Dagur - 14.04.1977, Page 5
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
Skrífstofur Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar: Ritstjóm 11166, Augl. og afgreiðsla 11167
Ritstj. og ábyrgðarm.: ERLINGUR DAVÍÐSSON
Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Bjömssonar hf.
Leikhúsið
okkar
Leikfélag Akureyrar var stofnað fyr-
ir sextíu árum og minnist afmælis
síns með hátíðasýningu í leikhúsi
bæjarins á föstudaginn og hefur gef-
ið út afmælisrit. Afmælisdagurinn er
19. apríl. í afmælisritinu er margs
konar fróðleikur um þetta gamla
áhugamannafélag í leiklistinni, sem
ekki verður rakinn hér. En upp af
starfi margs áhugafólks um leiklist,
bæði fyrr og síðar, hefur nú verið
stofnað atvinnuleikhús, hið eina ut-
an höfuðborgarinnar, með styrk bæj-
arfélags og ríkissjóðs. En sá styrkur
er mikil viðurkenning á leikhús-
störfum áhugafólksins, bæði hæfni
þess og dugnaði og jafnframt felst í
því sú staðfesting bæjaryfirvalda, að
leiklistin sé svo mikilvægur þáttur
bæjarmenningar að hana beri að
efla.
Leiklistin er, eins og aðrar list-
greinar, tilraun mannsins til að gera
sér grein fyrir tilveru sinni, og á
þann hátt að bregða upp líkingu af
raunveruleikanum með persónugerv-
ingum leikskáldsins á sviðinu. Leik-
ritaskáldið og leikarinn reyna að
bregða upp líkingum af þeim hug-
myndum, sem þeir gera sér um heim-
inn, hvort sem verið er að gera grín
að honum eða lofa hann, og hvort
sem leikskáldið er að dýrka guð sinn,
eða jafnvel aðra veröld á bak við þá,
sem við þekkjum og lifum í. Leiklist-
in er talin öðrum listgreinum eldri.
Trúarbrögðin tóku hana snemma í
sína þjónustu, vegna þess hve mátt-
ug hún er.
En valdið hefur einnig haft hana
meira og minna í sinni þjónustu,
bæði peningavald og stjómvöld og
þá þjónar hún hagsmunum þeirra í
hlekkjum. Leiklistin, frjáls og skap-
andi, tekur til allra mannlegra sam-
skipta og lætur sér ekkert óviðkom-
andi, en öll bregður hún upp mynd-
um eða líkingum af því, sem menn
halda um umhverfið eða veröldina.
Leiklistin er framhald af viðfangs-
efnum bamanna, sem snemma líkja
eftir þeim fullorðnu, en þroska síð-
an með sér framtíðaróskimar, leika
þær og gera sér læti.. Sköpunarlöng-
unin, til þess að laga heiminn eftir
sinni þrá, hefur löngum fylgt mann-
inum og speglast oft hvað skírast. á
leiksviðinu.
Góður listamaður er auðmjúkur
gagnvart þeirri listgrein, sem hann
helgar krafta sína. Og í leiklistinni
eru auðmýktin og óttinn ætíð á
næstu grösum. — Leiklistarmenn-
imir verða að geta staðið einir sér,
trúir sínum hugmyndum og hugsjón-
um, án þess að reiða sig á almennings-
álitið, kraft auglýsinganna eða stuðn-
ing voldugra aðila. Megi Leikfélagið
jafnan eiga marga slíka. □
Hér er hópurinn úr Garðaskóla í Hlíðarfjalli.
(Ljósm. fvar B.).
Nemendur Garðaskólans í
verðlaunaferð hér
Dagana 8. til 12. mars sl. dvaldi
fjórtán manna hópur nemenda
úr Garðaskóla, Garðabæ, í
Skíðahótelinu í Hlíðarfjalli. Var
þetta verðlaunaferð fyrir þá
nemendur skólans, sem þóttu að
mati kennararáðs hafa skarað
framúr í félagsstarfi í skólan-
um. Með þeim var tómstunda-
leiðtogi skólans, Hörður Rögn-
valdsson. Fréttamaður blaðsins
hitti hópinn í Skíðahótelinu síð-
asta daginn sem hann dvaldi á
Akureyri að þessu sinni.
