Dagur - 04.12.1974, Blaðsíða 5
4
/ ' ' '
5
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓHANN K. SIGURÐSSON
Prentverk Odds Björnssonar li.f.
Landhelgisdeilan
ÞEGAR Ólafur Jóhannesson, þá for-
sætisráðherra, fór til Lundúna og
gekk á fund breska forsætisráðherr-
ans til að gera við hann samning um
tímabundnar veiðar Breta innan 50.
mílna markanna, setti hann m. a.
fram það ófrávíkjanlega skilyrði, að
enginn verksmiðjutogari eða frysti-
togari fengi veiðiheimild innan fisk-
veiðilandhelginnar. Ennfremur, að
30 stærstu ísfisktogarar Breta yrðu
einnig útilokaðir. Samningum lykt-
aði þannig, að 15 af þessum 30 ísfisk-
togurum fengu veiðileyfi, en enginn
verksmiðju- eða frystitogari. Þettá
voru þau gmndvallarskilyrði, sem
framsóknarmenn settu ef til samn-
inga um veiðiheimildir í fiskveiði-
landhelgi okkar ættu til að koma.
Þessi afstaða lá fyrir og samkvæmt
henni var unnið.
Vestur-Þjóðverjum var vel kunn-
ugt um þessa afstöðu okkar og er það
því undrunarefni, að þeim skyldi til
hugar koma að reyna að þvinga okk-
ur til samninga, sem fælu í sér frá-
hvarf frá þessari yfirlýstu stefnu. Nú
hafa Vestur-Þjóðverjar sett á okkur
löndunarbann í þýskum höfnum,
vegna þess að þeir fá ekki að veiða
óáreittir inn í fiskveiðilandhelgi
okkar. Löndunarbannið þjappar ís-
lensku þjóðinni saman til varnar, svo
sem þegar hefur komið í ljós.
Ákvörðun Þjóðverja um löndunar-
bannið var bæði fljótfæmisleg og
fruntaleg, og hún byggist á algeru
vanmati á einbeittum vilja íslensku
þjóðarinnar og á þróun hafréttar-
rnála í heiminum. Þeir gera sér ekki
grein fyrir því, að enn er eftir svo
sterkur kjarni hins ganila bænda-
þjóðfélags á Islandi, sem nægir lítilli
þjóð til að standa á rétti sínum gagn-
vart stórveldi, hvað sem hótunum og
þvingunum líður. Vestur-Þjóðverjar
hafa eflaust einnig vanmetið þá
stöðu íslendinga í þessu máli, að þeir
eru að berjast fyrir lííi sínu og til-
veru með útfærslu fiskveiðilögsög-
unnat', en fyrir Vestur-Þjóðverja
skiptir þetta ekki meira en einum
málsverði.
Yfir 80% af útflutningi okkar era
sjávarafurðir, og er því um tilvera
okkar að tefla í landhelgis- og fisk-
veiðimálum. Þótt okkur skorti afl til
að verja rétt okkar, ef lögmál hins
sterka á að ráða, hefur aukinn réttur
strandríkja og eyþjóða hlotið viður-
kenningu mikils meirihluta hjá þjóð
um heirns. Að sjálfsögöu harma ís-
lendingar deilur við aðrar þjóðir.
Við löndunarbanninu er ekkert ann
að svar til, en að beina viðskiptun-
um í aðrar áttir og standa jafnframt
fast á þeim rétti einhliða útfærslu
landhelginnar, sem allar þjóðir virða
nú í verki nema Vestur-Þjóðverjar.
Frá aialfundi Landssambandsins
ÆSKAN 75 ÁRA
Kristján Kagnarsson flytur ræðu sína, Björn Guomundsson er
fundarstjóri.
(Framhald af blaðsíðu 1)
inn með 670 millj. kr. halla á
árinu 1974, þrátt fyrir 350 millj.
kr. bætur úr Aflatryggingar-
sjóði. Hagnaður á loðnubátum
ér áætlaður 550 millj. kr. En
grundvöllur loðnuveiðanna er
hruninn vegna lækkunar loðnu-
. mjölsins.
