sendi þér
kveðju mína, kveðju og óskir
um heila för á ve'ginum ófarna.
Sigurður Eiríksson.
- Fjörogir íundir
(Framhald af blaðsíðu 8)
Hvaða málefni bar hæst?
Menn ræddu mikið um sér-
mál hinna einstöku byggðar-
laga og ýmis brýn úrlausnarefni
heimabyggða sinna. Landsmála-
pólitíkin var þó uppistaðan í
umræðunum, svona yfirleitt.
Það er alveg augljóst, að al-
menningur hér á Norðurlandi
er ánægður með þann mikla
árangur, sem náðst hefur í at-
vinnuuppbyggingunni sl. 3 ár.
Eins kemur það fram, að menn
telja að mjög vel hafi tekist til
í landhelgismálinu. Maður verð
ur hvarvetna var við mikla upp
byggingu og bjartsýni í sam-
bandi við afkomu fólks. Það fer
heldur ekki milli mála, að menn
vilja áframhaldandi vinstri
stjórn undir forustu Framsókn-
arflokks. Menn treysta vinstri
stjórn augsýnilega betur en
hugsanlegri forystu Sjálfstæðis-
flokksins, að því er varðar at-
vinnumál og sókn í landhelgis-
málinu. Um það er reynsla þjóð
arinnar ólygnasti votturinn.
Við frambjóðendur létum það
koma skýrt fram, að við teldum
þessar kosningar snúast um
stefnu og störf ríkisstjórnar
Ólafs Jóhannessonar, og að
Framsóknarflokkurinn sæktist
eftir því að koma sem sterkast-
ur út úr kosningunum til þess
að geta áfram verið forystuafl
fyrir vinstri stjórn. Á því má
ljóst vera, að samstarf við Sjálf-
stæðisflokkinn er ekki á óska-
lista Framsóknarflokksins, sagði
Ingvar að lokum. Q
Atvinna i
Maður óskast til land-
búnaðarstarfa í ná-
grenni bæjarins.
Gott kaup.
Uppl. á vinnumiðl-
unarskrifstofunni.
Ung stúlka óskar eftir
atvinnu.
Margt kemur til greina.
Uppl. í síma 1-24-51.
Oskum að ráða barna-
píu.
Uppl. í síma 2-21-89. 1
Tvítugur skólapiltur
óskar eftir vinnu í
sumar. ^
Uppl. í síma 1-18-11.
Húsnædi 1
Ungan reglusaman
mann vantar herbergi
nú þegar.
Fyrirframgreiðsla
ef óskað er.
Uppl. í síma 2-13-62.
Skarðshlíð 6 e, sem er
glæsileg 4ra herbergja
íbúð er til sölu.
Tilboð óskast.
Uppl. gefnar í síma
2-18-17.
Bifreióir i
Bíll til sölu!
Benz 1513 árg. 1971.
Uppl. í síma (96) 22634
milli kl. 4 og 7 e. h.