Dagur - 06.11.1974, Blaðsíða 4

Dagur - 06.11.1974, Blaðsíða 4
4 5 Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Símar 1-11-66 og 1-11-67 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: ERLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓHANN K. SIGURÐSSON Prentverk Odds Björnssonar h.f. HITAVEITA FUNDARGERÐIR Hitaveitunefnd ar Akureyrarkaupstaðar voru ræddar á bæjaistjórnarfundi í gær. í þeim kemur meðal annars fram: í skýrslu Jarðhitadeildar Orku- stofnunar, sem er jarðfræðileg um- sögn um jarðhitasvæðin í S.-Þing. með tilliti til liitaveitu fylir Akur- eyri, segir, að vænlegustu staðirnir séu Kroflusvæðið og Hveravellir í Reykjaliveifi. En fleiri hugsanlegir möguleikar eru þar einnig nefndir, en þar vantar þó meiri rannsóknir. Hitaveitunefnd óskar eftir heimild bæjarstjórnar til að leita eftir láni úr Orkusjóði til rannsókna og til- raunahorunar í Reykjahverfi og taka upp samninga við Orkustofnun um framkvæmd rannsókna á svæðinu næsta vor. En fullnaðar vitneskja um nýtingarmöguleikana liggja ekki fyrir fyrr en meiri boranir hafa verið gerðar á svæðinu. Þá óskar Hita- veitunefnd einnig eftir heimild bæjarstjórnar til að leita eftir fjár- veitingu á fjárlögum ríkissjóðs 1975 til þessara rannsókna. Ennfremur kemur frarn í þessum fundargerðum, að Hitaveitunefnd hefur rætt við Náttúruverndarnefnd S.-Þing., sem kvaðst mundu taka vin- samlega á þessu máli og ekki standa í vegi fyrir þessari framkvæmd, en hins vegar bæri henni að gæta nátt- úruverndarsjónarmiða og væri henni þá efst í liuga, að ekki yrði um að ræða röskun á Ystaliver, samfara hugsanlegum framkvæmdum. Þá hafa farið fram viðræður við Hitaveitunefnd Húsavíkurkaupstað- ar og í því sambandi lögðu fulltrúar Húsavíkur áherslu á, að þeim bæri að gæta hagsmuna Húsavíkur, sem þeir kváðu hafa rétt til frekari bor- unar á Hveravöllum, og töldu sig ekki reiðubúna til að taka afstöðu til hitaveitu frá Hveravöllum til Akureyrar. Hitaveitunefndin ræddi við land- eigendur í Reykjahverfi, þar sem allir nema tveir voru mættir. Land- eigendur töldu eðlilegast, að þeir allir yrðu, ásamt Garðræktarfélagi Reykhverfunga, aðilar að samkomu- lagi við Akureyrarbæ og kváðust mundu taka samningsuppkast til vin samlegrar athugunar, en það hafði áður verið gert á milli stjórnar Garð- ræktarfélagsins og Hitaveitunefnd- arinnar. Þetta uppkast er nú til athugunar bæði hjá Akureyraibæ og landeigendum. Ekki verður annað séð, en að und- irbúningur hitaveitu fyrir Akureyri fari skynsamlega fram og í fullu sam- ráði við alla þá aðila, sem hagsmuna eiga að gæta, ef til framkvæmda kemur. □ Bændaklúbbsfundur um filraunamál B Æ N D A KLUBB SFUNDUR var haldinn að Hótel KEA mánudaginn 28. okt. sl. For- maður Búnaðarsambands Eyja- fjarðar, Sveinn Jónsson, setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna til þessa fyrsta fund- ar vetrarins. Þá bauð hann einnig velkominn frummælanda fundarins, Dr. Björn Sigur- björnsson forstjóra Rannsókna- stofnunar landbúnaðarins. — Fundarstjóri var Haukur