Garðaskóli-grunnskóli?
Garðaskóli er grunnskóli og í
honum eru 520 nemendur. —
Skólastjóri er Gunnlaugur Sig-
urðsson, ættaður frá Siglufirði.
Félagslíf í skólanum er mikið
og á hans vegum er svokallað
„opið hús“ á miðvikudagskvöld-
um og föstudagskvöldum. Á
miðvikudagskvöldum er aðal-
lega klúbbstarfsemi, svo sem
borðtennisklúbbur, frímerkja-
klúbbur, kvikmyndaklúbbur,
ljósmyndaklúbbur, radíóklúbb-
ur, spilaklúbbur, taflklúbbur,
tónlistarklúbbur og vélhjóla-
klúbbur. Aðsókn að „opna hús-
inu“ er miög góð og á síðasta
ári var meðalaðsókn á mið-
vikudagskvöldum 195 og á
föstudagskvöldum 264, en þá er
m. a. diskótek og dansað til kl.
23.30. Foreldraráð er starfandi
við skólann og hefur verið
reynt að fá einhverja úr þeirra
hópi til að leiðbeina í hinum
ýmsu klúbbum og á námskeið-
um. í upphafi hvers skólaárs er
kosin stjórn nemendafélagsins,
ásamt fulltrúum í hinar ýmsu
nefndir og ráð, þ. á. m. í fram-
kvæmdaráð „opins húss“. Skól-
inn gefur út upplýsingabækling
fyrir opna húsið, svo er í lok
hvers starfsárs gefin út starfs-
skýrsla þess fyrir skólaárið.
Nemendur í 9. bekk geta tek-
ið félagsmálanámskeið sem val-
grein, og er þá reynt að haga
því svo að eldri nemendur kenni
sem mest á því námskeiði. Bæj-
arráð Garðabæjar styður æsku-
lýðsstarf skólans dyggilega, og
eiga nemendur fulltrúa í æsku-
lýðsnefnd bæjarins. Þá heldur
skólinn árlega veglega árshátíð
og einnig eru stærri hátíðir fyr-
ir jól og páska. Nemendafélagið
gefur út skólablað, sem heitir
Níðhöggur og kemur það út
nokkrum sinnum á vetri og er
hið vandaðasta.
Gott að vera á Akureyri?
Við höfum verið á skíðum þessa
daga og sú aðstaða sem hér er
boðið uppá er stórkostleg, og
ekki fyrir hendi í okkar heima-
byggð. Nemendur rómuðu dvöl-
ina í hótelinu og kváðu aðbúnað
hafa verið mjög góðan. Ollum
hefði farið töluvert fram í skíða-
íþróttinni, en hana höfðu flest
lítið stundað áður. Að vísu kváð
ust þeir aðeins hafa fengið einn
sólardag, en þó aldrei vont veð-
ur. Á milli þess er þau iðkuðu
skíði fóru þau í bæinn og skoð-
uðu ýmsar deildir hjá KEA, Út-
gerðarfélag Akureyringa og
Slippstöðina, þar sem þeim var
m. a. boðið að snæða. Þá sögðu
þeir æskulýðsfulltrúa Akureyr-
arbæjar hafa sýnt þeim Dyn-
heima o. fl., þar sem æskulýðs-
starf fer fram. Á föstudagskvöld
kváðust þeir hafa farið á dans-
leik í Gagnfræðaskólanum, en
sögðust hafa orðið fyrir von-
brigðum með hann. í fyrsta lagi
kváðu þeir nemendur skólans
hafa fengið að reykja í einni
skólastofunni, og einnig hefðu
nokkrir verið ölvaðir á þeim
dansleik og hefði það verið látið
óátalið. f sínum skóla, sögðu
þeir, að reykingar væru aldrei
leyfðar innan veggja skólans, og
það bann sé mjög vel haldið.
