Dagur - 27.04.1977, Síða 5
Útgcfandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
Skrifstofur Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar: Ritstjóm 11166, Augl. og afgrciðsla 11167
Ritstj. og ábyrgðarm.: ERLINGUR DAVÍÐSSON
Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Bjömssonar hf.
Þjóðleg
umbóta-
stefna
Framsóknarflokkurinn var stofnaður
fyrir sextíu árum. Hann er eini
stjómmálaflokkurinn hér á landi,
sem algerlega er sprottinn af íslenskri
rót. Það voru forystumenn úr bún-
aðarsamtökunum, ungmennafélög-
unum og samvinnuhreyfingunni, er
flokkinn stofnuðu og sameinuðu
hugsjónir þessara félagsmálahreyf-
inga í þann kjama flokksstefnunnar,
er síðan hefur verið unnið eftir. —
Flokkurinn átti í upphafi að gegna
því hlutverki að vinna að framför-
um í landinu, styðja einstaklingana
til sjálfsbjargar, efla almenna mennt-
un, efnalegt og stjómmálalegt sjálf-
stæði innávið og útávið, hagnýta auð-
lindir landsins og efla byggðir þess.
Þjóðarvakning ungmennafélaganna
og brautryðjendastarf samvinnu-
manna mótuðu ekki aðeins stefnuna
öllu öðm fremur, beint og óbeint,
heldur vom ýmis veigamikil atriði
þessara merku félagsmálahreyfinga
tekin upp í stefnuskrá flokksins.
Sennilega verður aldrei að fullu
metið, hve djúptæk áhrif ungmenna-
félögin höfðu á þjóðlífið á fyrri ára-
tugum þessarar aldar og mjög víða
gegna þau enn hlutverki sínu með
miklum sóma. Auðveldara er að
meta störf samvinnuhreyfingarinnar
í landinu, og má í því efni segja, að
það séu blindir menn sem sjá ekki
árangur hennar, þykjast ekki vita, að
sú félagsmálahreyfing hefur í verki
stuðlað meira að bættum lífskjömm
fólks en nokkur önnur fjöldahreyf-
ing í landinu. En öfgaflokkar til
hægri og vinstri lfkja henni við svart-
asta íhald og illa fengið vald til ein-
okunar. Sá áróður hefur ætíð þjapp-
að samvinnufólkinu þéttar saman til
sóknar og nýrra sigra.
Ungmennafélagshreyfingin og
samvinnuhreyfingin kalla á fólk til
að vinna landi sínu og þjóð og fram-
tíðinni það gagn er það má.
Það hefur orðið hlutskipti Fram-
sóknarflokksins að hafa forgöngu um
og styrkja þau stöjrf á sextíu ára
göngu sinni. Um þetta vitnar sagan
og fram hjá þessum veigamiklu stað-
reyndum getur enginn sá maður
gengið, sem taka vill afstöðu til póli-
tískra flokka eða taka virkan þátt í
þjóðmálabaráttunni. Pólitísku flokk-
amir eiga að starfa fyrir þjóðina, og
vegna þjóðlegrar umbótastefnu
sinnar hefur Framsóknarflokkurinn
reynst henni öðmm betur. Með þá
von í huga, að mikill þorri íslend-
inga vilji enn vinna þjóð sinni og
framtíðinni það gagn er þeir mega,
í stað þess að krefjast flestra hluta
af þjóðfélaginu, þarf Framsóknar-
flokkurinn engu að kvíða. □
Vinnuþrælkun -
ráðherralaun - bónus
f byrjun þeirra samninga sem
nú er verið að undirbúa, birti
Morgunblaðið tveggja síðu
myndafrétt frá Akureyri um
ráðherralaun frystihússtúlkna
hjá Útgerðarfélagi Akureyr-
inga.
Þetta mun eiga að leggja lín-
umar gegn samúð fólks með
láglaunahópunum sem verka-
lýðshreyfingin er búin að heit-
strengja að þeirra launakjör
skuli nú reyna að leiðrétta,
enda sjálfsagt birt í þeim til-
gangi.
Hver er hlutur bónussins
í ráðherralaununum?
Engar skýringar fylgja með í
þessari ráðherrafrétt, nema
auðsætt virðist að þama er um
algera vinnuþrælkun að ræða.
