Dagur - 03.04.1975, Blaðsíða 8
Dagtje
AUGLÝSíNGASÍMI
Akureyri, íimmtudaginn 3. apríl 1975
Dömu og
herra
steinhringar.
Mikiö úrval.
SMÁTT & STÓRT
Frá vinstri: írís: María Axíjörö, Eiríkur: Kristján Eiis Jónasson, Rakel: Árnýna Dúadóttir.
| Það’Var hlegið og mikið klapp-
áð í leikhúsinu á Húsavík laug-
ardaginn 22. mars sl. Leikfélag
Húsavíkur frumsýndi þá gaman
leikinn „Ég vil auðga mitt land“
j eftir þá félaga þrjá, er nefna sig
i höfundarheitinu „Þórð Breið-
j fjörð“. Leikstjóri er Sigurður
Hallmarsson, sem einnig gerði
leikmyndina. Söngvar prvða
j leikinn og er tónlistin eftir
Ladislav Vojta og hefði gjarnan
mátt vera meira af henni. Á
Lítið legi
sýningunni annaðist' Vojta und-
irleikinn við áönginn. Með
helstu hlutverk í leiknum fara
Einar Njálsson, Árnýna Dúa-
dóttir, Kristján Elías Jónasson
og Þorkell Björnsson. Leikur-
inn er vel leikinn og. hressilega.
Ymis skemmtileg leikbrögð
vekja kátínu. Aðdáunarvert er
TT LAND”
hve leikstjóra, tónlistarmanni
og leikurum hefur tekist vel að
gera manni skemmtilega kvöld-
stund úr kómedíunni. Svo vel
hefur það tekist, að engu öðru
líkist, en ævintýrinu um nagla-
súpuna.
Húsavík, 25. mars 1975.
Þorm. J.
THULE-tvímeiiningskeppiiin er næsta keppni
Loðnuaflinn sl. laugardags-
kvöld var tæplega 440 þúsund
lestir, en var á sama tíma í
fyrra 457 þúsund lestir. Enn
voru þá 20 skip á loðnuveiðum
en voru 107 þegar þau voru
flest. 90 skip hafa fengið 1000
lestir eða meira.
Norðmenn hafa orðið fvrir
miklum vonbrigðum með loðnu
yeiði í ár. Aðeins hafði tekist að
frysta um fimmta hluta þeirrar
l«ðnu, sem búið var að semja
um sölu á til Japans eða 10
þúsund lestum. Hafa þeir því
ekki framleitt nema 2 þúsund
lestir.
Hér á landi voru aðeins fryst-
ar um 1150 lestir af loðnu, sem
fer til Japans á þessari vertíð.
Á síðasta ári voru hér frystar
17 þúsund lestir fyrir Japans-
markað. □
Síðastliðinn ■ þriðjudag lauk
Sveitahraðkeppni Bridgefélags
Akureyi'ar. Alls spiluðu 9 sveit-
ir en umferðir voru 4. Sigur-
vegari varð sveit Páls Pálssonar
sem hlaut 955 stig. Auk Páls
eru í sveitinni Soffía Guðmunds
dóttir, Frfmann Frímannsson,
Gunnlaugur Guðmundsson og
Magnús Aðalbjörnsson.
Röð sveitanna var þessi:
Stig
1. Sv. Páls Pálssonar 955
2. — Ingimundar Árnas. 885
3. — Gunnars Berg 882
4. — Þormóðs Einarssonar 881
5. — Alfreðs Pálssonar 877
6. — Harðar Steinbergss. 858
7. — Arnar Einarssonar 833
8. — Grettis Frímannss. 806
9. — Víkings Guðmundss. 798
Meðalárangur var 864 stig.
Næsta keppni félagsins verð-
ur Thule-tvímenningskeppni,
sem hefst n. k. þriðjudagskvöld
8. apríl. Spilaðar verða þrjár
umferðir. Spilað er að Hótel
KEA og hefst keppnin kl. 8. □
ÞREPAIILAUP í LAXÁ
Lítið fer Laxá fram. Ilún hljóp
nýlega „þrepahlaup“ og stýflaði
krapið innrennsli til stöðvar-
innar svo raforkuframleiðslan
minnkaði um helming og
skömmtun hófst með tilheyrr
andi tjóni, óþægindum og kvört
unura á Norðurlandi eystra.
