Dagur - 30.04.1975, Blaðsíða 1
FILMUhúsið akureyri
Hrísey, 28. apríl. Hrísey var
alhvít af snjó í morgun. Loksins
er þó blessuð rjúpan okkar
komin og er hún okkar mesti
vorboði og einstaklega kær-
komin á vorin, er hún vitjar
varpstöðva sinna, og er þá gæf
svo hún þiggur jafnvel að gæða
sér á hænsnamat í húsagörðum.
Grásleppuveiðin hefur geng-
ið tæplega í meðallagi og er
mun minni en á sama tíma í
fyrra. Þorskafli er enginn og
því mjög lítil vinna í hraðfrysti-
húsinu.
Hríseyingar hafa mikinn
áhuga á því að eignast hlutdeild
í skuttogara, til að auka hrá-
efnið til frystihússins og þar
með atvinnu eyjarbúa. Um þess
ar mundir eru menn erlendis
að athuga um kaup á litlum
skuttogara, sem væntanlega
yrði stofnað sérstakt útgerðar-
félag um. Þessi mál eru öll í
óvissu ennþá. S. F.
Krísn hm sumardspn íyrsfa
Að venju kom tjaldurinn fyrst-
ur til varpstöðvanna. Lóan og
stelkurinn voru samferða að
vanda nokkru síðar. Jaðrakan-
ar, nokkrir tugir, sáust fyrst á
mýrunum skammt sunnan við
Brunná, fyrir sumarmál og eru
þeir nú ekki mjög sjaldgæfir
fuglar hér um slóðir og eiga
varpstöðvar á mörgum stöðum
M kom, sá
cg sigraði
Sauðárkróki, 29. anríl. Veturinn
kvaddi með blíðu og sumarið
heilsaði einnig blítt á sumar-
daginn fyrsta. Þá komu hingað
góðir gestir, Karlakórinn Goði
úr Þingeyjarsýslu, söng og sigr
aði og lyfti öllum upp í sólskins
skap, undir söngstjórn Roberts
Bedzeh. Söng kórinn bæði hér
og á Hofsósi, hér fyrir alveg
troðfullu húsi og við mikla
hrifningu, svo kalla má alveg
frábærar undirtektir. Fram
komu auk kórsins fjórir ein-
söngvarar og kvartett, ennfrem-
ur hljóðfæraleikarar.
Menn geta ekki sinnt grá-
sleppuveiðum í dag eða gær
vegna norðangarra. Um 20 bát-
ar stunda hrognkelsaveiðar héð
an. Um miðjan apríl glæddist
veiðin mjög og hefur verið góð.
Drangey landaði um helgina
150 tonnum af ágætum fiski,
svo það er nóg að gera. G. Ó.
Ungménnafélög
Tvö ungmennafélög, sem lengi
hafa starfað í Öngulsstaða-
hreppi, Ársól og Árroðinn, voru
nýlega sameinuð. Hið nýstofn-
aða félag ber nafn Árroðans,
sem var eldra félagið.
Formaður Árroðans er
dór Sigurgeirsson og með hon-
um í stjórninni eru: Leifur Guð
mundsson, Ólafur Tryggvason,
Bogi Þórhallsson og Helgi
Örlygsson. □
hin síðari ár. Þessum fuglum
fjölgar nú mjög ört á Norður-
landi.
Krían sást hér fyrst á sumar-
daginn fyrsta og ennfremur
kjói, en komudagur þessara
fugla er oftast sá sami. Þá er
lóuþrællinn kominn, maríuerla,
hrossagaukurinn og grá'ittling-
urinn. Steinklappan hlýtur að
vera komin, en ekki hefur um
hana fréttst.
Spóinn er seint á ferðinni að
venju og til hans hefur ekki
heyrst ennþá. Síðastur kemur
svo óðinshaninn.
