Dagur - 30.04.1975, Blaðsíða 4

Dagur - 30.04.1975, Blaðsíða 4
4 5 Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Súnar 1-11-66 og 1-11-67 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: ERLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓHANN K. SIGURÐSSON Prentverk Odds Bjömssonar h.f. Togarar og 200 mílurnar Vert er að leiða hugann að því, hvernig umhorfs væri nú í þessu landi á tímum þeirra erfiðu við- skiptakjara, sem íslendingar eiga nú við að stríða, ef togaraútgerð lands- manna liefði lagst niður. Togara- litgerðin virtist dauðadæmdur at- vinnuvegur í tíð „viðreisnarstjórnar- innar“. Á annan áratug var sá veiði- skipafloti ekki endurnýjaður og frystilnisin komin á það lirörnunar- stig, að erlendir kaupendur íslensks fisks töldu vart forsvaranlegt að kaupa hér fisk til manneldis. Arftaki „viðreisnarinnar“, vinstri stjórnin, undir forsæti Ólafs Jó- hannessonar, sýndi þá dáð í verki, að stuðla að kaupum fimmtíu skut- togara og dreifa þeim til útgerðar- staða um land allt. Það var byggða- stefna í verki og skynsamleg fjár- festing. Ef þessa stórhugar vinstri stjórnarinnar liefði ekki notið við, væri nú atvinnuleysi mjög víða á landínu og þúsundir manna byggju við liin hörmulegustu kjör. Það er vegna þessa skipastóls, fyrst og fremst, að hér á landi hefur atvinnu- leysið lítt sem ekki gert vart við sig, gagnstætt öllum okkar nágranna- þjóðum. Kaupmáttarrýrnun hefur orðið og skal ekki fjöður yfir það draga, en á meðan atvinnuvegirnir eru starfræktir með fullum afköst- um, svo sem verið hefur undanfarna mánuði og hver maður hefur at- vinnu, geta flestir lifað sæmilega góðu lífi, þótt allir þurfi að sníða sér stakk eftir vexti á erfiðleika- tímum, ögn þrengri en áður var. Eitt af liappaverkum fyrrverandi ríkisstjórnar var að ákveða útfærslu landhelginnar. Senn mun ákveðið, hvenær það verður formlega ákveðið og tilkynnt. Útfærslan verður ein- hliða og styðst ekki við þau haf- réttarlög, sem heimurinn væntir að sett verði. En forseti hafréttarráð- stefnunnar í Genf hefur sagt, að ein- hliða útfærsla við ísland sé ekki alvarlegt mál, þar sem menn væru þegar orðnir sammála um 200 mílna efnaliagslögsögu strandríkja og í samræmi við heildarstefnu liafréttar- mála, er þegar væri mörkuð. Þessari yfirlýsingu ber áð fágna, og það því fremur að íslendingar hafa átt veru- legan þátt í þessari hagstæðu steínu- mótun á undanförnum árum. □ BIJIÐ er að halda aðalfundi deilda Kaupfélags Eyfirðinga í Svarfaðardal og á Dalvík. Á Dalvík er öflugt útibú KEA og útibússtjórinn er Kristján Ólafs son. í sambandi við þessa deild- arfundi kom eitt og annað fram varðandi rekstur Útibús KEA á Dalvík, og í viðtali við útibús- stjórann annan sumardag kom m. a. þetta fram: Útibú KEA á Dalvík er rekið fyrir þessar tvær áðurnefndu deildir í Svarfaðardal og á Dal- vík, en einnig skiptir fólk af Árskógsströnd mikið við okkur. Hverjar eru helstu tölulegar niðurstöður útibúsins Útibúið seldi á síðasta ári vörur fyrir 288 milljónir króna og hafði salan aukist um 71,3% frá árinu 1973. Þessi mikla sölu aukning stafar fyrst og fremst af stöðugri og mikilli atvinnu á Dalvík