Dagur - 30.04.1975, Blaðsíða 8
AUGLÝSINGASÍil
Aluircyri, miðvikutlaginn 30. apríl 1975
Demanls-
skornir
trúofunar-
hringarnir
nýkomnir.
I
l
Ávarp 1. mai-nefndar verk
Enn er kominn fyrsti maí, ár-
legur hátíðar- og baráttudagur
verkafólks um heim allan.
Þennan merkisdag í ár er staða
verkafólks og verkalýðssamtak-
anna á íslandi allmjög frá-
brugðin því, sem við höfum oft-
ast átt að venjast síðustu fjóra
áratugina. Venjulegast hefur
þann fyrsta maí verið hægt að
fagna einhverjum sigrum, sem
unnist hafa í sókn alþýðu
manna til betri lífskjara og
bjartari framtíðar. En liðið ár
hefur ekki verið um neina sókn
að ræða. Ekki er þetta þó vegna
þess, að verkalýðshreyfingin
hafi verið aðgerðalaus eða sinnt
verkefnum verr en áður, heldur
h'afa allir kraftar hennar farið
í varnarbaráttu, baráttu fyrir
að halda sem mestu af því, sem
áður hafði unnist. Vegna er-
lendra og innlendra aðstæðna
og aðgerða hefur verið þrengt
svo mjög að kjörum fólks á
liðnu ári, að með eindæmum er.
Með stöðugri baráttu og starfi
hefur samtökum verkafólks tek
ist að endurheimta nokkurn
hluta þess, sem af fólkinu hafði
verið tekið með því að beita lög
gjafarvaldinu til að ógilda áður
gerða kjarasamninga. En betur
má ef duga skal og knýjandi
nauðsyn að tryggt verði, að
gerðir samningar séu í heiðri
hafðir, en gildi þeirra og fram-
kvæmd ekki háð geðþótta mis-
viturra stjórnmálamanna.
Þá er nú full ástæða til að
óttast um atvinnuöryggi verka-
fólks. Jafnt opinberir aðilar sem
einkaaðilar boða nú mikinn
samdrátt hverskonar fram-
kvæmda, sem hlýtur að hafa í
för með sér ört minnkandi eftir
spurn eftir vinnuafli. Við þær
aðstæður, sem nú eru, verður
að gera þær kröfur til ríkis og
sveitarfélaga, að áhersla sé lögð
á að atvinna á vegum þessarra
aðila dragist ekki saman.
En þó að á móti hafi blásið í
kjarabaráttunni að undanförnu
og lífskjörunum verið þrýst
verulega niður frá því, sem þau
hafa best verið, skulum við jafn
framt minnast þess í dag, að
samt sem áður búum við hér
við betri kjör en stéttarsystkini
okkar víðasthvar á jörðinni. í
fjölda landa er atvinnuleysis-
vofan daglegur gestur og í kjöl-
far hennar hverskonar skortur
og neyð. í þróunarlöndunum
svonefndu verður fólk milljón-
um saman hungurmorða. Þá er
tjáningarfrelsi víða ekki til og
jafnvel öll mannréttindi fótum
troðin. Við þurfum að hyggja
vel að okkur, en megum ekki
heldur, síst 1. maí, gleyma
hrjáðum, undirokuðum og svelt
andi meðbræðrum okkar, þótt
þeir búi í fjarlægð og hörunds-
litur sé margvíslegur. Minn-
umst þeirra og styðjum þá eftir
getu. Gleymum því heldur ekki,
að víða um lönd hafa alþjóð-
legir auðhringar sogið til sín
arðinn af vinnu þessa fátæka
fólks og eiga ýmist beina eða
óbeina sök á fátækt þess og
illum aðbúnaði. Það eru líka
víti fyrir okkur að varast.
Árið í ár er að tilhlutan Sam-
einuðu þjóðanna nefnt kvenna-
ár og því sérstök ástæða til að
vekja athygli á kjaramálum
kvenna. í orði kveðnu hafa
konur hér á landi nú öðlast jafn
rétti við karla í launamálum
sem öðrum efnum, en mikið
skortir enn á, að það jafnrétti
ríki í reynd. Því viljum við
skora á alla aðila að keppa
markvisst að því, að hvergi sé
gerður launamunur eftir kynj-
um og að við ráðningu til starfa
verði hæfni látin ráða úrslitum
en ekki það, hvort umsækjandi
er karl eða kona. Full ástæða er
til að brýna það fyrir konum
sérstaklega að vera vel á verði
um rétt sinn í þessum efnum
og gera sér fullljóst, að þær
eiga jafnan rétt og karlar til
starfa og jafnan rétt til launa.
Sem endranær fyrsta maí
fögnum við því, sem áunnist
Eins og áður hefur verið sagt
frá hér í blaðinu mun Kjör-
dæmissamband framsóknar-
manna í Norðurlandskjördæmi
eystra efna til hópferðar til
Rínarlanda í sumar. Brottför
hefur verið ákveðin 26. júní og
tekur ferðin 15 daga. Ferða-
áætlun er tilbúin og er hana að
fá hjá eftirtöldum aðilum:
Skrifstofu Kjördæmissam-
bandsins, Akureyri, Þormóði
Jónssyni, Húsavík, Hilmari
Daníelssyni, Dalvík og Aðal-
birni Gunnlaugssyni, Lundi.
