Dagur - 05.03.1975, Qupperneq 2
í
Helmsþing esperantlsta á íslandi
Heimshreyfing esperantista hef
ur ákveðið, að heimsþing hreyf
ingarinnar verði haldið hér á
landi árið 1977 og er ráð fyrir
því gert, að á milli eitt og tvö
þúsund manns sæki þingið.
í>að má því gera ráð fyrir, að
þetta verði fjölmennasta ráð-
stefna, sem hér hefur verið
haldin. Áhugamenn um esper-
anto hafa því mikinn hug á að
efna sem víðast um landið til
kennslu í esperanto.
Nú er liðið á aðra öld frá því
Zamenhof kom fyrst fram með
esperanto og bundu menn
miklar vonir við, að það kynni
að verða lausn á tungumála-
glundroðanum í heiminum.
Hreyfing esperantista hefur frá
upphafi verið alþjóðleg og mið-
að að því að efla friðsamleg
tengsl þjóða í milli á jafnréttis-
grundvelli. Esperanto er ekki
ætlað, gagnstætt því, sem sumir
álíta, að koma í stað annarra
tungumála — heldur hefur því
fyrst og fremst verið ætlað það
hlutverk að leysa úr þeim
vandkvæðum, sem orðið hafa í
samskiptum þjóða í milli —
verða nokkurs 'konar „annað
mál“ — enda eitthvert auðveld-
asta mál og þjálasta, sem um
getur og því mjög auðlært og
fljótlært.
Hér í bæ eru esperantistar
fáir en nú er ætlunin að fjölga
þeim, því ákveðið hefur verið
að efna til námskeiðs í esper-
anto á vegum Námsflokka
Akureyrar ef næg þátttaka
fæst. Námskeiðið verður með
því móti að kenndar verða
fjórar stundir á viku, tvö kvöld
vikunnar. Innritun er hafin og
stendur fram til 22. febrúar.
Þeir sem áhuga hafa á að taka
þátt í námskeiðunum eru beðn-
ir að 'hafa sem fyrst samband
við Námsflokkana eða Ólaf
Halldórsson í síma 2-11-03.
Áhugamenn um
esperanto á Akureyri.
- Kirkjuvika
(Framhald af blaðsíðu 1)
sonar. Ræðumaður verður Gísli
Jónsson menntaskólakennari.
Ljóð flytja Guðmundur Gunn-
arsson og Jón Kristinsson.
Kirkjukórinn syngur.
Kirkjuvikunni lýkur með
guðsþjónustu sunnudaginn 16.
mars kl. 2. Þar predikar séra
Þórhallur Höskuldsson, Möðru-
völlum. Ávarp í messulok flyt-
ur foiTnaður sóknarnefndar,
Finnbogi S. Jónasson.
Þeir, sem stjórna kvöldsam-
komum, verða: Ólafur Daníels-
son, Ingimar Eydal, Jónína
Steinþórsdóttir, Ragnhildur
Jónsdóttir og Rafn Hjaltalín.
Orgelleikari kirkjuvikunnar er
Jakob Tryggvason.
Kirkjuvikur á Akureyri hafa
farið fram annað hvert ár síðan
1959. Þær hafa verið vel sóttar
og hlotið fastan sess í safnaðar-
lífinu. Kjörorð kirkjuvikunnar
er bæn um frið á jörð. Samein-
umst um þá bæn og fjölmenn-
um til kirkjunnar.
Undirbúningsnefnd.
SMÁTT & STÓRT
(Framhald af blaðsíðu 8)
sína á einu og öðru og bendir
stundum á það sem vel cr, og
er blaðiö þakklátt fyrir þennan
áhuga, þótt ábendingarnar kom
ist ekki allar á prent. Fyrir
nokkrum dögum var gerð sú
fyrirspurn til blaðsins, hvort
tryggt væri, að mælar olíubíl-
anna, sem flytja gasolíuna til
heimilanna, væru réttir.
ER BENSÍNIÐ SVIKIÐ?
Þá hefur þeirri fyrirspurn verið
beint til blaðsins, hvort bensín-
ið, sem selt er hér á landi og
kemur frá Sovétríkjunum, sé
kraftminna en gefið er upp.
Þeirri spurningu er þá einnig
beint til bensínsala, hvort oktan
talan sé rétt upp gefin, og hver
hún sé.
UM MÁL OG VOG
Blaðið spurði Guðmund Jóns-
son, forstjóra Olíusöludeildar
KEA, um framangreind atriði.
