Dagur - 23.03.1977, Blaðsíða 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
DAGTJR
LX. ARG. AKUREYRI, MEÐVIKUDAGINN 23. MARS 1977 13. TÖLUBLAÐ
230 mannslífum
bjargað
Innan Slysavarnafélags ís-
lands starfa nú 85 björg-
unarsveitir víðs vegar um
land. Við strendur landsins
og á fjallvegum starfrækir
félagið 72 skýli, auk 25
björgunarstöðvarhúsa. í
skýlum þessum er nauð-
synlegur búnaður.
Björgunarsveitir SVFÍ
eru skipaðar 2400 reynd-
um mönnum, sem ætíð eru
tilbúnir til hjálpar nauð-
stöddum.
Frá 1966 til 1975 hefur
230 mannslífum verið bjarg
að úr strönduðum skipum
hér við land, þar af 136 ís-
lendingum, og þegar þær
tölur eru hafðar í huga, má
með sanni segja, að hið
fórnfúsa starf fólksins í hin-
um ýmsu deildum Slysa-
varnafélags íslands beri ár-
angur, og að störf þess beri
að styðja. □
8
Kirkjuvikan vel
sótt að vanda
Kirkjuvikan á Akureyri
var vel sótt að venju. Þar
voru mörg erindi flutt, m.a.
af fólki, sem ekki leggur
ræðumennskuna fyrir sig,
en átti erindi í ræðustól.
Margir hafa óskað þess við
blaðið, að það birti sumar,
eða jafnvel allar ræður, er
þar voru fluttar. Því er til
að svara, að enginn hlutur
væri sjálfsagðari og ánægju
legri en að fólk ætti þess
kost að lesa ræður kirkju-
vikunnar. En því miður
leyfir hið takmarkaða rúm
ekki birtingu þeirra hér í
blaðinu, nema um stutta
úrdrætti væri að ræða, eða
leystur væri fjárhagsvandi
af aukinni útgáfu í þessu
skyni.
Kirkjuvikur á Akureyri
ná til fjölda fólks, sem færi
nokkurs á mis ef þær legð-
ust niður. Hin mikla aðsókn
sýnir vinsældir þeirra. □
Tíminn 60 ára
Hinn 17. mars varð Tím-
inn sextíu ára. Fyrsti rit-
stjóri hans var Guðbrand-
ur Magnússon. En Jónas
Jónsson frá Hriflu og
Tryggvi Þórhallsson gerðu
hann að miklu og út-
breiddu áhrifablaði, öðr-
um mönnum fremur. Hann
var fyrst fjögurra síðna
vikublað, málgagn nýstofn-
aðs stjórnmálaflokks, Fram
sóknarflokksins, s t u d d i
samvinnuhreyfinguna og
hafði alhliða framfarir á
landsbyggðinni allri á dag-
skrá. Dagur árnar Tíman-
um allra heilla á ókomnum
árum. □
Fjölmenni
við útför
Hermóðs
Togararnir
Marinó Þorsteinsson í hlutverki
sölumannsins í leikriti Miller.
Sölumaður deyr
Leikfélag Akureyrar hefur nú
sýnt sjónleikinn, Sölumaður
deyr, við góðar undirtektir
áhorfenda.
Sérstaka athygli vekur Mar-
inó Þorsteinsson í hlutverki
sölumannsins, sem hann leikur
af næmum skilningi og þrótti,
á eftirminnilegan hátt.
Sýningum fer að fækka og er
fólki bent á að láta ekki þessa
merkilegu sýningu fram hjá sér
fara, ef það fer í leikhús á
annað borð. □
Nú er Jötunn aftur kominn af stað á Laugalandi. Ljósm. Eðv. Sig.
Útför Hermóðs Guðmundsson-
ar í Árnesi var gerð frá Nes-
kirkju í Aðaldal síðastliðinn
fimmtudag að viðstöddu óvenju-
legu fjölmenni.
Búnaðarsamband sýslunnar,
Ræktunarsambandið Akur og
Búnaðarfélag Aðaldæla óskuðu
að kosta útförina, en Hermóður
var formaður allra þessara sam-
taka.
Húskveðju í Arnesi flutti
Vigfús B. Jónsson á Laxamýri
og þar flutti sóknarpresturinn,
séra Sigurður Guðmundsson,
kvæði Valtýs Guðmundssonar,
og Heiðrekur Guðmundsson
flutti kveðju hins látna til ekkj-
unnar, Jóhönnu Steingríms-
dóttur, er Heiðrekur hafði fært
til bundins máls.