Unnið hefur verið um 80 tíma
á viku. Frá kl. 8.00 til kl. 23.00
virka daga og frá kl. 8.00 til
19.00 á laugardögum.
Dæmið gæti litið þannig út:
Kaup samkv. 6. taxta kr. 435,50
pr. tímann í dagv. Eftirv. 609,70.
Nhdv. 783,90.
40 tímar í dagv. á viku kr. 17.420
10 tímar í ev. á viku kr. 6.097
30 tím. í nhdv. á viku kr. 23.517
80 tíma vinnuvika kr. 47.034
Bónus kr. 3.000 á dag eða kr.
18.000 á viku = 38,2%.
Rætt er við tvær ungar stúlk-
ur sem ef til vill em bónus-
drottningar hússins ásamt móð-
ur sinni og þær gefa þessar
upplýsingar. Þær hafa kr. 3.000
á dag í bónus, kr. 300 í bónus á
tímann. Því gefur bónusinn
þeim aðeins um 38,2% hækkun
á vikukaupið fyrir álagið og
þrældóminn í 60 klst. bónus.
Bónusinn er ekki leyfður
eftir kl. 19.00, en samt eru dæmi
um að þær bæti við sig 20 klst.
í næturvinnu yfir vikuna.
Hvað er orðið af vinnutíma-
styttingunni sem bónusin átti
að færa verkafólkinu?
Algengast mun þó vera eftir
myndasíðunni að dæma, að
unnið sé frá kl. 8.00 til kl. 23.00
2 daga vikunnar en til kl. 19.00
hina dagana nema sunnudaga,
þeir virðast ekki venjulega vera
unnir.
Það dæmi gæti litið þannig
út:
40 tímar í dagv. kr. 17.420
10 tímar í eftirv. kr. 6.097
17 tímar í nhdvinnu kr. 13.843
67 tíma vinnuvika kr. 36.843
Bónus kr. 18.000 eða 48,8%
hækkun á vikukaupið fyrir
drottningarnar, fyrir þær hæstu.
Hvað þá fyrir hinar? Hvað
fyrir alla heildina?
Nú vill svo til að Útgerðarfé-
lag Akureyringa hefur tekið
saman greiðslur fyrir bónus-
vinnuna hjá sér á árinu 1976.
Þar kemur fram að meðalbón-
usinn í snvrtingu og pökkun (en
það er sú vinna sem stúlkurnar
á ráðherralaununum voru að
vinna) var ofan á meðaltíma-
kaup ársins 31,4%, eða kr. 112,08
pr. tímann, aðeins kr. 112,08 á
tímann fyrir að leggja sig und-
ir þrælapísk ákvæðisvinnunnar.
Vinnuvemd nútímans.
Norðurlöndin voru fyrr á ferð-
inni en við íslendingar með að
taka upp ákvæðis- og bónus-
vinnuna í stórum stfl. Við þekkj-
um hana frá fyrri og seinni tíð
í tímabundinni vinnu, en ekki
svo mjög í fastri vinnu fyr en
bónusinn og fleira ákvæði var
tekið upp nú á seinni ánun. —
Enda er þetta miklu hættulegra
heilsu og hamingju fólks ef hver
Herdís Ólafsdóttir.
dagur sem unninn er ber álag
ákvæðisvinnunnar.
Nú er verið að vinna að því að
leggja þetta vinnufyrirkomulag
niður á Norðurlöndunum á
meðan við mögnum drauginn
hjá okkur. Því hefur verið hald-
ið fram að sé um samfellda
ákvæðisvinnu að ræða geti álag
vinnunnar lagt starfsæfina að
baki strax um fertugs—fimm-
tugsaldur, þó ekki sé um jafn
svívirðilega langan vinnutíma
og hér um ræðir, eða 60 tíma
bónusvinnu á viku, auk lengri
tíma í næturvinnu eða uppí
30 tima á viku. Og í þessum
hópi eru konurnar fjölmennast-
ar sem heimilisstörfin og upp-
eldi og mnönnun bama bíður
eftir þegar heim er komið.
Hvað erum við að kalla yfir
okkur? Er þetta vinnuvernd nú-
tímans?