Áætlað er að halli á rekstri
taogaranna nemi um 800 millj.
kr. í ár.
Afkomu fiskvinnslunnar sagði
ræðumaður misjafna, en áætlað,
að um hagnað verði að ræða
þegar á heildina er litið, en salt-
* fiskverkunin er talin vega upp
hallarekstur á frystihúsum og
fiskmjölsverksmiðjum. Afkomu
_.horfur í saltfiskvinnslu eru þó
Vi verulegri óvissu vegna lækk-
‘ áhdi verðs á heimsmarkaðinum.
Gengishagnaðarsjóður að upp
hæð allt að 1.650 millj. kr. mun
myndast þegar þær vörubirgðir
eru seldar úr landi, sem til voru
þegar gengisbreytingin varð.
Hluta þessa sjóðs hefur þegar
verið ráðstafað sem olíustyrk.
Það hlýtur að vera krafa okkar,
sagði formaður, að gengishagn-
aðarsjóðurinn komi allur í hlut
fiskiskipanna.
Nú eru gerðir út 36 skuttog-
arar af minni gerðinni, þ. e.
undir 500 brúttólestir, og 14 af
stærri gerð, eða alls 50 skip.
Eru þó ókomin 5 skip, sem nú
eru í smíðum.
Því er spáð af Hafrannsóknar
stofnuninni, að aflamagn þorsks
á miðunum við ísland minnki í
350 þús. lestir á næsta ári, úr
470 þús. lestum árið 1970 og úr
370 þús. lestum á yfirstandandi
ári, þrátt fyrir aukna sókn.
Spáð er mikilli loðnugengd á
miðin á næsta ári.
Síðar í ræðu sinni minntist
formaðurinn á áróður gegn út-
veginum og komst svo að orði:
Að undanförnu hafa útvegs-
menn mátt þola gegndarlausan
áróður gegn starfsemi sinni í
fjölmiðlum, einkum ríkisútvarp
inu. Hefur þessa gætt í hinum
ótrúlegustu dagskrárliðum, eins
og barna- og unglingaþáttum.
Svo virðist sem þeir gangi
lengst í þessu efni, sem komist
hafa upp með það, að sitja lang-
dvölum á skólabekk, án sýni-
legs námsárangurs, en fengið
námslán til þess að þurfa ekki
að vinna og fengið því hærri
lán, sem þeir hafa unnið minna,
þ. e. a. s. að námslánakerfið
hvetur til þess að námsmenn
taki ekki þátt í atvinnulífinu.
Að undanförnu hefir þetta fólk
svo lagt sig fram um að lítil-
lækka það fólk, sem að fram-
leiðslustörfum vinnur og í því
sambandi vanvirt menningu
' þess og lífsviðhorf. Ég geri þetta
að umtalsefni hér vegna þess,
að við höfum ástæðu til að veita
þessu athygli og okkur er skylt
að veita því viðnám. Það gerum
við bezt með því að kynna fyrir
þjóðinni þá starfsemi, sem unn-
inin er í hinum ýmsu sjávar-
þorpum þessa lands og gera
henni grein fyrir, að hagsæld
hennar er komin undir því að
fólk vinnur þau störf, sem
mestu framleiðsluverðmætin
skapa.
Að lokum sagði Kristján
Ragnarsson:
Mikil óvissa ríkir nú á vinnu-
markaðnum og hefur öllum
kaup- og kjarasamningum verið
sagt upp. Tímabundin ákvæði
um láglaunabætur í stað vísi-
tölubóta gilda til loka maímán-
aðar á næsta ári. Ljóst er, að
sjávarútvegurinn getur síður en
svo tekið á sig nokkra kaup-
hækkun eða kostnaðarauka í
annarri mynd. Verði gerðar til-
raunir til að þvinga fram kjara-
bætur, munu þær aðeins auka
verðbólguna og rýra lífskjörirí.
Öllum ættu að vera í fersku
minni síðustu kjarasamningar
og áhrif þeirra, sem aðeins
færðu fólki fleiri krónur með
tilsvarandi minna verðgildi og
komu því engum að gagni.
