Dagur - 22.10.1976, Blaðsíða 7
7
Dráttarvélar I. H.
B 614 65 hesíafla með
ámoksturstækjum og
húsi og I. H. D. 217 með
sláttuvél.
Þröstur Jónasson,
Sílalæk, Aðaldal,
sími um Húsavík.
Fallegar naglamyndir
til sölu. Tilvaldar til
jólagjafa.
Uppl. í Grundargerði
6 j, sími 2-26-63.
10 KÝR til sölu.
Jón Snæhjörnsson,
Grund.
Húsnæði
Fullorðin kona óskar
eftir íbiið til leigu. Get-
ur tekið að sér barna-
gæslu og heimilisstörf.
Uppl. í síma 2-24-03
efíir kl. 14..
Einstæð móðir með 4ra
ára dreng óskar eftir 2ja
—3ja lierbergja íbúð.
Reglusemi og góðri um-
gengni lieiíið. Til
greina kæmi að liugsa
um eldri mann eða
"köriu 'gegn'. hústjaeði, , ,
Uppl. í síriia 2-22-72 v
og (91)2-56-53.
Vil kaupa notað kven-
reiðhjól og karlmanns-
reiðhjól.
Uppl. í síma 2-11-76.
iSalai
Fyrstu verðlauna 3ja
vetra hrútur til sölu.
Rósa Helgadóttir,
Völlum, Svarfaðardal.
Hinn 17. febrúar 1929, snemma
morguns, er bankað á gluggann
hjá okkur í Merki. Fóstri minn,
Jón Gíslason, leit út. Þetta var
formaður okkar, Magnús í Móa-
koti, sem býður góðan dag og
segir, að hann sé hægur. Við
fórum að klæða okkur, fengum
okkur kaffi og bita og héldum
svo niður eftir þar sem bátur-
inn var. Báturinn Von GK 31
var nú ekkert stærðar skip,
heldur opinn 3y2 tonna bátur
með 5—6 ha. FM vél, mjög
gangtregur en fínn sjóbátur.
í þessum róðri voru: Formaður
inn, Magnús í Móakoti, eins og
fyrr segir, og auk hans feðg-
arnir frá Löndum, Vilmundur
og Árni, fóstri minn, Jón í
Merki og ég, sem þetta rita.
Veður var mjög gott, norðan
andvari og sjór svo kyrr sem
best getur orðið. Við röðuðum
okkur kringum bátinn. Formað-
urinn setur negluna í, stekkur
síðan ofan, signir sig og segir:
Nú leggjum við hendur á í
Jesú nafni. Síðan er bátnum
hrynt á flot, bjóðin látin upp í,
sem voru 4, ca. 2000 krókar.
Vélin var nú sett í gang og
keyrt rétt út fyrir. Þá tóku allir
ofan og lásu sjóferðarbæn.
Þetta var áður en allt traust
var sett á tæknina. Nú höldum
við út sem leið liggur og ekki
sér fyrir neina boða því sjór er
svo lágdauður. Þegar út á mið-
in kom var línan lögð sem ekki
tók nú langan tíma, en fljótlega
fór að draga í öldu sem ágerðist
Gjafir fil E.H.A.
Elliheimili Akureyrar hafa ný-
lega borizt éftirtaldar gjafir:
Frá hjónunum Svanfríði
StefánsdóttUr og Sigurði Stef-
ánssyni, Aðalstræti 17, kr.
100.000 til minningar um látna
ættingja þeirra.
Frá Sjálfstæðiskvennafélag-
inu „Vörn“ á Akureyri kr.
10.000 í handavinnusjóð E.H.A.
Frá Ingibjörgu Ólafsdóttur,
Steindyrum, Hrísey, kr. 80.000.
Loks gáfu börnin Þórlaug
Einarsdóttir og Jón Einarsson,
en þau eru systkini, kr. 1.750,
sem var ágóði af hlutaveltu, er
þau héldu.
Öllum þessum gefendum fær-
ir stjórn E.H.A. innilegustu
þakkir fyrir hlýhug síðan heim-
ilinu og starfinu þar.
(Fréttatilkynning)
Jón Sigurðsson
F. 25. marz 1960
D. 21. september 1976
Hinsta kveðja frá
ömrnu og afa
Óræð mun ævi gátan,
örlög manns lokuð bók,
líf vort í Herrans hentli,
hans,er enn gaf og tók.