Hann svarar þessu svo:
Löggildingarstofa ríkisins hef
ur árlegt eftirlit með mælum
þeim, sem notaðir eru við af-
liendingu á olíum og bensíni
og eru þeir innsiglaðir. Olíu-
mælar stimpla sjálfir á af-
greiðslunóturnar.
Um bensínið er það að segja,
að það er 93 oktein, eins og það
hefur verið og upp er gefið.
BÖRN OG HUNDAR
Og enn hefur verið á það bent
að hundar gangi stundum lausir
í bænum og hvernig það megi
vera, að reglur þar séu marg-
brotnar, án þess nokkur hreyfi
hönd né fót. Ennfremur, hvort
slík gæslulaus og flækingadýs
séu ekki réttdræp. Þessu máli
á lögerglan að svara og liún á
einnig að gæta þess, að reglum
um hundahald í bænum sé
framfylgt. Vonandi móðgast
enginn þótt börn séu liér nefnd
í sömu andránni og á það bent,
samkvæmt umkvörtunum, live
mjög skortir á, að reglum um
útivist barna sé framfylgt.
FORELDRAR ÞURFA AÐ
VERA SAMTAKA
Hvað útivist barna snertir, er
það höfuðnauðsyn, að foreldrar
séu samtaka um að fara að sett-
um reglum og leyfi ekki börn-
um sínum kvöldráp. Það er
mjög erfitt fyrir foreldra, sem
fylgja vilja reglunum um úti-
vist barna og unglinga, að fram
fylgja þeim ef foreldrar í næstu
húsum gera það ekki. Lögregla
og barnaverndarnefnd geta ef-
laust ráðið hér bót á, ef áhugi
er fyrir hendi. Eftir því mega
„reglusamir“ foreldrar ganga
hjá þessum aðilum.
NORDJASS Á
Á miðvikudagskvöldið kemur
Jasskvintettinn Nordjass fram
hér á Akureyri — en þessi jass-
kvintett var stofnaður á síðasta
ári og eru í honum hljóðfæra-
leikarar frá öllum Norðurlönd-
um. NOMUS (Nordisk Musik-
samarbejde), sem undanfarin
ár hefur veitt fé til verðlauna
á sviði tónlistar, samþykkti á
síðastliðnu ári að veita engin
tónlistarverðlaun, en verja í
þess stað fé til þess að styrkja
jasstónlistina — ekki með því
að koma upp keppni milli hljóð
færaleikara heldur með því að
launa þá og styrkja til ferða-
laga um Norðurlönd.
Nordjasskvintett varð til eftir
að fram hafði farið hæfnispróf
og voru valdir úr stórum hópi
fimm listamenn, sem síðan
komu í fyrsta skipti fram í októ
berbyrjun 1974 í Kaupmanna-
höfn og sendu einnig skömmu
síðai- frá sér breiðskífu, sem
hlotið hefur frábærar viðtökur
- HEIMSÓKN
Eþíópía, er nafn, sem oft heyr-
ist í fréttum um þessar mundir.
Þar hefir ríkt hungursneyð.
Stjórnmálaástand hefir verið
þar ótryggt en viðburðarríkt og
sér reyndar ekki fyrir endann
á þeim átökum sem eiga sér
stað á þeim vettvangi. Og fleira
er að gerast í Eþíópíu. í héraði,
sem heitir Konsó, starfa íslend-
ingar, á samnefndri kristniboðs
stöð. Þessir íslendingar eru
reyndar jafnframt Akureyring-
ar, Skúli Svavarsson og Jónas
Þ. Þórisson. Hafa þeir getið sér
mjög gott oi'ð í starfi sínu, ekki
síst í sambandi við úthlutun
matvæla meðan á hungursneyð
inni stóð, en þá kom drengileg
hjálp frá íslsndingum í góðar
þarfir og má ssgja að hafi forð-
að mörgum mannslífum. Þetta
þakka Konsó-menn og hafa
margoft beðið íyrir þakklæti til
íslendinga fyrir þeirra góðu og
skjótu lijálp. Sá íslendingur,
sem hvað lengst hefir starfað í
Eþíópíu, er Gísli Ai'nkelsson,
núverandi formaður Sambands
íslenskra kristniboðsfélaga. —
Starfaði hann og kona hans,
Katrín Guðlaugsdóttir, um 10
ára skeið í Konsó. Þau hjón eru
væntanleg í stutta heimsókn til
Akureyrar um næstu helgi.
