Dagur - 03.07.1975, Page 8
Akureyri, íimmtudaginn 3. júlí 1975
FULL BÚÐ ff .
AF NÝJUM \ (fjð
VÖRUM ý•’ i.{s< ■ .D-^g
<f. j; \ v
SMÁTT & STÖRT
Undanfarna daga licfur nautgripum liðið vel í haga.
(Ljósm.: E. D.)
I
Að þessu sinni leitum við fróð-
leiks hjá Guðmundi Steindórs-
syni, sem er ráðunautur Sam-
bands nautgriparæktarfélaga
við Eyjafjörð, skammstafað
SNE Svæðið nær yfir Eyja-
fjarðarsýslu, Ólafsfjörð, Dalvík-
urkaupstað, Svalbarðsstrandar-
hrepp og Grýtubakkahrepp. Á
þessu svæði eru um fjögur
hundruð bændur, sem flestir
stunda nautgriparækt og fram-
leiða mjólk og kjöt.
Kýrnar á þessu svæði voru,
samkvæmt skýrslum ásetnings-
manna sl. haust, 6365 og aðrir
nautgripir 4385, en þessir „aðrir
nautgripir“ eru mun færri nú
en áður, vegna þess hve sala
nautakjöts hefur gengið treg-
lega, vegna ýmsra ástæðna,
sagði ráðunauturinn, og enn-
fremur:
Skrifstofa SNE er á Óseyri 2
og þar hef ég og einnig frjó-
tæknar aðsetur. Fjórir eru fast-
ráðnir við tæknifrjógun naut-
gripa og þar af hefur einn að-
setur á Dalvík og svo höfum
við afleysingamann að auki.
Þessir menn taka á móti pönt-
unum fyrri hluta dags og aka
svo út um hérað síðari hluta
dagsins með hið dýrmæta nauta
sæði, sem nú kemur allt, frá
Nautastöð Búnaðarfélags ís-
lands á Hvanneyri. Sæðingar-
stöð SNE hér á Akureyri var
lögð niður 1970 og því er hér
aðeins dreifingarmiðstöð. Þátt-
takan í sæðingunum á þessu
svæði er mjög mikil eða 82%,
þótt stöku maður hafi enn
tudda.
Síðasta ár framleiddu bænd-
ur á svæði SNE mjólk til sölu-
meðferðar, rúmloga 22 millj. kg
með 4,22% fitu, sem er hæsta
mjólkurfita á landinu- Kýrnar
eru góðar og skýrsluhaldið er
mjög almennt meðal bændanna
eða um 75%. Næstum allir
bændur í sumum hreppum
haida kúaskýrslur, en í öðrum
hreppum eða hreppshlutum
vantar nokkuð á skýrsluhaldið.
Mjólkurmagn eftir hverja
fullmjólka kú hefur aukist
mjög mikið á undanförnum ára-
tugum, sem sjá má á því, að
árið 1930 var mjólkin eftir árs-
kúna 25S3 kg en núna 3820 kg.
Meðalfitan var 3,60% árið 1930
en er nú 4,39%, hvort tveggja
samkvæmt skýrslum- Mest
mjólkaði meðalkýrin 1971 eða
4042 kg með 4,32% fitu.
Þessi gífurlega afurðaaukn-
Guðmundur Steindórsson.
ing eftir hverja kú má fyrst og
fremst þakka miklu betra vetr-
arfóðri og jafnvel sumarfóðri
einnig, því nú eru kýrnar látnar
ganga mest á ræktuðu landi á
sumrin, túnum eða ábornu
landi. Ennfremur koma kyn-
bætur þá að mestu gagni, þegar
þeim er fylgt eftir með bættri
fóðrun og allri umhirðu.
Til gamans má geta þess,
sagði ráðunauturinn, að mjólk-
urhæsta kýrin 1973 var Rósa 1
á Syðri-Bægisá og mjólkaði hún
8010 kg og mun það hafa verið
litlu minna en landsmetið.
Mjólkurfitan var 4,23%. Hins
vegar höfum við kýr, sem hafa
skilað fleiri fitueiningum yfir
árið, t. d. skilaði Blesa 105 á
Öngulsstöðum I 37.400 fituein-
ingum. Miðað við núverandi
verðlag á mjólk, má meta mjólk
ina hátt á þriðja hundrað þús-
und krónur. En auðvitað eru
slíkir gripir ekki á hverju strái,
heldur eru þeir hreinar undan-
tekningar.
Meðal mjólkurmagn eftir árs-
ERFIBLEIKAR FOLKS
OG BÆJARSJÓÐS
Verulegir erfiðleikar hafa verið
lijá mörgu fólki í bænum vegna
atvinnuleysis og þar af leiðandi
peningaskorts og er það meðal
annars vegna stöðvunar togara-
flotans í sex vikur.
Treyst hefur verið á fram-
kvæmdir hins opinbera, m. a.
framkvæmdir bæjarins- En for-
sendur fyrir þróttmiklum bæjar
framkvæmdum eru þær, að
ekki skorti fé. Nú stendur svo
á, að fyrirgreiðsla lánastofnana
er alveg í lágmarki og mun
minni en löngum hcfur verið.
