Dagur - 14.04.1977, Síða 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
DAGUR
LX. ARG. AKUREYRI, FIMMTUDAGINN 14. APRÍL 1977 16. TÖLUBLAÐ
25 þúsund tonn
af síldinni
Sjávarútvegsmálaráðuneyt-
ið hefur ákveðið að leyfa á
næsta hausti veiðar á 25
þúsund tonnum af síld, en
síldiarstofninn við Suður- 0
land hefur stækkað veru-
lega vegna friðunaraðgerð-
anna að undanförnu. Hring
nótabátar fá að veiða frá
20. september til 20. nóv- i
ember, en reknetabátar frá
20. ágúst til 20. nóvember.
Leikið
í hverri sveit
Einhver lét þau orð falla,
að um þessar mundir væri
fært upp leikrit í hverri
sveit. Þótt það sé orðum
aukið, má með sanni segja,
að leiklistin sé ótrúlega
víða stunduð. Sjónleikir í 1
Hrísey, Ólafsfirði, Dalvík,
Grenivík, H‘rafnagilshreppi,
Ongulsstaðahreppi og á
Akureyri vitnar um mikið
leiklistarlíf við Eyjafjörð
og í Þingeyjarsýslunum
báðum er leikhst stunduð. £
Ennfremur vestan Oxna- I
dalsheiðar. □
Vandsiglt á
veraldarsjónum
Það er vandsiglt fyrir smá-
þjóð á veraldarsjónum. Svo
hefur þetta verið og ekki
sjáanleg nein breyting á
því. ísland liggur milli
steins og sleggju. Risaveldi
á bæði borð. Þessir risar £
koma sér ekki saman og
vilja mörgu ráða annars
staðar en heima hjá sér. — :
Því heimili er vandstjórnað
sem við þetta býr. Það væri
barnaskapur að gera sér
ekki grein fyrir því. Þetta
sagði Eysteinn Jónsson I
fyrir skömmu, er hann m.a.
varaði við erlendri íhlutun.
Þaö borgaði sig
vel aö reiðast
Bóndi einn þéttvaxinn og
brosmildur var staddur í
höfuðborginni rétt áður en
vegaáætluunin mikla var
samþykkt á dögunum. —
Hann sá skiptingu vegafjár-
ins fyrir það kjördæmi sem
hann býr í. Og nú hvarf
honum brosið og hann
brást reiður við, sagði sína '
byggð svikna og las nokkur
vel valin orð yfir viðstödd-
um þingmönnum. Skipt-
ingu vegafjárins var sner-
lega breytt, byggð bóndans
í vil, og munaði breyting-
in tveim milljónatugum, og
þannig var þetta samþykkt.
Það borgaði sig fyrir bónd-
ann og heimabyggð hans að
reiðast. □ f
F. v. Guðm. Rúnar Heiðarsson, Saga Jónsdóttir, Gestur E. Jónasson, Heimir Ingimarsson í hlutverk-
um sínum. (Ljósmyndastofa Páls).
Nýr togari
til Dalvíkur
Klukkan 11 árdegis á laugar-
daginn verður nýjum togara
gefið nafn hjá Slippstöðinni á
Akureyri. Eftir þá athöfn verð-
ur siglt til Dalvíkur og togar-
inn afhentur eigendum sínum,
Útgerðarfélagi Dalvíkinga .
Þessi nýi togari heitir Björg-
úlfur og er 430 tonna skip. —
Skrokkur hans var smíðaður í
Noregi en síðan hefur verið
unnið að smíði hans hjá Slipp-
stöðinni og er hann mjög vel
búinn vélum og tækjum. □
Kvikmynd
Borgarbíó sýnir um þessar
mundir gamanmyndina Bugsy
Malone sem sýnd hefur verið
við mikla aðsókn. Merkilegt er
við myndina að börn og ungl-
ingar leika öll hlutverkin.
Leikfélag Akureyrar 60 ára
Hátíðarsýning verður á föstudaginn
Sennilega stendur leiklistarlíf með meiri blóma á íslandi
um þessar mundir en í öðrum löndum okkar menning-
arsvæðis. Hér við Eyjafjörð hefur leiklistin aldrei risið eins
hátt né átt jafn margt starfsfólk. Leikhúsið á Akureyri er áf
einhverjum ástæðum statt á tindi þeirrar tilviljunar þegar
bestir og mestir leikkraftar mætast í listinni og er alveg
undravert, hve árangurinn hefur orðið mikill og góður.
