Dagur - 09.07.1975, Page 2
2
Byggðaþróunaráætlun Norður-
Þingeyjarsýslu er mjög á dag-
skrá um þessar mundir, enda er
þetta fyrsta byggðaþróunar-
áætlunin á landinu. Aðalhöfund
ur hennar er Guðmundur Osk-
arsson verkfræðingur í Reylcja-
vík, sem mörg undanfarin ár
hefur unnið verkfræðistöi'f og
áætlanagerðir fyrir fjölmörg
sveitarfélög á landinu. Hann og
Áskell Einarsson framkvæmda-
stjóri Fjórðungssambands Norð
lendinga, voru um síðustu helgi
að koma úr ferðalagi um N,-
Þing. og greip blaðið tækifærið
og spurði Guðmund Óskarsson
nokkurra spurninga um þessa
fyrstu byggðaáætlun, sem Gísli
heitinn Guðmundsson alþingis-
maður barðist fyrir og fékk sam
þykkta á Alþingi 25. apríl 1972.
Framkvæmdastofnun ríkisins
var falin áætlanagerðin í sam-
ráði við sýslunefnd, búnaðar-
samband, sveitarstjórnir og
Fjórðungssambandið. Verk-
fræðiskrifstofu Guðmundar
Óskarssonar var svo falin gerð
áætlunarinnar, sem er allmikil
prentuð bók. í mars 1975 var
svo áætlunargerð lokið, eða til-
lögudrögum, sem síðan var
kynnt í héraði og síðan höfum
við Áskell Einarsson, sagði verk
fræðingurinn, heimsótt þéttbýl-
isstaðina Kópasker, Raufarhöfn
og Þórshöfn og haldið þar fundi
með sveitarstjórnarmönnum,
farið alveg í gegn um áætlunina
og skráð athugasemdir og
ábendingar frá heimamönnum.
Áætluninni hefur verið mjög
vel tekið.
Hvert er svo næsta skrefið,
Guðmundur?
Næsta skrefið verður það, að
gera þær breytingar á byggða-
áætluninni, sem nauðsynlegar
eru, samkvæmt því, sem fram
hefur komið í umræðum við
heimamenn og samræma þær.
Síðan verður væntanlega leitað
til ríkisstjórnarinnar, áætlunin
lögð fyrir hana til fyrirgreiðslu.
Það kemur í hlut stjórnvalda
landsins að fjármagna áætlun-
ina og gera hana þar með að
veruleika.
Meginþættir áætlunarinnar?
Áætlunin snýst að verulegu
leyti um atvinnumál í þessum
landshluta- Upphafleg ástæða
fyrir gerð hennar var sú, að
mikill fólksstraumur lá úr sýsl-
Ársþing UNÞ 1975 var haldið á
Þórshöfn 22. júní. Mættir voru
23 fulltrúar frá öllum aðildar-
félögunum, sem eru sjö, auk
stjórnar UNÞ og nokkurra
annarra.
í skýrslu stjórnarinnar fyrir
árið 1974 kom meðal annars
fram, að gróskumikið íþrótta-
stai'f var á sviði frjálsra íþrótta
og knattspyrnu. Nefna má að
210 börn fjórtán ára og yngri
tóku þátt í unglingakeppni
UNÞ og sambandið varð í 3.
sæti í bikarkeppni FRÍ 2. deild.
Fjögur knattspyrnulið kepptu í
knattspyrnumóti UNÞ og lið frá
sambandinu tók nú í fyrsta sinn
þátt í undankeppni fyrir lands-
mót UMFÍ.
UNÞ stóð að þjóðhátíð Norð-
ur-Þingeyinga í Ásbyrgi ásamt
þjóðhátíðarnefnd N.-Þingeyjar-
sýslu.
Á þinginu var samþykkt
reglugerð fyrir knattspyrnumót
UNÞ og gerðar voru ýmsar sam
þykktii' um héraðsmótið, sem
fram fer í Ásbyrgi helgina 19.
—20. júlí n.k. Þá var eftirfar-
andi samþykkt samhljóða:
unni. En apk atvinnumála er
þar fjallað um félagsmálin, sam
göngumál, heilbrigðismál og
skólamál. íbúar á þessu svæði
eru 1816 manns, en Húsavíkur-
kaupstaður er ekki tekinn með
í áætLunina.
Rétt er að geta þess, að þings-
ályktunartillaga Gísla Guð-
mundssonar gerði ráð fyrir því,
að byggðaáætlunin næði til
næstu hreppa Norður-Múla-
sýslu, þ. e. yfir Vopnafjarðar-
og Skeggjastaðahreppa, sem
báðir eru norðan Smjörvatns-
heiðar. En það liggur enn ekki
ljóst fyrir, hvort þessir hreppar
verða með. En við höfum kynnt
áætlunina þar og áhuginn á því
að vera með, er vaxandi.