Því verður að treysta enn
meira á góð skil á gjöldum borg
aranna til bæjarsjóðs, en í
þessu efni liefur orðið veruleg-
ur misbrestur í ár. Stafar það
sjálfsagt einkum af þrengri
fjárhag almennings en einnig
að einhverju leyti af kæruleysi.
kúna á svæði SNE varð síðasta
ár 3522 kg. Á síðustu árum hef-
ur mjólkurframleiðendum fækk
að, en búin hafa aftur á móti
sfækkað, þannig að kúm hefur
í heild fjölgað á svæðinu og
framleiðsla mjólkur aukist.
Samkvæmt skýrslum hefur kún
um fjölgað um 500 frá 1971—
1^74 og á meðalbúinu voru 18,4
arskýr árið 1970 en í fyrra 22,4
árskýr. Þessar tölur eru þó
miðaðar við þá bændur eina,
sem halda skýrslur.
Stærstu kúabú eru í Svein-
bjarnargerði og á Svalbarði á
Svalbarðsströnd, með um 90
mjólkandi kýr á hvorum bæ,
og svo eru þar mörg geldneyti
að auki.
Nautakjötsframleiðsla er
nokkuð mikil þótt hún sé minni
en hún var. Nautastöðin í Hrís-
ey verður með holdanautasæði
og við það miðuð, að efla nauta-
kjötsframleiðsluna meðal þeirra
Báenda, sem leggja stund á þá
framleiðslugrein. Þessi tvö kyn
(Framhald á bls. 7).
Fyrir tveim dögum lá leiðin um
Möðrudal. Þar er lítill en hrein-
legur veitingaskáli, sem heitir
Fjallakaffi, kærkominn ferða-
fólki. Þar ræður húsum Vilborg
Vilhjálmsdóttir og annaðist hún
einnig veitingasöluna í fyrra-
sumar.
Þegar fréttamaður spurði um
búskapinn í Möðrudal, sagði
hún, að þar hefðu undanfarin
ár búið öldruð hjón, sem þar
væru ennþá. En nú hefðu tveir
menn i hyggju að hefja búskap
á þessari fornfrægu jörð, þeir
Vernharður Vilhjálmsson og
Jón Aðalsteinn Stefánsson.
Forsaga þessa mál er sú, að
Búnaðarþing ályktaði á sínum
tíma, að byggð yrði að haldast
á Efrifjöllum og Neðrifjöllum,
þ. e. í Möðrudal og á Gríms-
stöðum. Þingmenn báru síðan
og fengu samþykkta þingsálýkt-
unartillögu á Alþingi þess efnis,
að málinu yrði fylgt eftir.
í framhaldi af þessu má geta
þess, að á Grímsstöðum var í
fyrra flutt í nýtt íbúðarhús,
norskt einingarhús og þar eru
meiri byggingar á dagskrá. í
Möðrudal verður í sumar byggt
íbúðarhús, sem Jón Aðalsteinn
Stefónsson er þegar búinn að
taka grunninn að og þar verður
einnig í sumar byggt 400 kinda
fjárhús Vernharðs Vilhjálms-
sonar- Stofnlánadeild og stjórn-
völd munu greiða fyrir því, að
fjármagn skorti ekki til þessara
framkvæmda. Síðar verður upp
byggingunni væntanlega haldið
þarna áfram. □
MINNI VANSKIL — MEIRI
FRAMKVÆMDIR
Þegar til þess er ættast að bær-
inn framkvæmi sem mest af
þeim verkcfnum, sein á dagskrá
eru, vcrður cinnig að ætlast til
þess af gjaldendum, að inn-
heimtan til bæjarsjóðs gangi
greiðlega. Má í þessu sambandi
nefna ýmsar byggingar, sem
vinna þarf að í sumar, á þann
veg að hægt sé í vetur að haldai
áfram vinnu við þær af fullum
krafti.
Nefna má íþróttalmsið í Gler-
árliverfi, höfnina, gatnagcrðina
og stóra asfaltgcyminn, sem
settur er upp til að gera varan-
legt slitlag á götunum mun
ódýrara í framtíðinni og enn
má nefna hin margþættu skipti
bæjarins við liin ýmsu fyrir-
tæki, sem geta skipt sköpum
um starfrækslu þeirra.
FÓLK TAKI HÖNDUM
SAMAN i
Þegar lánsfjárskortur er, svo
sem nú er, og innheimtur bæjar
sjóðs ganga tregleýa, verður
erfitt um vik að halda itppi full-
um framkvæmdum'. Má því
telja brýna nauðsyn að fólk
taki höndum saman um skil-
vísar greiðslur til hæjarsjóðs ti\
þess að fram verði haldið eins
miklum framkvæmdum og
unnt er, framkvæmdum, sem í
sjálfu sér eru nauðsynlegar, en
cinnig atvinnuaukandi.
40—50 MILLJ. KRÓNU
SPARNADUR
Nefnd, sem skipuð var til athug
unar á rekstri ríkisútvarpsins
hefur skilað áliti. Þar kemur
m. a. fram, að sparast myndu
40—50 milljónir króna á því
eina sviði að leggja Innheimtu-
deild útvarpsins niður. f staðinn
kæmi þjónustugjald, er greidd-
ist með tekju- og eignaskatti.
(Framhald á blaðsíðu 2)
Vilborg Vilhjálmsdóttir
veitingakona.
illlíl
Myndin er frá Möðrudal.
(Ljósmyndirnar tók E. D.)