á síðasta ári, en þar munar mest um aukningu í sjávarútveginum. Með komu skuttogaranna þar, breyttist at- vinnulífið verulega og kaupgeta almennings varð miklu meiri en áður, allt árið. Áður vildi atvinna vera fremur stopul. Fiskimóttaka frystihússins tók á móti 5369 tonnum og hafði aukist um 78,4% frá fyrra ári. Framleiðslan varð 62 þúsund kassar af freðfiski á móti 45 þús. árið 1973. Þá voru á síðasta ári verkuð 300 tonn af saltfiski en ekkert mörg árin á undan. Þá var ofurlítil lýsisframleiðsla, sem ekki hefur áður verið og fiskimjölsframleiðslan jókst á árinu um 190 tonn og fór í 595 tonn á sl. ári. RABMÐ VIÐ KRISTJÁN ÓLAFSSON, UTIBUSSTJÓRA Á DALVÍK Niðurstaða reikninga útibús- ins liggur enn ekki tölulega fyrir, en þó er ljóst, að hún verður lakari en árið 1973, sem var mikið verslunargóðæri hjá okkur. Þar kemur til gífurleg vaxtahælckun, launakostnaðar- hækkun og lækkun á verslunar álagningu, Þess má ge' a, að á síðastliðnu ári voru 614 manns á launaskrá hjá útibúinu, en það svarar til þess, að annarhver Dalvíkingur hafi haft þar einhverja vinnu. En þetta vinnuafl er þó ekki allt fengið á Dalvík, heldur einnig úr Svarfaðardal og Ár- skógsströnd. Launagreiðslurnar voru í heild 128,4 milljónir króna og höfðu aukist um meira en tvöfalt. SKÁKFRÉTTIR Hraðskákmóti Akureyrar lauk með sigri Ólafs Kristjánssonar, eftir einvígi við Gunnlaug Guð- mundsson. Nú um síðustu helgi kom hópur unglinga úr Reykjavík og tefldu við bæjarmenn. Þeir unnu í hægri skák með 7 gegn 5 v. og á sunnudag hi'aðskák með 147,5 gegn 140,5 v. Þetta voru drengir á aldrinum 12—16 ára, þar af eitt mesta skák- mannsefni íslands, hinn 15 ára Margeir Pétursson, sem er einn þátttakandi í fjögurra manna keppni um íslandsmeistara- titilinn í skák. Á þessu sést að heimamenn þurfa að leggja meiri rækt við skákina en hingað til. Nýlokið er Skólaskákmóti með þátttöku frá Ólafsfirði, Dal vík, Laugum, Hrafnagili, Gagn- fræðaskóla Ak., Oddeyrarskóla, Brekkuskóla og Glerárskóla. Hópnum var skipt í tvo flokka, eldri og yngri. Eldri flokkinn Thule-keppni B. 1 lokið Lokið er Thule-tvímennings- keppni Bridgefélags Akureyrar. Sana gaf félaginu bikara þessa, til að minna á hið ljúffenga Thuleöl. Sigurvegarar urðu að þessu sinni Gunnlaugur Guðmunds- son og Magnús Aðalbjörnsson, en þeir hafa áður sigrað í Thule keppni þessari. — Spilað var í tveim riðlum. Keppnisstjóri fé- lagsins er Albert Sigurðsson. Röð efstu manna var þessi: Stig 1. Magnús Aðalbjörnsson — Gunnl. Guðmundsson 373 2. Mikael Jónsson — Frímann Frímannsson 363 í Útibúi KEA á Dalvík er matvörudeild, vefnaðarvöru- deiid, byggingavörudeild og fóðui'vörudeild. Svo er það frystihúsið og sláturhúsið, enn- fremui' fjölþætt bifreiðaverk- stæði. En umfangsmest er frysti húsið og það er jafnframt mesla atvinnufyrirtækið á Dalvík. íbúar á Dalvík nálgast nú 1200 og vantar ekki nema fáein höfuð til að ná þeirri tölu. Fjölgun undanfarin ár er vel yfir landsmeðaltal. Nokkuð í almennum frétt- um? Það lítur út fyrir verulegan samdrátt í byggingariðnaðinum. Mikið var byggt á síðasta ári og við þær byggingar er auð- vitað mjög mikil vinna þetta ár. En nýbyggingar