Dagur - 23.07.1975, Síða 2
2
Um sorpeyðingu á Ákureyri
Verkfræðingur bæjarins hefur
að gefnu tilefni, lagt fram grein
argerð yfir sorpeyðingarmálin á
Akureyri, og fer hér á eftir
hluti af henni:
Árið 1963 voru mjög til um-
ræðu kaup á sorpbrennslustöð
frá Þýskalandi. Framleiðendur
hennar auglýstu hana mjög, en
við nánari athugun kom í ljós,
að fyrirtækið var ótraust og
reynslulaust í smíði sorpeyðing
arstöðva og var því horfið frá
kaupum.
Árið 1971 voru til athugunar
kaup á sorpbrennslustöð frá
Danmörku. En stofnkostnaður
og reksturskostnaður hennar
reyndist það mikill að frá því
var horfið.
Sorpeyðing hefur síðan öðru
hverju verið til umræðu.
Meðal annars hefur bæjar-
verkfræðingur skoðað sorp-
brennslustöð Húsavíkur, sem er
frá Skorstensbolaget A. B. í Sví
þjóð og farið á vélasýningu í
Bretlandi síðastliðið haust með-
al annars til að skoða sorp-
mulningsstöðvar.
Ennfremur hefur bæjarverk-
fræðingur haft samband við
Hafnarfj arðarbæ um þessi mál,
en bæjarverkfræðingur þar hef-
ur þau nú til athugunar.
Var ætlun þeirra að hafa sam
ráð sín á milli um tillögur á
sorpeyðingu sem að þeirra dómi
væri hagkvæmust í næstu fram
tíð.
Heimilissorp á Akureyri er
nú um 10 tonn a dag eða sem
næst 50—55 m-í! á dag.
Iðnaðarsorp og annar úrgang-
ur er annað eins og þar af
brennanlegt um 50%.
Auk þessa er flutt á hauga
bæjarins sorp frá Kristnesi og
Svalbarðseyri.
Þær soiTreyðingaraðferðir
sem helst koma til greina auk
eyðingar á sorphaugum er sorp-
brennsla og sorpmölun.
Sorpbrennsla er alldýr í stoín
kostnaði og rekstri, en mismun-
andi eftir gerð brennsluofna og
mun brennsluofninn á Húsavík
vera með þeim ódýrari. Miðað
við stærð ofnsins á Húsavík
þyrfti 2 slíka hér eða 1 af stærri
gerð. Þótt sorpeyðing væri fram
kvæmd með brennslu þyrfti
sorphauga eftir sem áður fyrir
um 25% af sorpmagninu, sem
ekki er brennanlegt, auk ösku
frá brennsluofnum.
Mesti ókosturinn við brennslu
er að flokka þarf sorpið og
plokka úr því hluti, sem mjög
er óþrifalegt.
Auk þess verða laus við
brennsluna klór- og flúorsam-
bönd, sem hafa eitrandi og tær-
andi áhrif, einkum ef brennd
eru ýmis plastefni, sem notuð
eru í vaxandi mæli.
Óhreinsaður reykurinn meng
ar andrúmsloftið, einkum með
tilliti til staðhátta hér og hreins
un reyksins með vatni skapar
líka mengunarhættu.
Sorpeyðing með sorpmölun
hefur kosti umfram eyðingu
með brennslu.
Stofnkostnaður og rekstur
sorpmölunarstöðva er talinn all
miklu ódýrari 'en brennslu-
stöðva. Rúmmál sorpsins minnk
ar um 50% við mölun og allt að
85% eftir þjöppun á haugstæði.
Nota má hið malaða'sorp til að
keyra yfir iðnaðarsorp á haug-
um, sem ekki er hægt að mala
eða brenna. Sorpið er malað
það mikið niður að lítil hætta
er á foki frá því. Ennfremur er
hægt að sigta frá malað plast og
bréf og keyra því undir á haug-
um og þá á engin hætta að vera
á foki. Tollemache-sorpmölun,
sem bæjarverkfræðingur skoð-
aði í Bretlandi svo sem áður er
getið, krefst engrar plokkunar
á hlutum úr sorpinu qg kvörnin
sjálf kastar frá sér hlutum, sem
ekki malast undir 40 mm. Þetta
er mikill kostur við rekstur
stöðvar, sem þessarar. Saman-
borið við eyðingu með brennslu
þá er ekki um megun að ræða
í reyk eða frárennsli vegna
hreinsunar reyks- Svo sem áður
segir má nota hið malaða sorp
til að keyra yfir iðnaðarsorp og
annan úrgang sem ekki verður
brenndur eða malaður og spara
þannig yfirkeyrslu að nokkru á
haugum.
