Dagur - 18.06.1975, Blaðsíða 7
7
úruminja
Siyðjum Lögkrg-Heisnskrsnglu
Á landinu öllu eru nú 29 frið-
lýstir staðir. Þar með taldir
þjóðgarðar, fólkvangar sveitar-
félaga og í þriðja lagi náttúru-
vætti, sem eru einstakir staðir,
en bæði fólkvangar og þjóð-
garðar eru stærri eða minni
landsvæði.
Friðlýstir staðir eru auðvitað
ekki lokuð lönd, heldur einmitt
til þess ætlast að þeir geti orðið
sem flestum til ánægju og
yndisauka, á þann veg að þar
sé ekki landi spillt. Þar geta og
verið búskaparnytjar. Á þann
veg er nýting landsvæðanna og
hinna' sérkennilegu staða hugs-
uð. Friðlýsingu er ekki hægt að
koma á nema með fullu sam-
þykki og í samráði við þá, sem
landið eiga.
Friðlýst svæði og staðir á
Norðurlandi eru þessi, sam-
kvæmt skrá, sem Náttúru-
verndarráð hefur birt í sérstök-
um bæklingi:
Friðland Svarfdæla, Mývatn
og Laxá, samkv. sérstökum lög-
um, Skútustaðagígar, Herðu-
breiðarlindir, Þjóðgarður í
Jökulsárgljúfrum, Hvannalind-
ir í Krepputungu.
Náttúruverndarráð hefur
einnig samið náttúruminjaskrá.
í henni eru fjölmargir staðir,
sem ráðið telur athugandi að
friðlýsa eða vernda á einhvern
hátt, þótt það sé allt annað en
friðlýsing, þangað til það hefur
þá verið gert. Náttúruminja-
skrá má líta á sem ósk um að
forðast sé að framkvæma þar
jarðrask eða annað það, sem
spillt getur skynsamlegri varð-
veislu. Fjölmargir staðir og
landsvæði eru í athugun hjá
ráðinu, sem enn eru á Náttúru-
minjaskrá en verða e. t. v. síðar
friðlýstir. Má þar nefna Hall-
dórsstaði í Laxárdal, Hrútey í
Blöndu, Kattarauga í Vatnsdal,
Kotagil og Skeljungsstaði í
Skagafirði, svo vitnað sé aftur
í norðlenska staði. □
Kosið í nefndir bæjarins
Hátíðahöl
Þistilfirði, 18. júní. f fyrradag
var tveggja stiga hiti í forsælu
og aðeins hlýrra í gær og dag.
Ekkert sprettur en í úthaga er
sæmilegur sauðgróður.
í gær safnaðist fólk saman á
Svalbarði og gerðu menn sér
þar margt til gamans. Má þar
nefna, að búnaðarfélagið og
kvenfélagið kepptu í handbolta
og var sá leikur mikill hlátur-
gjafi. Aðal ræðu dagsins flutti
Eggert Olafsson í Laxárdal.
Sýnt er, að enn eru vegir
ekki klakalausir því að bleytu-
pollar sjást á vegum. O. H.
Á aðalfundi bæjarstjórnar Ak
ureyrar 10. júní, var að venju
kosið í ýmsar meiriháttar nefnd
ir á vegum bæjarins, er kjörnar
eru til eins árs. Þær voru
þessar:
Forseti bæjarstjórnar:
Valur Arnþórsson.
1. varaforseti:
Ingólfur Árnason.
2. varaforseti:
Soffía Guðmundsdóttir.
Ritarar bæjarstjórnar:
Sigurður Jóhann Sigurðsson
og' Stefán Reykjalín.
Bæjarráð:
Sigurður Óli Brynjólfsson,
Freyr Ófeigsson,
Soffía Guðmundsdóttir,
Gísli Jónsson,
Jón G. Sólnes.
Varamenn:
Valur Arnþórsson,
Ingólfur Árnason,
Jón Ingimarsson,
Sigurður Hannesson,
Sigurður Jóhann Sigurðsson.