Að lokum leyfi ég mér, að
þakka útvegsmönnum á Norður
landi og þá sérstaklega Akur-
eyringum fyrir góðan undir-
búning að þessum fundi og fyrir
að hafa gert okkur mögulegt að
halda hann hér. Ég vona, að
þetta fundarhald hér á Akur-
eyri verði til þess að festa í
sessi þá stefnu, að halda aðal-
fund samtakanna utan Reykja-
víkur með einhverra ára bili.
Ég þakka meðstjórnarmönn-
um mínum í stjórn L.Í.Ú. fyrir
ánægjulegt samstarf og starfs-
fólki L.Í.Ú. færi ég beztu þakkir
fyrir vel unnin störf
Að svo mæltu segi ég 35. aðal
fund L.Í.Ú. settan.
Aðalfundinum var svo fram
haldið næsta dag og þá flutti
meðal annars sjávarútvegsráð*
herra, Matthías Bjarnason,
ræðu, og verður e. t. v. drepið
á nokkur atriði hennar síðar.
Megin ályktun fundarins var
svohljóðandi:
„Aðalfundur Landssambands
ísl. útvegsmanna, haldinn á
Akureyri 27.—29. nóv. 1974
vekur athygli á því, að sam-
kvæmt þeim gögnum, sem fyrir
liggja, verður stórfellt tap á
þorskveiðiflotanum á þessu ári,
á bátaflotanum um 670 m. kr.
og á togaraflotanum um 800 m.
kr. Þessi taprekstur hefur leitt
til mikillar skuldasöfnunar út-
gerðarinnar.
Nú þegar hefur verið ákveðið
að útgerðin geti að einhverju
leyti greitt þessar skuldir, ýmist
með lánum úr gengishagnaðar-
sjóði eða með lgnum frá vil-
skiptabönkum til fgrra ára.
Fundurinn leggur ríka áherslu
á, að framkvæmd hliðarráð-
stafana, svo sem ráðstöfun
gengishagnaðar og veiting iána
til greiðslu lausaskulda verði
hraðað svo sem unnt er. Þessar
ráðstafanir rnunu þó ekki leysa
vanda útgerðarinnar nema að
nokkru leyti. Það er því óhjá-
kvæmilegt, að hagur og rekstr-
argrundvöllur útgerðarinnar
verði gerður viðunandi fyrir
næstu áramót með því að fisk-
verð hækki nægilega til þess að
því marki verði náð.
Fundurinn mótmælir harð-
lega vísitölubindingu á lánum
Fiskveiðasjóðs, vaxtahækkun
sjóðsins pg almennri hækkun
vaxta af hverskonar lánum til
sjávarútvegsins. Slíkar aðgerðir
verða aðeins til þess að auka
þann risavaxna vanda, sem
þegar er við að fást.
Ennfremur bendir fundurinn
á, að nauðsynlegt er að lengja
lánstíma stofnlána til fiskiskipa.
Fundurinn telur nauðsynlegt,
að rekstrargrundvöllur sjávar-
útvegsins verði tryggður til
frambúðar, enda verður hag
þjóðarinnar þannig bezt borgið,
og bendir á, að hinn raunveru-
legi gjaldeyrir þjóðarinnar er
fyrst og fremst í hafinu um-
hverfis landið, og hans verður
ekki aflað nema þeim aðilum,
sem hann sækja, sé gert það
fjárhagslega kleift. Það hefur
lengi viðgengist að sjávarút-
veginum hefur verið ætlað að
láta sér nægja afganginn þegar
allar aðrar starfsstéttir þjóð-
félagsins hafa fengið sitt, þótt
hann sé helzti undirstöðu-
atvinnuvegur þjóðarinnar.
Vegna þeirrar óvissu, sem nú
ríkir um afkomu útgerðarinnar,
samþykkir fundurinn að fela
stjórn L.Í.Ú. að boða til auka-
fundar í samtökunum, ef hún
telur ástæðu til.“
Endurkjörinn formaður sam-
takanna var Kristján Ragnars-
son.
