Dagur - 05.01.1977, Blaðsíða 4

Dagur - 05.01.1977, Blaðsíða 4
4 Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Símar 1-11 66 og 1-11-67 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: ERLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓHANN K. SIGURÐSSON Prentverk Odds Björnssonar h.f. Hvers erunt við umkomin? í áramótagrein sinni í Tímanum, segir Ólafur Jóhannesson ráðherra: „Við íslendingar erum fámenn þjóð. Hvert mannslíf og þroski sér- hvers manns, sem elst upp hér á landi, er okkur þeim mun meira virði. f augum umheimsins erum við liarla smáir og sjálfsagt ekki metnir á marga fiska. En það gefur okkur þó gildi, að við erum sérstök þjóð með gamalgróna þjóðmenningu, og þannig erum við einn strengur í hörpu veraldarinnar. Vegna fæðar okkar og smæðar verðum við að ætl- ast til meira af hverjum og einum heldur en gengur og gerist. En fæð okkar og srnæð má ekki leiða til neins konar minnimáttarkenndar. Við verðum því umfram allt að eiga einhverjar þær hugsjónir, sem auka reisn okkar og efla dáð okkar. Því megum við ekki gleyma á kaldrifj- aðri efnishyggjuöld. Það er engin hugsjón að berjast þindarlaust fyrir meiri lífsgæðum handa sér og sín- um. Það kann að vera mannl'egt, en flokkast þó undir breyskleika, einna helzt sérgæzku og ágirnd, þegar þeir, sem nóg hafa fyrir eða meira en það, vilja samt keppa eftir enn þá meiru á skiptavelli þjóðfélagsins. Réttmætt er aftur á móti að halda sínum hlut fram, og meira að segja sjálfsagt, þegar í hlut eiga þeir, sem við þröng- an kost búa. Það er ekki heldur nein hugsjónabarátta að streitast við að konia andlitinu á sjálfum sér í fram- færi og keppa með öllum ráðum eftir frægð og frama. Það eru verkin ein, sem geta helgað orðstír og upphefð — verk manna sjálfra. Það er dyggð að vinna hvert verk svo vel sem hæfileikar leyfa, og það er hugsjón að skila landinu betra og byggilegra í hendur niðjanna en við því var tekið — ylja það og lýsa, rækta það, byggja og prýða, án þess að þeir, sem þar leggja hönd að verki hugsi fyrst og fremst um það, að live miklu leyti þeir njóta þess sjálfir. Það er hugsjón að efla þjóðlega reisn, glæða þjóðarvitund og treysta þá samhygð, sem ekki þolir, að ein- um sé misboðið öðrum til hagnaðar. Ræktun lands og lýðs var kjörorð ungmennafélaganna og það kjörorð er enn í fullu gildi og lýsir því í stuttu máli, sem ætti að vera leiðar- stjarna okkar. Ungmennafélögin hafa verið sökuð um orðagjálfur og vafalaust hefur kveðið talsvert að því. En eigi að síður var þessi grund- vallarhugsun runnin mörgum í merg og blóð. Hún var aflvaki, og (Framhald á blaðsíðu 7) ■ Flestir íslendingar munu um það sammála, að stærsti atburð- ur liðins árs sé lausn landhelgis deilunnar. Landhelgin er nú nær 750 þúsund ferkílómetrar og viðurkennd af öllum þjóð- um. Hinn 1. desember sl. sigldu bresku togararnir af miðunum, en nokkur veiðiskip annarra þjóða veiða enn hér við land í skamman tíma, samkvæmt samningi. Óþarft er að rekja deilur landhelgismálsins við breta á árinu, ránsveiðar þeirra undir hervernd