Þá sögðu þeir mjög strangt eftir-
ht með ölvun á dansleikjum og
öðrum samkomum skólans, og
vandræði þar að lútandi mjög
sjaldgæf. Þá sögðust þeir telja,
að skoðanir unglinga á tóbaki
Umsóknarfrestur um starf
framkvæmdastjóra Hitaveitu
Akureyrar rann út 20. mars. —
Eftirtaldar umsóknir bárust:
Aðalsteinn V. Júlíusson,
tæknifræðingur, Akureyri.
Baldur Halldórsson,
skipasmiður, Akureyri.
Bergþór Ragnarsson,
pípulagnnigameistari, Rvík.
Brynjar E. Eyjólfsson,
pípulagningameistari, Rvík.
Eiríkur Jónsson,
verkfræðingur, Akureyri.
Frans Árnason,
tæknifræðingur, Akureyri.
Frímann Júlíusson,
gagnfr., Reykjavík.
Gunnar A. Sverrisson,
verkfræðingur, Reykjavík.
nyrðra
og áfengi væru að breytast á þá
leið, að ekki væri nauðsynlegt,
að það fylgdi skemmtanahaldi
eins og hingað til hefur tíðkast,
og að sjálfsagt væri, að í skól-
um væru ákveðnar reglur þar
að lútandi.
Að lokum kváðust ungling-
arnir vilja þakka öllum, sem
greitt hefðu götu þeirra hér á
Akureyri, svo sem ívari Sig-
mundssyni hótelstjóra, Her-
manni Sigtryggssyni æskulýðs-
fulltrúa, forráðamönnum KEA,
Slippstöðvarinnar og Útgerðar-
félagsins, skólastjórum Gagn-
fræðaskólans og Menntaskólans
o. fl. Að lokum skal þess getið,
að viðmælendur blaðamannsins
voru, auk Harðar Rögnvalds-
sonar tómstundaleiðtoga skól-
ans, Dagur Sigurðsson formað-
ur skólafélagsins, Úlfar Berg-
þórsson form. skákklúbbs, Páll
Björnsson gjaldkeri ritnefndar,
Kristinn Jens Sigurþórsson rit-
stjóri skólablaðs, Bragi Braga-
son formaður íþróttanefndar,
Valborg Guðnadóttir vélritari
skólablaðs, Steinunn Unnsteins-
dóttir ritari stjómar nemenda-
félags, Guðrún Brynjólfsdóttir
formaður skemmtinefndar,
Hanna Fríða gjaldkeri skóla-
félags, Ragnar Óskarsson úr
listanefnd, Helgi Bragason skáld
og gæslumaður skólans, Magn-
ús E. Kristjánsson form.
skemmtananefndar og fvar
Brynjólfsson form. leiklistar-
nefndar. □
Hilmar J. H. Lúthersson,
pípulagningameistari, Rvík.
Jón Helgason,
tæknifræðingur, Reykjavík.
Kristján Baldursson,
tæknifræðingur, Noregi.
Sigurður Oddsson,
tæknifræðingur, Akureyri.
Sigurhans V. Hlynsson,
rafsuðumeistari, Reykjavík.
Skúli M. Gestsson,
pípulagningameistari, Rvík.
Þorvaldur Vestm. Magnússon,
tæknifræðingur, Reykjavík.
Wilhelm V. Steindórsson,
tæknifræðingur, Hafnarfirði.
Hitaveitunefnd samþykkti á
fundi sínum 1. apríl einróma,
að Gunnar A. Sverrisson, verk-
fræðingur verði ráðinn hita-
veitustjóri.
Framkvæmdastjóri ráðinn
4•DAGUR
Fremri röð frá vinstri: Jón Bj., Halldór, Haraldur, Jón I. Aftari
röð frá vinstri: Hólmgrímur, Albert, Guðmundur, Margeir.
