Dagur - 19.12.1975, Side 8
AUGLÝSINGASÍI
Dágur
Akurcyri, föstudaginn 19. des. 1975
GILTU
TÍSKUHÁLS-
KEÐJURNAR
NÝKOMNAR
Hestar
Önnur útgáfa af bók Thcodcrs
Arnbjörnssonar ,,Hestar“ er
komin út hjá BúnaSarfélagi
íslands.
Á kápusíðu bókarinnar hefur
Páll A. Pálsson, yfirdýralœknir
ritað m. a.:
„Þekking Theodórs á íslensk-
um hestum var frábær, og mun
óhætt að fullyrða, að á því sviði
hafi enginn staðið honum fram-
al-
Hann dáði og elskaði íslenska
hestinn og skoðaði hann sem
vin og félaga. Ber bókin þess
víða glöggt vitni.
Theodór var einn af þeim fáu
rithöiundum, sem kunni að fara
svo með efni og segja frá í rit-
uðu máli, að allir, sem lesa,
liafa þess full not.
Vegna staðgóörar þekkingar
og einstæðrar glöggskyggni á
hross, útlit þeirra, gerð og hæfi
leika og ekki síður vegna þess,
hve honum er efnið hugleikið
verður framsetning óvenju ljós
og skemmtileg.
Málfar er sérstætt og kjarn-
inikið, en á bak við frásögnina
finnur lesandinn glöggt undir-
öldu skilnings og samúðar með
liinum varnarlitlu vinum höf-
undar, hestunum.
Allir þeir, sem hafa hross
undir höndum, þurfa að lesa
bókina Hestar. Þar er að finna
íjölþættan og yfirgripsmikinn.
fróðleik, sem enn er í fullu
gildi.“ □
1
Tvær barna- og unglingabækur
frá Bókaforlagi Odds Björns-
i sonar.
Leitarflugið
cftir Ármann Kr. Einarsson.
Myndskreytt af Halldóri Péturs
syni.
Þetta er þriðja útgáfa þessarar
ágætu unglingabókar, sem hef-
ur orðið langlíf með þjóðinni og
óspart nýtt til flutnings bæði
sem saga og leikrit. Þeir sem
nú eru fullorðnir muna hana
og geta því boðið hana börn'um
sínum til lestrar án vafa um
ágæti hennar. Bækur Ármanns
hafa verið þýddar fyrir börn
annarra þjóða og hvarvetna
| líkað vel eins og hér heima. □
Ævintýri
í Mararþaraborg
Höiundur Ingibrigt Davík.
íslenskuð af
Kristjáni frá Djúpalæk.
Höiundur þessa ævintýris er
norskur maður. Hann vinnur að
því í heimalandi sínu að semja
og flytja skemmtiefni fyrir
j börn, bæði í bókum, útvarpi og
sjónvarpi. Hann kom reyndar
til Akureyrar snemma á stríðs-
I árunum, þá sem ungur drengur
og flóttamaður með foreldrum
! sfnum. Hann gekk hér í skóla
og varð stúdent frá M. A. Hann
; kann því íslensku og ann enn
þessum bæ.
Ævintýri þetta gerist á hafs-
botni og er flyðrufjölskyldan
j sögupérsónurnar. Strákarnir
tveir, Frakkur og Fimur, eru
forvitnir og ærslafullir fiskar og
lenda því í miklum ævintý'rum
í þangskógum heimahaganna,
[ en höfundur þekkir sjóinn frá
'ZA t \ * > ♦ iy
mmm
iþáMlMÍVv
t<tu
■H
Élæltíw
æsku sinni og hefur sýnilega
lifað sig inn í lífið þar niðri.
Margir söngvar eru í bókinni
°g fylgja lögin á nótum. Hún
er einnig prýdd myndum. Ævin
týri þetta kom út sl. ár á hljóm-
plötu hjá S. G. hljómplötum,
lesið af Helga Skúlasyni leik-
ara, hljómsveitarstjórn og út-
setningar laga Jón Sigurðsson.