innan íslenskr- ar lögsögu, en deilumálinu lauk með fullum sigri íslendinga. Til viðbótar má svo geta þess, að forysta íslands í hafréttar- málum og einarðlegar, einhliða útfærslur og baráttan fyrir viðurkenningu umheimsins á þeim, hefur orðið öðrum leiðar- ljós. Nú hafa Efnahagsbanda- lagslöndin fetað rækilega í fót- spor íslendinga, og bretar biðja um gagnkvæma veiðisamninga. Og það voru bretar, sem lengst og harðast börðust gegn ein- hliða útfærslu hér við land og annars staðar, og kærðu fyrir alþjóðadómstóli — kærðu fyrir þá stefnu í verki, sem þeir fram kvæma sjálfir nú. Jarðskjálftar f Mývatnssveit, ásamt smágosi í Leirhnjúki og miklir jarðskjálftar allt til Öxar fjarðar, ásamt tilfinnanlegu tjóni á mannvirkjum á Kópa- skeri og víðar, voru þær fréttir, sem nýliðið ár tók að sumu leyti í arf frá 1975. En þrátt fyrir jarðskjálfta og önnur náttúrufyrirbæri, var unnið við Kröfluvirkjun af fullum krafti. Sýnilegt er nú, í byrjun þessa árs, að borholurnar á Kröflu- svæðinu gefa orku til að setja virkjunina í gang með einhverj- um afköstum, en það er þó ork- an, sem menn hafa haft mestar áhyggjur af að undanförnu og raforkuframleiðslu Kröfluvirkj- unar seinkar nokkuð. Byggðalínan að sunnan, sem raunar er komin allt til Akur- eyrar, hefur enn ekki verið tengd Norðurlandi eystra. Á þeirri raflínu er sá bláþráður syðra, að hún getur ekki flutt nema svo sem 5—6 megavatta orku til Akureyrar, í stað 50 megavatta, sem áætlað var. Talið er þó, að senn fáum við raforkuaukningu að sunnan. |-: ■rw-r’T-j , — | Um miðjan febrúar hófst mjög víðtækt verkfall sjómanna á fiskiskipaflotanum, er stóð í um það bil hálfan hánuð. Hinn 17. febrúar hófst svo allsherjar- verkfall aðildarfélaga Alþýðu- sambands íslands, sem 35-—40 þúsund manns tóku þátt í. Þeg- ar 12 dagar voru liðnir, voru samningar undirritaðir, eftir 74 klukkustunda fund. Fól sam- komulagið í sér 25—30% kaup- hækkun og láglaunabætui'. Gildir það til 1. maí á þessu ári. Annar hluti Mjólkurárvirkj- unar var tekinn í notkun. Hún ramleiðir 5,7 megavött. Unnið var við Sigölduvirkjun og voru þar lengi allt að 700 starfsmenn. Á síðasta hausti tók Lands- virkjun að sér yfirstjórn þeirra framkvæmda, sem eftir var að ljúka. Er þess nú skammt að bíða, að unnt sé að setja fyrstu aflvélina í gang. Virkjun þessi verður 140 megavött og kostar um 13 milljarða króna. Dr. Kristján Eldjárn forseti gaf kost á sér til forsetakjörs í þriðja sinn og var hann sjálf- kjörinn. Fór embættistakan fram 1. ágúst í sumar. Bókmenntaverðlaun og tón- listarverðlaun Norðurlandaráðs hlotnuðust tveimur íslending- um á árinu, þeim Ólafi Jóhanni Sigurðssyni rithöfundi og Atla Heimi' Sveinssyni tónskáldi. Verðlaun til hvors þeirra voru 1350 þúsund krónur. Herjólfur, nýtt farþega- og bílferjuskip, .kom um mitt sum- arið til Vestmannaeyja og bætti samgöngur eyjarskeggja við megin’andið. Skipið getur flutt allt að 50 bíla í ferð og 360 far- þega. Ferjubryggjur hafa verið byggðar í Þorlákshöfn og í Eyj- um. En í Þorlákshöfn lauk mikl- um hafnarframkvæmdum, sem