Minningarmót haldið um
Júlíus Bogason skákmann
Gjafir - áheit
Til minningar um Sumarrósu
áigurbjörnsdóttur frá Sigríði
Guðmundsdóttur kr. 1000. —
Gjöf frá Ragnhildi Jónsdóttur,
Elliheimili Akureyrar kr. 10.000
— Til minningar um Helga Jak-
obsson, Ytra-Gili, frá börnum
Eiríks Helgasonar frá Dvergs-
stöðum kr. 10.000. — Gjöf frá
Oddnýju Jónsdóttur kr. 5.000. —
Til barnadeildar, í minningu
Júlíu Stefánsdóttur, frá afa og
ömmu, Þuríði Jónsdóttur og
Magnúsi Júlíussyni, Sunnu-
hvoli, kr. 10.000. — Til minn-
ingar um Gunnar Baldvinsson,
Ólafsfirði: frá Kristjáni Rögn-
valdssyni kr. 5.000, frá Finni
Bjömssyni kr. 1.000, frá Vigfús-
ínu og Gunnlaugi Vigfússyni kr.
5.000. — Gjöf frá Guðfinnu
Jónsdóttur kr. 11.800. — Frá
Eyfirðingafélaginu í Reykjavík
til Bamadeildar kr. 250.000. —
Til minningar um hjónin Jak-
obínu Guðbjartsdóttur og Jón
Almar Edvaldsson frá börnum
þeirra kr. 100.000. — Gjöf frá
öskudagsliði kr. 1.300. — Áheit
frá K. G. G. kr. 1.000. — Til
Barnadeildar frá Margréti og
Guðfinnu kr. 1.000. — Frá þakk-
látum vini kr. 40.000. — Gjöf
frá Guðrún Á., Guðlaugu,
Heiðu, Hafdísi og Karen til
Barnadeildar kr. 12.700. —
Með þakklæti og bestu óskum
til gefenda. - Torfi Guðlaugsson.
Kasthvammi 2. aprfl. Snjór er
orðinn nokkuð mikill og vegna
hvassviðris er hann í sköflum,
en ekkert fannfergi þó, en ég
held, að snjór hafi ekki verið
svona mikill síðan 1966, þá að
vísu miklu meiri. Féð hefur
ekki komið út úr húsi síðan 27.
nóvember og á morgun er inni-
staðan orðin 18 vikur, og það á
eftir að togna úr henni. Ég held
að ekki hláni teljandi í þessum
mánuði.
Flestir hér um slóðir hafa rú-
ið fé sitt. Samgöngur hafa verið
dálítið erfiðar og verða þar til
hreinsað verður.
Úr miklu er að velja á leik-
listarsviðinu. Efling var með
ágætan leik, og einnig hafa
komið leikflokkar. Leifur
heppni úr Kelduhverfi kom
með Kjarnorku og kvenhylli,
Um páskana var haldið í Félags-
borg skákmót til minningar um
Júlíus Bogason, sem féll frá á
síðasta ári. Júlíus var í áratugi
einn bezti skákmaður norðan-
lands, m. a. varð hann Skák-
meistari Norðurlands fimm sinn
um og Akureyrarmeistari nítján
sinnum. Bifreiðastöðin Stefnir,
en þar starfaði Júlíus lengi, gaf
veglegan farandbikar til að
og Vaka úr Grýtubakkahreppi
kom með Konu í morgunslopp,
hvort tveggja góðar skemmtan-
ir. Einnig kom leikflokkur úr
Öngulsstaðahreppi og var látið
ágætlega af þeim leik. Síðast en
ekki síst má svo nefna Leikfélag
Húsavíkur með í deiglunni. En
leiksýningar L. H. eru alltaf
mestu leiklistarviðburðirnir í
sýslunni, a. m. k. austanverðri.
Á Húsavík eru leikarar, sem
allir vilja sjá á sviði, svo sem
Sigurð Hallmarsson og Krist-
jönu Helgadóttur, auk margra
annarra, sem okkur eru að góðu
kunnir.
Mig vantar alltaf heimtu-
fréttir Óla á Gunnarsstöðum og
hrossabeitarfréttir úr Skagafirði
og Húnavatnssýslum.