Ekki virtust erfiðleikar á því
að keyra á hinu malaða sorpi á
haugum þeim, sem skoðaðir
voru í Bretlandi, enda þótt rign
ingar væru og allt blautt. Bæjar
verkfræðingur stefnir ■ að því,
að leggja fyrir bæjarráð á kom-
andi hausti samanburð á helstu
sorpeyðingaraðferðum sem til
álita kæmu hér.
Hann mun jafnframt hafa
samráð við kollega sinn í Hafn-
arfirði um mál þetta.
Ástæðan fyrir því að hann
lagði ekki fyrir bæjarráð á síð-
asta hausti áætlun um stofn-
kostnað og reksturskostnað
soi-pbrennslustöðvar og sorp-
mölunarstöðvar var . hvoru
tveggja að hann taldi æskilegra
að undirbúa mál þetta betur í
samráði við þá sem um þetta
mál hafa fjallað hjá sveitarfélög
unum suðvestanlands og hitt að
uppkast að fjárhagsáætlun fyrir
bæjarsjóð árið 1975, sem fyrir
lá á síðastliðnu hausti gaf ekki
tilefni til þess að unnt yi'ði að
fjárfesta í sorpeyðingafstöð á
þessu ári. □
HUGLEIÐING UM
GÖTUNAFN
Þegar að er gáð, kemur í ljós
að það eru örfáar götur hér í
bæ sem bera mannanöfn og er
vel farið að svo er, enda vandi
að dæma um hver er þeirra
virðingar verður-
Við höfum látið það vera að
heiðra minningu okkar mestu
manna á þennan hátt, þess
vegna má kalla það ofrausn að
heiðra Danadrottningu með
þessu móti, eins og stungið er
upp á í 29. tölublaði Dags.
Danir hafa gert rétt í samn-
ingum við okkur, og þó ekki án
þrýstings af okkar hálfu. Og
með því hafa þeir heiðrað sjálfa
sig, svo ekki þurfa aðrir þar um
að bæta. Enda staðreynd að
frændur okkar á Norðurlönd-
um eru ilveg einfærir um að
hampa sínu kóngafólki.
Ef mönnum líkar ekki við
Leiruvegsnefnið sem nefnt hef-
ur verið á nýja veginn í inn-
bænum, þá er auðvitað um
fleii'i góð nöfn að ræða, svo sem
Fjörubraut, Tjarnargötu eða
Akureyrarstræti þar sem vegur
inn liggur um gömlu Akur-
eyrina.
ÖNNT ER AÐ NYTÁ ORKUNA BETUR
Aðeins um það bil fimmtán
prósent þeirrar orku, sem fram-
leidd er til notkunar í Norður
Ameríku og í Evrópu kemur
neytendum beint til góða, segir
í nýútkomnu yfirliti frá Efna-
hagsmálanefnd Sameinuðu þjóð
anna fyrir Evrópu. 85 prósent
orkunnar fer sem sé forgörðum
með ýmsum hætti, einkum tap-
ast þó orka við það, að henni er
breytt úr einni mynd í aðra,
við flutninga, geymslu og síðast
en ekki síst, þegar orkan er
komin til neytenda og í notkun.
Ekki er talið að unnt verði að
bæta þessa nýtingarprósentu
verulega á allra næstu árum, þó
hafa sérfræðingar spáð því, að
nýtingarprósentan muni hafa
hækkað um helming eða í 30
prósent árið 1990, það er að
segja, ef vilji er fyrir hendi til
að beita sér fyrir aðgerðum í
þessu augnamiði.
Til þess að svo megi verða
þarf ýmislegt að gerast, og ekki
síst þarf að breyta neysluvenj-
um almennings. Þótt unnt sé
tálið að hækka nýtingarprósent-
una svona mikið, telja sérfiæð-
ingar þó raunhæfara að áætla,
að hún hækki ekki nema í
tuttugu prósent á næstu
fimmtán árunum.
