Dagur - 04.12.1974, Page 8
AUGLÝSINGASÍMl
Dagur
Akureyri, miðvikudaginn 4. des. 1974
JÓLAGJAFA | /tÍ GULLSMIÐIB . '
Aldrei meira Y SÍGTRYGGÚR 1 & PÉTUR
" AKUREYRI
SMATT & STORT
Kjartan Olaísson og Kristana Jónsdóttir í hlutverkuni úr Skugga-Sveini. (Ljósmyndastofa Páls)
SUNNUDAGINN næstlcom-
anda, þann 8. þ. m. mun Leik-
félag Akureyrar hefja sýningar
á leiknum „Matthías skáld“ eft-
ir Böðvar Guðmundsson. Sýn-
ing þessi er samansett úr æði
mörgum þáttum, skiptast þar á
leiknir þættir, söngvar, vísur,
frásagnir, Ijósmyndir, gaman-
mál og alvara. Leiksviðið sýnir
handverksmenn við iðju sína og
er ekki bundið sérstökum stað
eða tíma. Handverksmenn þess-
ir gera svo ýmist að syngja,
leika, lesa eða gera að gamni
sínu. Allir textar aðrir en bein
Gunnarsstöðum í Þistilfirði, 2.
des. Hér er algerlega snjólaust
í byggð. Þegar hoft er héðan
austur í Syðribrekknafjallið,
sést aðeins grátt í brúnum. En
sjálfsagt er nokkur snjór inn til
heiðanna, því úrkomur hafa
verið talsverðar. Hér fyrir neð-
an á enginu sjást ekki svell, og
man ég naumast eftir jörð svo
snjólausri og klakalausri á þess-
um árstíma.
Haginn er að vísu orðinn lé-
legur svo bændur hýsa og gefa
fé sínu nokkuð. Allir vegir í
byggð eru ágætlega færir.
Útvarpið gat þess fyrir
skömmu, að mikill snjór væri í
Þingeyjarsýslum. En við erum
nú Þingeyingar og höfum engan
FÉLAGSYIST
Á LAUGARDAGINN
Framsóknarfélögin á Akur-
eyri halda félagsvist á Hótel
KEA á laugardaginn, 7. desem-
ber. Hefst samkoman klukkan
20.30. Ingvar Gíslason alþingis-
maður flytur ávarp. Á eftir
verður dansað til kl. 2 e. m.
Aðgöngumiðar verða seldir í
Hafnarstræti 90, föstudaginn 6.
des. kl. 2—4 e. h. og einnig má
panta aðgöngumiða á sama tíma
í síma 21180. Miðar verða einnig
seldir, ef eftir verða, á Hótel
KEA frá kl. 8 e. h. á laugardag.
Margir hafa undanfarið spurst
fyrir um félagsvist og virðist
því áhugi á skemmtikvöldi af
þessu tagi vera fyrir hendi. □
samtöl handverksmannanna,
eru eftir Mattías skáld Jochums
son sjálfan néma örfáir kaflar
sem fjalla jjá um hann og eru
eftir merkúm samtímamönnum
hans hafðir, svo sem Eiríki frá
Brúnum, Steingrími Thorsteins
sypj, JuleS: Leclerck o. fl.
Einar teiknari Helgason hefur
gert mynd ,af Matthíasi sem all-
an tímann gnæfir yfir sviðinu,
ýmist í formi svarthvítrar teikn
ingar í ljósmyndastíl eða sem
glermynd í kirkjuglugga. Hann
hefur einnig gert eftirlíkingu þá
af leikmyndaruppdrætti Sigurð-
snjó. Þá þykir sumum hér
austurfrá það dálítið broslegt,
þegar fjölmiðlar eru að tala um
eitt og annað „úti á landinu",
einslog þar sé eitthvert annað
land. Nei, við búum líka á ís-
landi og enjm, íslendingar, ekki
síðri en þeir fyrir sunnan.
í góöa veðrinu er unnið af
fullum krafti við byggingar.
Nýbúið er að reisa mikla vöru-
skemmu hjá kaupfélagi okkar
hér á Þórshöfn, stálgrindahús.
Ekki er búið að ná dýrbítun-
um, sem ég áður sagði frá, að
grandað hefðu fé á Langanesi,
enda alltaf snjólaust og ekki
liægt að rekja slóðir. Féð er
vaktað og hafa refir því ekki
drepið fleira fé en orðið var.