Þótt ferðin hafi ekkert verið
auglýst, hefur komið í ljós mjög
mikill áhugi á þátttöku og nú
Vorfónleikar h]á Karlakór Ak
Hinir árlegu vortónleikar Karla
kórs Akureyrar verða í Sam-
komuhúsinu á Akureyri sunnu
daginn 4., mánudaginn 5.,
þriðjudaginn 6. og miðvikudag-
inn 7. maí n. k.
Tónleikarnir hefjast kl. 4 s. d.
á sunnudag en kl. 9 s. d. hina
dagana.
Söngskrá er fjölbreytt að
venju og eru m. a. á henni lög
eftir Björgvin Guðmundsson,
Hallgrím Helgason, Jón Laxdal,
Elisabeti Jónsdóttur, Pálmar Þ.
Eyjólfsson, Oddgeir Kristjáns-
son, Körling, Grieg, Bortnian-
sky, Cesar Frank, Gounod og
fleiri.
Nokkrir félagar í kómum
ásamt söngstjóra og Viðari
Garðarssyni syngja bæði ein-
söng og tvísöng með kórnum.
Söngstjóri er Jón Hj. Jónsson
en undirleik annast frú Sólveig
Jónsson.
Aðgöngumiðar að tónleikun-
um eru til sölu í Bókabúðinni
Huld og þar geta styrktarfélag-
ar einnig fengið skipt á miðum
á milli daga.
Auk þess að hafa æft undir
þessa vortónleika hefur í vetur
verið unnið að hljóðritun á
söng kórsins með hljómplötu-
útgáfu í huga og er stefnt að
því að platan komi á markað
síðar á þessu ári en kórinn átti
fjörutíu og fimm ára starfs-
afmæli í janúar síðastliðnum.
(Fréttatilkynning)
hefur á liðnum árum, og það er
vissulega mikið. Jafnframt ber-
um við fram kröfur okkar, setj-
um okkur mark að keppa að.
Aðalkröfurnar í dag eru þess-
ar:
Stjórnvöld láti af þeim Ijóta
leik að ógilda frjálsa kjara-
samninga verkalýðsfélaga og
atvinnurekenda.
Bætt verði kjaraskerðing
undanfarinna mánaða.
Samið verði um vísitölubæt-
ur, er tryggi óskertan kaupmátt
láglauna.
Fullt jafnrétti karla og
kvenna í öllum kjara- og launa-
málum.
Tryggð verði næg innlend
orka til notkunar á íslensleum
heimilum og í íslenskum fyrir-
tækjum. y
Islenska ríkið og sveitarfélög
in hafi forgöngu um að tryggja
næga atvinnu.
Ákveðin verði 200 mílna fisk-
veiðilögsaga.
Þess sé gætt, að auðlindir
lands og sjávar séu nýttar í hófi
en ekki með rányrkju.
Staðið sé á verði gegn ásælni
og ofurvaldi erlendra auð-
hringa, en á alþjóðavettvangi
beiti fslendingar áhrifum sínum
jafnan til stuðnings fátækum
þjóðum þróunarlandanna.
Stöndum saman um kröfur
okkar. Fylgjum þeim eftir til
sigurs.
í samstöðu og samheldni er
afl okkar fólgið. □
SMÁTT & STORT
SKRÚÐGANGA SKÁTANNA
Það var gaman að sjá skrúð-
göngu skátanna á Akureyri á
sumardaginn fyrsta. Á meðan
horft var á hana, komu í hug-
ann ýmsar frásagnir af skáta-
starfinu. Ennfremur, hvort
skátastarfið sé metið að verð-
leikum, og hvort það standi
öðru íþrótta- og æskulýðsstarfi
jafnfætis, eða það sé í eðli sínu
meiri og betri uppalandi. Án
þess að gert sé upp á milli
félaga áhugafólks um tóm-
stundastörf, og öll munu þau
hafa til síns ágætis nokkuð,
hefur það ætíð orkað tvímælis
að skemmta ungu fólki, í stað
þess að leiða það til áhuga-
verðra tómstundastarfa.
FALLEGIR GÆÐINGAR
Á okkar tímum þykja klepraðir
og úfnir hestar ekki við liæfi á
almannafæri. Hópreiðin á smn-
ardaginn fyrsta hér á Akureyri
sýndi það og má þó betur gera.
En ekki þarf langt aftur í tím-
ann til að sjá í huganum allt
aðra og ljótari sjón hvað þetta
atriði snertir. Þá hefur ásetan
Knáir hræffor
Mývetningurinn Pétur Ingva-
son sigraði í Islandsglímunni,
sem háð var í Reykjavík á
sunnudaginn og hlaut sæmdar-
heitið Glímukappi íslánds 1975.