staðið hafa yfir nokkur misseri. Kostuðu þær um 1300 milljónir króna. Um 70 manns unnu í sumar við brúargerð, Borgar- fjarðarbrúna, og verður því verki fram haldið í ár. Nýr flugvöllur var tekinn í notkun við Sauðárkrók og geta þar lent Boeing 727 þotur. Flug- brautin er tvö þúsund metra löng og sú lengsta hér á landi utan Keflavíkurflugvallar. Flug völlurinn kostar nú 125 milljón- ir króna. Skeiðarárhlaup varð í septem ber, hið fyrsta eftir að hin miklu mannvirki við vegagerð höfðu þar verið gerð. Hlaupið olli litlum skemmdum. Vatns- magnið var tíu sinnum meira en meðalrennsli Þjórsár, þegar það var mest, eða 4500 tenings- metrar á sekúndu. Þorskafli var lítill á síðustu vetrarvertíð. Hins vegar var nú í fyrsta sinn veidd loðna mest- an hluta ársins, og með góðum árangri. Þá var síldveiði' góð, þegar miðað er við fyrirfarandi ár. Ný tæki, nethristarar, :v.oru um borð í síldarbátunum og auðvelduðu vinnu sjómanna á reknetabátum. Þorskaflinn á árinu fór verulega yfir þau möik, sem fiskifræðingar töldu skynsamlegt, þótt hann væri minni en árið áður. Á árinu létust 73 af slysför- um eða tug færri en árið 1975. Sjóslys og drukknanir voru 37 Unnið að stækkun Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. (Ljósm.: E. D.) og í umferð lést 21. Snginn lést í flugslysi á árinu, en af ýmsum orsökum, sem talin eru trl -slysa, létust 15 manns. Atvinna var víðast næg á landinu og þeir staðir fáir, þar sem atvinnuleysi gerði vart við sig einhvern tíma ársins. Verð- bólgan varð minni á árinu en næstu ár á undan, en þó of mikil. Dregið hefur mjög úr viðskiptahallanum. Má því segja, að verulega miði í jafn- vægisátt í þjóðarbúskapnum og eiga batnandi viðskiptakjör mestan þátt í því. Enn er þó við verulegan viðskiptahalla og verðbólguvanda að glíma. Margir horfa með nokkrum ugg til næstu kjarasamninga og mjög hefur verið rætt um minnkandi kaupmátt launa. Um þetta atriði fórust viðskiptaráð- herra svo orð í áramótagrein, m. a.: Skal ekki í efa dregið, að mörgum veitist erfitt að ná endum saman. Og það er óút- reiknanlegt dæmi, hvernig menn lifa af lægstu umsömdum daglaunum eða fastakaupi.... En hvað segir Þjóðhagsstofnun- in um þetta: Við lojc ársins 1976 verða kauptaxtar launþega 13—14% hærri en meðaltal árs- ins og er hækkunin svipuð hjá flestum starfsstéttum. Verðlag vei'ður um sama leyti rúmlega 12% hærra en ársmeðaltalið, og kaupmáttur kauptaxta verður því heldur meiri en að meðal- tali á árinu. Mikil afbrotaalda gekk yfir á árinu. Þrjú morð voru framin og voru öll upplýst strax. Tvö eldri morðmál voru í rannsókn og ér annað upplýst, svonefnt Guðmundarmál, og Geirfinns- málið talið upplýst að mestu leyti. Þá hafa fíkniefnamálin verið á dagskrá. Meðal þeirra og hið stærsta, er smygl á 25 kílóum af hassi og nokkrum öðrum fíkniefnum, þar sem fjöldi manns kom við sögu. Það mál er upplýst í öllum aðal- atriðum. Af norðlenskum tíðindum má fyrst nefna fádæma veðurblíðu og þui'rka,'á-,síðasta sumri, gagn stætt .. súnplenskri véðráttu. Varð sumarið því landbúnaði mjög