Bygginganefnd:
Stefán Reykjalín,
Gísli Magnússon,
Haukur Haraldsson,
Sigurður Hannesson,
Rafn Magnússon.
Rafveitustjórn:
Sigurður Jóhannesson,
Sigursveinn Jóhannesson,
Helgi Guðmundsson,
Gunnlaugur Fr. Jóhannsson,
Sigtryggur Þorbjörnsson.
Hinn 16. maí varð sá merki
atburður, að Samvinnuskólinn
útskrifaði í fyrsta skipti stúd-
enta. Var það sex manna hópur,
sem undanfarna tvo vetur hef-
ur stundað nám í framhalds-
deild skólans í Reykjavík.
Vegna þess að Alþingi hefur
ekki enn afgreitt frumvarp það
til laga um viðskiptamenntun á
framhaldsskólastigi, sem veitir
skólanum formlegan rétt til að
brautskrá stúdenta, reyndist
nauðsynlegt að leita samstarfs
við Menntaskólann við Hamra-
hlíð um að útskrifa þessa fyrstu
stúdenta. Tóku þeir próf sín frá
framhaldsdeildinni, en prófdóm
arar frá Hamrahlíðarskóla fóru
yfir úrlausnir þeirra, og síðan
voru þeim afhent skírteini sín
þar. Var hér um bráðabirgða-
lausn að ræða, en vonast er til,
að þegar á næsta ári þurfi Sam-
vinnuskólinn ekki að leita ann-
að til að útskrifa stúdenta sína.
Við skólaslitaathöfnina, sem
fram fór í húsakynnum fram-
haldsdeildarinnar að Suður-
landsbraut 32, mættu allmargir
góðir gestir, en auk nemenda
og kennara deildarinnar voru
þar Vilhjálmur Hjálmarsson
menntamálaráðherra, svo og
forstjóri og framkvæmdastjórar
Sambandsins. Haukur Ingi-
bergsson skólastjóri flutti skóla
slitaræðu, og menntamálaráð-
herra flutti ávarp. Þá ávarpaði
Kjörstjórn:
Hallur Sigurbjörnsson,
Freyr Ofeigsson,
Sigurður Ringsted.
Endurskoðendur bæjarreikn.:
Gísli Konráðsson,
Árni Sigurðsson.
Varamenn:
Pétur Pálmason,
Mikael Jóhannesson,
Pétur Torfason,
Tryggvi Sæmundsson,
Stefán B. Árnason.
Hafnarstjórn:
Stefán Reykjalín,
Jón E. Aspar,
Tryggvi Helgason,
Jón G. Sólnes,
Vilhelm Þorsteinsson.
Eins og flestum mun vera orðið
kunnugt af fréttum £ fjölmiðl-
um, er á þessu ári minnst þess,
að hundrað ár eru liðin frá land
námi íslendinga að Gimli í
Kanada. Verða hátíðahöld mikil
vestan hafs í byrjun ágúst-
mánaðar, og munu um 1200
manns héðan sækja þau. Stjórn
ir þjóðræknifélaganna á Akur-
eyri og í Reykjavík hafa komið
sér saman um að efna til þátt-
töku almennings um vinargjöf
til landa okkar í Vesturheimi í
tilefni þessara merku tímamóta.
í Winnipeg er gefið út viku-
blaðið Lögberg-Heimskringla.
Það er orðið til fyrir samruna
tveggja blaða, Lögbergs og
Heimskringlu, sem um áratugi
komu út á vegum íslendinga í
Vesturheimi. Blaðið tengir ís-
lendinga hvarvetna og er í raun
líftaug íslensks þjóðernis og
menningar vestan hafs. En
blaðið á við margs konar erfið-
leika að stríða þrátt fyrir mikla
velvild. Það þarfnast stuðnings.