virðast dragast mikið saman og veldur það okkur áhyggjum. Heilsugæslu- stöðinni mun slegið á frest í ár, en heimavistarbyggingunni verður lokið á þessu sumri og rúmar hún 40 nemendur. Yfir- leitt má segja, að fjármagns- skortur hái framkvæmdum. Hins vegar hefur atvinnan ver- ið framúrskarandi góð í vetur og ekki hægt að segja, að fallið hafi. úr dagur. Grásleppuveiðin er minni en á sama tíma í fyrra, en þó nokk ur og verð hrognanna getur bætt það upp. Útibúið annast söltun hrognanna og er til þess notaður kjallari í sláturhúsinu. Við erum búnir að salta um 200 1 unnur af hrognum. Margir Dal víkingar hengja upp grásleppu og kunna að verka svo vel að þeir, sem á annað borð hafa vanist síginni grásleppu, fá vatn í munninn þegar þeir heyra á hana minnst. Ég skal senda þér band. Rækjuvinnsla byrjar hér væntanlega í maímánuði. Er það ný verksmiðja. Vélar eru þegar komnar en vei'ið er að ganga frá húsnæðinu. Söltunar- félag Dalvíkinga á húsið, ásamt Dalvíkurbæ og kaupfélaginu, ásamt nokkrum einstaklingum. Söltunarfélagið mun reka hina nýju verksmiðju og er þar treyst á aflann af Grímseyjar- miðum og svo berast fregnir af rækjunni í Axarfirði. Síðar á svo að koma upp niðurlagning- arverksmiðju í sama húsnæði og er unnið að þeim málum. Ennþá er fannfergi í Svarf- aðardal, alveg óvenjulega mik- ið, og hér á Dalvík má enn sjá tveggja metra skafla á milli húsa. En nú er sumarig komið og allir vona hið foesta, segir Kristján Ólafsson útibússtjóri að lokum og þakkar blaðið frá- sögn hans. E. D. ' - ' T -'-j *T' Athugasemd við grein G.A*. yfirlæknis „GuIlskipiS“. — Fulltrúi andans, Davíð frændi, fyllikall, gúmmískósmiður og þar af leiðandi skáld, flytur lofsöng til menningarinnar; Aðalsteinn Bergdal og Steinar Frímannsson. (Ljósmyndast. Páls) GULLSKIPID KEMUR 2. MAÍ L. A. AÆTLAR LEIKFOR UT UM LAND Einn fagnaðarríkan sólskinsdag á miðju þjóðhátíðarvori, berst sú frétt til yfirvaldanna í litlum bæ við lygnan fjörð, að tvö þúsund túristar séu væntan- legir daginn eftir til þess að kynna sér „eðlilegt mannlíf í íslenzku sjávarplássi“. Stórt hvítt þriggja skorsteina skip, hlaðið dýrð allra djásna — Kristján Ólafsson. vann Gagnfræðaskóli sk. með 14 v. Annar varð Laugaskóli með 13,5 v. Yngri flokkinn vann Glerárskóli með 24,5 v. af- 30 mögulegum. Keppt var um tvo bikara er Æskulýðsráð Akur- eyrar hafði gefið. Þetta er í annað sinn sem þessi keppni fer fram. Einnig lauk nú um helgina unglingakeppni, er var á veg- um Æskulýðsráðs og Skák- félags Akureyrar. Var hópnum skipt í tvo hópa, eldri og yngri. Keppendur voru alls 16. Þann eldri vann Dan Brynjarsson með 6,5 v. af 8, annar Jón Al- bertsson og hlaut hann 5 v. Yngri flokk sigraði Logi Einars son með 7 v. af 8, annar Bogi Eymundsson með 6 v. Hér þyrfti að komast á reglu- legar skákæfingar í skólum, svo sem í skólum á Suðurlandi, Reykjavík, Kópavogi og víðar. Glerárskóli hefur þó haft reglu- legar skákæfingar. i 3. Dísa Pétursdóttir — Rósa Sigurðardóttir 362 4. Haki Jóhannesson — Stefán Ragnarsson 357 5. Ármann Helgason — Jóhann Helgason 352 6. Júlíus Thorarensen — Sveinn Sigurgeirsson 348 7. Guðjón Jónsson — Páll