hagstæft í þessum lands- hluta. .. Um miðjan janúar á sl. ári urðú _ harðir jarðskjálftar á Kópaskéri og þar í grennd. Urðu þar mikíáf skemmdir á mannvirkjum, land seig, gjár mynduðust,.heitt .vatn kom upp, þar sem áður voru kaldar upp- sprettur og stöðuvatn myndað- ist. Heitt vatn fannst á Syðra- Laugalandi í -Eyjafirði-j. janúar- mánuði. Síðan hefur. hitaveita fyrir Akureyri og væntanlega einnig fyrir svéitir, sém að liggja, verið undirbúin. Hita- veita Akureyrar mun Stærsta framkvæmdin, sem einstákt sveitarfélag á Norðurlandi hef- ur að unnið. Framkvæmdum við Kröflu hefur miðað vel, eða Tengst >af samkvæmt áætlun. Jarðhrær- ingar hafa verið þar tíðar og erfiðara reyndist að ná þar guftl' orkunni úr jörðu en áætlað var. Reiknað var með, að. Kröflu- virkjun kæmi í gagnið á árinu. Svo varð ekki, en alít virðist. benda til þess, að nú sé varma- orkan orðin svo mikil, að uttnt sé að framleiða raforku í veru- legu magni innan tíðar. . u Umræður um álver við Eyja- fjörð voru á dagskrá og virtust strax verða nokkurt hitamál. í þeim umræðum virtist það"eiga sér fáa formælendur hér við fjörðinn og á Norðurlandi. - Atvinna var mikil á Norður-; landi og víðast mjög mikil. Kaupgeta almennings var -því: mikil á árinu, og ennfiémur margvíslegar framkvæmdir. Þá urðu þáttaskil í loðnuveiSum, með því að loðna var í fyrsta ■ skiptið veidd allt árið að heita mátti, í sumar ög fram undir jól fyrir vestan land og norðan. Norðlensku síldarbræðslurnar fengu þar óvænt verkefni að vinna á síðasta sumri. Fyrsti skuttogarinn, sem smíð aður var í Slippstöðinni á Akur eyri var sjósettur um mánaða- mótin febrúar—mars og afhentr ur eigendum sínum, Rafni h.f. í Sandgerði, síðar á árinu, Togari þessi er 470 tonn og talið best búna fiskiskip á íslandi. Liðið ár var mikið starfsár og athafnaár þegar á heildina er litið. Það hefur eflaust fært mörgum hamingju í starfi og einkalífi, en öðrum sorgir og mótlæti, eins og öll önnur ár. Megi nýbyrjað ár veita lands- mönnum gæfu og gengi. □ Hðppdrætfi Nátfúmlækn- ingafélags ísl. 1. desember sl. var dregið í happdrætti Náttúrulækninga- félags íslands. — Þessi númer hlutu vinning: 1. Bifreið, Fíat 128 árgerð 1976. Nr. 2072 2. Snjósleði. Nr. 25075 3. Litsjónvarp. Nr. 41475 4. Mokkakápa. Nr. 36737 5. Ferð til sólar- landa fyrir einn. Nr. 30920 6. Dvöl á heilsu- hælinu í 3 vikur fyrir einn. Nr. 41501 7. Dvöl á heilsu- hælinu í 3 vikur fyrir einn Nr. 41841 Nánari upplýsingar um vinn- imtrfuiym inga eru veittar á skrifstofu N.L.F.Í. að Laugavegi 20 b, Réykjavík, sími 16371, og á Akureyri í símum 22832, 11334 og 11330. (Birt án ábyrgðar) HVERJU ÞJÓNA SVONA SKRIF? Undanfarið hafa átt sér stað, all illvíg blaðaskrif í sambandi við verksmiðjuna Loðskinn h/f á Sauðárkróki, vegna skiptingu hráefnis á milli verksmiðjunnar aniars vegar og Sútunarverk- smiðju Sambandsins á Akur- eyri hins vegar, og sölu á sölt- uðum gærum, til erlendra aðila. Að verulegu leyti má rekja málsatvik til þess, að minna magn af gærum kom nú fram en áætlað var og gaf því ekki ástæðu til