Það er samhljóða álit félags-
stjórna þjóðræknifélaganna hér
á landi, að ekkert málefni sé
eðlilegra að styðja en útgáfu
Lögbergs-Heimskringlu. Vest-
ur-íslendingar hafa hvað eftir
annað sýnt hug sinn til heima-
Frá Glerárskólanum
Erlendur Einarsson forstjóri ný
stúdentana og' færði þeim bóka-
gjafir frá Sambandinu. Af hálfu
stúdentanna talaði Hallfríður
Kristinsdóttir. — Stúdentarnir,
sem brautskráðust, voru þessir:
Arnþór Angantýsson, Gísli Guð
mundsson, Hallfríður Kristins-
dóttir, Kristbjörg Guðmunds-
dóttir, Skarphéðinn Gunnars-
son, Sverrir Þórólfsson.
Skólaslit í Bifröst.
Þá var Samvinnuskólanum í
Bifröst slitið hinn 1. maí. I
skólaslitaræðu skólastjóra kom
m. a. fram, að í vetur voru þar
78 nemendur, þar af 42 í fyrsta
foekk og 36 í öðrum. Stóðust
allir annarsbekkingar burtfarar
próf, en hæst og jöfn urðu þau
Hjördís Finnbogadóttir, Akur-
eyri, Jóhannes Guðjónsson,
Akranesi og Kristín Karlsdótt-
ir, ísafirði. Þá voru að vanda
afhent verðlaun fyrir náms-
árangur í einstökum greinum,
og einnig minntist Eysteinn
Jónsson fyrrv. ráðh. Jónasar
Jónssonar frá Hriflu, en þennan
dag voru 90 ár liðin frá fæðingu
hans. Auk þess var skólanum
við þetta tækifæri afhentur að
gjöf fullkominn tækjabúnaður
til offsetfjölritunar, frá afmælis
árgöngum og nemendum skól-
ans sl. vetur.
(Úr Sambandsfréttum 23. maí)
Glerárskólinum var slitið mið-
vikudaginn 28. maí sl. í skólan-
um voru alls 495 nemendur í
20 deildum, þar af 99 í unglinga
deildum. í forskóladeildum,
sem voru starfræktar í fyrsta
skipti, voru 58 nemendur. —
21 kennari starfaði við skólann.
47 nemendur luku unglinga-
prófi og hlaut Daney Arnars-
dóttir hæstu einkunn, 8,71.
Eins og undanfarna vetur var
mikið félagslíf í skólanum.
Skáksveit skólans, sem æft hef-
ur af miklu kappi í allan vetur,
tók þátt í skákkeppni á vegum
Æskulýðsráðs og vann þá
keppni. Yngsti skákmaður sveit
arinnar er 10 ára og stóð hann
sig með miklum sóma.
Árshátíð skólans var haldin
fyrir páska í starfsmannasal
Gefjunar og tókst vel. Að lok-
inni síðustu sýningu var öllum
bæði nemendum og foreldrum
boðið á dansleik, þar sem hljóm
sveit Birgis Mai'inóssonar kenn
ara við skólann lék við mikinn
fögnuð. Starfsmannafélagið á
miklar þakkir skyldar fyrir að
sýna okkur þá vinsemd að lána
okkur salinn. — Ágóði dans-
leikja unglingadeilda og árs-
hátíðar rennur í ferðasjóð 8.
bekkja, sem fóru strax að lokn-
um skólaslitum í 4ra daga ferða
lag og voru 3 kennarar með í
ferðinni.
Nemendur 6. bekkja fóru
fram að Hólavatni í byrjun
október og voru þar í besta
gengi í viku. Þetta er svokallað-
ur vettvangsskóli. Stunda nem-
endur íþróttir, leiki, gönguferð-
ir, skoða umhverfið og safna
ýmsu s. s. steinum og jurtum.
Þetta var þriðji veturinn í
nýja skólahúsinu og er það full
nýtt til kennslu. Byrjað er á
íþróttahúsi fyrir skólann og á
það að rísa vestan við skóla-
húsið og vera tilbúið til notkun-
ar í lok október 1976. íþrótta-
húsið er eins og skólahúsið
teiknað á teiknistofu húsameist-
ara Akureyrarbæjar.