Það er enginn útbúnaður til
þess að veita krapinu fram hjá,
sagði stöðvarstjórinn við Laxár
virkjun. Loka, sem átti að vera
þarna og hjálpa manni til við
þetta, brotnaði fyrir jólin og
það er ekki möguleiki á að
koma henni fyrir á ný fyrr en
með vorinu.
VÍSINDUNUM FLEYGIR
FRAM
Flestum greinum visindanna
fleygir frarn. Eðlunarsérfraeðing
ar hafa með víðtækum rann-
sóltnum og tilraunum komist að
þeirri niðurstöðu, að með að-
stoð góðra tækja og kunnáttu
í meðferð þeirra, ás.amt auk-!
inni, tæknilegri og verklegri
fræðslu um líffærin, sérílagi
kynfærin, geti fólk framtíðar-
innar haft meiri skemmtan af
Iíkama sínum en hingað til hef-
ur þekkst með mannfólkinu.
Þegar vísindamenn og rithöf-
undar leggjast á citt við að
skýra möguleikana, líkja þeir
liinni tæknivæddu eðlun við
Olympíuleikana, sem fram
muni fara hverja nótt í hjóna-
rúminu.
AÐ LIÐNUM PÁSKUM
Vinna er nú hafin af fullum
krafti, að mörgum helgidögum
loknum. Vinnusamir íslending-
ar, sem á undanförnum árum
liafa unnið miklu meira en hóf-
legt er, reknir áfram af tæki-
færum, peningaþörf, raunveru-
legri eða ímyndaðri, verðbólgu
og knýjandi nauðsyn atvinnu-
veganna, eiga það skilið að taka
sér livíld í nokkra daga og njóta
friðhelgi heimilanna, fjarri
striti, sóti, svarfi, sjóvolki, barn
ingi við bækur og ítroðslu.
AÐ NOTA TÍMANN
Margt eldra fólk kann því illa
að vera iðiulaust. Það hafði
numið þau fræði í skóla lífsins,
Um páskahelgina var bjarg-
hringur á Torfunefsbryggju tek
jnri niður og skorin af honum
líflína og hankar skornir af
hringnum. Hafa oftar verið
gerð spjöll á bjarghringum við
höfnina, samkvæmt frásögn
hafnarvarðai'.
Um þetta má segja, að litið
leggst fyrir kappana, scm þessi
óþurítarverk vinna. Björgunar-
tæki, hverju nafni sem nefnist,
eiga að vera friðhelg og eru það
í huga allra sæmilegra manna.
Félagslíf hefur jafnan verið
mikið í Reykjadal í Suður-Þing
eyjarsýslu og er svo enn. Til
dæmis hefur Karlakór Reyk-
dæla æft söng næstum hvern
vetur í 43 ár. Núverandi söng-
stjóri kórsins er Ladislav Vojta
frá Prag. Laugardaginn 5. apríl
kl. 21.30 verður fyrsti samsöng-
ur kórsins á þessu vori í þing-
húsinu á Breiðumýri. Ein-
söngvarar kórsins eru Árni G.
Jónsson og Sigurður Friðriks-
son. Auk þess koma fram sem
gestir með kórnum, Ingimund-
ur Jónsson, sem syngur og leik-
ur á gítar, Stcingrímur Hall-
grímsson, sem leikur á trompet
og Þráinn Þórisson, sem syngur
einsöng. Karlakórinn frumflyt-
ur að þessu sinni fimm lög eftir
tcnskáld á Húsavík og í Reykja
dal.
Lengst allra hcfur Páll H.
Jónsson á Laugum verið söng-
stjóri Karlakórs Reykdæla eða
í meira en aldarfjórðung. Auk
þess eru um þessar mundir 50
ár síðan Páll stjórnaði kór í
fyrsta sinn, þá 16 ára gamall.
Með samsöng sínum á laugar-
daginn minnist kórinn þessa
hálfrar aldar afmælis söng-
stjórnar Páls.
Auk Karlakórs Reykdæla er
margs konar önnur félagsstarf-
semi í sveitinni. Má heita að
hvert kvöld vikunnar sé upp-
tekið við einhver félagsstörf.