Séx-a Sigurður Guðmundsson
flutti líkræðu og jarðsöng, en í
kirkju tóku til máls, auk hans,
Þorgrímur Starri Björgvinsson,
Stefán Jónsson og Heiðrekur
Guðmundsson.
Síðan var gestum boðið til
veitinga í Hafralækjarskóla og
munu hátt á fimmta hundrað
manns hafa komið þangað, eftir
að hafa fylgt hinum látna til
grafar. □
Frá lögreglunni
Um fyrri helgi var stolið ný-
legu logskurðartæki af Harris-
gerð, ásamt tilheyrandi slöngum
og mælum. Tækjum þessum var
stolið á Slippstöðvarbryggjunni,
og eru þeir, sem upplýsingar
kynnu að geta gefið, vinsam-
lega beðnir að láta vita.
Á mánudaginn landaði Kald-
bakur um 180 tonn.
Svalbakur landsaði 198 tonn-
um 16. mars. Aflaverðmæti
13,34 milljónir króna.
Harðbakur landaði 172 tonn-
um 8. mars. Aflaverðmæti 13,6
milljónir króna.
Sléttbakur landaði 11. mars
95 tonnum. Aflaverðmæti 6,5
milljónir króna.
Sólbakur landaði 117 tonnum
14 mars. Aflaverðmæti 9 millj.
Fyrir helgina fóru 10.793
kassar af freðfiski í skip frá
ÚA á Bandaríkjamarkað og á
mánudaginn var 1325 pökkum
af skreið skipað út, væntanlega
á Níferíumarkað. □
Nokkrir fulltrúar á ráðstefnunni. Nýráðinn æskulýðsfulltrúi er lengst til vinstri. (Ljósm. E. D.)
Nýr æskulýðsfulltrúi
fremur ræddu þeir við Her-
mann Sigtryggson æskulýðs-
fulltrúa Akureyrarbæjar. Kom
fram hjá öllum mikill áhugi á
starfi þessa nýja aðstoðaræsku-
lýðsfulltrúa kirkjunnar og má
vænta góðs samstarfs af þeirra
hálfu.
Ráðstefnunni lauk með kvöld
fundi á laugardagskveldi. Þar
fluttu nokkrir félagar í ÆFAK
söngva úr væntanlegri söngbók,
sem nefnd á vegum ÆSK hefur
unnið að og gefin verður út í
haust á vegum ÆSK og Æsku-
lýðsskrifstofunnar í Reykjavík.
Liðlega 20 manns sótti ráð-
stefnu þessa, sem tókst í alla
staði mjög vel.
(Úr fréttatilkynningu).
Auk ofanritaðra sátu ráðstefn-
una sr. Jón A. Baldvinsson, sem
tekið hefur við ritstjórn Æsku-
lýðsblaðsins, sr. Pétur Þórarins-
son sem er forstöðumaður bréfa-
skóla ÆSK. Séra Jón Kr. ís-
feld annaðist þennan þátt starfs-
ins frá upphafi, en lét af því
embætti eftir langt og giftu-
drjúgt starf nú um síðustu ára-
mót. Á laugardag sat einnig
sumarbúðanefnd ÆSK ráð-
stefnuna, en formaður hennar
er sr. Sigurður Guðmundsson.
Að kveldi laugardags heimsótti
biskupinn, hr. Sigurbjörn Ein-
arsson, ráðstefnuna.
Ráðstefnugestir áttu viðræð-
ur við bæjarstjórn og bæjar-
stjóra Akureyrar í hádegis-
verðarboði sem bæjarstjórnin
bauð til á laugardag, og enn-
Dagana 18.—20 mars sl. efndi
Æ.S.K. í Hólastifti til ráðstefnu
í Hvammi á Akureyri. Biskup
íslands hefur nýverið skipað
nýjan aðstoðaræskulýðsfull-
trúa, akureyringinn Jóhann
Baldvinsson, og mun hann hafa
aðsetur á Akureyri. Hlutverk
ráðstefnunnar var að ræða
starfssvið og starfssvæði þessa
nýja fulltrúa og tengsl hans við
ÆSK. Ráðstefnuna sóttu, auk
hans, stjórn og varastjórn ÆSK,
æskulýðsfulltrúi sr. Þorvaldur
Karl Helgason, ]aðstoðaræsku-
lýðsfulltrúi Stína Gísladóttir og
Hrefna Tynes starfsmaður
æskulýðsskrifstofunnar í Rvík.
í Hólastifti