í sambandi við atvinnumálin
er meðal annars fjallað um iðn-
aðinn, en þjónustuiðnaðurinn
er frekar af skornum skammti
og þarf að eflast. Við getum t. d.
bent á, að á Þórshöfn er ekki
trésmíðaverkstæði, en hins veg-
ar mikill áliugi á byggingarfram
kvæmdum. Á Raufarhöfn vant-
ar ti'ésmíðaverkstæði og véla-
verkstæði, því vélaverkstæðið
þar var einkum miðað við síldar
bi'æðsluna. Gert er ráð fyrir, að
fiskibátarnir verði stækkaðir og
„Ársþing UNÞ haldið á Þórs-
höfn 22. júní 1975 samþykkir að
bjóða fram 300 dagsverk, unnin
eða greidd, til byggingar full-
kominnar hreinlætisaðstöðu í
Ásbyrgi að því tilskyldu að
UNÞ haldi afnotarétti sínum í
Ásbyrgi til samkomuhalds og
íþróttamóta-“
Stjórn sambandsins skipa nú
þeir Aðalbjörn Gunnlaugsson,
Lundi, formaðui-, Guðmundur
Þórarinsson, Vogum, gjaldkeri
og Stefán Eggertsson, Laxárdal,
ritari.
Tveir íþróttakennarar starfa
hjá UNÞ í sumar, þeir Magnús
Pálsson og Gunnar Árnason, en
Gunnar er jafnframt fram-
kvæmdastjóri íþróttastarfsins.
Fimm frjálsíþróttamót em
ákveðin innan héraðs auk ungl-
ingakeppninnai', sem fram fei'
þrisvar sinnum í hvei'ju félagi.
Þá tekur UNÞ þátt í landsmóti
UMFÍ, Norðui'landsmótinu og
bikarkeppni FRÍ 2. deild.
F. h. UNÞ
Gunnar Árnason.
gerðir hæfari til sjósóknar, en
uppbygging bátaflotans hefur
verið frernur hæg til þessa.
Verið er á Þórshöfn a ðljúka
byggingu nýs fi'ystihúss og þá
skortir þar hráefni. Sennilegt
er, að íbúar þar leggi áherslu á
að. fá skuttogara áður en langt
líður. Höfnin þar er að verða
sæmileg. Líklegt er, að sam-
vinna um útgerð eða vinnslu
aflans væri skynsamleg. Á
Kópaskeri er nýlegt trésmíða-
verkstæði og bifreiðaverkstæði.
Þar er einnig áhugi á útgerð,
en hafnarskilyrði vantar-
Rætt er í áætluninni um
Dettifossvii'kjun, sem hlýtur að
hafa, ef til kemur, mikil áhrif
á atvinnulífið, þótt stóriðja
kæmi ekki til þar.
Fyrirhugað er að reisa heilsu
gæslustöð á Þói-shöfn og sjúkra
móttöku á Raufai'höín og litla
læknamiðstöð á Kópaskeri með
einum lækni. í tengslum við
lieilsugæslustöð á Þórshöfn er
mikill áhugi á dvalarheimili
aldraðra.
í skólamálum virðist stefnan
sú hjá lireppunum, að Keldu-
neshreppur, Öxarfjarðarhrepp-
ur og Presthólahreppur sam-
einist um grunnskóla að Lundi.
Raufai'hafnarbúar hafa hug á
að reisa sér sérstakan grunn-
skóla og Þórshafnarhreppur, í
samvinnu við Sauðaneshrepp
svalbarðshrepp, vill byggja
grunnskóla á Þórshöfn.
Er ekki áhugavert að fást við
þessi verkefni?
Jú, alveg sérstaklega áhuga-
vert. Þessi áætlunargerð snýst
um flesta þætti mannlegs lífs
og hefur verið skemmtilegt að
fást við þetta verkefni. Norður-
Þingeyjarsýsla er ýmsum góð-
um kostum búin og þótt hún
liggi noi'ðarlega, eru þar mikil
og góð sauðlönd, sem ekki eru
enn að fullu nýtt, auk margra
náttúrugæða og sérstæðrar
fegurðar. Það er einkum í Þistil
firði og upp af honum, sem bet-
ur má nýta beitilöndin með
fjölgun fjár til muna. En áætl-
unin sem slík, tekur ekki til
landbúnaðar sérstaklega, þótt
víða sé komið að landbúnaði í
áætlunargerðinni. Og ég get
bent á þau helstu atriði, sem
helst þykir á skorta í búskap
bændanna í sambandi við upp-
byggingu landbúnaðarins.
