Dagur - 11.02.1976, Qupperneq 2
2
Krisfileg hljómsveif í M
Dagana 13.—15. febrúar gefst
unglingum á Akureyri tækifæri
til að liynnast fimm manna
unglingahljómsveit úr Reykja-
vík. Það er hljómsveitin Lind
og flytur hún einungis tónlist
við kristilega texta og er að því
leyti frábrugðin flestum öðrum
popphljómsveitum unglinga.
Reykvíkingarnir vilja með tón-
list sinni koma á framfæri boð-
skap Jesú Krists. í fylgd með
hljómsveitirini verður ungur
Reykvíkingur, Friðrik Schram,
og mun hann flytja þennan
■V,
sama boðskap í stuttum ræðum
á milli laga hljómsveitarinnar.
Akureyringum gefst kostur á
að hlýða á þá félaga í Dynheim-
um á föstudagskvöld kl. 11,
laugardag kl. 4 og 11 og á sunnu
dag kl. 4. — Væntanlega fjöl-
menna Akureyringar og hlýða
á hinn gamla alvarlega boðskap
fluttan á mái og með aðferðum
unglinga nútímans. Nokkrir ein
staklingar úr kristilegum félög-
um á Akureýri standa að heim-
sókn ungmennanna. □
Áplar gjalir til Taugðdeildðrinnar
Kiwanisklúbbar eru 28 hér á
landi og félagar fast að einu
þúsundi. Umdæmisstjóri er Ás-
geir Guðlaugsson. Landinu er
skipt í svæði, fjögur talsins.
Norðurlandssvæðið nær frá
Siglufirði til Neskaupstaðar og
er nefnt Oðinssvæði. Svæðis-
stjóri er Júlíus Snorrason.
Hinn 26. október 1974 var K-
dagurinn svonefndi, og þá söfn-
uðu kiwanismenn fé um land
allt, en kiwanisfélagsskapurinn
er þjónustuhreyfing og starfar
í mörgum löndum og velur sér
einkum þau verksvið, sem þjóð-
félagið gleymir eða gefur ekki
ríiikinn gaum.
Á laugardaginn kom hálfur
þriðji tugur kiwanismanna af
Oðinssvæðinu saman til fundar
á Hótel KEA á Akureyri og af-
hentu þá Brynjólfi Ingvarssyni
geðlækni sjónvarpstæki og
MAY FAIR
VE68F
úrva! lita w
Sölustaðir
BYGGINGAR-
VÖRUDEILD KEA
KAUPFÉLAG
SKAGFIRÐINGA
VERSL. HAFLIÐA
JÓNSSONAR HF.
Höfðav. 2, Kúsavík
myndsegulband að gjöf til
taugadeildarinnar. Sagði læknir
inn við það tækifæri, að þessi
gjöf væri ómetanleg, bæði til
skemmtunar og einnig vegna
rannsókna og lækninga. Tækin
afhenti Ásgeir Guðlaugsson
umdæmisstjóri. Við sama tæki-
færi rakti Eyjólfur Sigurðsson
starfsemi kiwanisklúbbanna og
kynnti þá.
Nefnd gjöf er 600 þúsund
AHEIT OG GJAFIR
TIL STÆRRA
ÁRSKÓGSKIRKJU
1975
Frá cnefndum hjónum 10.000
Sveinbjörn Jóhannsson 1.000
Sigríður Ólafsdóttir 2.000
Baldvina Guðlaugsdóttir 3.C00
Björgvin Kjartansson 2.000
* Þórhildur Frímannsdóttir 2.000
Helga Jensdóttir 1.500
Björn Kjartansson 1.500
Frá ónefndum gefendum 7.000
Minningargjög um Guð-
rúnu Einarsdóttur frá
vinkonu 5.000
Minningargjöf um Elísa-
betu Jóhannsdóttur frá
börnum hennar 20.000
Frá Jóhönnu Frey-
steinsdóttur 1.000
Einnig gefinn íslenski fáninn af
ekkju og börnum Baldvins Jó-
hannessonar.
Kærar þakkir frá sóknar-
nefnd.
króna virði, en hinn hluti þess
fjár, sem safnaðist 26. október
1974, rennur til Kleppsspítala
og er honum varið til að koma
upp vinnuaðstöðu fyrir Sjúka.
En alls nam söfnunarféð 2,6
millj. kr.