Hvað er heppileg vitneskja
fyrir verkafólkið?
Hversvegna spurði myndasíðan
ekki Gísla Konráðsson í horn-
inu til hægri og Gunnar Lórenz-
son yfirverkstjóra með hvíta
hattinn sinn um hvaða afkasta-
aukning lægi á bak við bónus-
inn. Hvað hefur aukist það
magn af fiski sem fer í gegnum
frystihúsið til söluafhendingar
eftir að bónusinn var tekinn
upp? Við þessari spurningu fæst
aldrei viðhlítandi svar.
í fyrrnefndri samantekt frá
Útgerðarfélagi Akureyringar
þar sem skýrt er frá greiðslum
í bónusvinnunni í frystihúsinu
þar var ekki orð um framleiðslu-
aukningu. Þar kom í ljós sem
að vísu var áður vitað, að lang
lægstu bónusgreiðslurnar voru
í borðavinnunni, vinnu kvenn-
anna, eða 31,4% á meðaltíma-
kaup. í handflökun 80% á meðal
tímakaup. í vélflökun 48,35% á
meðaltímakaup. Tækjavinna
41,34% á meðaltímakaup.
Allir þessir flokkar nema
borðavinnan eru að langmestu
leyti unnir af körlum.
Bónusinn gaf frystihúsinu
90—100%. Verkakonum 31,4%.
En hvaða afkastaaukningu gaf
bónusinn frystihúsi Útgerðar-
félags Akureyringa ofaná með-
alafköst í tímavinnu?
Þessu hefði fisköskjufjöldi
framleiðslunnar getað svarað ef
það hefði þótt heppileg vitn-
eskja fyrir verkafólkið.
Nei, í samantekt frystihúss-
ins var ekkert um slíka hluti.
En eftir krókaleiðum hefur
það verið gefið upp að fram-
leiðsluauknigin nema 90—100%,
á meðan meðalhlutur verka-
konunnar í borðavinnunni nem-
ur aðens 31,4% af þeirri aukn-
ingu.
Að vísu eru til upplýsingar
frá Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna um þessi atriði frá þeim
tíma sem verið var að koma
bónusnum á, byrjað var að
tímamæla, leggja bónuslínurnar
og magna bónusgaldurinn. Þær
upplýsingar um afkastaaukn-
ingu var mjög á þá leið sem hér
hefur verið sagt frá.
Er ekki hægt að fá fram hver
sé hlutur Útgerðarfélagsins úr
framleiðsluaukningu bónus-
vinnunnar?
Hlutur fólksins hefur verið
birtur. Ef ekki er hægt að fá
upplýsingar þá er það ein af
línunum í arðránsgaldri bónus-
kerfisins.
Með bestu kveðjum til Akur-
eyrar.
Herdís Ólafsdóttir
„Keðjan" hafnar
öli og áli
Fundur Slysavamadeildarinnar
„Keðjan“, haldinn í Freyvangi
26. apríl, lýsir yfir andúð á
frumvarpi því, sem flutt hefur
verið á Alþingi um bruggun
áfengs öls og einungis yrði til
að auka drykkjuskap í landinu,
ef samþykkt yrði. Vill fundur-
inn því hér með skora á þing-
menn að fella frumvarp þetta.
Þá mælir fundurinn á móti
þeirri hugmynd, að komið verði
upp álverksmiðju við Eyjafjörð.
En hugmynd sú er af vísinda-
mönnum, og mörgum öðrum,
tahn mjög varhugaverð. Vernd-
um gróður hins fagra fjarðar.
Myndin er tekin fyrsta námskeiðsdaginn. Þama er Þórir Þorvarð-
arson deildarstjóri að leiðbeina Freysteini Sigurðssyni frá Akur-
og Pétri Þorgrímssyni frá Axarfirði um vöruuppröðun.
Nýjung Samvinnuskólans
Á vegum Samvinnuskólans að
Bifröst og Kaupfélags Borgfirð-
inga hófst í vetur námskeið fyr-
ir nemendur skólans í verslun-
arstörfum.
Þetta námskeið fer fram á
þann hátt að tveir nemendur i
senn dvelja í Borgarnesi í viku-
tíma og stunda þar verklegt
nám í verslunarstörfum og
• Þakkir til Hlífar.