Munu þau verða á fundum hjá
Hel?i!eikur
Á mánudagskvöld var guðs-
þjónusta þriggja prestakalla í
Stórutjarnarskóla. í Ljósavatns-
skarði. Þjónuðu þar prestarnir
Bolli Gústavsson, Sinar Sigur-
björnsson og Jón Aðalsteinn
Baldvinsson. Og sýndur var
helgileikurinn Etíópía, sem
Viktor Guðlaugsson skólastjóri
hafði æft, ásamt fleiri kennur-
um skólans. Á þriðja hundrað:
manns sóttu þéssa” guðsþjón-
ustu og var góður rómur ger að.
- NÝI KALDBAKUR
(Framhald af blaðsíðu 8)
of lítil og ber brýna nauðsyn til
þess að stækka hana. Ráðgert
er að hún verði byggð sunnan
við hraðfrystihúsið og mætti sú
framkvæmd ekki dragast lengi.
Þessar framkvæmdir er enn
meiri þörf síðan fiskikassarnir
komu til, því það þarf enn
meira rými fyrir þá.
Blaðið þakkar skipstjóranum
svörin og óskar honum, áhöfn
og skipi góðs gengis.
jassunnenda á Norðurlöndum.
Hljómsveitina skipa: Knut
Riisnæs, saxófónleikari frá
Noregi; Pekka Pöyry frá Finn-
landi (flauta, alt- og sópran-
saxófónn); Ole Kock Hansen,
píanóleikari frá Danmörku;
Kjell Jansson, bassaleikari frá
Svíþjóð og Pétur Östlund,
trommuleikai-i frá íslandi. Höf-
undar tónlistarinnar, sem að
nokkru leyti er sótt í norræn
þjóðlög, eru Jukka Tolonen,
Kock Hansen og pianóleikar-
arnir Torben Kjær, Lars Jans-
son og Bobo Stensson.
Nordjass kemur hingað á
vegum Norræna félagsins og
Tónlistarfélagsins. H1 j ómsveitin
leikur hér aðeins þetta eina
kvöld. Aðgöngumiðar verða
seldir í bókaversluninni Huld
og á milli kl. 5 og 7 í Samkomu
húsinu, þar sem tónleikarnir
fara fram.
Norræna félagið á Akureyri.
Tónlistarfélag Akureyrar.
Kristniboðsfélagi karla kl. 2 e.h.
á sunnudag í kristniboðshúsinu
Zíon. Einnig munu þau segja
frá starfinu í Konsó, í máli og
myndum á samkomu í Zíon kl.
8.30 á sunnudagskvöld. Eru
bæjarbúar hvattir til þess að
nota þetta tækifæri að kynnast
betur starfi landa okkar í þess-
ari fjarlægu heimsálfu.
Rudolf Weissauer
Málverkasýning er þessa viku
í Varðborg á Akureyri. Þar
sýnir Rudolf Weissauer fjöl-
margar myndir sínar og eru
þær allar til sölu. Aðgangur er
ókeypis. Hér er um að ræða
grafikmyndir, en það mvnd-
form hans hefur veitt honum
frægð, og vatnslitamyndir. Lista
maðurinn er Akureyringum
kunnur af sýningu, sem hann
hélt hér nýlega við góða aðsókn.
r
- Akvörðun tekin .. •
(Framhald af blaðsíðu 1)
ræða, hvor staðurinn yrði fyrir
valinu. En lögð áhersla á, að
hafnar væru viðræður við hlut-
aðeigandi landeigendur, vegna
hugsanlegra landsskemmda
vegna virkjunarframkvæmda.
Með virkjun í Jökulsá eystri,
munu þó ekki verða vatnsspjöll.
Jón Birgir Jónsson flutti
greinargerð um stefnumörkun
i samgöngumálum og Benedikt
Bogason ræddi um stofnkostn-
að og rekstur á hreyfanlegri
malbikunar- og hörpustöð á
Norðurlandi vestra. Mikill
áhugi hefur um árabil verið á
bættum samgöngum milli
Skagastrandar, Sauðárkróks og
Blönduóss yfir Þverárfjall með
brú á Laxá. Þetta mál var
einnig rætt á fundinum og er
mikilvægt, svo sem vegna
dreifingar á fiski til vinnslu og
á samgöngum yfirleitt. Sam-
staða var um það hjá fundar-
mönnum, að sveitarstjórnar-
mennmenn kæmu saman til
fundar hver hjá öðrum til að
ræða hagsmunamál sveitar-
félaga sinna og kjördæmisins.