Hall- dórsson, Sveinbjarnargerði. Dr. Björn þakkaði fyrir það tækifæri að fá að mæta á þess- um fundi. Þá rakti hann nokkr- ar þær helstu framfarir sem orðið hafa í landbúnaði á undan förnum árum bæði hér og ann- ars staðar í heiminum. Þá drap hann á þau gömlu sannindi að reynslan væri besti skólinn en sú reynsla gæti verið nokkuð dýr. Það væri hlutverk tilrauna stofnana í landbúnaði að gera rannsóknir til þess að forðast mistök hjá einstaklingnum eða bændum. Þá benti hann á að HEIMSÞEKKTIR SKEMMTIKRAFTAR ÞAÐ einstæða tækifæri býðst bæjarbúum n. k. miðvikudags- kvöld að sjá og heyra sænska vísnasöngvarann K o r n e 1 i s Vreesvijk og hina dönsku vísna söngkonu Trille. Kornelis er heimsþekktur skemmtikraftur og þekktur fyrir skemmtilega sviðsframkomu. Þrennir tón- leikar verða haldnir með Korn- elius og Trille í Reykjavík og seldust aðgöngumiðar upp á ör- skömmum tíma. Og nú þegar þetta fólk kemur og heimsækir Akureyrarkaupstað ætti fólk ekki að láta þetta gullna tæki- færi sér úr greipum ganga, heldur fjölmenna í Samkomu- húsið miðvikudagskvöldið 6. nóvember. Tónlistardeild M. A. í samráði við Tónlistarfélag Akureyrar. nauðsynlegt væri að gott sam- starf væri á milli bænda og til- raunamanna þannig að tilrauna menn fylgdust með þeim vanda málum sem upp kæmu hverju sinni í landbúnaði og einnig að tilraunamenn sendu frá sér sem fyrst eftir að tilraun er lokið þær niðurstöður sem viðkom- andi rannsókn sýnir, þanriig að niðurstöðurnar kæmu sem fyrst að notum hjá bændum. Þá ræddi frummælandi nokk uð um verkefni tilraunastöðv- anna. Benti hann á að oft væri sá misskilningur uppi að bú- rekstur þessara stöðva ætti að vera um allt til fyrirmyndar. Vissulega væri gott ef það væri hægt, en á þessum stöðvum eru oft gerðar tilraunir sem búskap- arlega séð eru ekki til fyrir- myndar en slíkar tilraunir er þó oft nauðsyn að gera. Þá gat dr. Björn um þær til- raunastöðvar sem reknar eru af Rannsóknastofnun landbúnað- arins en þær eru Korpa við Reykjavík, fjárræktarbúið á Hesti, Reykhólar, Möðruvellir í Hörgárdal, Skriðuklaustur í Fljótsdal og Sámsstaðir. Einnig gat hann um þá deildarskipt- ingu sem er á Rannsóknastofn- uninni og nefndi þá sem eru þar í forsvari. Þá ræddi framsögumaður um nokkur þau verkefni sem verið er að vinna að. Umfangsmesta verkefnið sem nú er unnið að. er rannsóknir á beitarþoli af- rétta og heimalanda. Til þessa verkefnis var veittur styrkur frá Sameinuðu þjóðunum. Meg- in spurning sem þessi rannsókn á að svara er það hvort borgar sig að bera á fyrir búfé á út- haga og þá hvar á að bera á, þ. e. heimalönd eða afrétti. Til- raun þessi er lögð út á 10 stöð- um á landinu. Sem dæmi um stærð þessa verkefnis má nefna að girðingar umhverfis tilrauna reitina verða 100 km að lengd. Þá hafa Sameinuðu þjóðirn- ar einnig veitt styrk til rann- sókna vegna ylræktar. Talið er Gjðfir í Krisfínar-sjóð Á ÞESSU merkis ári heimsóttu okkur íslendinga margir góðir gestir. Mest kvað þar að fólki af íslenskum ættum, sem bú- sett er víða í Vesturheimi. Mann furðar oft á því, hversu