Þann 2. febrúar sl. var form-
lega stofnað Foreldrafélag Gler-
árskóla og hafa allir foreldrar
og forráðamenn barna í skólan-
um rétt til að ganga í félagið.
Formaður þess er Jökull Guð-
mundsson, Skarðshlíð 14.
(Skólastjóri)
landsins í verki. Nú gefst okkur
gott tækifæri til að endurgjalda
vináttu þeirra, og styðja um
leið viðleitni þeirra til viðhalds
íslenskrar menningar vestan
hafs.
Þeir sem vilja taka þátt í
þessari vinargjöf eru vinsam-
lega beðnir að snúa sér sem
fyrst til þjóðræknisfélaganna á
Akureyri eða Reykjavík. Gjöf-
in verður síðan afhent á íslend-
ingadeginum á Gimli í Kanada
í ágúst n. k.
F. h. Þjóðræknisfélagsins
á Akureyri,
Árrii Bjarnarson.
- SMÁTT OG STÓRT
(Framhald af blaðsíðu 8)
bílslysi á hernámsárunum.
Þetta merki létu félagar liinna
látnu gera til minningar um þá
og varúðar öðrum. Á steyptan
stöpul var fest plata en uppúr
stóð geisimikil riffilkúla og nöfn
mannanna á. Nú stendur steypu
stöpuilinn nakinn. Einhver hef-
ur numið merkið hurt, kúluna
og plötuna, sem mun hafa verið
úr kopar. Það er eitthvað napur
legt að sjá þennan nakta stein-
stöpul þarna. Vill ekki einhver
félagsskapur, sem sinnir líknar-
og verndarmálum setja ein-
hverja minningarplötu á stólp-
ann og járnkross á hann ofan?
Hin fjarlægðu tákn munu nú
vera komin til yfirvalda liér, en
þau eru svo illa farin af riffil-
skotum, að hæpið er að nota
þau meir. Það skal kjark til að
svívirða minnismerld framlið-
inna. Ekki trúi ég þá dreymi
vel, sem það leggja fj'rir sig.
Stöpullinn nakti í Þórustáðagili
stendur þar, sem þung ákæra
á rudda.
LANDSPJÖLL
Glerá og gljúfur hennar voru
fögur og hrikaleg víða. Hvort
tveggja hefur verið gerspillt a£
mannavöldum til margra ára.
Það nýjasta er mikið rask og
uppfylling ofan við lónið hjá
gömlu virkjuninni. Túnið á
Bakka er orðið upphleyptur
vegur og hvanunurinn og klett-
ar milli lónsins og túnsins er
liorfið undir sand og for. Var
Náttúruvemdarráð hér með í
ráðum? Ef svo hefur verið, sá
það ósómann fyrir. Ýtugleði er
ekki mikið betri byssugleðinni.
iBifheiðiri
Til sölu er vel með far-
inn Taunus 17M station
árgerð 1969.
Skipti á yngri bíl koma
til greina.
Uppl. í síma 2-34-77.
Til sölu FÍAT P 125
árg. 1973.
Uppl. í síma 2-21-48
milli kl. 12-13.
BIFREIÐ til sölu!
Renault 4 árgerð 1972
í toppstancli, nýskoðuð.
Bifreiðin er til sýnis á
Bifreiðaverkstæði Al-
bert Valdimarssonar.
ÞÓRSHAMAR HF.
AUGLtSIR:
TOPPGRINDUR - SKÍÐAGRINDUR
BURÐARSLÁR FYRIR BÁTA 0. FL.
ÚTISPEGLAR - TEYGJUBÖND
SIÍÁLAMOTTUR f. VOLVO, OPEL o. fl.
NET Á AÐALLJÓS, 4 gerðir
ÞVOTTASVAMPAR - PÚSTENDAR
KÆLIÞÉTTIR - PÚSTKÍTTI
ILMHUNDAR - FELGJUKROSSAR
SÍMI (96) 22700