Jónsson 344 8. Gunnar Berg — Þórarinn Jónsson 340 9. Hörður Steinbei'gsson — Guðmundur Búason 336 10. Stefán Sveinsson — Þormóður Einarsson 325 Meðalárangur var 324 stig. I ALDRAÐUR SPYR UM ELLIHEIMILI Maður einn á sjötugsaldrinum skrifar blaðinu á þessa leið: Kæri Dagur. Mig langar til að biðja þig fyrir nokkrar spurningar viðvíkjandi elli- heimilinu hér í bæ. Það er þá fyrst: Hvenær var byrjað á þeirri viðbyggingu, sem nú er í smíðum hjá Elli- heimili Akureyrar? Og hvenær verður sú viðbygging fullbúin? Þegar því plássi hefur verið ráðstafað, hve margir eru þá á biðlista? Ástæðan fyrir þessum spurn- ingum er sú, að ég er aldraður orðinn og því farinn að velta þvf fyrir mér, hvaða möguleika ég hef til að komast á Elliheim- ili Akureyrar, þegar þar að kemur. Það væri líka gaman að heyra um þetta frá Elliheimil- inu í Skjaldarvík. Ég vona, að þeir sem þessu stjórna svari því sem um er spurt, því það eru fleiri en ég, sem gjarnan vildu vita um þetta mál. Einn sextíu og finnn ára. Stjórnarformaður elliheimil- anna á Akureyri og Skjaldar- vík, Hreinn Pálsson lögfræð- ingur, svaraði að hluta spurn- ingunum hér að framan. Hann sagði: Á viðbótarbyggingunni við Elliheimili Akureyrar var byrj- að síðla sumars 1973. Við áætl- um, að taka bygginguna, fyrst efri hæðina, í notkun nú í sum- ar og ekki síðar en í haust, og ef fjármögnun gengur viðun- andi þá verður öll byggingin tekin í notkun í sumar eða haust. Viðbyggingin tekur 25 vis*menn. Verða þá rétt um 100 vistmenn á Elliheimili Akur- eyrar. Elliheimilin eru undir einni stjórn. Formaður er Hreinn Pálsson og með honum í stjórn Björn Guðmundsson, Freyja Jónsdóttir, Auður Þórhallsdótt- ir og Sigurður Hannesson. Full- trúi frá kvenfélaginu Framtíð- inni situr fundi og hefur mál- frelsi og er það Ingibjörg Hall- dórsdóttir. F oi'stöðukona Elliheimilis Akureyrar er Sigríður Jóns- dóttir. Á skrifstofu hennar fékk blaðið þær upplýsingar, að þar væru yfir 70 manns á biðlista. F orstöðumaður Elliheimilis- ins í Skjaldarvík, Jón Kristins- son, tjáði blaðinu, að yfir 20 manns væru þar á biðlis'a. Þessar upplýsingar verða látnar nægja í bili, en öldruðu fólki bent á, að allar upplýs- ingar um elliheimiladvöl á Akureyri veita elliheimilin sjálf og að sjálfsögðu það fólk, er skipar stjórn þeirra. □ LEIÐRÉTTING VIÐ NAFNLAUSA FRÉTTATILKYNNINGU Fréttatilkynningum, sem blöðin flytja, verða lesendur að geta treyst. í einni slíkri í síðasta tbl. Dags, segir í sambandi við góðan skíðasnjó í Hlíðarfjalli, orðrétt: „og er þá hætt við meiðslum, svo sem tognunum, sér í lagi ef „Ökklarnir eru látn- ir njóta sín“, eins og Jónas í Brekknakoti predikar í lang- lokum sínum í Degi undanfar- ið, cnda 10 ár síöan hann fór síðast á skíði“ (leturbreyting J. J.). Fréttasendirinn er líklega að vorkenna mér, frekar en að gera mig, lítinn mann, enn minni. Sama er mér. Satt er, að heilsan hefur ekki leyft miklar skíðaferðir síðustu ár, en þó hefi ég nokkrum sinnum staðið í biðröðinni, farið upp í Stromp í stól og rennt mér niður á mín- um gömlu skíðum. Og ekki eru 10 ár síðari stólalyftan kom í Hlíðarfjall. Og síðast núna á útmánuði kom ég á skíði, en