mikla ættrækni og hlýhug þetta fólk ber til ganila landsins, enda þótt það sé fætt og uppalið í amerísku umhverfi og hafi haft takmarkaða aðstöðu til að læra íslensku og fylgjast með íslensk um málefnum. Nokkuð af þessu fólki hefur þó náð undra góðum tökum á íslenskunni með því að heyra hana af vörum afa og ömmu. Þetta fólk átti ættir sínar að rekja til flestra byggða á ís- landi. Þar af leiðandi dreifðust hóparnir vítt um landið til að sjá æskustöðvar forfeðra sinna og spyrjast fyrir um ættingja á þeim slóðum. Meðal þeirra Vestur-íslend- inga er komu heim í sumar voru þrjár systur, Sigríður, Guð hún og Ólafía. Eru þær ættaðar frá Torfufelli og Gilsá í Eyja- firði. Þessara þriggja systra er get- ið hér að þær heiðruðu minn- ingu eyfirsku skáldkonunnar Kristínar Sigfúsdóttur með því að gefa í minningarsjóð hennar, áður en þær hurfu heim aftur. Sigríður Benediktsdóttir gaf 1.000 kr., hún er búsett að Gimli í Manitoba. Ólafía og Stefán Stefánsson, ættaður frá Djúpa- Laufey Sigurðardóttir, Hlíðargötu 3, Akureyri. Lilja Jónsdóttir, Kristnesi, Eyjafirð'i. Angantýr II. Hjálmarsson, Hrafnagilsskóla, Eyjafirði. að arðbærasta nýting jarðhita sé að nýta hann til blómarækt- ar. Samhliða þessum verkefn- um er unnið að mörgum til- raunum á sviði jarðræktar og búfjárræktar. Þá ræddi dr. Björn um flutn- ing á tilraunastöðinni á Akur- eyri út að Möðruvöllum. Taldi hann að þar hefði fengist gott jarðnæði. Lítið væri þó farið að gera þar enn annað en að flutn- ingar stæðu nú yfir. Verið er nú að selja eignir stöðvarinnar á Akureyri. Fyrirhugað er að vera með jarðræktartilraunir á Möðru- völlum svipað og verið hefur og einnig verða þar tilraunir með mjólkurkýr bæði með fóðrun og vaxtarhraða. E. t. v. verður þar einnig framhaldið afkvæma rannsóknum. Til þess að hægt sé að reka þetta tilraunabú og gera nauðsynlegar framkvæmd ir þar vantar fjármagn, en lítil von er til þess að það fáist á þessu ári a. m. k. Til þess virð- ist skorta skilning fjárveitinga- valdsins. Sagðist dr. Björn von- ast til þess að Eyfirðingar stæðu vel að þessari stöð og stuðluðu að útvegun fjármagns eins og kostur væri. Að framsögu lokinni urðu nokkrar umræður og fyrirspurn ir sem frummælandi svaraði. Um 50 manns sóttu fundinn, sem stóð til kl. rúmlega 12 e. m. Ályktanir frá aðalfu Aðalfundur SUNN, haldinn á Húnavöllum við Svínavatn 17. ágúst 1974, gerði eftirfarandi ályktanir: 1. Um verndun sjávarlífs o. fl. Fundurinn fagnar þeim ár- angri, sem náðst hefur með út- færslu landhelginnar (fiskveiði- lögsögu), en bendir jafnframt á, að stækkun lögsögunnar fylgir aukin ábyrgð' á því að viðhalda þeim lífrænu auðlindum, sem bundnar i eru þessu hafsvæði, enda hlýtur það einnig að vera grundvöllur þjóðarbúskapar okkar. 2. Um votiendisvernd. Fundurinn telur mikilvægt, að þegar verði hafist handa um skipulega verndun votlendis í landinu. Þeim tilmælum er beint til búnaðarsambanda, að þau láti gera könnun á stærð og eðli helstu mýrasvæða, sem enn eru óframræst, hvert í sínu um- dæmi, líkt og byrjað er á í Eyja firði. Gera þarf strangari friðunar- ráðstafanir á fjörðum og flóum landsins, og stefna að því, að sumir þeirra verði aðeins nýttir til handfæra- og línuveiða. 