Fulltrúar á aðalfundi LÍÚ
rómuðu mjög móttökur og fyrir
greiðslu á Akureyri. Þeim gafst
þess m. a. kostur að skoða Slipp
stöðina, Útgerðarfélag Akur-
eyringa og Verksmiðjur SÍS.
Þeir sátu boð útibúa Lands-
bankans og Útvegsbankans, ráð
herra bauð einnig til samsætis,
svo og Útvegsmannafélagið og
Slippstöðin. að ógleymdu bæjar
stjórnarboði. Q
BARNABLAÐIÐ ÆSKAN er
75 ára á þessu ári. Þetta vinsæla
blað kemur nú út í 18 þúsund
eintökum og er fagnað á heimil-
um, þar sem börn eru að alast
upp. Góðtemplarareglan hefur
gefið út þetta blað frá upphafi
og gerir enn. Fyrsti ritstjóri
var Sigurður Júl. Jóhannesson,
en ritstjóri nú er Grímur Engil-
berts.
Æskan hóf útgáfu barna- og
unglingabóka árið 1930 og hef-
ur síðan gefið út 250 bækur.
Til minningar um fyrsta rit-
stjórann og í tilefni þessa af-
mælis, hafa minnispeningar
verið slegnir, bæði úr gulli,
EINS og komið hefir fram í
blöðum er mikil þörf fyrir
klæðnað á hásléttum Eþíópíu,
en þar getur verið mjög svalt
og vætusamt. Því hefir Hjálpar
stofnun kirkjunnar ákveðið að
gangast fyrir söfnun á eftirtöld-
um fatnaði:
Karlmanna- og drengjafatnað
ur: Jakkaföt, buxur, peysur,
úlpur, aðrar yfirhafnir (m. a.
fóðraðir regnfrekkar) skyrtur
og nærföt (aðeins nærbolir).
Kven- og telpnafatnaður:
Peysur, pils, blússur, kjólar (að-
eins hlýir kjólar úr ullarefnum)
kápur (aðiens stór númer fyrir
konur) og ullarföt.
FRÁ GOSA
TESALAN til styrktar atvinnu-
uppbyggingu á Ceylon gekk all-
vel hér á Akureyri. Við seldum
fyrir rúmlega 210 þús. krónur.
Því miður urðu einhver svæði
útundan vegna þess hve fá við
vorum og verkefnið var stærra
en við héldum í fyrstu. Hvað
um það, gengur betur næst. Og
þó e. t. v. seint sé, þökkum við
kærlega fyrir móttökurnar.
Ungtemplarafélagið Gosi.
Á vegum Iðnskólans á Akur-
eyri var staddur hér í bænum
Helgi Hallgrímsson, yfirkennari
við Iðnskólann í Reykjavík.
Laugardaginn 23. nóv. sl. var
boðað til fundar á Hótel Varð-
borg með iðnmeisturum og
öðrum sem áhuga hafa á iðn-
silfri og bronsi, með mynd af
ritstjóranum. Kosta þeir 26.000
krónur, 2.000 krónur og 1.400
krönur. Þá hefur Æskan sent á
markað barnakönnur með sex
gerðum mynda. Hljómplata með
Árstíðunum eftir Jóhannes úr
Kötlum með lögum Birgis
Helgasonar og kvæði eftir Mar-
gréti skáldkonu Jónsdóttur, sem
var ritstjóri Æskunnar um
skeið, er komin út. Sigfús Hall-
dórsson samdi lög við þau ljóð.
Lögin og ljóðin eru sungin af
börnum í Barnaskóla Akur-
eyrar. Tónaútgáfan á Akureyri
gaf plötu þessa út á vegum hins
aldna og ágæta barnablaðs. □
Smábarnafatnaður: Allskon-
ar flíkur fyrir ofan mitti og smá
teppi. Einnig venjuleg ullar-
teppi.
Þýðingarlaust er að senda
fatnað úr plasti og gúmmii,
höfuðföt, sokka, vettlinga, stáss-
klæðnað og skófatnað.