2. JARPUR, 35,2
eig. Félagsbúið Möðruvöllum
Knapi Hermann Jónsson.
Fleiri lágu ekki sprettinn.
250 m stökk. Tími
1. FANTUR, 19,9
eig. Héðinn Jónsson, Ak.
Knapi Kristján Leósson.
2. HÁFETI, 20,0
eig- Stefán Jakobsson, Ak.
Knapi Omar Jakobsson.
3. HELMINGUR, 20,1
eig. Halldór Kristinsson, Ak.
Knapi Auðbjörn Kristinsson.
Bestum tíma í undanrásum
náði Háfeti Stefáns Jakobsson-
ar, 19,5.
300 m stökk. Tími
1. FLÓTTI, 23,6
eig. Finnur Björnsson, Ak.
hestamót
Knapj Auðbjörn Kristinsson.
2. LITUR, 23,7
eig. Ásgeir Ásgeirsson, Ak.
Knapi Alfreð Arnljótsson.
3. GRÁNI, 24,1
eig. Eiríkur Sigurðsson, Ak-
Knapi Jón Björnsson.
Bestum tíma í undanrásum
náði Flótti Finns Björnssonar,
23,5.
600 m brokk.
1. HRAFN, eigandi Félagsbúið
Möðruvöllum.
Knapi Finnur Björnsson.
2. SJARNI, eigandi og knapi
Ketill Helgas., Finnastöðum.
3. NASI, eigandi Ketill
Helgason, Finnastöðum.
Knapi Erna Jóhannesdóttir.
( Fréttatilky nning)
Nú er talið, að um 86 prósent
af orkunni tapist við vinnsluna
og í notkun. Að breyta frum-
orku í nýtanlega orku er talið
hafa í för með sér 13 prósent
orkutap, en við geymslu, flutn-
ing og dreifingu er talið að eitt
prósent fari forgörðum. Hvað
orkunotkuninni viðkemur þá á
sér að mati sérfræðinga miklu
meiri orkusóun stað á heimil-
um, en í iðnaði.
Þótt ekki takist að bæta orku
nýtinguna nema um fimm pró-
sent er það talið verulega þýð-
ingarmikið, nú þegar þvarvetna
ríkir orkuskortur og verð á öll-
um orkulindum hefur stórhækk
að á tiltölulega mjög skömmum
tíma. Jafnvel þótt fjórir fimmtu
hlutar þeirrar orku sem bundin
er í kolanámum og olíu og gas-
lindum haldi áfram að fara for-
görðum, þá þýðir fimm prósent
aukning að hinar þekktu orku-
lindir, sem mannkyn nú ræður
yfir munu nýtast lengur en
áður var talið-
Hvað olíu og jarðgasi viðvík-
ur þá er talið áð þær olíulindir,
sem nú er kunnugt um, muni
verðá þurrausnar í kring um
1995 miðað við núverandi
vinnsluhraða. Hið sama gildir
um jarðgasið. Ef tekst að bæta
orkunýtingar prósentuha um
fimm prósent mundi það tákna
í raun að olíulinditna^ gætu
enst að minnsta kosti einn ára-
tug til viðbótar, þannig áð auk-
inn tími gæfist til þess að finna
nýjar orkulindir, sem' komið
gætu í staðinn fyrir olíuna.
Margir óttast, að slíku’r orku-
sparnaður muni hafa í för með
sér að lífskjör færu vefsnandi,
en að sögn sérfræðinga ætti
ekki að þurfa til þess að koma.
Stanovik formaður Efnahags-
nefndar Sameinuðu þjpðanna
fyrir Evrópu hefur látið.svo um
mælt, að unnt ætti að vera að
auka hagvöxt nokkuð ón þess
að til komi aukin orkunotkun.
Jarðhitaráðstefna á vegum
Sameinuðu þjóðanna.
Oi’kukreppan hefúr gert það
að verkum að áliugi manna
beinist nú í æ ríkari mæli að
notkun jarðhita, sem yfirleitt
hefur' til þessa vérið fremur
Benda má á, að þegar nýjar
götur eru lagðar í gömlu bæjar-
hlutana þá væri það lýðræðis-
legt að íbúum hverfisins væri
gefið tækifæri til að láta álit
sitt í ljós um nöfn á hinum nýju
götum. „Vel skal vanda, það er
lengi á að standa.“
16. júlí 1975.