3. Um landgræðslu. Fundurinn fagnar nýlegri lagasetningu um rausnarleg fjár framlög til landgræðslu, en tel- ur jafnframt að þörf sé að auka mjög rannsóknir, til að tryggja að fjárveitingar þessar komi að varanlegum notum. Fundurinn ítrekar þá ályktun fyrri aðalfunda, að selveiði verði bönnuð inni á Skagafirði, Eyjafirði og Skjálfanda. Þá tel- ur fundurinn mjög varhuga- verða þá herferð, sem nú er haf- in af hálfu fiskframleiðenda, fyrir fækkun í íslenska sela- stofninum, vegna hugsanlegra tengsla selsins við hringorm í fiski. Telur fundurinn, að enn hafi ekki verið sannað hvort aðrar skepnur geta gegnt sama hlutverki og selurinn sem milli- liðir ormsins, og þurfi þetta nánari rannsóknar. SUMARKVEÐJA TIL ODDGEIRS ÞÓRS ÁRNASONAR GARÐYRKJUSTJÓRA dal í Skagafirði, einnig búsett á Gimli, afhentu 50 dollara, eða 4.855 ísl. kr., og Guðrún Ingi- mundarson frá Winnipeg gaf 1.000 kr. Við, sem að þessari sjóð- stofnun stöndum færum þessu fólki innilegar þakkir fyrir þennan fjárstuðning og þá virð- ingu er þau sýna minningu skáldkonunnar með gjöfum sínum. í framhaldi af þessu vlljum við minna einstaklinga og félög á, að verðugt er að heiðra minn- ingu Kristínar Sigfúsdóttur og styrkja sjóðinn, sem á að varð- veita nafn hennar og á jafn- framt að hvetja ungt fólk til að kynnast verkum hennar. Ætlunin er að verðlaun verði veitt úr sjóðnum þeim ungling- um er skara framúr á hverjum tíma. Einnig mun eitt herbergi í Hrafnagilsskóla bera nafn Kristínar. Þann 13. júlí 1976 verða liðin 100 ár frá fæðingu skáldkon- unnar. Þann dag er ákveðið að sjóðurinn verði formlega stofn- aður, og þá verði búið að ganga endanlega frá skipulagsskrá hans. Ég sé mig tilneyddann að rifja upp orðræður og viðskipti mín og annarra hér í Skarðs- hlíð 8—10—12 við þig á undan- förnum árum. Þegar þú tókst við störfum, sem garðyrkjustjóri Akureyrar- bæjar, þá tókst þú að þér störf, sem áður voru ætluð tveimur mönnum, og útkoman var eftir því, og mun ég ekki hafa fleiri orð um það að sinni. Þegar þú tókst við störfum þá biðu þín mörg og stór verk- efni, þar á meðal að ganga frá lóð við Skarðshlíð 8—10—12, sem Akureyrarbær átti að gera í stand og ganga frá. Þáverandi hússtjórn leitaði til þín um framkvæmd verksins og tókst þú vel í það, og lofaðir þú hinu og öðru, sem ekki var staðið við. Þegar þetta pex hafði staðið í 2—3 ár, þá lofaðir þú að jafna lóðina og leggja til þökur, ef við húseigendur tækjum að okkur að þekja lóðina og gengum við að því. Þegar verkið var unnið af okkar hendi kom í ljós að það vantaði þökur á lítið svæði, sem ekki hafa fengist enn. Sömuleiðis lofaðir þú að ganga vel frá barnaleikvelli, sem er á okkar lóð, að vísu hefur verið keyrð gróf möl í völlinn og látið þar við sitja, en þú lofaðir að ganga vel frá, valta og setja perlumöl, sem ekki hefur verið staðið við. Þá kem ég að okkar viðskipt- um, sem hófust síðastliðið