Fatnaðurinn þarf að vera
heill og hreinn, að öðrum kosti
verður innflutningur ekki
leyfður
Flutningskostnaður er mjög
mikill þótt aðilar hafi boðið hag
stæð farmgjöld, Þess vegna er
óhjákvæmilegt að gefendur
greiði sem svarar kr. 150 á hvert
kíló fatnaðar. Stefnt er að því
að senda einn fiugvélarfarm
fyrir jól.
Séra Bernharður Guðmunds-
son mun hafa eftirlit með fram-
kvæmd málsins ytra.
Hér á Akureyri verður fötum
veitt móttaka í Akureyrar-
kirkju mánudaga, þriðjudaga
og föstudaga kk 6—7.30 e. h. Þá
þeim, sem þar vilja eiga hljóðar
bænarstundir. Nánari upplýsing
ar eru gefnar í síma kirkjunnar
23665 og hjá sóknarprestum.
menntunarmálum. Gerði Helgi
þar ítarlega grein fyrir starf-
semi tréiðnaðardeildar svo og
öðrum verkkennsludeildum
skólans, og svaraði fyrirspurn-
um fundarmanna.
Á yfirstandandi vetri mun tré
iðnaðardeild taka til starfa í
Iðnskólanum á Akureyri. Ráð-
inn hefur verið kennari við
deildina, Torfi Leósson, hús-
gagnasmíðameistari.
Þá er það í senn von og
ákveðin ósk Iðnskólans á Akur-
eyri að hið opinbera sjái sér
fært að gera skólann svo úr
garði að aðrar deildir verklegr-
ar þjálfunar geti tekið sem fyrst
til starfa, innan veggja skólans
eins og þegar er orðið í Iðnskóla
Reykjavíkur.
Sjá auglýsingu á öðrum stað.
(Fréttatilkynning)
Til sölu Suzuki 1974.
Uppl. í síma 2-26-71.
Tveir nýjir svefnbekkir
til sölu.
Sími 2-23-61.
Til sölu er fjögurra rása
sterioupptökutæki.
Uppl. í síma 2-15-84.
á kvöldin.
% Frá vinstri: Þuríður Schiótli, Sigurður Eiríksson og Stefán
<| Aðalsteinsson í hlutverkum sínum. (Ljósm.: Fr. Vestmann) |>
Sjá auglýsingu í blaðinu á öðrum stað.
F
Safnaðarráð.
Tréiðnaðardeild fekur fil starfa
Sala
TIL SÖLU vel með
farnir LANGE-skíða-
skór no. 42.
Uppl. í sírna 2-37-21.
Til sölu vegna flutnings
Westhinghöusé eldavél-
arsamstæða í sérflokki.
Westinghouse þvottavél,
sjálfvirk.
Stór ísskápur, .Boch.
Loftl jós, gólfteppi.
Dodge Weapon bifreið
ásamt varahlutum.
Uppl. í síma 2-21-62
milli 5 og 8 e. h.
Til sölu mótorlaus
Volkswagen 1962 til
niðurrifs, einnig Rafha
eldavélasamstæða, selst
ódýrt.
Einnig óskast á sama
stað notaður skápur.
Uppl. í Norðurgötu
31 b.
Vil selja notaðann
mótakrossvið og 2x4”
plankar.
Sigurður Pálsson, Holt-
seli í Hrafnagilshreppi.
Til sölu 21 hestafla vél-
sleði.
Uppl. í síma 2-31-90.
TILBOÐ!
Tilboð óskast í fasteigna
tryggt veðskuldarbréf
að upphæð 300.000 með
8% vöxtum. Afborgun
er 50 þúsund á ári -þ
vextir.
Tilboð skilist á afgr.
Dags merkt „Veðskulda-
bréf“, fyrir 4/12 1974.
BARNAVAGN og
KERRA til sölu.
Uppl. í sima 2-16-92.
Notað sófasett til sölu,
stólarnir á snúnings-
stálfótum. Verð 35.000.
Uppl. eftir kl. 19 í síma
2-17-63.