G. Tr. G.
keppa um, en Skákfélag Akur-
eyrar sá mn framkvæmd móts-
ins. Ákveðið var að hafa þetta
fyrsta mót lokað, þ. e. bjóða til
mótsins. Þátttakendur voru
skákfélagar Júlíusar heitins,
þeir Albert Sigurðsson, Guð-
mundur Búson, Halldór Jóns-
son, Haraldur Ólafsson, Hólm-
grímur Heiðreksson, Jón Björg-
vinsson, Jón Ingimarsson og
Margeir Steingrímsson. Úrslit
urðu þau að Halldór Jónsson
sigraði, hlaut 6 vinninga, nr, 2—
3 Jón Björgvinsson og Hólm-
grímur Heiðreksson með 4%
vinning hvor.
27. marz var haldið hraðskák-
mót um Einisbikarinn. Kepp-
endur voru 14 og tefldu einfalda
umferð. Sigurvegari varð Gylfi
Þórhallsson með. 13 vinninga,
vann allar sínar skákir, nr.. 2
varð Sveinbjörn Sigurðsson
með 11 vinninga og þriðji Har-
aldur Ólafsson með 10y2 vinn-
ing. í unglingaflokki sigraði Ní-
els Ragnarsson alla keppinauta
sína 9 að tölu. Skákstjóri var
Albert Sigurðsson.
2. apríl kom hingað harðsnú-
ið lið Húsvíkinga og tefla við
heimamenn. Fullorðnir tefldu á
15 borðum og unglingar á 6
borðum.
Úrslit urðu þessi: Fullorðnir,
Akureyri, 9 vinninga. Húsavík
6 vinninga. Unglingar, Akur-
eyri, 4 vinninga. Húsavík 2
vinningar. í hraðskák sigruðu
heimamenn naumlega með
15Vz vinningi gegn 14V2 vinn-
ingi en akureyrsku unglingamir
unnu örugglega með 9V2 vinn-
ingi gegn 2Vz vinningi.
Það hlánar ekki
mikið í apríl
• Baráttukveðja
frá konu.
Kona úr nágrannahéraði skrifar
meðal annars 27. mars:
Ævinlega er nú gaman að fá
Dag. Það er eins og að fá gaml-
an kunningja í heimsókn. Ég
les meira að segja auglýsing-
arnar með mestu ánægju, enda
er þar margar fréttir að fá.
í síðasta blaði var fólk hvatt
til að koma áhugamálum sínum
til blaðsins, og ekki þarf ég
mikla hvatningu þegar ég sé,
að rætt er um mál, sem ég hef
ekki aðeins áhuga á, hieldur
brennandi áhuga og þar á ég
við „brekkubúa", sem berst við
kílóin sín.
Fyrir nokkru síðan hafði ég
samband við tvær heilsugæslu-
stöðvar í Reykjavík og spúrðist
fyrir um það, hvort þær gætu
veitt konum úti á landsbyggð-
inni einhvem stuðning og e.t.v.
bréfaskipti til skamms tíma, til
að auðvelda konum að ná af sér
aukakílóunum. Því miður fékk
ég engar undirtektir á öðrum
staðnum og mjög daufar á hin-
um.
Síðan þetta var, hefur heilsu-
ræktarstöð tekið til starfa á Ak-
ureyri og heyrt hef ég, að þar
hafi náðst mjög góður árangur.
En ekki komast allar þangað,
sem þangað ættu erindi.
Nýlega tókum við okkur sam-
an, nokkrar þriflegar konur, í
því skyni að leggja af. Árang-
urinn varð 18 kíló, sem við
fjórar þurfum ekki að bera
lengur.
Það sem hefur reynst mér vel,
er meðal annars: Að drekka
mikið vatn, helst tvo lítra á dag,
taka eina vítamínpillu á dag,
taka hálftíma gönguferð, borða
hveitiklið, jurtafræ og yfirleitt
góðan mat. Sund er ágætt að
iðka og nota þarf vigtina dag-
lega. Engri máltíð á að sleppa,
og hafa þarf hugfast, að maginn
er enginn ruslafata, og það er
alveg óþarfi að vera sífellt að
stinga upp í sig brauðmolum,
eða borða afgang frá börnunum.
Allar afsakanir eru auðveldasta
leiðin til að láta megrunarkúr-
inn mistakast. Auðvitað eiga
konur að leita sérfræðilegra
leiðbeininga hjá læknum, bæði
um matinn og aðra þætti, sem
stefna eiga að því að auka vel-
líðan og hreysti fólks.