vor. Það hefur hneykslað bæði mig og aðra, að ekki hefur verið gengið frá vegköntum við Hörg árbraut, þó gatan sé malbikuð og sömuleiðis gangstéttar. Mér var tjáð að þú ættir að sjá um framkvæmd á því verki, ég tók mig til og hringdi í þig í vor og fór fram á það að gengið væri frá köntum áður en færi að gróa, því þar vex alkyns gróð- ur, sem er ekki æskilegur á lóðir okkar. Þú tókst því ekki vel að gera það strax, en lofaðir að gera það í sumar, sem ég sætti mig við, en auðvitað stóðst þú ekki við það fremur en önnur lof- orð við okkur. Seinnipartinn í júlí hittumst við á götu, og sagðir þú, að nú ætti að fara að ganga frá veg- köntum og öðru, sem eftir væri, og yrði það áreiðanlega búið um miðjan ágúst. Ég varð glaður við og taldi víst að nú myndir þú standa við gefin loforð, að vísu varð ég var við byrjun um hádegi, þegar ég kom heim í mat nokkru seinna. Það hafði farið jarðýta eina eða tvær ferðir og bælt grasið í vegkant- inum og nokkru seinna hafði verið keyrð nokkur hlöss af uppgreftri á lóð næsta húss fyrir norðan okkur. Eftir miðj- an ágúst hitti ég þig af tilviljun og sagði að verkið væri ekki búið, og sagðir þú þá að það yrði áreiðanlega búið um mán- aðamót ágúst—september. Nú er útséð um það, að ekki verður gert meira fyrr en á næsta sumri. Ég hef verið að hugleiða það hvað komi til að ekki er hægt að treysta loforðum þín- um og hef ég komist að þeirri niðurstöðu, að þú hafir tekið of mikið að þér, og ættir að láta þér nægja að sjá um Lystigarð- inn og aðra skrautbletti bæjar- ins. Ég óska þér velfarnaðar. Skrifað fyrsta vetrardag 1974. Loftur Meldal. 5. Um friðlýsingu á Norður- landi vestra. Fundurinn telur að hægt hafi miðað í friðlýsingum á Norður- landi vestra, og beinir þeim til- mælum til Náttúruverndarráðs, að vinna betur að þeim málum. 4. Um vistfraeðirannsóknir við undirbúning virkjana. Fundurinn ályktar að jafnan skuli vistfræðirannsóknir vera fastur liður við undirbúning virkjana. í sambandi við Blöndu virkjun hvetur fundurinn til, að vistfræðirannsóknir þær sem þar eru hafnar, verði sem ýtar- ið til- áhrifa hennar á náttúru svæðisins og aðstöðu til bú- skapar. Loks telur fundurinn einsýnt að íslendingar eigi að hætta hvalveiðum, eða takmarka þær við þarfir innlendrar neyslu, og fara þannig að fordæmi grann- þjóða okkar. 6. Um vegagerð og umgengni á Kröflusvæðinu við Mývatn. Fundurinn vekur athygli á landspjöllum, sem orðið hafa á Kröflusvæðinu austan Mývatns, þar sem lagning vegar að til- raunaborholum hefur orsakað mikinn akstur bíla um svæðið, og þarflausa slóðamyndun. Með tilliti til nýlegrar laga- setningar um vemdun Mývatns svæðisins (Skútustaðahrepps), má ætla að hér sé um að ræða mjög hættulegt fordæmi, sem geti átt þátt í að gera friðlýs- ingar þýðingarlausar. Þeim tilmælum er beint til Náttúruverndarráðs, að það láti þegar stöðva allan þarflausan akstur á svæðinu, og geri þá kröfu til Orkustofnunar, að hún láti lagfæra þau spjöll, sem þarna hafa verið unnin. (Fréttatilkynning) FRA BRIDGEFELAGI AKUREYRAR dul, að