G. Ó.
- Frá Kópaskeri . • .
(Framhald af blaðsíðu 1)
4. Lögð verði öryggislína frá
Kröfluvirkjun til Kelduhverfis
og tengd þar háspennulínu frá
Laxá.
5. Að gefnu tilefni bendir
fundurinn á, að takmörkun raf-
orku til húsahitunar kemur í
veg fyrir eðlilega uppbyggingu
íbúðarhúsnæðis í héraðinu.
Leggur fundurinn áherslu á, að
þeir sem standa í nýbygging-
um, verði með einhverju móti
heimiluð raforka til húsahitun-
ar, þangað til næg raforka verð
ur fyrir hendi. K. Á.
Sala
Til sölu 8 rása spólur!
Sá sem stal segulbandi
og hátölurum úr bíl sem
stóð fyrir neðán Gerði,
gettir fengið þær keypt-
ar á góðum kjörum.
Uppl. gefur Skarpliéð-
inn Jóliannsson, Svein-
bjarnargerði, Svalbarðs-
strönd, sími við Akur-
eyri.
Til sölu nýlegur og
mjög vel með farinn
Silver Cross barnavagn.
Verð kr. 18.000.
Uppl. í síma 1-13-09.
SUZURI 50 árg. 1973
til sölu.
Selst ódýrt.
Sími 1-11-22.
Til sölu VAGNKERRA
Shni 2-24-63.
Evenrude snjósleði er
til sölu.
Sími 2-38-80 eftir kl. 7
Til sölu snjósleði
Yamaha 440 b.
Uppl. í síma 2-10-92
milli kl. 12 og 3 e. h.
ÁRÁSIN Á LEIKFÉLAG
AKUREYRAR
Alþýðumaðui'inn birti um dag-
inn grein um Leikfélag Akur-
eyrar. Eftir þann lestur gat
maður haldið, að L. A. væri
hræðileg Mafíu-grúbba þar sem
forhertir fjárglæframenn réðu,
og þeim til handargagns væru
stórhættulegur kommalýður,
hrellandi sálir guðhræddra og
góðra manna. Lýsingin var
ekki fögur, og vel mátti skilja
á höfundi greinarinnar, að ekki
væri allt komið fram enn. Því
miður setti ekki höfundur rit-
smíðarinnar nafn sitt undir.
Þau ár, sem ég starfaði með
Leikfélagi Akureyrar var aldrei
minnst á hvort þessi eða hinn
væri í einhverjum stjórnmála-
flokki. Allir voru taldir jafn-
góðir, kommúnistar jafnt sem
íhaldsmenn. Því að vekja nú
upp pólitískan leikhúsdraug?
Ekki er ég vinstri sinnaður í
pólitíkinni, og hef aldrei spurt
meðleikara mína, eða þá sem
leikið hafa hjá mér, hvort væri
nú alveg rétt að enginn væri
kommi þar á meðal. Er ekki
meira um vert, að góðir leik-
arar séu til? í haust réðist til
Leikfélags Akureyrar bæði sem
leikhússtjóri og leikstjóri Ey-
vindur Erlendsson, vel mennt-
aður og duglegur leikhúsmað-
ur. Á nú að flæma hann í burtu
með rógburði og þvaðri? Því
ekki að lofa Leikfélagi Akur-
eyrar að starfa í friði, annað
hvort springa þeir á limminu,
og þá verður „leiklistarunn-
andi“ ánægður, eða þeir sýna
og sanna að þeir séu menn til
að halda á lofti merki L. A., og
það vona ég sannarlega að þeim
takist. Hættið þessum pólitisku
árásum og smáborgaraþrasi.
Iiver og einn verður að hafa
sínar pólitísku skoðanir í friði,
og enginn mun trúa því, að öll
þessi skrif um L. A. séu til
komin af umhyggju fyrir hag
Leikfélags Akureyrar. Ég skal
gleðja „leiklistarunnanda" méð
því að segja að ég er alls ekki
sammála starfsemi L. A. í einu
og öllu, en það er ekki vegna
þess að ég sé hræddur við þá
kommúnista er þar munu vera,
kratar og fleiri góðar sálir
munu eflaust vera þar líka, en
ef allir flokkar eiga góða leik-
ara og það eiga þeir, þá er allt
í lagi, og sleppum að draga þá
í dilka. En öll þessi nafnlausu
níðskrif um L. A., bæði fyrr og
nú, eru löðurmannleg og ekki
hægt annað en að fordæma þau.
Jóhann Ogmundsson.