pólitískra árásaskrifa á Samband íslenskra samvinnu- félaga eins og raun varð á. Að hinu leytinu vill stjórn Iðju, félags verksmiðjufólks á- Akureyri, að það komi skýrt fram, að hún telur það með öllu eðlilegt að Sútunarverksmiðj- unni á Akureyri séu tryggð hrá efni, til fullvinnslu á skinna- vöru, sem veitir ca. 130 manns vinnu í verksmiðjusal og um 120 manns á saumastofum. Verksmiðjan hafði til vinnslu á sl. ári um 360 þúsund gærur en Loðskinn h/f 272 þúsund, en hefur aðeins 20 manns í vinnu, enda gærur seldar úr landi næstum sem hrávara. Stjórn Iðju harmar það, að Samband íslenskra samvinnu- félaga, skuli hafa orðið fyrir þessum pólitísku árásum í opin berum blöðum, og lýsir yfir fyllsta stuðningi við Samband- ið, í gjörðum þess, í þessu máli. Virðingarfyllst, f. h. Iðju, félags verksmiðjufóiks, Jón Ingimarsson, formaður. Brunmót 31.-12. 1976 Úrslit: Karlar. Björn Víkingsson, Þór Árni Óðinsson, KA Ottó Leifsson, KA sek. 50.5 51.6 52,3 Konur. sek. Margrét Baldvinsd., KA 54,7 Sigurlapg VUhelmsd., KA 56,1 Drengir 15—16 ára. sek. Þórður Svanbergsson, KA 52,6 Qlafur Grétarsson, Þór 53,2 Finnbogi Baldvinsson, KA 53,5 Stúlkur 13—15 ára. sek. Guðrún B. Leifsd., KA 51,1 Guðrún Víkingsd., Þór 60,0 Sigrún Sigmundsd., KA 60,4 Drengir 13—14 ára. sek. Ólafur Harðarson, KA 54,0 Jjón R. Pétursson, Þór 55,2 Stefán Ingvason, Þór 55,4 Stúlkur 11—12 ára. sek. Hrefna Magnúsd., KA 58,9 Lena Hallgrímsd., KA 60,2 Ingiþjörg Harðard., KA 60,7 Drengir 11—12 ára. sek. Erling Ingvason, Þór 56,7 Ðavíð Björnsson, Þór 56,7 Jón V. Ólafsson, KA 57,3 Stúlkur 10 ára og yngri. sek. Guðrún Magnúsd., Þór 59,9 Signe Viðarsdóttir, KA 66,0 Drengir 10 ára og yngri. sek. Þorvaldur Örlygsson, KA 58,5 Smári Kristinsson, KA 60,9 Hjörtur Hreiðarsson, KA 61,8 Þór og K.A. Samningar standa nú yfir milli forráðamanna Þórs og enska knattspyrnuþjálfarans Reinolds um þjálfun liðsins næsta keppn istímabil, en hann þjálfaði Þór í fyrra eins og kunnugt er með mjög góðum árangri. Þegar þetta er skrifað eru miklar lík- ur á að hann komi fljótlega á næsta ári og hefjist þá strax handa við æfingar. Forráðamenn KA eru hins vegar að semja við Jóhannes Atlason um þjálfun liðsins næsta sumar. Jóhannes mun væntanlega koma um miðjan apríl en hann er á þjálfunar- skóla f Þýskalandi í vetur. Jó- hannes er Akureyringum að góðu kunnur, en hann þjálfaði og lék með meistaraflokki ÍBA fyrir nokkrum árum. Þá má geta þess að Jóhannes hefur undanfarin þrjú ár þjálfað meistaraflokk Fram í knatt- spyrnu og hafa þeir tvívegis orðið númer tvö í íslands- meistaramótinu undir hans stjórn. Beggja þjálfaranna bíður mikið starf, Reynolds að halda Þórsurum í fyrstu deild, og Jóhannesar að leiða KA liðið til sigurs í annarri deild. Ekki er álitið að miklar mannabreyting ar verði í liðunum, heldur verði kjarni þess sömu menn og leik- ið hafa þar undanfai'in ár. Þá eru Reynismenn á Ár- skógsströnd á höttum eftir þjálfara fyrir næsta leiktíma- K.A. VANN FYLKI K. A. og Fylkir frá Reykjavík léku í 16 liða úrslitum í Bikar- keppni HSÍ miðvikudaginn 