efast um yndi og ánægju dansins. En er það rétt, að menn geti árlega' notað sér skóla bæj- arins, til þess að auglýsa sig, ýta undir ístöðuleysi barnanna, sem þar iðja og setja foreldrana í ástæðulausan vanda. Væri ekki heldur drengilegra að nota venjulega fjölmiðla „svo að nem endur gætu sjálfir ráðið hvort þeir tækju þátt í danskennsl- unni“, Með því að útbýta prent- uðum áróðursmiðum í tösku barnanna sefjar dansmeistarinn þau í stóra kös sér til fram- dráttar. Með þessu er ég ekki að mótmæla dansi í skólum, sem vel mætti gera að skyldu- fagi jafnhliða leikfimi og sundi, ekki heldur D. H. Á. sem slík- um, heldur aðferðum þeim sem hann notar til að ná fram vilja sínum. Akureyri, 5. nóv. 1974. Eiríkur Sveinsson. NÚ er lokið tvímenningskeppni Bridgefélags Akureyrar. Spilað ar voru fjórar umferðir. Tvímenningsmeistarar félags- ins urðu að þessu sinni frúrnar Dísa Pétursdóttir og Rósa Sig- urðardóttir, en þær hlutu 940 stig. Keppnin var skemmtileg og tvísýn allt til loka. Röð efstu para er þessi: Sauðárkróki, 4. nóvember. Á ársþingi Ungmennasambands Skagafjarðar sl. vor, var Guð- jón Ingimundarson, íþrótta- kennari á Sauðárkróki, kjörinn heiðursfélagi sambandsins. Guð jón lét af störfum, sem formað- ÁRVISS FARFUGL Komið er að nýrri vertíð Dansskóla Heiðars Ástvaldsson- ar. Við foreldrar megum gjarn- an eiga hans von á þessum árs- tíma. Þegar Dansskólanum fer að leiðast fyrir sunnan, leitar hann út á landsbyggðina. Að vissu leyti er það góðra gjalda vert, því ekki ætla ég mér þá Frá Félaosmálasföinun í FRÉTTATILKYNNINGU Fé- lagsmálastofnunar Akureyrar segir m. a.: Þriðjudaginn 15. október sam þykkti bæjarstjórn Akureyrar reglugerð um heimilisþjónustu á Akureyri. Hlutverk hennar verður að veita hjálp á heimil- um, þar sem hjálpar er þörf vegna elli, sjúkdóma, örorku, Skemmtanir Spilakvöldin hefjast í Ereyjulundi föstudag- inn 8. nóv. kl. 9 e. h. BINGÓ. Góðir vinningar. Nefndin. Húsnædi 3ja og 5 herhergja íbúð- ir til leigu. Uppl. í síma 2-30-91 eftir kl. 7 e. h. íbúð til sölu! Höfum til sölu fokheld- ar 110 lerm. íbúð í rað- húsi að Hjarðarlundi 2 Dalvík. Til afhendingar um áramót. Uppl. gefur Hihnar Daníelsson, sími 6-13-19. Tréverk lif., Dalvík. iBifreiöiri 1. Rósa Sigurðardóttir — Dísa Pétursdóttir 940 stig. 2. Alfreð Pálsson — Guðmund- ur Þorsteinsson 932 stig. 3. Grettir Frímannsson — Ævar Karlesson 922 stig. 4. Soffía Guðmundsdóttir — Páll Pálsson 877 stig. 5. Gunnlaugur Guðmundss. — Magnús Aðalbjörnss. 876 stig. 6. Ármann Helgason — Jóhann Helgason 871 stig. 7. Angantýr Jóhannsson — Frið finnur Gíslason 870 stig. 8. Guðjón Jónsson — Páll Jóns son 843 stig. 9. Páll Gestsson — Orn Einars- son 841 stig. Meðalárangur var 840 stig. Næsta keppni félagsins er sveitakeppni. □ Guðjón Ingimundarson heiMur ur sambandsins 1973, eftir að hafa gegnt því starfi að ein- stökum áhuga og samviskusemi um 29 ára skeið. Á formannaráðstefnu sam- bandsins fimmtudaginn 31. októ ber sl., afhenti núverandi for- maður, Stefán Pedersen, Guð- jóni vandað gullúr að gjöf frá öllum