Hins vegar báru tvær kindur í
Laxárdal þess merki, hvað rebbi
ætlaði að gera þar. Báðar kind-
urnar voru bitnar, en unnt
reyndist að græða þær.
Verið er að æfa sjónleik hér
í sveitinni. Lionsmenn héldu
konukvöld um sl. helgi og
heilsuræktarfólk hélt hlutaveltu
fyrir sina starfsemi. Þar eru
konur að verki og eru búnar að
koma upp húsi á Þórshöfn, þar
sem aðstaða verður til heilsu-
ræktar. Konur um allar sveitir
fara tvisvar í viku í heilsu-
ræktaræfingar. Læknisfrúin,
Ásta Guðvarðardóttir, stjórnar
þeim. Húsnæðið, sem konurnar
hafa, er bílskúr þeirra læknis-
hjónanna, en á næsta ári mun
rætast úr með húsnæðið. Kon-
ur telja sig hafa gott af þessum
æfingum og er naumast að efa,
að það sé rétt. Ó. H.
ar málara sem notuð er þegar
leikið er úr Skugga-Sveini.
Tónlist er eftir ýmsa þekkta
höfunda, svo sem Sveinbjörn
Sveinbjörnsson, Jónas Tómas-
son, Jónas Helgason og svo
Gade og Matzart svo einhverjir
séu nefndir. Tónlistarflutningur
er í umsjá Jóns Hlöðvers Ás-
kelssonar. Hann hefur einnig
gert útsetningar á ýmsum lög-
um og stjórnar kór leikfélags-
ins.
Skuggamyndir eru gerðar af
Páli Pálssyni Ijósmyndara eftir
ljósmyndum og teikningum frá
ævitíma Matthíasar.
Ljósameistari er nú sem
endranær Árni Valur Viggós-
son, en leikstjóri Eyvindur
Erlendsson.
Sýning þessi verður væntan-
lega endurtekin á miðvikudags-
kvöldið þann 11. þ. m. Verður
það síðasta sýning L. A. fyrir
jólin.
Næsta verkefni L. A. verður
svo barnaleikritið Litli-Kláus
og Stóri-Kláus sem áætlað er
að hefji göngu sína fljótt uppúr
áramótunum.
(Fréttatilkynning)
DRAUMAR
Draumar eru alltaf ráðgáta,
bæði eðli þeirra, orsakir og svo
merking þeirra eða ráðning.
Rónda einn í Eyjafirði dreymdi
eina nóttina, að hann skaut á
mikinn rjúpnalióp og tíndi svo
upp 21 rjúpu. Þennan draum
sagði hann nágranna sínum,
sem varð kíminn á svipinn og
sagði, að sig hefði söniu nóttina
drcymt 21 snjóhvíta kind. Eftir
þetta fór að hríða og snjóaði í
21 dag samfleytt.
I •1' :1 -
ÓFÖGUR SJÓN
Drengir á barnaskólaaldri freist
ast oft til þess í snjó, að hanga
aftan í bifreiðum. Sem kunnugt
er hafa hlotist af þessu hin
alvarlegustu slys. Strákum
finnst þetta gaman og e. t. v.
karlmannlegt, en ósið þennan
þarf að kveða niður. Skólarnir
þurfa mörgu að sinna í sínu fjöl
breytta hlutverki. En gætu þeir
ekki, þar sem heimili liafa í
þessu efni brugðist, haft áhrif
á börnin, svo að þessi stórhættu
legi og ljóti leikur verði að fullu
niður kveðinn á Akureyri?
EINANGRUNIN
Tíðrætt er mörgum um ein-
angrun hinna ýmsu sveitabæja
og lieilla sveita, og víst er hún
til. Fyrir skömmu komu tveir
kaupstaðarbúar á eitt af þess-
um heimilum strjálbýlisins í fá-
mennri sveit. Þeir voru að huga
að rjúpum. En veður versnaði
og því var farið heim á næsta
bæ, og það varð ekki meira úr
rjúpnaveiðinni þann daginn.
Olli því hið leiðinlega veður, en
þó miklu fremur liitt, að sam-
ræður urðu svo skennntilegar
að rjúpurnar gleymdust uns
komið var myrkur. Það þótti
þeini kaupstaðarbúum í frásög-
ur færandi, að í þessari sveit
voru tíð spilaltvöld í samkomu-
húsinu, söngæfingar, guðsþjón-
ustur og afmælisveislur. Auk
þess var dansað öðru hverju.