Káputeikning er eftir Hilmar
Helgason. □
Blaðinu hafa borist fjórar bæk-
ur frá Bókaútgáfunni Erni og
Örlygi f Reykjavík.
Handaii við
sjóndeildarhring
Bck þessi er eftir Norman
Vincent Peale en Baldvin Þ.
Kristjánsson íslenskaði. Undir-
titill bókarnafnsins er Hvemig
þú færð unnið bug á and-
streymi þínu og áhyggjum, og
segir þetta langa bókarnafn
mikið um það efni, sem höfund-
urinn boðar. Fyrri bækur, sem
komið hafa út eftir þennan höf-
und eru: Vörðuð leið til lífs-
hamingju, Lifötí lífinu lifandi,
Sjálfsstjórn í stormviðrum lífs-
ins og Lciðsögn til lífs ón ótta.
Dr. Peale gefur reglur um það,
hvcrnig unnt er að smækka
mikla erfiðleika lífsins á ýms-
um sviðum, hvernig hægt er að
smjúga gegn um fyrsta stig
þreytu og losa sig við hin með
því að leysa úr læðingi hin
miklu blundandi öfl mannssálar
innar. Hann kennir hvernig má
ná tökum á erfiðum vandamál-
um sínum þannig, að þau
smækki niður í viðráðanlega
stærð, eins og segir í kynningu
á bókarkápu.
Samkvæmt framanskráðu er
vart að efa, að bók sem þessi
eigi víða erindi, bæði við þá,
sem þjáðir eru og hraktir í
hreggviðrum lífsins, og einnig
við alla hina, sem eiga við meiri
eða minni erfiðleika að stríða
— en erfiðleikarnir eru hluti af
lífinu sjálfu. □
Undraverður árangur
jákvæðrar hugsunar
Svo heitir mikil og myndskreytt
bók um lönd og landkönnun
eftir Malcolm Ross MacDonald.
En Steindór Steindórsson fyrr-
um skólameistari íslenskaði.
Bókinni fylgir orðaskrá, orða-
skýringar og greint er frá höf-
undum mynda. Bókin er nær
200 blaðsíður og hinn mikli
fjöldi mynda er í litum.
Efni bókarinnar skiptist í
eftirtalda kafla: Atlantshafið,
Víkingaöldin, ísland og Græn-
land, Vínlandsferðir, Djengis
kan og Mongólar, Sendimenn
frá Stórkaninum, Ferðir Willem
Ruysbroek, Ferðir kaupmanna,
Feneyingar snúa aftur til Kína,
Dvöl Polo frænda í Kína og
trúboðsferðir til Kambalik. □
Holdið er torvelt
að temja
Snjólaug Bragadóttir hefur sent
frá sér fjórðu skáldsögu sína og
heitir hún Holdið er torvelt að
temja. Fyrri bækur hennar eru:
Næturstaður, Ráðskona óskast
í sveit og Allir eru ógiftir í ver-
inu. Bækur Snjólaugar, sem er
blaðamaður að atvinnu, hafa
eignast stóran hóp lesenda, og
mun hann enn stækka með
þessari nýju bók. í bókunum
hennar Snjólaugar lætur mann-
leg náttúra ekki að sér hæða.
Guðmundur G. Hagalín, sem
jafnan hcfur gælt við skáld-
sagnagerð Snjólaugar, segir
m. a. um síðustu bók hennar:
„Ég hef allt frá því ég las fyrstu.
bók Snjólaugar Bragadóttur frá
Skáldalæk þóttst sjá, að hún
hefði ekki ætlað sér annað en
að skrifa sögur, sem þættu.