þá aðeins heima á lóð minni, en varð lítið úr, þótt nógur væri þar jökullinn! Svo er það, sem fréttasendir þykist hafa eftir mér úr „lang- loku í Degi“ (smb. setningu með tilvísunarmerkjum), hún finnst alls ekki í minni grein! Sendirinn, hvoi't sem hann er lélega læs eða ósýnt um með- ferð mála, þyrfti að kynna sér efnið betur, og varla að setja í næstu tilkynningu úr Hlíðar- fjalli, þætti um einstaka bæjar- búa, a. m. k. ekki án þess að láta sitt ágæta nafn fylgja! En ég hafði nú samt gaman að þessu og sendi honum beztu sumaróskir, hvert sem nafnið er. 28. apríl 1975. Jónas í „Brekknakoti“. Frá Unglingareglu Góðtemplara Hinn árlegi kynningar- og fjár- öflunardagur Unglingareglunn- ar verður næstkomandi sunnu- dag, 4. maí. Þá verða eins og venjulega seld merki og bókin VORBLÓMIÐ til ágóða fyrir starfsemina alls staðar þar, sem stúkur starfa. Mcrkin kosta kr. 50,00 og bókin aðeins kr. 200,00. Þessi barnabók Unglingaregl- unnar, VORBLÓMIÐ, sem kem ur nú út í 12. sinn, hefur ná miklum vinsældum og selst í stóru upplagi. (Frétt frá Unglingareglunni) dollurum og pundum — leggst inn á þessa friðsælu grásleppu- höfn, einmitt sama daginn og taka skyldi fyrstu skóflustung- una að Menningarmiðstöð stað- arins með tilheyrandi fjallkonu og blessuð sértu sveitin mín. Mikil veiðigleði grípur um sig með innfæddum og hátíðahald- ið tekur óvænta stefnu. Um þessa atburði og ýmsar klaufalegar slysfárir þeim tengdar fjallar skopleikur Hilm is Jóhannessonar, „Gullskipið", sem Leikfélag Akureyrar frum sýnir næstkomandi föstudag, 2. maí. Hilmi þarf ekki að kynna leikhúsgestum. Hann varð fyrst þekktur fyrir Sláturhúsið hrað- ar hendur, sem að vísu hlaut aldrei mikla frægð á Akureyri en heppnaðist því betur í Borg- arnesi og síðan hjá Leikflokki Emilíu á leikföx 'úrn lándið und- ir stjórn Eyvindar Erlendsson- ar sem einnig er að verki við „Gullskipið“ nú. Leikmyndina gerir Jón Þórisson sem leikhús- gestum L. A. er þegar að góðu kunnur fyrir ýmis verk á sviði félagsins. Jón er nemandi Stein- þórs Sigurðssonar og starfar nú hjá Leikfélagi Reykjavíkui'. Mai'gháttaðir fulltrúar ís- lenzks mannlífs stíga dansinn kringum gullkálfinn í Gull- skipinu; svo sem bæjarstjói'inn raunumþungi, forsjá samfélags- ins, kallaður Bæsi, fulltrúi stjórnarandstöðunnar, vera- fólks og kvenfólks almennt, Hallgerður Halhnars fjallkona með meiru, generalbrand- maojar Brandur hinn sívakandi bjargvættur bæjarstjórans og verndari öryggisins brynjaður kaskeiti og talstöð, læknafrúin Áróra, elskulegur fulltrúi emb- ættismanna- og menntakvenna af því að hún hefur verið í Sví- þjóð, hin hugumstóra hjúkrun- arkona Eva sem hvorki vílar fyrir sér að bera fallna í burtu á bakinu, né heldur að koma á laggirnar þeim listflutningi sém bærinn þarf á að halda, Davíð frændi, fyllibytta og gúmmískó- smiður sem lifir á kjaftaviti sínu, Hrefnu-Kalli, brjóstgóður sægarpur með ríka réttlætis- kennd en vondur við vín, Bogga gamla, gamall þulur og spákona með hænsnabúskap — óþörf í nútímanum, Flækings- skvísa, grunuð um að vera njósnari — sennilega fjallkona — einnig óþörf í nútímanum og sízt má gleyma handve’rks- mönnunum