Ingvi Ingvason, bróðir hans,
hlaut þriðja sætið, en í öðru
sæti varð Sigurður Jónsson. □
batnað. til stórra muna. Hvort
gæðingarnir eru betri eða verri,
skal ósagt látið, en þó mátti sjá
mjög marga eigulega gæðinga
í hópreiðinni, hesta, sem fóru
vel á götu, voru mjúkir ásetu
og hlýðnir.
ALLT TRYGGT — NEMA
Flesta hluti er hægt að tryggja.
Við tryggjum okkur sjálf, hús
og húsbúnað, farartækin o. s.
frv. En menn reka sig stundum
á, að það sem álitið var vel
tryggt, er það alls ekki þegar á
reynir. Þannig fór með mann-
inn, sem skólpleiðslan bilaði hjá
á dögunum. Þetta var í nýlegu
húsi en engar teikningar af
vatns- og skólplögn yoru til. En
húsbóiidinn hafði þefskyn í
betra lagi og gat vísað múrbrjót
um leið að biluninni. Sjálfur
vann liann svo eins og berserk-
ur að viðgerðinni í þeirri von
að fá eitthvað fyrir alla svita-
dropana, þegar tryggingar
greiddu að lokum reikningana.
En hann fékk þar ekki eyri.
Alit virtist örugglega tryggt
nema þetta eina atriði!
MEIRI FRÆÐSLA ER
NAUÐSYN
Því má slá föstu, að tryggingar
eru nokkuð flóknar og því er
meiri fræðsla um þær en nú er,
alveg nauðsynleg, og er hér þó
aðeins átt við tryggingar húsa
og liúsmuna. Gerðu tryggingar-
félög þarft verk að kynna þessi
mál almenningi með einföldum
og skýrum dæmum úr veru-
leikanum. Eflaust myndu blöð
fús til að birta þessháttar fróð-
leiksþætti.
þegar bókað í mikinn hluta
þeirra sæta, sem Kjördæmis-
sambandið hefur til umráða.
Ættu þeir, sem hug hafa á
þátttöku, að láta skrifa sig nú
þegar hjá einhverjum ofan-
greindum aðilum. Þá eru þeir,
sem hafa skráð sig, beðnir að
staðfesta pöntun sína fyrir 15.
maí n. k. og greiða 10 þúsund
krónur inn á farseðilinn.
(Fréttatilkynning)
Myndin cr af börnum í Oddeyrarskóla, sem héldu hlutaveltu til
styrktar slösuðum dreng. . .
Eins og komið hefur fram í aug
lýsingu hér í blaðinu héldu
nokkur börn úr 8. bekk í Odd-
eyrarskólanum hlutaveltu.
Rann ágóðinn til eins skóla-
félaga þeirra, sem lenti í um-
ferðarslysi í vetur og missti
annan fótinn. Hlutaveltan gaf
af sér 58.300 kr., en auk þess
gáfu margir einstaklingar pen-
inga svo að í heild nam söfnun-
in 132.550 kr.
Börnin, sem að hlutaveltunni
stóðu senda gefendum kærar
kveðjur og þakkú' fyrir rausnar
leg framlög. □
DÝRIR ARKITEKTAR
Ákveðið var að byggja hús á
Akureyri fyrir hálfopinbera
starfsemi. Húsateiknari var
fenginn til að gera tcikninguna,
en hið opinbera krafðist teikn-
ingar arkitekts. Arkitektinn,
sem á heima á öðru landshorni,
vildi nú fá smávegis þóknun
npp í kostnaðinn, svona liálfa
milljón, nefndi hann. Ekki var
það gert en þess í stað voru
honum sendar 200 þúsund kr.
og síðar aðrar 200 þúsund krón-
ur. Arkitektinum þótti smátt
skammtað liéðan að norðan og
sagðist nú innan tíðar fara að
senda reikninginn. Það þykir
húsbyggjendum líldegast, að
reikningur sá verði nokkuð
hár, og enn verra þykir þeim,
að þeir eru búnir að tapa tveim
ávum af byggingartímanum og
lenda nú með allt í óðaverð-
bólgunni.
OLÍA Á ELDINN
Útvarpshlustendum á Norður-
landi blöskraði að lilusta á
menntaskólakennaraim Bárð
Haíldórsson hafa ujtpi grófan
óhróður um menn og málefni
norðanlands í þættirtum Um
daginn og veginn í úívarpi á
-mánudagskvöldið. Auk grófrar
'> ádeilu á .tilgreinda niilliþinga-
nofnd, scm fjallað hcfur inn
mikilvægan þátt fræðslumála,
var erindi Bárðar fullt af dvlgj-
um um þá menn, sem ríkis-
stjórnin hefur kosið til að vinna
að því að koma upp Kröflu-
virkjun. Þetta erindi hefur vart
átt góðan tilgang og getur haft
það eitt í för með sér, að ýfa
upp gamlar deilur uin orkumál
á Norðurlandi, á þeiin tíma er
ró er á komin og sættir tekist.