Leikfélag Akureyrar hefur ver-
ið starfsamt og stórhuga und-
anfarin ár og haft á að skipa
gáfuðum, fjölhæfum og dugleg-
um leikhússtjóra, þar sem er
Eyvindur Erlendsson og um-
talsverðum kjarna ágætra leik-
ara, yngri og eldri. Félagið á
sextugsafmæli 19. apríl. í sex
áratugi hefur það sett sinn svip
á skemmtana- og listalíf bæjar-
ins, unnið marga stórsigra á
leiksviðinu og kallað fjölda
karla og kvenna til starfa í
skóla leiklistarinnar og veitt
fólkinu tækifærii til að sjá inn
í ævintýraheiminn á bak við
tjöldin og að ganga undir þol-
raun hinna sterku sviðsljósa.
Leikfélag Akureyrar minnist
sextugsafmælis síns með hátíða-
sýningu í leikhúsinu á föstudag-
inn, og verður það síðasta sýn-
ingin fyrir afmælið. Þar verður
frumsýndur sjónleikurinn, Af-
Bændaklúbbs-
fundur um
nautgriparækt
Næsti bændaklúbbsfundur
verður að Hótel KEA
mánudaginn 18. apríl og
hefst klukkan 19.00. Fruni-
mælandi verður Ólafur E.
Stefánsson ráðunautur og
ræðir hann um niðurstöður
sýninga í Eyjafirði sumarið
1976 og önnur mál er varða
náutgriparæktina. □
bragð annarra kvenna (La
donna di Garbo) eftir ítalska
höfundinn Carlo Goldini, sem
var átjándualdarmaður og skóp
Um páskana var líflegt um að
litast við sjóinn, þótt atvinna
lægi þá enn að mestu niðri
vegna helgidaganna. Loðnu-
ganga sú, sem nokkur veiðiskip
náðu nokkru af fyrir skemmstu
á útanverðum Eyjafirði, hefur
gengið alla leið inn á Poll og
jafnvel inn á Leirur til að
hrygna. í sunnanstormi fyrir
páskana rak mikið af loðnu upp
á sandinn sunnan við Strand-
götuna og þar er nú þykkt lag
af loðnuhrognum. Sumir sjó-
menn mokuðu þá loðnu upp
með háf við fjöruna og trillu-
bátar fengu meira.
Annan páskadag var talsvert
mikið af loðnu geymt í lásum
við Höepnersbryggju og þar
voru margir drengir með veiði-
stengur sínar og spæni að veiða.
Auðséð var, að loðnan hafði
gengið inn á Leirur og jafnvel
hafði hún ruðst inn í ræsin á
Drottningarvegi og inn í tjörn-
ina nýju. Hér og þar á Leirun-
um voru þúsundir og sennilega
tugir þúsunda fugla, sem möt-
uðu krókinn. Mest kvað að
skeglum, en einnig voru þar
stormmávar, hettumávar og
svartbakar, auk anda. Þar
vöppuðu tjaldar og boruðu nef-
hetjur úr hópi alþýðunnar. —
Þýðingu gerðu Hrafn Hallgríms-
son og Sigurlaug Jóhannes-
dóttir og leikmynd Hallmundur
Kristinsson.
Leikstjóri að þessu sinni er
Kristin Olsoni frá Finnlandi,
margfræg leiklistarkoona, sjálf
leikari, kennari, leikstjóri og
leikhússtjóri Wasaleikhússins
síðan 1974.
Leikarar eru: Saga Jónsdótt-
ir, Jóhann Ögmundsson, Áslaug
Ásgeirsdóttir, Þórir Steingríms-
inu í sandinn eftir maðki og
smákröbbum.
Skammt frá flugstöðinni
spókuðu tveir selir sig á ísn-
um, sem þar er ennþá, voru
mjög nálægt flugbrautinni og
létu ekki mikla flugumferð
trufla sig.
son, Heimir Ingimarsson, Sigur-
veig Jónsdóttir, Árni Valur
Viggósson, Aðalsteinn Bergdal,
Gestur E. Jónasson, Guðmund-
ur Rúnar Heiðarsson og Ása
Jóhannesdóttir.
Afbragð annarra kvenna er
fimmta verkefni Leikfélags Ak-
ureyrar á þessu leikári og jafn-
framt er það síðasta verkefni
leikhússins undir leikhússtjóm
Eyvindar Erlendssonar, sem nú
hverfur til annarra starfa. Mun
þar skarð fyrir skildi. Á þriðju-
dagskvöldið efnir LA til mann-
fagnaðar á Hótel KEA og eru
þar allir velkomnir. Q
Sjómenn hafa fengið nokkra
þorskveiði í net sín skammt
norðan við Oddeyrina og út hjá
Hörgárgrunni, en þorskurinn
hafði ekki gengið inn á Pollinn,
sögðu sjómenn annan páska-
dag. □
Drengir að veiðum við loðnulásana. (Ljósxn. E. D.)
Mikið líf og fjör við sjóinn