Dagur - 11.09.1974, Side 1
FILMUhúsið akureyri
Sláliirtíðin er
SAUÐFJÁRSLÁTRUN hofst á
Akureyri í dag, miðvikudag, og
verður lógað um 38 þúsund fjár
að þessu sinni. Stendur sauðfjár
slátrunin til 24. október. Kinda-
kjötsbirgðir eru þrotnar, sagði
Þórarinn Halldórsson sláturhús
stjóri KEA, en eitthvað lítils-
háttar mun vera af kindakjöti
í verslunum bæjarins.
Yfir hundrað manns vinna í
siáturhúsinu í haust og hefur
ráðning fólks til starfa þar
gengið vel.
í sláturhúsum KEA á Dalvík
verður lógað um 12 þúsund fjár
og í Grenivík hátt á sötta þús-
und. Sauðfé hefur fjölgað á öllu
svæðinu.
Akureyringar áttu yfir hálft
fjórða þúsund fjár á fjalli í
sumar, en höfðu um tvö þúsund
fjár á fóðrum í vetur. Akur-
eyrarréttir voru á laugardaginn
og sýndist féð fremur vænt að
þessu sinni, eftir gott sumar.
Féð gengur nú á hinu víðlenda,
ræktaða landi bæjarbúa. □
Frá lögreglunni
NORÐAN í Moldhaugahálsi
varð harður bifreiðaárekstur ár
degis á mánudaginn, er tveir
fólksbílar með A-númerum
mættust, og skemmdust þeir
mjög. Þrennt var flutt í sjúkra-
hús, en ekki var um , alvarleg
meiðsli að ræða svo dvöl í
sjúkrahúsi þótti óþörf.
Um hádegi sama dag varð
kona fyrir bifreið, er hún var
Bærinn
eipast
frímerkjasafn
MEÐ BRÉFI fró 19. ágúst í
sumar spyr J. S. Kvaran bæjar-
stjórn hvort Akureyrarbær
vilji þiggja einka frímerkjasafn
sitt með íslenskum frímerkjum
að gjöf, með því skilyrði, að
það yrði haft til sýnis. Safnið
yrði afhent smám saman eftir
því sem skrásetningu þess mið-
aði áfram.
Bæjarráð hefur samþykkt
með mikilli ánægju að veita frí-
merkjasafninu viðtöku og flyt-
ur gefanda þakkir fyrir rausn-
arlega gjöf. □
á gangbraut á Glerárgötu, við
enda Þórunnarstrætis. Hún
slasaðist og er í sjúkrahúsi. Og
enn varð árekstur á Hvanna-
völlum sama dag. Urðu þar
skemmdir á bifreiðum en ekki
meiðsl á fólki.
Á laugardaginn fannst stol-
inn jeppi í skurði í Kræklinga-
hlíð, sama dag vallt bíll nálægt
Kálfsskinni á Árskógsströnd og
er ökumaðurinn í sjúkrahúsi og
á sunnudag valt bíll í vestur-
brún Vaðlaheiðar. Slys urðu
þar ekki teljandi.
Á föstudag var 20 þúsund kr.
stolið í íbúð á Akureyri, er
íbúar brugðu sér frá. Aðfarar-
nótt laugardags hvarf veski
með 80—90 þúsund krónum á
Hótel KEA.
Brotist var inn í Veganesti
snemma á laugardag. Komið
var að innbrotsmanni og át
hann poppkorn innandyra.
Sömu nótt var farið í íbúð eina
í bænum og 30 þús. kr. stolið.
Var þar sami maður að verki,
drukkinn.
Aðfararnótt sunnudags var
rúða brotin í Geislagötu 12.
Biður lögreglan þá, sem upp-
lýsingar geta gefið, að gera
aðvart.
(Upplýsingar frá varðstofu
lögreglunnar á mánudag).
X Á Þverá í Laxárdal eru þessir tveir heimagangar, lamb og g
« refur, og Ieika þeir sér oft saman. (Ljósm.: Pétur Pétursson). g
íKKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKH>(KKHKHKHKHKHKHKHS-r'
Fé af Glerárdal rekið til réttar. (Ljósm.: E. D.).
Göngur, réttir og hrútasýningar
LOKIÐ er fyrstu göngum á
Akureyri og í Hrafnagils- og
Saurbæjarhreppi og var réttað
á þeim stöðum á laugardaginn.
Þverárrétt í Ongulsstaða-
hreppi er 20, september, í
Stærri-Árskógi 21. september,
Þverárrétt í Öxnadal 22. septem
ber og Tungurétt í Svarfaðar-
dal er 22. september.