25 lítra fiskabúr með
fiskum og tilheyrandi til
sölu.
Uppl. í Möðruvalla-
stræti 1.
Fæst í kaupfélaginu
Sjöunda barnabók Indriða
ÚT er komin hjá Bókaútgáfunni
á Akureyri sjöunda barnabók
Indriða Úlafssonar skólastjóra
og heitir hún Flóttinn mikli.
Fyrri bækur Indriða Úlfssonar
eru: Leyniskjalið, Ríki betlar-
inn, Leyndardómur á hafsbotni,
Kalli kaldi, Kalli kaldi og
Túlípanahótelið, og Kalli kaldi
og landnemar á Drauganesi.
Allar hafa bækur þessar náð
vinsældum yngstu kynslóðar-
innar, enda sumar uppseldar
Nýja bókin, Flóttinn mikli, er
viðburðarík og spennandi bók,
rúmar 140 blaðsíður með kápu-
mynd og teikningum eftir
Bjarna Jónsson. Söguhetja bók-
arinnar er Logi, ungur piltur,
sem neyddur er til að taka þátt
í innbroti, og síðan hefst flótt-
inn. Q
Indriði Úlfsson,
barnabókahöfundur.
Kiæðið gluggana
fyrir jólin
með nýjum GLUGGATJÖLDUM
■ rfu
r
Otrúlegt úrval af hliðartjöldiuii,
stóresum, einnig pífugardínum i litum
• í
Kappaefni þykk og þunn
Úrvalið skapar ótal möguleika
DÖMUDEILD - SÍMI 2-28-32.
Áknreyringar
JÓLABINGÓ að Hótel Varðborg fimmtudaginn
5. des. kl. 8,30 e. h.
Aðgangur ókeypis.
Ágóðinn rennur til líknannála.
ST. ÍSAFOLD.
AÐALFUNDUR
Framsóknarfélags Akureyrar
verður haldinn miðvikudaginn 4. ,des. n. k. í
Hafnarstræti 90 og hefst kl. 20,30.
Dagskrá:
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Venjuleg aðalfundarstörf.
3. Önnur mál.
STJÓRNIN.
Félas rsvist
Framsóknarfélögin á Akureyri lralda félagsvíst
laugardaginn 7. des. kl. 20,30 á Hótel K.E.A.
Dansað á eftir-til kl. 2 e. m.
FRAMSÓKNARFÉLÖGIN
MELKORKA
eftir
Kristínu Sigfúsdóttur.
Leikstjóri
Júlíus Oddsson.
Sýningar fimmtudag 5.
des. og sunnudag 8. des.
kl. 9 e. h.
Aðgöngumiðasala við
LAUGABORG.
Jólagetraun
í VIKUNNI
Jólabakstur
í VIKUNNI
Jólavikan að koma
VIKAN
Aðalfundur
Vestfirðingafélagsins á
Akureyri verður hald-
inn sunnudaginn 8. des-
ember kl. 16 á Hótel
Varðborg.
Stjórnin.
Nýkomið!
Handþrykktar
herrasivuntur.
Handþrykkt dagatöl
1975.
Útsaumaðir kaffidúkar.
Mikið af fallegum
li a n n yr ða vö r u ni
í gjafapakkningum.
VERZLUNIN DYN6JA
AKUREYRI
• **
Fasteignasalan
RÁÐHÚSTORGI 1,
SÍMI 2-22-60.
Til sölu 3ja herb. íbúð
við Byggðaveg.
Lítið einbýlishús á
Brekkunni.
3ja og 4ra herb. íbúðir.
Fokhelt eiribýlishús á
Brekkunni.
Höfum verið beðnir að
litvega 4—5 herb. íbúð.
Æskilegt að bílskúr
fy]gi.
FASTEIGNASALA
RÁÐHÚSTORGI 1,
Sami inngangur og
Norðlensk trygging.
SÍMI 2-22-60.
STEINDÓR
GUNNARSSON,
lögfræðingur.
heimasími 2-37-85.
Ath.: Skrifstofan opin
allan daginn.