Dagur - 19.05.1976, Side 1
Ási í Vatnsdal, 17. maí. Veðrið
er skárra síðustu tvo dagana,
en það er enginn gróður fyrir
neinar aikepnur ennþá. Sauð-
burður er yfirleitt byrjaður og
gengur sæmilega, en féð er á
fullri gjöf og við höfum meira
að segja gefið hestum öðru
hverju fram undir þetta. í fyrri
nótt snjóaði en rigndi í nótt.
Veturinn var mönnum heldur
leiðinlegur og suma bændur
vantaði hey og var flutt hey til
vestursýslunnar í nokkru mæli.
Einkum var það Gestur bóndi á
Kornsá, sem seldi hey.
Vegir eru að verða góðir, en
á tímabili voru þeir hinir
verstu. Klaki var aldrei mikill
og mun víðast farinn.
Hafin er silungsveiði, enda
hefst sú veiði 1. apríl, en um
afla veit ég ekki. G. J.
Samkvæmt viðtali við Svein-
berg Laxdal, er byrjað að setja
niður kartöflur á Svalbarðs-
sti'önd. Mun kartöfluræktin
aukast þar í ár og nú verða
þeir fleiri, sem kartöflui- rækta
en áður. Mest er sett niður af
gullauga og rauðum íslenskum.
Sauðburður er langt kominn
og frjósemi mikil og mUnu 70—
90% ánna fæða tvö lömb og
þrílembur eru heldur ekkert
einsdæmi. Grímur á Þórisstöð-
fFramhald á blaðsíðu 4)
Gefa fii Landhelgisgæslunnar
Mývatnssvcit, 18. maí. Á fundi
starfsmanna Kisiliðjunnar frá
17. maí, var eftirfarandi sam-
þykkt samhljóða:
FRÁ LÖGREGLUNNI
Á AIÍUREYRI
Síðan lögreglufréttir birtust hér
síðast, hefur verið fremur rólegt
hjá lögreglunni. Það helsta er,
að harður bifreiðaárekstur varð
í Glæsibæjarhreppi og slösuð-
ust tveir menn og ein kona, þó
ekki lífshættulega. Hér var um
ölvunarslys að ræða. Þá var
maður einn tekinn ölvaður við
akstur dráttarvélar, telpa hjól-
aði á kyrrstæðan bíl og nokkrir
menn voru teknir fyrir of hrað-
an akstur, en lögreglan hefur
góð taeki til að fylgjast með
aksturshraðanum. □
Starfsmenn Kísiliðjunnar h.f.
við Mývatn lýsa óánægju sinni
yfir viðbrögðum íslenskra stjórn
valda í landhelgisdeilunni. Því
til áherslu samþykkja allir
starfsmenn, að leggja ein dag-
laun til hliðar og senda fjár-
hæðina til eflingar landhelgis-
gæslunni. Starfsmennirnir von-
ast til þess, að fleiri starfshópar
fylgi þessu fordæmi, þannig, að
vanbúnaður Landhelgisgæsl-
unnar verði ekki átylla til nauð
ungarsamninga við breta. Sjald-
an hefur þörf íslendinga til slíks
verið meiri en nú. Starfsmenn
Kísiliðjunnar skora því á alla
íslendinga, að leggja sitt af
mörkum til þess að fullur sigur
náist í landhelgismálinu.
Þess má til viðbótar geta, að
um 70 manns starfa hjá Kísil-
iðjunni og mun dagkaupið vera
hátt á þriðja hundrað þúsund
krónur. J. I.
Akureyrardeild Rauða lcross
íslands hefur nú, fest kaup á
húsinu Skólastíg , Akureyri, til
að hefja rekstur sjúkrahótels
með sama sniði og í Reykjavík.