Gæsir eru komnar fyrir
nokkru síðan og stórir helsingja
hópar hafa séðst á flugi, á leið
sinni til Grænlands, þar sem
þeir verpa. Einn æðarkóngur
hefur séðst í hópi æðarfuglanna
á Pollinum. □
Þrír menn af breska björgunarskipinu Lifeline siösuðust og voru fluttir á sjúkrahús á Akur-
eyri. En björgunarskipið var við Flatey er þetta gerðist, á sunnudaginn, og vann að björgun
Hvassafells. Hvassafell náðist ekki út áður en veður versnaði. Myndin sýnir flutning hinna
sjúku. (Ljósmyndastofa Péturs)
Fundiir mii Blönduvirkjunina
Ási í Vatnsdal, 29. apríl. Á föstu
daginn hélt iðnaðarráðherra,
Gunnar Thoroddsen, fund með
Húnvetningum og fleiri í félags
heimilinu á Blönduósi.. Þar var
og mættur Jakob Björnsson
orkumálastjóri. Fundarefni var
Blönduvirkjun. Urðu verulegar
umræður um málið. Heima-
f gær var stofnað á Akureyri
nýtt flugfélag, Flugfélag Norð-
urlands h.f. Stofnendur eru
nokkrir fyrrverandi starfsmenn
Norðurflugs og Flugleiðir h.f.
Flugfélag Norðurlands á fjór-
ar flugvélar, þar af þrjár Beech-
craft 10 sæta flugvélar og eina
Aztec 5 sæta flugvél, sem mun
verða notuð til sjúkraflugs aðal
lega og einnig til leiguflugferða.
Flugfélag Norðurlands tekur
til starfa 1. maí n. k. Félagið
mun halda uppi áætlunarflugi
frá Akureyri til Vopnafjarðar,
Þórshafnar, Raufarhafnar,
Kópaskers, Húsavíkur og
Grímseyjar. Samkvæmt sumar-
áætlun hins nýja félags verður
flogið fjórum sinnum í viku til
Vopnafjarðar, Þórshafnar og
Raufarhafnar og tvisvar í viku
til Grímseyjar og Húsavíkur.
Allar eru þessar ferðir í tengsl-
um við flugferðir Flugfélags
íslands til og frá Akureyrar-
flugvelli.
Flugfélag fslands mun sjá um
afgreiðslu fyrir Flugfélag Norð-
urlands á Akureyrarflugvelli.
í stjórn Flugfélags Norður-
lands eru: Einar Helgason,
Torfi Gunnlaugsson og Jón
Karlsson. Varastjórn: Jakob
Frímannsson, Jóhannes Foss-
dal og Níls Gíslason.
Framkvæmdastjóri hins ný-
stofnaða flugfélags er Sigurður
Aðalsteinsson. Q
menn eru yfirleitt hlynntir því
að Blanda verði virkjuð, en
Skagfirðingar bentu á, að hag-
kvæmara væri að virkja Jökuls
árnar í Skagafirði, þar sem ekki
færi teljandi af grónu landi
undir vatn við virkjanir þar.
Með því að virkja Blöndu
fara 62 þúsund ferkílómetrar
undir vatn á Auðkúlulieiði og
Eyvindarstaðaheiði, þar af 56
þúsund ferkílómetrar gróið
land samtals. Heita má, að mál-
ið fengi heldur góðar undir-
tektir, þrátt fyrir þetta, því það
er ekki endalaust hægt að
standa á móti nauðsynlegum
virkjurium. Erfiðleikar við
þessa virkjun eru þó auðsæir
og þurfa bætur að koma í stað-
inn fyrir landskemmdir, en
hvernig þær yrðu, er algerlega
óráðið. Það voru yfirleitt
hreppsnefndir þær, sem hlut
eiga að máli, sem fund þennan
sóttu.
Átta eða níu stiga frost- var
hér í morgun, eins og á þorra,
en ekki snjór.
Um helgina var mikið hóf í
Húnaveri, þar sem minnst var
50 ára afmælis Karlakórs Ból-
staðarhlíðarhrepps. Þar var
fjöldi manns og hin merkileg-
asta samkoma. Þar var mikið
sungið og ræður fluttar. Söng-
stjórar kórsins eru tveir: Jón
Tryggvason í Ártúnum og Gest-
ur Guðmundsson á Blönduósi,
sem einnig er einsöngvari kórs-
ins. Mættir voru tveir af stofn-
endum kórsins, þeir Ágúst
Andrésson á Blönduósi og Guð-
mundur Sigfússon frá Eiríks-
stöðum og sungu báðir einsöng
og hlutu hrós fyrir. Þessi karla-
kór á miklar þakkir skyldar
fyrir starf sitt. Ótaldar eru þær
ánægjustundir, er hann hefur
veitt á liðnum árum. G. J.