Meðalbúið í Norðui'-Þingeyj-
arsýslu er minna en meðalbúið
á Norðurlandi, þótt afrakstui'-
inn sé ekki jafnmikið minni.
Búin þurfa að stækka. Það sem
lagt er til að sérstaklega verði
gert fyrir landbúnaðinn er
þetta:
Sérstök fi'amleiðnilán verði
veitt, til að stækka búin, til
þess þau nái minnst meðalbú-
stærðinni, með frumbýlingslán-
um eða styi'kjum svo áhætta
•verði ekki óhóflega mikil við
uppbyggingu jarðarbýla, sem
farið hafa í eyði, með sérstök-
urn lánum við ábúendaskipti og
með skynsamlegri áætlun um
landnýtingu fyrir sýsluna alla.
Þá þarf að gera rannsókn á fisk
ræktai'möguleikum í ám og
vötnum og ilræktarmöguleik-
um, þar sem hagkvæmnisathug-
anir sýna að möguleikar eru
fyrir hendi og styrkja þessar
atvinnugreinar.
Landbúnaðaráætlunin?
Gert er ráð fyrir sérstakri
landbúnaðaráætlun á vegum
Landnáms ríkisins. Menn gera
sér vonir um, og það er almenn
Áskell Einarsson og Guðmundur Óskarsson. (Ljósm-: E. D.)
HÖFUNDUR HENNAR, GUÐMUNDUR ÓSKARSSON, SVARAR
FÁEINUM SPURNINGUM BLAÐSINS VARÐANDI ÁÆTLUNINA
krafa Norður-Þingeyinga, að
framfylgt verði þeirri byggða-
áætlun, sem nú liggur fyrir og
menn vænta þess einnig, að
framkvæmdaáætlun landbúnað
arins, sem segja má að sé hafin
á Grímsstöðum og í Möðrudal,
verði fullmótuð sem allra fyrst
og framkvæmdir fylgi á eftir.
En samvinna dreifbýlis og' þétt-
býlis er svo mikil og nauðsyn-
leg, að ekki er hægt að skilja
þar á milli og áætlanirnar verða
því að fylgjast að.
Fólki í landbúnaði hefur
fækkað mikið og meira én á
öðrum stöðum á Norðurlandi og
er nú oi'ðið á neðri mörkunum,
ef svo má segja. Þá þróun þarf
tafarlaust að stöðva-
Nú er eftir að vita, hvernig
Framkvæmdastofnun ríkisins
stendur að þessu máli. Raunar
stendur hún ekki undir nafni
nema að hún tryggi framgang
þessa máls. Hún er fi'am-
kvæmdastofnun en ekki áætl-
anastofnun. Það virðist vanta
þann aðilann, sem tryggi fram-
gang mála, sem þessara. Bæði
þai’f að tryggja framkvæmdir
með fjármagni en einnig örva
þann framkvæmdavilja, sem til
staðar er og bíður þess að vera
leystur úr læðingi heima í
byggðarlaginu.
Þá vil ég að lokum, segir Guð
mundur Óskarsson, víkja að
því, að eitt af því sem hefur háð
mönnum í Norður-Þingeyjai'-
sýslu er það, að þeir kunna ekki
nægilega vel á „kei’fið" og má
þar bæði nefna bankakerfið og
hinar ýmsu stofnanir, sem til
þarf að sækja um fyrirgreiðslu
til hvaða smáfyrirtækis sem
setja þarf á stofn. Þetta „kerfi“
er flókið og hætt við því, að
menn gefist hreinlega upp og
munu fleiri en Norður-Þing-
eyingar í þeirri uppgjafarhættu.
I
Blaðið þakkar Guðmundi Ósk
arssyni vei'kfræðingi svörin og
honum og Áskatli Einarssyni
fyrir innlitið. E. D.
Á föstudagskvöld milli
kl. 7 og 8 töpuðust
skiptilykill, þxýsti-
sprauta og skrall, sem
lágu á búkka á togara-
bryggjumii.
Vinsamlegast skilist til
Ingvars Eiríkssonar,
Hafnarstræti 25,
sími 1-13-13.
Sá sem getur gefið upp-
lýsingar um jeppakerru
— bláa að lit — senr skil-
in var eftir biluð uppi á
Vaðlaheiði en er nú
horfin, vinsamlega láti
Bílaleigu Akureyrar eða
lögregluna á Akureyri
vita.
Svefnpoki tapaðist í
svörtum plastpoka á
leiðinni Akureyri —
Vaglaskógur.
Finnandi hringi í síma
2-18-34 gegn fundar-
launum.
SOKKAVIÐGERÐ!
Dömur munið að láta
gera við sokkabuxurnar.
Móttaka í Markaðinum.