Hann einn er hæii og styrkur,
hjálpar í sorg og þraut,
mest þó, er mannlífs raunir
mæta á jarðar braut.
Bros hinna björtu daga
ber oss að þakka hér,
bernsku og æsku árin,
ást hans, sem kvaddur er.
Ungur hann var að árum,
átti þó styrk og ró,
sígiaður, sár þó bæri,
sigur hið innra bjó.
Lítum vér liðnar stundir,
laufgaða ættargrein,
vongleði jafnan vakti,
vermdist, er sólin skein.
Bar með sér angan blóma,
bernskunnar hreinu trú.
Bæði við, ainma og afi,
ástar hans söknum nú.
Fjarlægur heimahögum
hugprúður sjúkur lá,
lieimkoniinn heitu tárin
lirundu á kalda brá.
Fölvi hausts færðist yfir,
feildi lauf svarfdælsk jörð,
brosti við barni sínu
byggðin við Eyjafjörð.
J. S.
ÞÖKK OG KVEÐJA FRÁ DÍDÐU
Þig nú kveð ég hér í hinsta sinn
hrygg og tregaslegin, frændi minn.
Ljúf fyrir kynni þúsundfalda þökk
á þagnarmáli tjáir lund mín klökk.
Hinst og fyrst þú hjartakær mér varst,
heita gleði og yndi til mín barst.
Hugumþekku, björtu brosin þín
birtu og varma færðu æ til mín.
Mcð ást og virðing mun ég minnast þín.
— Mild og fögur er sú hugarsýn:
að eiga hvar um ævi sem ég geng
endurminninguna um góðan dreng.
H. Z.
fljótt. Við fórum að draga eftir
tæpan klukkutíma og gekk það
vel. Fiskur er tregur, mig minn-
ir tæplega í rúm, þá var miðað
við rúmin í bátunum.
Nú var aldan orðin það há að
hún var farin að taka úr hæstu
fjöll og sjáanlega foráttu brim
komið við land, Samt er dólað
í átt til lands og þegar við vor-
um komnir inn á heiði, þ. e.
þegar Skálafellið jaðrar við
Staðarbergið, töldum við helst
ekki farandi grynnra. Aldan
var af suðaustri og því mestar
líkur til lendingar í Járngerðar-
staðarhverfi. Við héldum í átt
þangað en sáum von bráðar
fimm báta á leið vestur, sem
reyndust vera frá Þórkötlustöð
um á leið í Hafnir og slógust
við í fylgd með þeim. Það hélst
alltaf sama blíðan og þegar fyr-
ir Reykjanes kom var sjórinn
sem heiðartjörn, því við röstina
skipti alveg um.
Nú víkur sögunni heim í
byggðarlagið. Fólk hafði grun
um að þessir bátar hefðu farið
vestur fyrir, var því hringt í
Hafnir og beðið um að farið
yrði á móti þeim ef einhverjir
yrðu bensínlausir á leiðinni.
Það stóð heldur ekki á þeim
nöfnunum, Magnúsi Ketilssyni
og Magnúsi í Traðhúsum, að
fara til móts við okkur. Við
drógumst fljótlega aftur úr, þar
sem ver gekk hjá okkur en
hinum, en þeim virtist liggja
svo mikið á, að við urðum auka
atriði, sem ekkert gerði til því
tími var nægur. Þeir nafnar
mættu okkur svo út af Hafnar-
bergi .sunnarlega og láta pkkur
háfa sinri. spottan hvor. og fór
arum
þá að skerpast gangurinn.
Fylgdu þeir okkur inn að Kal-
manstjöm þar sem við lentum.
Hinir bátarnir fóru inn í Ósa.
Nú var það alltaf svo ef maður
kom í Hafnirnar að fólkið vildi
allt fyrir okkur gera og eins
varð í þetta sinn. Þeir settu
með okkur bátinn og tóku afl-
ann til hirðingar og gerðu úr
honum vöru á sínum tíma. Auð
vitað vorum við þar svo um
nóttina og leið vel.