Gljúfrárrétt verður 16. sept-
ember, Lokastaðarétt 17. sept-
ember og Illugastaðarétt 18.
september.
Hrútasýningar hefjast í sýsl-
unni 18. september og lýkur
þeim með héraðssýningu sunnu
daginn 13. október á Möðru-
völlum í Hörgárdal. Aðaldómari
á sýningunum verður Einar Ey-
lert Gíslason fyrrum bústjóri á
Hesti í Borgarfirði og Ólafur
Vagnsson héraðsróðunautur að-
staðardómari.
í vor var ákveðið, að láta gera
sérstakan verðlaunagrip, sem
veittur yrði fyrir besta hrút
héraðssýningarinnar og verður
hann afhentur nú í fyrsta sinn,
sem farandgripur.
Samhliða hrútasýningunum
verða allmargar afkvæmasýn-
ingar og verða þar sýndir 10
hrútar og 20 ær með afkvæm-
um. □
kureyri er ennþá mikill skólahær
BARNASKÓLAR bæjarins
hófu starf á mánudaginn, nema
Lundarskólinn nýi, sem ekki er
tilbúinn ennþá.
í Barnaskóla Akureyrar, sem
sumir kalla Brekkuskóla, eru
750 nemendur í 20 bekkjardeild-
um. Kennarar eru 28.
í Oddeyrarskóla eru 498 nem-
endur í 20 bekkjardeildum. —
Kennarar eru 24.
í Glerárskóla eru 500 börn í
900 ÞÚSUND FJÁR
HAUSTSLÁTRUN sauðfjár er
hafin í Borgarnesi og er að hefj-
ast víða um land í þessari viku.
Áætlað er, að í haust verði lóg-
að um 900 þús. fjár á 60 slátur-
húsum. Nýtt kjötverð hefur
ekki verið auglýst. □
20 bekkjardeildum. Kennarar
eru 19.
í Lundarskóla verða 320 nem-
endur í 14 bekkjardeildum. —
Kennarar verða 10. Með í fram-
angreindum tölum eru nú 6 ára
börnin og í tölu kennara bæði
lausráðnir og fastir.
Gagnfræðaskólinn byrjar 23.
september og verða 640 nem-
endur í þeim skóla, í 25 bekkjar-
deildum. Kennarar verða 40.
í barnaskólunum öllum verða
1850 nemendur í 75 bekkjar-
deildum, þar af 250 nemendur
í forskóladeildum, 7. og 8. bekk
grunnskóla (unglingadeildum)
verða 475 nemendur í 18 bekkj-
ardeildum í þrem skólum. Sam-
tals verða börn og unglingar í
barnaskólum og Gagnfræða-
skóla 2700 talsins, 100 fastráðnir
.Miklar kartöflttr í
Grýtubakkahreppi
Grenivík, 9. september. Hvar-
vetna er fólk að taka upp kart-
öflur í görðum sínum. Kartöflu-
rækt er mikil í Grýtubakka-
hreppi og uppskeran er mjög
góð. Garðlönd eru allstór, eins
og mörg fyrri ár.
Aldrei man ég eftir jafn-
mörgu fé heim komnu um þetta
leyti, en féð rann heim í hret-
inu í ágúst. Þá snjóaði niður í
miðjar hlíðar og Leirdalsheiði
varð ófær vegna snjóa. Nú eru
göngur framundan og verður
Gljúfurárrétt 16. september, en
þangað kemur fé úr Fjörðum,
Keflavíkurdal, Látraströnd og
svo af nærliggjandi löndum.
Lokustaðarétt verður 17. sept-
ember og Illugastaðarétt 18.
september.
Vegna ógæfta hafa róðrar
legið niðri þar til nú. í síðasta
róðrinum komu línubátar með
rúm fjögur tonn. P. A.
kennarar og um 20 stundakenn-
arar.
í Menntaskólanum á Akur-
eyri verða 520 nemendur, og
sanna tölur þessar enn, að Ak-
ureyri er mikill skólabæ, og eru
þó enn ótaldir ýmsir skólar
bæjarins, svo sem fjölmennur
Iðnskóli, Tónlistarskóli og deild-
ir tækniskóla, Vélskóla- og
Stýrimannaskóla og húsmæðra-
skóli. □
r
Armann Dalmannsson
áttræður
Á MORGUN, hinn 12 septem-
ber, verður Ármann Dalmanns-
son áttræður.
Dagur sendir hinum áttræða
heiðursmanni kærar kveðjur og
afmælisóskir. □