I
S. Sig.
Sala
lítið nýttur, nema helst á ítalíu,
Nýja Sjálandi og hér á íslandi.
f lok maímánaðar gengust
Sameinuðu þjóðirnar fyrir ráð-
stefnu um nýtingu jarðhita í
San Fransisco. Er þetta önnur
ráðstefnan um þetta efni, sem
Sámeinuðu þjóðirnar beita sér
fyrir. Fyrri ráðstefnan var hald
in í Pisa á ítalíu árið 1970. Sér-
fræðingar frá rúmlega 50 þjóð-
um sóttu jai'ðhitaróðstefnuna
þar sem fjallað var um nýtíma-
tækni og nýjar leiðir við nýt-
ingu jarðhita. Umræðuefni ráð-
stéfnunnar var skipt í elléfu
meginflokka, en þar á meðal
voru: Núverandi ástand í nýt-
ingu jarðhita, jarðfræði og
vatnafræði, jarðefnafræði og
jarðeðlisfræði, bor- 'og leitar-
tækni, umhverfisvandamál og
raforkuframleiðsla með jarð-
hita. Um eitt þúsund sérfræð-
ingar sóttu þessa ráðstefnu.
Búist er við að eftir því sem
mikilvægi jarðhitans eykst
muni Sameinuðu þjóðirnar
beita sér fyrir fleiri slíkum ráð-
stefnum og auknu samstarfi
þjóða í millum á þesu mikil-
væga orkusviði. □
AGÆTUR AFLI
Þeir hafa hitt í ágætisafla,
stærri færabátarnir, sem við
köllum svo. Komu þeir með
upp í 11 tonn í gær og voru þeir
að veiðum austur við Núpa, og
einhver fiskur hefur gengið inn
í fjörðinn. Minna hefur aflast á
litlu bátana, sem ekki hafa sótt
eins langt. Hér er unninn fullur
vinnudagur og hefur svo verið
undanfarið, sagði útibússtjóri
KEA í Hrísey við blaðið á mánu
daginn. □
BLESSAÐ KAFFIÐ
Nú berast þær fregnir að kaffi
kunni að hækka í verði áður en
langt líður. Verðhækkunin er
talin stafa af næturfrosti á kaffi
ekrum í sumum kaffiræktar-
héruðum Brasilíu, en þaðan
fáurn við blessað kaffið. Skrán-
ing kaffiverðs á kaffimörkuðum
í London og New York hefur
þegar hækkað. □
Til sölu PFAFF-strauvél
í borði, lítið notuð;
golfsett sem nýtt; kast-
spjót karlm.; bogi 25
punda; 3 flugustengur
með hjólum og línum.
Uppl. gefur Stefán
í síma 2-16-16.
RABBARBARINN
er góður núna.
Pantið í síma 1-12-91
milli kl. 8—10 á kvöldin.
Stefanía Guðmann.
Til sölu 5 manna hjól-
hýsi, tegund Abbey 1200
Uppl. í síma 2-27-89
Barnakerra til sölu.
Verð kr. 8.000,00.
Uppl. í síma 1-11-48
eftir kl. 8,00 síðdegis.
Til sölu ný gulbrún
RAFHA-eldavél og
stórt hjónarúm.
Uppl. í síma 2-24-97.
eftir kl. 16.
Höfum úrval lnisgagna:
Hringsófasett með hús-
bóndastól, fleiri gerðir
símastóla, nuggustóla og
llornsófasett og margt fl.
BÍLA- OG HÚSMUNA-
MIÐLUNIN
sími 2-39-12.
Til sölu DESTA dráttar-
vél ásamt sláttuvél,
lítið notað. Kempher
lreyhleðsluvagn 24
rúmrn., nýr, ónotaður.
Fliar heytætla 4ra
stjörnu, notað, og fleiri
heyvinnuvélar.
Valtýr Jóhannesson,
Ytra-Holti,
sími um Dalvík.
HLAÐRUM til sölu.
Sími 2-10-17.
BARNARÚM til sölu.
Uppl. í síma 2-17-38.