Daginn eftir fórum við gang-
andi heim, þar sem þá leit út
fyrir frátök, sem urðu víst í
heila viku. Svo kom að því að
farið var til að ná í bátinn sem
reyndist illa til hafður eftir ill-
veður sem búin voru að vera
og gekk því seint að komast af
stað, farið að halla degi og kom-
ið kul af austri. Þegar við kom-
umst á flot voru hinir að fara
(fyrir) suður um. Við settum
upp segl til að auka ganginn
því kominn var vaxandi vindur.
Þetta gekk suður að Skarfa-
setri, þá sjáum við þá síðustu
sem á undan eru, komið rok og
dimma og óveður framundan,
svo við snérum aftur inn að
Kalmanstjörn og urðum þar
næstu nótt, og fórum svo gang-
andi heim. Leið langur tími þar
til loks að við fengum veður til
að ná í bátinn og höfðum ekk-
ert misst miðað við hina sem
með hæpnari fyrirhyggju
þvældust heim um kvöldið með
suma bátana ekki sjófæra eftir
áreynsluna og kostuðu mikið
til viðgerða á þeim. Lýkur hér
frásögn af þessum sögufræga
róðri. ;.;
. —1------ S. J.
Ályktanir Fjórðungsþings
Breyttar reglur Jöfnunarsjóðs.
Fjórðungsþing Norðlendinga
leggur áherslu á, að hraðað
verði endurskoðun á úthlutnar-
reglum Jöfnunarsjóðs sveitar-
félaga. Minnir þingið á að leggja
beri aukna áherslu á að nota
fjárframlög Jöfnunarsjóðs til að
jafna aðstöðu sveitarfélaga.
Innheimtu sjúkratrygginga-
gjalda mótmælt.
Fj órðungsþing Norðlendinga
mótmælir ákvörðun Alþingis
um að skylda sveitarfélög til að
innheimta sjúkrasjóðsgjald. Tel
ur þingið, að ríkinu beri að nota
sínar eigin innheimtustofnanir
til að innheimta gjöld til sjúkra-
trygginga.
Álagning gatnagerðargjalda.
F j órðungsþing Norðlendinga
skorar á alþingismenn úr Norð-
urlandi að beita sér fyrir breyt-
ingu á lögum um gatnagerðar-
gjöld, sem hiemili að leggja
gatnagerðargjöld á fasteignir,
við götur er lagðar voru bundnu
slitlagi, áður en lögin um gatna-
gerðargjöld tóku gildi.
Verndun fiskimiða og
fiskistofna.
Fjórðungsþingið lýsir fylgi
sínu við nauðsynlegar ráðstaf-
anir til verndunar fiskimiðum
og fiskistofnum, í því augnamiði
að treysta afkomu sjávarstað-
anna á Norðurlandi og til að
koma í veg fyrir rányrkju.
Hins vegar varar fjórðungs-
þingið við þeirri fiskfiðunar-
stefnu, sem undir vísindalegu
yfirskini mismunar byggðarlög-
um á þann veg, að sum byggðar
lög frekar en önnur, verði fyrir
óeðlilegri aflaskerðingu.
Fjórðungsþingið metur starf
Hafrannsóknarstofnunarinnar,
að verndun fiskimiða fyrir
Norðurlandi, en bendir á, að
ekki sé nóg að vernla uppeldis-
stöðvarnar fyrir Norðurlandi,
og telur slíka fiskvernd ekki
koma að gagni nema fiskistofn-
unum sé tryggð vernd til að
hryngna á aðalhrygningarstöðv-
Atvinnuuppbygging
í sjávarútvegi.
Fjórðungsþing Norðlendinga
1976, leggur áherslu á, að þrátt
fyrir fyrirsjáanlegan samdrátt í
fiskveiðum og tilhneigingu lána
stofnana til að draga úr skipa-
kaupum, megi sá samdráttur
ekki bitna á atvinnuuppbygg-
ingu í fiskveiðum á þeim sjávar
stöðum, sem byggja afkomu
sína að mestu á sjávarútvegi og
fullvinnslu sjávarafurða. Þá tel-
ur þingið, að slíkur samdráttur
megi ekki koma í veg fyrir nýt-
ingu nýrra framleiðslumögu-
leika í sjávarútvegi t. d. á þeim
fisktegundum, þar sem ekki er
um ofveiði að ræða. □
Atuinna
Ung stúlka óskar eftir
atvinnu liálfan daginn
fyrir hádegi.
Uppl. í síma 2-20-90
eftir kl. 19.