Myndin er af geðlækninum
Brynjólfi Ingvarssyni og starfs-
fólki á taugadeildhmi. □
Fylgjssl með
Félagið Junior Chamber á Akur
eyri hefur nú um skeið fylgst
með störfum bæjarstjórnar
Akureyrar.
Hefur tilgangurinn verið sá
að kynnast störfum og háttum
bæjarstjórnarinnar, og ræða
mál sem þar eru til umræðu á
fundum okkar. Hefur tiltæki
þetta mælst vel fyrir í okkar
félagi, og ekki erum við grun-
lausir um að bæjarstjórnarfull-
trúum finnist einnig gott til
þess að vita að störfum þeirra
sé veitt athygli, því oft hefur
viljað brenna við að menn gagn
rýni störf bæjarstjórnar og þá
oft af vanþekkingu.
Við félagar í JCA viljum
hvetja sem flesta bæjarbúa til
að sækja bæjarstjórnarfundi og
kynnast af eigin raun þeim fjöl-
mörgu þáttum bæjarmála sem
þar eru til umræðu, jafnvel þótt
ekki séu bæjarstjórnarkosning-
ar í nánd.
Við viljum einnig benda við-
komandi á að ekki eru aðstæð-
ur sem bestar fyrir þá sem
fylgjast vilja með fundum bæj-
arstjórnar, og yrði gott að úr
yrði bætt ekki síst þar sem við
JCA félagar höfum í hyggju að
halda áfram að sækja þessa
fundi, og er vonandi að fleiri
fylgi í kjölfarið.
Junior Chamber, Akureyri.
únaðarins
Rjóminn fluttur suður.
Um síðastliðin mánaðamót
voru til í landinu 496 tonn af
smjöri.
Birgðir höfðu aukist um 100
tonn frá því í júlí. Smjörneysl-
an er um 110—120 tonn á mán-
uði. Vetrarmánuði er lítil smjör
. framleiðsla, varla meiri en 50
tonn á mánuði.
Þar sem gert er ráð fyrir að
flytja verulegt magn af rjóma
frá Norðurlandi, þá mun smjör-
framleiðsla dragast saman þar.
Til að fyrirbyggja skort á
smjöri verður dregið úr fram-
leiðslu feitra osta nú í vetur.
Nokkuð hefur verið flutt út af
östum á undanförnum mánuð-
um, en sá útflutningur mun
verða í algjöru Iágmarki í vet-
ur. Aðallega er það óðalsostur,
en nokkur eftirspurn er á hon-
um í' Bandaríkjunum og Sví-
þjóð.
í vetur mun verða skipulögð
osta-kynning á vegum Osta- og
smjörsölunnar, þar mun verða
MINNINGARGJÖF
Þór Vilhjálmsson fyrrv. bóndi
og safnaðarfulltrúi á Bakka í
Svarfaðardal andaðist á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Akureyri
6. des. sl. og var jarðsettur að
Tjörn 13. sama mánaðar og
fylgdi honum mikill fjöldi sveit-
unga og vina til grafar.
Að lokinni jarðsetningu hans
komu til mín nokkur systkina-
börn hans og afhentu mér gjöf
að upphæð kr. 25.000 til minn-
ingar um Þór, og skyldi gjöf
þessi ganga til Tjarnarkirkju.
Gefendur eru 25 systkinaböm .
Þórs. Það er ósk gefanda að
giöfinni sé varið til kaupa á ein-
hverjum hlut, sem kirkjan
þarfnast. Gjöf þessa hefi ég
afhent sóknarnefndinni.
. Um leið og ég þakka gefend-
um þessarar minningargjafar
fyrir hina rausnarlegu gjöf og
þann vináttuhug í garð kirkj-
unnar sem hún ber vott um,
hefur sóknarnefndin beðið mig
að geta annarra gjafa, sem
kirkjunni hafa borist á árinu,
en þær eru þessar:
Krónur
1. Gestur Vilhjálmsson
og frú, Bakkagerðum 6.000
2. Karl Jónsson frá
Syðri-Grund 10.000
3. Stefán Björnsson og
frú, fyrrum á Grund 1.000
4. Anna Jóhannsdóttir,
Syðra-Garðshorni 2.000
5. Svava Goúskesen 1.500
Um síðustu gjöfina er það að
segja að gefandinn er systur-
dóttir Þórs á Bakka og var
einnig með í áðurnefndri minn-
ingargjöf.
Allar þessar gjafir vil ég
þakka af alhug f. h. mína,
sóknarnefndar og safnaðar.
Bestu þakkir.