Þegar þessir menn fóru að bera
þctta saman við kaupstaðarlífið,
kom í ljós, að í hinni strjálbýlu
sveit var margfalt meira félags-
Iíf en í þétíbýlinu, og líklega
mörgum sinnum meiri „menn-
Á þessu ári verður Medsjid
Agajev í þorpinu Tikjabanda í
sovétlýðveldinu Azerbaidzjan
140 ára.
Hann er fjárhirðir. í 120 ár
hefur hann stundað eftirlætis-
iðju sína, beitt fé í fjallahögun-
um í Azerbaidzjan.
Madsjid Agajey er hress og
ingarneysla“, og kom þeim það
á óvart.
ER ÓGNARÖLD HAFIN?
Mörgum verður á að spyrja: Er
ógnaröld hafin á íslandi? Ilver
verður nú myrtur næst? Sjö
vikur í röð hafa menn verið
drepnir eða nálega banað i átök
um. Þá greina læknar frá fjöl-
mörgum slysum vegna átaka í
heimahúsum í Reykjavík og er
áfengisdrykkja oftast undanfari
óhappanna. Misþyrmingar á
konum og börnum koma sjaldn-
ast í fréttum, en taldar ört vax-
andi. Þessi ótíðindi síðustu tíma
liljóta að vekja menn til um-
hugsunar um, hvað sé að gerast
með þjóðinni á þessum síðustu
og verstu tímum, og á hvern
hátt eigi við að bregðast. Að
sjálfsögðu er drykkjuskapurinn
mikill orsakavaldur, en hér
virðist eitthvað meira að.
SR. GYLFI JÓNSSON
SETTUR í EMBÆTTI
Akureyringurinn séra Gylfi
Jónsson hefur verið settur inn
í embætti í Höfn í Hornafirði,
þar sem hann var í haust kos-
inn prestur. Séra Gylfi er sonur
hjónanna Jóns Helgasonar og
Nellu Pétursdóttur á Akureyri,
er 29 ára og kvæntur Þorgerði
Sigurðardóttur. □
Búfjárhaid
REGLUR um búfjárhald í landi
Akureyrarkaupstaðar er enn á
dagskrá. Á síðasta vori var lagt
fram uppkast að allítarlegum
tillögum varðandi búfjárhaldið.
Bæjarstjórn sendi það ýmsum
aðilum til umsagnar, meðal
annars hestamannafélagi, fjár-
eigendafélagi og skrúðgarða-
nefnd.
Þessir aðilar hafa ekki sent
bæjarstjórn tillögur um breyt-
ingar eða ábendingar, nema
skrúðgarðanefnd, sem nýlega
hefur sent frá sér greinargerð
um málið. Er þess að vænta að
skriflegar athugasemdir berist
frá þeim, sem til var leitað og
áhuga kynnu að hafa á málinu.
í uppkastinu var m. a. gengið
út frá því, að takmarka mætti
tölu þess sauðfjár og hesta, sem
einstaklingar mættu hafa í
bæjarlandinu, ennfremur um
hámarksfjölda sauðfjár á afrétt
og á hvaða tímum beita mætti
hrossum á land bæjarins. □
fullur orku. Þó að langt sé síð-
an að hann fór á eftirlaun, eru
máleíni sem varða samyrkju-
búið eftir sem áður hans aðal-
áhugamál. Á hverjum degi geng
ur Agajev 10—12 kílómetra og
lítur eftir jarðeignum samyrkju
búsins.
(Úr fréttabréfi Sovétríkjanna)
Matthías Gestsson ljósmyndari
og Borgarbíó buðu fréttamönn-
um á mánudaginn að horfa á
sýningu litskuggamynda Matt-
híasar. Þær myndir, sem eru
flestar framúrskarandi góðar,
eru frá þjóðhátíð á Þingvöllum,
Vestmannaeyjargosinu, hesta-
mannamótum, Akureyri o. fl.
Myndasýning fyrir almenning
verður í Borgarbíói á laugar-
daginn kl. 2 e. h. Það er ómaks-
ins vert að sjá þessar myndir,
sem eru skýrðar jafnóðum, og
það ætti að vera keppikefli
félaga og klúbba, sem oft vantar
skemmtiefni, að fá þátt af þessu
tagi, sem bæði er fróðlegur og
skemmtilegur. □