þrem sem bæði þurfa að smí'ða til allra hátíða- halda og rífa niður eftir þau en auk þess að syngja í samkórn- um, spila í lúðrasveitinni, leika til skiptis Ólaf liljurós, hross eða Skugga-Svein og inna af höndum önnur störf nauðsyn- leg fyrir hag bæjarins án þess að fá nokkkurn tíma svefnfrið eða tvöfaldan matartíma. Leikarar eru: Gestur E. Jónasson, Arnar Jónsson, Frið- rik Steingrímsson, Sigurveig Jónsdóttir, Kristjana Jónsdótt- ir, Þórhildur Þorleifsdóttir, Aðalsteinn Bergdal, Þráinn Karlsson, Árni Valur Viggósson og Kjartan Ólafsson, sem um þessar mundir hefur fjörutíu ár að baki á leiksviðinu. Sýningum á Gullskipinu verður reynt að hraða á heima- sviðinu þannig að leikflokkur- inn komist í leikför fljótlega. (Fréttatilkynning) f tilefni greinar G. A. yfirlæknis H-deildar F.S.A., um lokun slysastofu F.S.A. viljum við taka fram eftirfarandi: 1) Undirritaðir aðstoðarlækn ar hafa starfað við H-deild F.S.A. um nokkurra mánaða skeið og telja því ástæðu til að ætla að í fyrrnefndri grein séu störf okkar við slysastofu F.S.A. lögð á metskálar. Ekki hefur þótt ástæða til að finna að störf um okkar innan stofnunarinn- ar, a. m. k. höfum við ekki orðið varir við það. Þykii' okkur því heldur ósmekklega að störfum okkar vegið á opinberum vett- vangi. 2) Við mótmælum harðlega þeim ásökunum, sem fram koma í greininni, á störf að- stoðarlækna H-deildar. Viljum við lýsa furðu okkar á fullyrð- ingum sem fi-am koma um „að algengt sé að aðstoðarlæknar saumi sár án tillits hvort það sé nauðsynlegt, skynsamlegt eða jafnvel áhættulaust“. Teljum við að í starfi okkar á undan- gengnum mánuðum eigi slík fullyrðing ekki við. Vart þarf að taka fram að slík ummæli eru ekki til þess fallin að laða aðstoðarlækna til starfa á H- deild F.S.A. 3) Þá viljum við mótmæla þeim fullyrðingum að hinir yngri læknar, sem starfað hafa við H-deiId F.S.A., séu ekki full færir um að greina og með- höndla flesta þá áverka sem fólk hefur leitað með til slysa- stofu F.S.A. Einnig má benda á að sérfræðingar H-deildar eru ávallt til kvaddir ef um erfiðari tilfelli er að ræða. Auk þess má taka fram að margir aðstoðar- læknar á F.S.A. hafa tekið að sér bæjarvaktii'. 4) í greininni er rætt um sál- arháska barna sem meðhöndl- uð eru af starfsfólki slysastofu F.S.A. Viljum við benda á að mörg börn eru óróleg og illvið- ráðanleg án tillits til með- höndlunar. 5) Við álítum það verkefni sjúkrahússtjórnar F.S.A. að taka ákvarðanir um hlutverk slysastofunnar. Teljum við það óheppilega þróun að einstakir aðilar innan stofnunarinnar taki einhliða ákvai'ðanir um slíkt. Akureyri, 18. apríl 1975. , Friðrik Páll Jónsson. Geir Friðgeirsson. Hafsteinn Skúlason. ) Ólafur Eyjólfsson. , Hryssueigendur! í vor mun 1. verðlaunaj stóðhesturinn Héðinn nr. 705 frá Vatnagarði,| verða á Akureyri. Þeir er áhuga liafa á aðj leiða til hans liryssur, hafi samband við undir-^ ritaðan sem fyrst. Þór Sigurðsson, P. O. Íi. Nýkomið Slétt þvottekta flauel br. 1,40. Grænt, brúnt, dökkblátt og svart. VERZLUNIN RUN VÆNTANLEGT NÆSTU DAGA Poppiinkápur Jakkar V ef naðar vörudeild ► y

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.