Kirkjukór Einarsstaðasóknar
annast söng við guðsþjónustur
og jarðarfarir undir stjórn
organista síns, Friðrik Jónsson-
ar. Kvenfélagið undirbýr 70 ára
afmæli sitt í vor. Konur stunda
leikfimi eitt kvöld í viku undir
leiðsögn Halldórs Valdimars-
sonar íþróttakennara á Laug-
um, og bændur og fleiri karl-
menn hafa stundað matreiðslu-
nám á námskeiðum Húsmæðra-
skólans á Laugum. Auk þessa
starfar bridgefélag, ungmenna-
félag og Lionsklúbburinn Nátt-
fari, sem einnig nær yfir Aðal-
dal.
Það er af heita vatninu á
Laugum að segja, að borun var
hætt og borinn fluttur að Ár-
nesi, þar sem borun hófst fyrir
páskahelgina. Búið er að loka
borholunni á Laugum, sem gaf
allt að 80 lítrum á sekúndu af
64 stiga heitu vatni. □
að iðjusemin var í senn nauð-
syn og lífsfylling, iðjuleysið
glötun. Nútíminn hefur gert frí-
tíma fólks hærra undir höfði en
áður, stytt vinnutímann, en því
niiður einnig svefntímann og
býður þúsundir skennntiatriða
þegar vinnu sleppir, dag hvern.
Það virðist leikur að lifa, miðað
við fyrri tíma og hin nýja að-
staða veitir fjölmörgum skilyrði
til mikillar hamingju. En ekki
kunna allir að nota hinn óráð-
stafaða tíma og verða þá eins
og vankakindur. Þörf væri á að
koma upp öflugum stofnunum,
sem kenndu fólki að nota tím-
ann.
FERMINGARNAR
Víða eru börnin fermd um
páskaleytið og reyna aðstand-
endur þá að gera sér dagamun,
sem sjálfsagt er. Hins vegar
virðist- svo, að fermingarbörnin
sjálf séu þar ekki ætíð aðal-
atriðið, heldur gleðskapur af
ýmsu tagi, heimboð, veisluhöld
og gjafir. Velmegun undan-
gííRgÍHna ára hefur á flestum
sviðum leitt til óhófs og jafnvel
óhollra venja, sem hver' tekur
eftir öðrum. Margra barna fað-
ir, flestra fermdra, hugleiddi
nýlega hvort hann yrði nú
„undirballans“ á fermingunni.
Til útgjaldanna taldi hann ná-
kvæmlega innkaup til veislunn
(Framhald á blaðsíðu 4)
Konur hafa
oroio
Fundur haldinn í kvenfélaginu
Hlíf á Akureyri 25. jan. 1975,
beinir þeirri eindregnu ósk til
þingmanna Norðurlandskjör-
dæmis eystra, að þeir beiti sér
af alefli fyrir því að raforku- og
hitaveitumál Norðurlands verði
tekin til raunhæfrar meðferðar
og framkvæmdum hraðað svo
sem framast er unnt.
Reynsla þessa vetrar hefur
sannað áþreifanlega hversu
þörfin er brýn á því að við
Norðlendingar eignumst varan-
lega orku, sem nægir til fram-
búðar.
Við þetta má svo bæta að
gífurleg verðmæti í heimilis-
tækjum eru í hættu af völdum
rafmagnstruflana.
Vinda þai'f bráðan bug að því
að virkja þá orku sem bíður
ónotuð í landinu okkar til far-
sællegri búsetu.
Væntir fundurinn þess að
Norðlendingar allir, bæði félög
og ein&taklingar, fylgi þessu
mjög svo aðkallandi máli fast
eftir.
(Fréttatilkynning)
Vélsleðasneniiærðu hross í haga
Á fimmtudag og föstudag gerðu
menn á vélsleðum sér það til
ófrægðar að æra hross. Ólafur
Olafsson bóndi í Garðshorni
átti um 30 hross úti, þar af
margai' fylfullar hryssur. Ærð-
ust hrossin þegar vélsleðamenn
komu þar sem þau voru. Hlupu
þau yfir fjallsöxlina og náðust
ekki fyrr en fram hjá Krossa-
staðaá á Þelamörk. Vélsleða-
mennirnir óku fram með þeim
og juku hræðslu þeirra. Er það
ekki aðeins gróft brot á öllu
velsæmi í umgengni, heidur
níðingsháttur, tæplega að
heimska sé til mikillar afsök-
unar. Hross, sem verða ofsa-
hrædd, bíða þess vanalega
aldrei bætur. Bændur, sem
verða fyrir svo óæskilegum
heimsóknum, sem hér eru
nefndar, eiga tafarlaust að
kæra verknaðinn. Q