Góte afli
Olafsfj arðartogarar hafa aflað
vel að undanförnu og sumir
grásleppubátarnir hafa fengið
ágætan afla, einnig hefur oft
fengist góður afli á línu. Má því
segja, að afli sé góður í Ólafs-
firði um þessai' mundir og
mikið að gera.
Snjór var ekki teljandi í gær-
morgun, þegar blaðið hafði tal
af fréttaritara sínum þai', Birni
Stefánssyni skólastjóra, en veð-
ur bæði kalt og hvasst. □
Aðalfundur Slippstöovarinnar
h.f. á Akureyri var haldinn á
laugardaginn, 26. apríl. Stjórnar
formaðurinn, Stefán Reykjalín,
Sumardagurinn fyrsti var veð-
urblíður á Norðurlandi. Fyrir
hádegi þann dag gengu skátar
í skrúðgöngu norðan frá Glerár
eyrum suður Þórunnarstræti og
allt til kirkju, þar sem þeir síð-
an voru við guðsþjónustu.
Eftir hádegi efndu hesta-
menn bæjarins til hópreiðar frá
Innbænum og allt norður í
Glerárhverfi. Mátti þar sjá
margan lipran gæðing og vel
búna hestamenn.
Lúðrasveit Akureyrar lék á
Ráðhústorgi eftir hádegi þenn-
an sama dag.
Öll þessi útiatriði í veður-
blíðunni voru hin ágætasta til-
breyting í tilefni af sumarkom-
unni. □
skýrði frá starfsemi ■ stöðvarinn-
ar .á liðnu ári og. framkvæmda-
sljórinn, Gunnar Ragnars, las
og skýrði reikninga fyrirtækis-
ins. Nokkur helstu atriðin, sem
fram komu í ræðum stjórnar-
formanns og framkvæmdastjóra
voru þessi:
Á árinu 1974 voru afhentir
frá Slippstöðinni þrír 150 tonna
stálbátar. En eftir það venti
stöðin sínu kvæði í kross og er
nú að smíða fyrsta skuttogai'-
ann, 470 tonna skip, og er að
semja um smíði á öðrum.
Skiptin á milli nýsmíði og
viðgerða í Slippstöðinni eru
þau, að nýsmíðar voru 58%,
35% viðgerðir og 7% önnur
verkefni, ósundurgreind. Eru
þetta mjög svipuð hlu'föll og á
árinu 1973.
Bein vinnulaun urðu 170
milljónir króna á árinu. Þar af
voru 5,5 millj. kr. bónusgreiðsl-
ur, sem jafngilti 8% launa-
hækkun fyrir þá, sem unnu
bónusvinnu við nýsmíðarnai'.
Rekstrarafgangur varð 15,5
millj. kr. eftir að afskriftir upp
á 11 milljónir höfðu verið reikn
aðar. Aðalfundurinn samþykkti
að gefa Starfsmannafélaginu 1
millj. kr. styrk til sumarbústaða
byggingar. Vilji kom fram um,
að taka þátt í aukningu hluta-
fjár í Ú. A.
Stjórn Slippstöðvarinnar h.f.
á Akureyri skipa: Stefán
Reykjalín formaður, Bjarni
Einarsson, Ingólfur Árnason,
Lárus Jónsson, Bjarni Jóhannes
son, Tómas Steingrímsson og
Gunnlaugur Claessen.
Framkvæmdastjóri er Gunn-
ar Ragnars, framleiðslustjóri
nýsmíða er Jóhannes Óli Garð-
arsson, framleiðslus'jóri við-
gerða Stefán Reykjalín, á teikni
stofu er Ólafur Larsen, enn-
fremur Karl G. Þórleifsson og
Einar Aðalsteinsson. Ragnar H.
Bjarnason er skrifstofustjóri,
Ellert Guðjónsson annast
birgðavörslu og innkaupadeild,
og starfsmannastjóri er Ingólfur
Sverrisson. n