ungmennafélögum í Skagafirði. Með þessu vilja ung mennafélagar þakka Guðjóni farsæla forystu um áratuga- skeið og þann ómetanlega þátt hans í því æskulýðsstarfi, er unnið hefur verið á sambands- svæðinu. Á Sauðárkróki er nú einhver glæsilegasta íþróttaaðstaða sem þekkist á landinu. Þeirri upp- byggingu hefur Guðjón stjórn- að frá byrjun af framsýni og áræði og gerir enn. Það vilja ungmennafélagar einnig þakka. Góðir bílar til sölu! 9 sæta Volkswagen Bus með gluggum árg. 1970. Toyota Land Cruser jeppi árgerð 1969. Volkswagen Variant árgerð 1971. Greiðsluskilmálar. Bílaleiga Akureyrar Tryggvabraut 14 Ak., sími 2-25-15. Til sölu Skoda Oktavia Comby árg. 1965. Uppl. í Grænuhlíð, Saurbæjarhreppi. Willys jeppi árg. 1963 til sölu. Hagstætt verð. Sínti 2-18-85 eftir kl. 7 e. li. TIL SÖLU Volvo 144 De luxe sjálfskiptur, árg. 1973. Magnús Jónsson, Þórshamri. TIL SÖLU Ford Cortina, árg. 1968, í góðu lagi. Utvarp og snjódekk. Uppl. í síma 2-16-12 eftir kl. 7 á kvöldin. Atvinna Guðjón Ingimundarson, G. O. Óska eftir konu til að gæta 1 j/2 árs drengs allan daginn. Uppl. í síma 2-19-57. barnsburðar, slysa, dauðsfalla eða af öðrum orsökum. Hjálpin á að veitast þann tíma og á þann hátt, sem Félagsmálastofn un metur að nauðsyn sé hverju sinni. Heimilisþjónustan felur í sér eftirfarandi atriði: 1. Aðstoð við aldraða í þeim til- gangi að gera þeim kleift að dvelja lengur í heimahúsum. 2. Aðstoð við sjúklinga í heima húsum, í þeim tilgangi að stytta sjúkrahúsvist, eða jafn vel koma í veg íyrir hana. 3. Umsjón með heimili, þar sem húsmóðir eða heimilisfaðir eru fjarverandi vegna veik- inda. 4. Aðstoð við fatlaða, sem búa einir. 5. Ráðgjöf um hússtjórn. 6. Onnur tilfelli, sem meta þarf hverju sinni. Á Akureyri hefur verið til svokölluð heimilishjálp, en þar var eingöngu um að ræða hjálp,. sem nefnd er undir li8' nr. 3 að ofan. Fyrir þessa þjónustu á sá, sem hennar nýtur, að greiða eftir sérstakri gjaldskrá. Á hún að miðast við tekjur viðkom- andi og kostnað við hjálpina. Þeir sem hafa litlar tekjur munu því greiða lítið, eða jafn- vel sleppa við greiðslu, en þeir sem meiri tekjur hafa greiða meira. Félagsmálastofnun Akureyr- Vilfu kðupa te? FÉLAG ungtemplara hér á Akureyri, mun á föstudags- kvöld og e. t. v. á laugardaginn heimsækja bæjarbúa og bjóða te til sölu, á 200 krónur pakk- ann. Þetta er fjáröflunarleið hinna ungu templara og ágóð- anum verður varið til að styðja atvinnuuppbyggingu í sjávar- þorpi einu á Ceylon. Starfandi ungtemplarar í fé- laginu á Akureyri eru um 20. Formaður þess er Steinar Frí- mannsson, nemandi í M. A. Fyrir þá, sem kynnast vilja starfseminni, er bent á að hringja í síma 22468. Onnur félög ungtemplara á landinu munu á sama tíma bjóða te, hvert í sínu umhverfi og i sama tilgangi. □ Móðurást NÆSTA mánudagsmynd Borg- arbíós er Móðurást, frönsk- bandarísk kvikmynd með góð- um leikurum. □ ar heldur námskeið fyrir þá, sem vilja vinna við heimilis- þjónustuna. Á námskeiðinu eru kennd ýmis atriði varandi mata ræði og heilsufar, veitt verður innsýn í