skemmtilegar og væru líklegar
til að seljast vel... . En Snjó-
laug hefur stundum í sögum
sínum tekið slíka frásagna-
spretti og brugðið upp allskýr-
um skyndimyndum af stöku
persónum, að mér hefur fundist
að um hugartún hennar hlytu
að streyma hreint ekki svo litlar
lindir frá uppsprettu „skálda-
læksins". Þykir gagnrýnanda
síðasta bók benda til þess, þótt
hún sé ekki skáldlegt afrek. □
Feilnóta I
í fimmtu sinfóníiinni
Hinn kunni höfundur Jökull
Jakobsson hefur fyrip 'þessi jól
sent frá sér skáldsögiina Feil-
nóta í fimmtu sinfóníunni. Á
bókarkápu segir svo: „Mann-
lífið er margslungin sinfónía óg
mannfólkið eins og fetrengir í
stóru slagverki, sem sífellt
skipta um tóntegund pg hljóm,
allt eftir því hvernig á þá er
slegið. Eitt er að'vera gift þing-
mannsefninu í Amarnesinu,
búa í ástlausu ríkidæminu, vera
konan á bak við manninn og
stuðla að framgangi hans með
réttri framkomu á réttum stöð-
um, og annað er að leita sífellt
burt frá veruleikanum með síð-
hærðum slána úr Þingholtun-
um. Það er talsvert önnur
sinfónía, sem hljómar í bedda-
ræflinum undir bárujárnssúð-
inni, eða í beinhvítu hjóna-
rúminu.“ — Jökull Jakobsson
kann vel til verka í skáldsagna-
gerð. En því er ekki að leyna,
að söguefnið hefði mátt vera
meira að umfangi, og þefði höf-
undurinn eflaust valdið því. □
BÍLA-BINGÓ K A.
Um þessar mundir eru hand-
knattleiks- og knattspyrnudeild
ir KA að hleypa af stokkunum
all nýstárlegu bingói. Bingóið
verður leikið þannig, að tölur
munu birtast í auglýsingatíma
sjónvarps, Birting taína hefst
þann 16. janúar n. k. og munu
birtar annað hvert kvöld þar til
einhver gefur sig fram sem
hlotið hefir bingó. Vinningur-
inn er ekki af lakara taginu,
bifreið af gerðinni Austin Mini
árgerð 1976 að verðgildi kr.
820 þús. "
Þetta er ekki í fyrsta sinni
sem KA efnir til bíla-bingós.
Sumarið 1972 efndi félagið ein-
mitt til eins slíks á íþróttavell-
inum, óins og fólk rekur efa-
laúst minni til. Sá er þá hlaut
vinninginn var 11 ára stúlka,
Inga Jóna ÆvarsdóUir, Aðal-
stræti 5.
Það er von KA-manna, að
gamlir KA-félagar svo og aðrir
bæjarbúar taki félagsmönnum
vel næstu daga og í náinni
framtíð, þegar þeir knýja dyra
og leita aðstoðar við að hefja
KA til enn meiri vegs og virð-
ingar. (Fréttatilkynning)
Þakið fauk
í fárviðri um síðustu hölgi fauk
að mestu þakið af 33 kúa fjósi
á Björk í Öngulsstaðahreppi.
Veggir skemmdust einnig og
gluggar brotnuðu. Árni Aðal-
steinsson bóndi á Björk, var
svo heppinn, að Sigurgeir Hall-
dórsson bóndi á Öngulsstöðum
var nýbúinn að flytja kýr sínar
úr gömlu fjósi í nýít fjós og
skaut hann skjólshúsi yfir hin-
ar húsnæðislausu kýr og verða
þær eflaust þar fyrst um sinn
eða í vetur. En þarna er
skammt milli bæja. □
UrvalsvÖrurnar frá Marks & Sþericér
FÁST HJÁ OKKUR
FatnáÖur á alla fjölskylduna.
Vörurnar,, sem eru þekktar og rómaóar
um viöa veröld: -
Framleiddar undir strangastá gæöaeftirliti
7JIJA AusUirsíræti KEÁ Aörytiús
mmiS Laugavegi 91 Kíuipíclösíin