Þar munu geta dvalizt sjúkling-
ar, sem hvorki þurfa stöðuga
læknishjálp né hjúkrun, en eru
í rannsóknum eða eftirmeðferð
á. F.S.A. Það er fyrir beiðni
stjórnar F.S.A., sem við reynum
þennan rekstur, en á sjúlcra-
húsinu eru mikil plássvandræði
og viðbyggingarframkvæmdum
þar miðar svo hægt, að veruleg
fjölgun sjúkrarúma verður ekki
á næstu árum. Því mun sjúkra-
hótel bæta úr mestu vandræð-
unum. Utanbæjarmönnum mun
nýtast mest rekstur sjúkra-
hótels, þó að það stytti einnig
biðtíma Akureyringa. Fólk sem
dvelst á sjúkrahótelinu þarf
sjálft ekkert að greiða fyrir
dvölina, því að daggjöld sjúkra-
Dagur
kemur næst út tniðvikudaginn
26. maí.
samlaga eiga að standa undir
rekstrinum, en þau munu verða
um 2.000 meðan daggjöld til
F.S.A. eru 12.800.
Fjárráð Akureyrardeildar eru
mjög lítil og við hefðum eklci
þorað að leggja út í þetta verk-
efni, nema vegna þess að stjórn
R.K.Í. hefur mjög eindregið
hvatt til þess, vegna góðrar
reynslu af relcstri sjúkrahótels
R.K.Í. í Reykjavík og lofað að
stvrkja okkur með 3ja milljón
króna framlagi á þessu ári.
Skólastígur 5 kostar 12 milljónir
Gæsluvellirnir
Smábarnagæsluvellirnir eru nú
allir opnir 5 daga vikunnar frá
kl. 9—12 og 14—-17. Þeir eru við
Hafnarstræti, Skógarlund, Norð
urbyggð, Helgamagrastræti,
Löngumýri, Lönguhlíð, Þver-
holt og Reynivelli.
Vellirnir eru ætlaðir börnum
á aldrinum 2—6 ára og eru for-
eldrar beðnir að hafa sem mest
samband við gæslukonur um
dvöl barnanna þar.
(Fréttatilkynning)
Ilér er auðvelt, með stærsta krana bæjarins, að Iyfta trébitunum á þak nýs útibús KEA, sem
taka á til starfa á þessu ári. (Ljósm.: E. D.)
TénEisfarskóli sfofnaður á Raufarhöfn
Hóli við Raufarhöfn, 17. maí.
Ágætis tíð var eftir páslcana og
þá fóru að sjást hagi, en kulda-
kast eyðilagði þann gróður á
þurrlendi en mýrarnar sluppu.
Nú er ágætt veður og gróðurinn
er kominn á stað á ný. Lömb
leika sér hér á túninu, þvi sauð-
burður er byrjaður, víðast þó
skammt kominn enn.
Sjómenn segja mér, að grá-
sleppuveiðin sé álíka mikil og
á síðasta vori, en sóknin er
miklu meiri nú. Sjómenn segja
einnig, að hægt væri að ná sama
afla með helmingi færri netum,
en samtökin vantar.
Hér hefur staðið í deilum
milli veiðifélaganna, sem eru
tvö: Veiðifélags Ormarsár og
króna. Auk þess þurfum við að
kaupa alla innanstokksmuni,
eldhúsáhöld, leirtau, rúmföt og
sængurfatnað.
Þetta bréf sendum við sveitar
stjórnum, bæjarstjórnum og
stærri fyrirtækjum á því svæði
sem F.S.A. þjónar og biðjum
um fjárframlög til þessa verk-
efnis. Það er áríðandi að fram-
lög berist sem fyrst svo að unnt
reynist að hefja rekstur sjúkra-
hótels á Akureyri fyrir 8—10
manns strar í haust.
Framlög má greiða inn á gíró
reikning Akureyrardeildar
R.K.Í. nr. 90231 eða sparisjóðs-
reikning deildarinnar nr. 112621
í Akureyrarútibúi Landsbanka
íslands, til Halldórs Halldórs-
sonar læknis eða Guðmundar
Blöndal.
Fyrir þá sem það varðar slcal
á það bent, að fjárframlög til
Akureyrardeildar R.K.Í. eru frá
dráttai'bær til skatts.
Áætlað starfslið sjúkrahótels-
ins gæti verið barnlaus hjón eða
konur. Þeir, sem áhuga hafa
geta snúið til til Halldórs Hall-
dórssonar eða Guðmundar
Blöndal. (Fréttatilkynning)
Veiðifélags Deillarár á Sléttu,
við leigutaka ánna, Svavar
nokkurn Kris.tjánsson. Þeim
deilum er nú lokið með því að
Svavar hefur tapað báðum
samningunum. Hann var áður
búinn að missa Ormarsána.