Stefán Snævárr.
farið í stærri verslanir og höfð
sýniskennsla, ennfremur í versl
un Osta- og smjörsölunnar við
Snorrabraut. Hanna Guttorms-
dóttir, húsmæðrakennari, ann-
ast þessa kynningu.
Aukin afköst og bætt meðferð.
Hjá Sláturfélagi Suðurland á
Selfossi var tekin upp bónus-
greiðsla til allra er starfa að
sauðfjárslátrun.
Þetta hefur gefist mjög vel,
afköst hafa aukist og meðferð
á kjöti og gærum batnað.
Metnir eru gallar sem fram
koma við fláningu, bæði á kjöti
og gærum. Fyrsta sláturdaginn
voru um 30% af gærunum gall-
aðar og um 20% af skrokkun-
um, samanlagt var tíðni galla
um 50%. Á öðrum degi slátr-
unar hafði gallatíðni lækkað
niður í 29%. Stöðugt hafa þeir
bætt sig, sem vinna að fláningu,
þann 10. okt. var gallatíðnin að-
eins 3,9%. Ef samanlagðir gall-
ar á gærum og kjöti eru yfir
20%, þá fellur bónusgreiðslan
niður til þeirra sem starfa á
fláningskeðjunni, en það skeði
aðeins fyrstu tvo daga eftir að
slátrun hófst.
Útflutningur á dilkakjöti.
Gert er ráð fyrir að af fram-
leiðslu þessa árs af dilkakjöti
mun verða flutt út um 4000
tonn.
Þegar hafa verið flutt út til
Noregs 1000 tonn og til Fær-
eyja 200 tonn um miðjan okt.
Norðmenn munu sennilega
kaupa af okkur 2000—2500
tonn, þar fæst einnig besta
verðið íjrriír kjötið. Mun hærra
verð er greitt fyrir íslenska
dilkakjötið en kjöt sem þeir
hafa keypt frá Nýja-Sjálandi, á
smásöluverði munar um 75 kr.
ísl. á kg.
Ekki er vitað um endanlegt
verð fyrir ísl. kjötið í Noregi,
en það er reiknað með nokkurri
hækkun fró í fyrra, en þá feng-
ust um kr. 270 fyrir kg en síðan
fékkst uppbót á þetta verð.
Talið er nú, að niðurgreiðslur
á dilkakjöti í Noregi munu
lækka um 60 kr. á kg þannig,
að íslenskir framleiðendur
koma til með að njóta góðs af
þeirri lækkun. í dag fá norskir
bændur um 500 kr. ísl. fyrir 1
kg af dilkakjöti.
Svíar hafa ákveðið að kaupa
650 tonn af dilkakjöti héðan,
það verður flutt út í íebrúar.
Danir og Færeyingar munu
kaupa afganginn að mestu.
Á undanförnum árum hefur
útflutningur sjaldan verið
meiri en 3000 tonn, mestur varð
útflutningur fyrir 6 árum, þá
5800 tonn, stærsti hlutinn fór
þá á breska markaðinn.
(Upplýsingaþjónusta
landbúnaðarins).
Ör Nafo?
(Framhald af blaðsíðu 1)
breta og v.-þjóðverja skipta
þessar veiðar ekki nema sem
svarar málsverði. Þó er sendur
liluti af þessum her, sem átti að
vernda okkur, tis að ræna okk-
ur lífsbjörginni. Herinn í lier-
stöðinni á Miðnesheiði situr
aðgerðarlaus eins og honum
komi þetta ekki við. Bandalags-
þjóðir okkar hafast lítið að,
a. m. k. sjást þess ekki merki.
Breskum togurum fjölgar stöð-
ugt á miðunum og gerast jafn-
vel svo lítilfjörlegir að veiða ó
alfriðuðum svæðum. Bresk her-
skip og hjálparskip gera ítrek-
aðar tilraunir til að sigla varð-
skip okkar í kaf. Nú á að kúga
okkur. Hvcrs konar bandalag er
þetta, sem við erum í? Er okkur
sæmandi að vera í því lengur,
er lætur það afskiptalaust að
ein stærsta bandalagsþjóðin
leiki okkur þannig? Hvers get-
um við vænst af öðrum þegar
bandamenn okkar reynast
þannig?
Krafa okkar hlýtur að vera:
Bresk herskip burtu af miðun-
um eða við segjum okkur nú
þegar úr NATO. Frjálsri þjóð
er ekki annað sæmandi. □