28. des. sl. Fyrirfram var K. A. lið- ið talið mun sterkara og var greinilegt að leikmenn K. A. vanmátu andstæðinga sína stundum. Sigur K. A. í þessum leik var hins vegar aldrei í hættu í leiknum, þeir höfðu algera yfirburði og sigruðu með 19 mörkum gegn 14. í hálfleik Þann 1. des. sl. var haldið Akur- eyrarmeistaramót í kraftlyfting um. í móti þessu reiknast sam- anlagður árangur í hnébeygju, bekkpressu og réttstöðulyftu. Alls voru sett 17 Akureyrar- met á móti þessu svo segja má að lyftingamenn séu í stans- lausri framför. Úrslit mótsins urðu þessi: Fluguvigt. Haraldur Ó. Ólafsson, Þór 80,0 — 55,0 — 120,0 = 245,5 Dvergvigt. Dagur Bragason, Þór 75,0 — 57,5 — 125,0 = 257,5 Fjaðurvigt. Hjörtur Guðmundsson, Þór 80.5 — 65,0 — 135,0 = 270,5 Léttvigt. Sigmar Knútsson, Þór 137.5 — 80,0 — 175,0 = 392,5 Millivigt. Freyr Aðalsteinsson, Þór 150,0 — 90,0 — 185,0 = 425,0 var staðan 9 gegn 8 fyrir K. A. Bestu menn liðanna voru mark- mennirnir, sérstaklega Gauti í marki K. A., en hann varði oft á tíðum stórvel og hefur a. m. k. aldrei í vetur sýnt jafn góða markvörslu. Flest mörk K. A. gerðu Ármann og Þorleifur 4 hvor, og Sigurður 3. Með sigri í þessum leik er K. A. nú komið í 8 liða úrslit. bil, en æfingar þessara liða hefjast að fullum krafti upp úr áramótum. Skautamenn byggja íshokkyvöll Félagar í Skautafélagi Akur- eyrar eru nú að byggja nýjan íshokkyvöll á uppfyllingunni skammt innan við Höfner. Að sögn forráðamanna félags ins hafa framkvæmdir gengið hægt sökum fjárskorts, en ef allt gengur að óskum ætti ef til vill að vera hægt að leika á vellinum íshokky síðar í vetur. Þór stofnar judíódeild Nýlega var haldinn stofnfundur júdódeildar Þórs. Júdó, sem er göfug japönsk íþrótt, hefur lítið sem ekkert verið stunduð hér í bæ, þannig að tími var kominn til að hefjast handa. Júdó er fyrst og fremst sjálfsvarnai'- íþrótt, og eins og þjóðfélag okk- ar virðist vera orðið, er það hverjum manni nauðsynlegt að kunna eitthvað fyrir sér í slíku. Æfingar deildarinnar verða fyrst á laugardögum kl. 15.00 í íþróttahúsinu við Laugargötu. Á fyrstu æfingunni mættu um 30 manns, bæði karlar og kon- ur. Þjálfari verður vartbeltis- maður, eins og það heitir á júdó-máli, úr Reykjavík. Léttþungavigt. Guðmundur Svanlaugss., Þór 115,0 - 77,5 — 187,5 = 380,0 Milliþungavigt. Kristján Falson, K. A. 172,5 — 137,5 — 220,0 = 530,0 Yfirþungavigt. Magnús Guðmundsson, Þór 150,0 — 125,0 — 60,0 = 335,0 Jólamót í tvíþraut og kraftlyftingum Á annan í jólum héldu lyftinga- menn árlegt jólamót í tvíþraut og karftlyftingum. Á mótinu náðist ágætur árangur í ýmsum greinum og voru sett alls 5 Akureyrarmet. Úrslit urðu þessi: TVÍÞRAUT. Fluguvigt. kg Garðar Gíslason, K. A. 95,0 Dvergvigt. kg Viðar Örn Edvardsson, Þór 92,5 Millivigt. kg Sigmar Knútsson, Þór 160,0 Léttþungavigt. kg Ármann Sigurðsson, K. A. 155,0 KRAFTLYFTINGAR. Fjaðurvigt. kg Hjörtur Guðm.son, Þór 280,0 Léttvigt. kg Þorsteinn Kruger, K. A. 302,5 Léttþungavigt. kg Kristján Falsson, K. A. 535,5 ó. A.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.