Með baráttukveðju. 170—74.
K. G.
íslandsmótið á Siglufirði
Skíðalandsmótið 1977 var að
þessu sinni haldið á Siglufirði
og fór það fram að vanda nú
yfir páskana. Á föstudaginn
langa var ekki keppt en þá
haldið skíðaþing. Á þinginu
var Hákon Ólafsson endur-
kjörinn formaður Skíðasam-
bands íslands, og þá var einnig
ákveðið að næsta íslandsmót
yrði haldið í Reykjavík. Veð-
ur og færi var nokkuð gott
meðan á mótinu stóðst, og
stóðust flestar tímaáætlanir
mótsstjómarinnar. Úrslit -ein-
stakra greina mótsins urðu
þessi:
10 km ganga 17—19 ára. mín.
Guðm. Garðarsson Ó 41,28
Björn Ásgrímsson S 42,37
Jón Konráðsson Ó 44,40
15 km ganga 20 ára og eldri.
Halldór Matthíasson R 56,39
Magnús Eiríksson S 57,24
Haukur Sigurðsson Ó 59,37
Norðmaðurinn Martin Hole
keppti sem gestur í þessari
grein og kom fyrstur í mark,
fékk tímann 55,42 mín. Kepp-
endur voru 19 talsins og luku
allir keppni.
15 km ganga 17—19 ára.
Guðm. Garðarsson Ó 48,38
Jón Konráðsson Ó 49,35
Björn Ásgrímsson S 60,11
30 km ganga 20 ára og eldri:
Magnús Eiríksson S 92,46
Halldór Matthíasson R 95,04
Haukur Sigurðsson Ó 104,12
Til leiks voru skráðir 13 kepp-
endur, en 11 mættu til leiks.
Aðeins 6 luku keppni að þessu
sinni.
Tvíkeppni, 15 og 30 km ganga,
20 ára og eldri stig.
Magnús Eiríksson S 513,43
Halldór Matthíasson R 507,46
Haukur Sigurðsson Ó 417,65
Knattspyrnan:
Albertsmótið
hefst um helgina
Um næstu helgi hefst fyrsta
knattspyrnumót vorsins hér á
Akureyri og er það þið svo-
kallaða Albertsmót. Þátttak-
endur eru frá Akureyrarfélög-
unum KA og Þór, Reyni, Ár-
skógsströnd og Völsungum,
Húsavík. Á laugardag leika
Þór og Völsungar á Akureyri
og á sunnudag KA og Reynir.
Þór sigraði í Albertsmótinu í
fyrra og hitteðfyrra, og ef þeir
sigra núna vinna þeir bikar-
inn sem um er keppt til eign-
ar.
Tvíkeppni, 10 og 15 km ganga,
17—19 ára: stig.
Guðm. Garðarsson Ó 519,49
Bjöm Ásgrímsson S 483,97
Jón Konráðsson Ó 464,72
Boðganga.
1. Sveit Reykjavíkur:
Ingólfur Jónsson,
Guðmundur Sveinsson og
Halldór Matthíasson 115,40
2. sveit Ólafsfjarðar 115,54
3. Sveit Siglufjarðar 117,32
Stökk 20 ára og eldri: stig.
Marteinn Kristjánsson S 215
Björn Þór Ólafsson Ó 208,5
Ásgrímur Konráðsson Ó 204
Lengsta stökk f þessari keppni
átti Marteinn Kristjánsson
56,4 metrar. Skráðir voru 9
keppendur til leiks og 8 mættu.
Stökk 17—19 ára: stig.
Guðm. Garðarsson Ó 219,9
Jóhann Sigurðsson Ó 183,2
Helgi Ástvaldsson Ó 176,6
Norræn tvíkeppni 20 og
eldri: stig.
Björn Þór Ólafsson Ó 486,49
Þorst. Þorvaldsson Ó 399,67
Sigurjón Geirsson S 391,37
Norræn tvíkeppni 17—19 ára:
Guðm. Garðarsson Ó 492,29 st.
Fleiri mættu ekki til keppni.