næringarefnafræði og rætt um sérfræði, fæðuþörf aldraðra og ungbarnafæði. Þá verða kennd ýmis hjúkrunar- atriði, svo sem meðferð sjúkra og íatlaðra, umönnun aldraðra og ungbarnameðferð. Á nám- skeiðinu verður einnig komið inn á tryggingalöggjöf og önnur algeng lög og rætt verður um framkomu í starfi, afstöðu til skjólstæðinga og ýmis sálíræði- leg atriði. □ - Bækur gefnar út á Akureyri (Framhald af blaðsíðu 1) ágrip af jarðsögu gljúfranna og Helgi Hallgrímsson náttúru- fræðingur skrifar um lífríki þéssa sérkennilega og fagra landsvæðis, sem nú hefur að nokkru leyti verið gert að þjóð- garði. Um þessar mundir er að koma út ný útgáfa af endur- minningum Guðrúnar Á, Símon ar, Eins og ég er klædd, og sömu leiáis ný útgáfa af barna- bók Ármanns Kr. Einarssonar, Niður um strompinn, en báðar þessar bækur seldust algjörlega upp fyrir jólin í fyrra. Skáldið sem skrifaði Mannamun er safn af bréfum eftir Jón Mýrdal, en Finnur Sigmundsson bjó bókina undir prentun og ritar skýring- ar. Bílaborgin er spennandi skáldsaga eftir Arthur Hailey, en áður hafa komið út eftir hann skáldsögurnar Hinzta sjúk dómsgreiningin, Hótel og Gullna farið (Airport), sem notið hafa vinsælda. Þýðandi er Hersteinn Pálsson. Auður á Heiði, ástarsaga eftir Ingibjörgu Sigurðardóttur. Fræ, ljóðabók eftir Ármann Dalmannsson. Og blómin anga, barnabók eftir Jennu og Hreiðar. Hanna María og Viktor verða vinir, unglinga- bók eftir Magneu frá Kleifum. Hrakningar á söltum sæ, sjó- hrakningasaga af fjölskyldu, sem barðist hetjulegri baráttu við óblíð náttúruöfl á hafinu í 48 sólarhringa — en sigraði að lokum. □ SPANSKUR ANDLITSTEIKNARI UM þessar mundir dvelst á Akureyri spánskur andlitsteikn ari og býr í Varðborg. Heitir hann Marteinn frá Krossi eftir að hafa íslenskað nafn sitt. Þessi teiknari gerir myndir af bæjarbúum eftir pöntun, bæði litmyndir og svart-hvítar mynd- ir. Pantanir og sýnishorn í and- dyri hótelsins. □ í Dalvíkurskóla eru 250 nemar Á DALVÍK fór skólasetning fram 24. september. í Dalvíkur- skóla, sem er barna- og gagn- fræðaskóli, eru í vetur 251 nem- andi í tíu aldursflokkum. Deild- arskipting er þannig, að 7—9 ára börn eru öll saman í einni deild, en síðan er einn aldurs- flokkur í hverri deild nema 9. bekkur er í tvennu lagi, en sú deild er landsprófsdeild og al- menn bóknámsdeild. Á síðasta vetri var 7—9 ára börnum kennt öllum saman og þótti það gefa svo góða raun, að haldið er áfram sama fyrir- komulagi. Fjórir kennarar vinna þarna sameiginlega og eiga að bæta hver annan upp. Skólastjóri er Helgi Þorsteins son og auk hans starfa ellefu kennarar við skólann. Skólinn býr við mjög mikil þrengsli. Næsta haust verður tekin í notkun heimavist og getur þá skólinn bætt við 20—30 utan- bæjarnemendum. Að heimavist inni standa Hríseyjarhreppur, Árskógshreppur, Svarfaðardals- hreppur og Grímseyjarhreppur. Menn eru að byrja að huga að nýbyggingu fyrir gagnfræða stigið á Dalvík. (Samkvæmt viðtali við skóla- stjórann, Helga Þorsteinsson). „

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.