Búið er að semja við akureyr-
inga um Ormarsá og hefur verið
hið ágætasta samstarf við þá.
Nýr samningur hefur verið gerð
ur um Deildará við Guðjón
Styrkársson, Reykjavík, og í
þeim samningi eru meðal ann-
ars ákvæði um vegagerð við
ána. En gert er ráð fyrir 90
stangveiðidögum yfir sumarið
og fyrir það er greidd hálf
milljón, en sú leiga getur hækk-
að ef leyft verður eða talið skyn
samlegt að fjölga veiðidögum,
en sú fjölgun er á valdi veiði-
málanefndar. Samningurinn er
vísitölubundinn.
En þá^snúum við okkur frá
efnishyggjunni til andlegu hlið-
arinnar. Við höfum hér ágæt
prestshjón, séra Kristján Val og
konu hans, Margréti Bóasdótt-
ur, en það er hún sem hefur
haldið uppi fjörugu tónlistarlífi
á Raufarhöfn og í nágrenni í
vetur, Troðið var upp í félags-
heimilinu Hnitbjörgum 2. maí
og spreyttu sig á að flytja það
sem æft hafði verið hjá kór
Rafarhafnarkirkju. Sungin voru
15 lög og ór úr'barnaskólanum
Sauðárkrólci, 18. maí. Vorið hef
ur verið heldur kalt og gróður
er lítill sem enginn ennþá. En
um helgina hlýnaði. Sauðburður
er á sumum bæjum langt kom-
inn, en annars staðar skemmra
og hefur gengið allvel. Mjög
mikið er um tvílembinga og
eru 70—80% ánna nú tvílemb-
ur. Þá eru þrílembdar ær ekkert
sjaldgæfar, allt upp í níu ær á
einum bæ. En á mörgum bæj-
um færri, þriár og upp í sex.
Aflinn hefur verið fremur
lítill hjá togskipunum að undan
söng 5 lög og fjórir léku á
blokkflautu. Aðsókn var góð,
svo og undirtektir.
Nú er afráðið, að stofna tón-
listarskóla á Raufarhöfn næsta
vetur og hafa þegar borist um
40 umsóknir, en ennþá eru þessi
mál öll í undirbúningi.
Nú, þann 22. maí, ætlar ungt
fólk að efna til tónleika á Rauf-
arhöfn. Karl og kona, nýútskrif-
uð úr Tónlistarskóla Reykja-
víkur, Hrefna Unnur Eggerts-
dóttir píanóleikari og Kjartan
Óskarsson klarinettleikari, og
svo syngur Margrét Bóasdóttir.
Þ. S.
SNÆFELL LANDAÐI
100 TONNUM
Hrísey, 17. maí. Með lítils háttar
ágiskun munu hríseyingar vera
búnir að salta í 250 tunnur af
grásleppuhrognum. Þorskafli er
enginn utan það sem Snæfell
færir okkur af fiski. Á föstu-
daginn landaði það og á mánu-
daginn einnig, samtals rúm 100
tonn í vikunni.
Mikið er af rjúpunni í vor og
hefur hún haldið sig meira í
þorpinu en hennar vandi er.
Kvenfuglinn er að skipta um lit
og er flekkóttur en karlfuglinn
hvítur ennþá. Varp hennar verð
ur eflaust mikið í sumar. S. F.
förnu og því ekki alveg stöðug
vinna í hraðírystihúsunum.
Drangey landaði í síðustu viku
130 tonnum, Tveir þriðju aflans
var vann karfi.
Fimm jarðir hafa verið seldar
í héraðinu og fjórar þeirra hafa
ungir bændur keypt. í Lýtings-
staðahreppi voru þessar seldar:
Stekkjarholt, nýbýli frá Sveins-
stöðum, Hof í Vesturdal og
Héraðsdalur. Ennfremur Fell í
Sléttuhlíð og Hvalnes á Skaga.
G. Ó.
FIMM JARÐIR SELDAR