Stársvig karla:
Einar Valur Krist.son í 136,37
Haukur Jóhannsson A 136,38
Hafþór Júlíusson í 136,53
Brautin var 1150 m löng, fall-
hæð 450 metrar og hlið 52. 30
keppendur mættu til leiks en
16 luku keppni. Bestum braut-
artíma í fyrri ferð náði Hauk-
ur Jóhannsson A 69,13 sek, en
í seinni ferð Bjöm Víkingsson
A 66,22 sek.
Stórsvig kvenna:
Steinunn Sæm.dóttir R 116,17
Jórunn Viggósd. R 117,44
Margrét Baldv.d. A 119,15
Brautin var 800 metra löng,
fallhæð 330 m og hlið 37. —
Steinunn Sæmundsdóttir náði
bestum tíma í báðum ferðum,
57,51 sek. í fyrri ferð og 58,66
sek. í þeirri seinni. 20 vom
skráðar til leiks en 17 luku
keppni.
Svig karla:
Hafþór Júlíusson
Tómas Leifsson
Jónas Ólafsson
Skíðakennaranámskeið
Mánudaginn 18. apríl hefst í
Skíðahótelinu á Akureyri
námskeið fyrir skíðakennara
og stendur í viku. Námskeið
þetta er haldið á vegum hót-
elsins og ÍSÍ, og verður Magn-
ús Guðmundsson kennari. —
Magnús hefur eins og kunnugt
er dvalið í Bandaríkjunum
undanfarin ár við skíða-
kennslu með mjög góðum ár-
angri. Er því mikill fengur
fyrir væntanlega skiðakenn-
ara að njóta leiðsagnar hans.
Ætlast er til að nemendur séu
í 115,38
A 116,38
R 117,09
Margrét Baldvinsdóttir.
íslandsmeistari í svigi.
Svig kvenna:
Margrét Baldvinsd. A
Jórunn Viggósd. R
Sigríður Jónasdóttir A
Alpatvíkeppni karla: stig
Hafþór Júlíusson í 0,74
Jónas Ólafsson R 23,47
Tómas Leifsson A 26,48
Alpatvíkeppni kvenna: stig.
Jórunn Viggósd. R 9,09
Margr. Baldvinsd. A 15,95
Steinunn Sæm.d. R 27,05
Flokkasvig karla:
1. Sveit Akureyrar 321,96 stig.
Haukur Jóhannsson
Björn Víkingsson
Tómas Leifsson
Ámi Óðinsson
2. Sveit Reykjavíkur 469,97 st.
Fleiri sveitir luku ekki keppni
en auk þessara tveggja kepptu
ísfirðingar og Húsvíkingar.
Flokkasvig kvenna:
1. Sveit Akureyrar 263,83 stig.
Guðrún Leifsdóttir
Sigríður Jónasdóttir
Margrét Baldvinsdóttir
2. Sveit Reykjavíkur 268,52 st.
Sveit ísfirðinga lauk ekki
keppni.
Verðlaun skiptust þannig
milli þátttökufélaga:
Ólafsfjörður 6 gull, 4 silfur,
7 brons.
Reykjavík 4 gull, 7 silfur og
2 brons.
Siglufjörður 3 gull, 4 silfur og
3 brons.
Akureyri 3 gull, 3 silfur og
3 brons.
ísafjörður 3 gull, 0 silfur og
1 brons.
vel skíðandi og þurfa þeir að
leggja fram skíðaútbúnað. —
Þátttökugjald er kr. 500 á dag
fyrir þá sem vilja halda til í
Skíðahótelinu og er þá fæði
innifalið. Þeir sem hafa áhuga
á að sækja námskeiðið til-
kynni þátttöku sína til fvars
Sigmundssonar framkvæmda-
stjóra vetraríþróttamiðstöðv-
arinnar í síma 96-22930 og gef-
ur hann allar nánari upplýs-
ingar. Reiknað er með að á
námskeiðið komist ca 20
manns.
Haukur Jóhannsson,
var aðeins hundraðasta hluta
úr sekúndu á eftir þeim sem
varð fslandsm. í stórsvigi.
DAGUR•5