í tilefni af 70 ára afmæU Kven-
félagsins Hlífar hinn 4. febrúar
sl., vil ég, fyrir hönd Barna-
deildar F.S.A., færa því hug-
heilar þakkarkveðjur.
Kvenfélagið. hefur ávaUt
starfað að mannúðar- og líkn-
armálum. Það rak Bamaheim-
ilið Pálmholt frá 1950—1952, en
þá tók bærinn við því.
Frá 1973 hefur Kvenfélagið
stutt Barnadeild F.S.A. með
veglegum, árlegum gjöfum,
bæði tækjabúnaði og leikföng-
um. Fyrst gaf það hitakassa með
súrefnismæli, og ljóslampa til
meðferðar á gulu hjá unga-
bömum. Síðan hefur það gefið
barnavöggur, sem hægt er að
hafa upphitaðar fyrir nýfædd
börn, blóðþrýstingsmæU, sem
er sérlega næmur og nota má á
ungabörn, sem áður var mjög
erfitt að mæla blóðþrýsting hjá,
vökvadælu, sem stjómar því að
vökvi í æð fari á réttum hraða.
Einnig rafmagnssog til að sjúga
slím eða annað úr vitum barna,
svo og tækjabúnað til að geta
gefið súrefni við þrýstingi niður
í lungu barna með erfiða öndun,
og rafmagnsvog, sem er mjög
.nákvæm. Á þessu ári höfum
við fengið upplífgunarborð, sem
búið mun verða fuUkomnum
tækjum.
Þá má bæta því við, að félagið
hefur gefið Rannsóknarstofunni
smásjá af vönduðustu gerð.
Að endingu óska ég félaginu
allra heilla og þakka því í nafni
Fjórðungssjúkrahússins og
barnanna, er notið hafa góðs af
stórhug félagskvenna.
Akureyri, 13. apríl 1977.
Baldur Jónsson,
yfirlæknir.
Hvorki drengskapur né góður siður
Herra ritstjóri.
í sextánda tölublaði heiðraðs
blaðs yðar birtist frásögn af við-
tali við nokkra nemendur
Garðaskóla, sem hér voru á ferð
nýlega og var þá m. a. boðið á
dansleik í Gagnfræðaskólanum
í vináttuskyni. Þar sem í grein-
inni er vegið mjög að heiðri
Gagnfræðaskólans og starfs-
heiðri nokkurra kennara hans,
get ég ekki látið hjá líða að
biðja um rúm fyrir stutta at,-
hugasemd.
í frásögn blaðsins af viðtalinu
við Garðaskólamenn er fullyrt,
að nokkrir nemendur G. A. hafi
verið ölvaðir á samkomunni og
það hafi verið látið óátalið. Nú
ætla ég mér ekki að halda því
fram, að allir nemendur skól-
ans séu vínbindindismenn, ég
veit ofur vel, að nokkrir þeirra
hafa neytt víns, því miður. Hins
vegar gerir skólinn það, sem í
hans valdi stendur, til þess að
spoma við því, að þeir geri það,
m. a. með því að halda uppi
strangri gæslu á samkomum
nemenda, sem venjulega eru
haldnar í skólanum á þriggja
vikna fresti. Þetta eftirlit ann-
ast minnst tveir kennarar
hverju sinni, stundum fleiri,
einkum þeir, sem tekið hafa að
sér að leiðbeina nemendum í
félagslífi og tómstundastörfum.
Þetta eftirlitsstarf þeirra, þar
sem þeir hafa notið fulltingis
fjölda ábyrgra nemenda, hefir
borið þann árangur, að til
undantekninga telst, ef ölvað-
ur nemandi sést á samkomun-
um. í þeim fáu tilvikum hefir
þegar í stað verið haft síma-
samband við viðkomandi for-
eldra og þeir beðnir að sækja
barn sitt ellegar, ef ekki hefir
náðst til foreldranna, að nem-
andinn hefir verið fluttur heim.
Með þessu móti hefir tekist að
halda dansleikjum í skólanum
áfengislausum, eftir því sem
best er vitað. Þó kann vel að
vera, að einhverjir nemendur
hafi neytt áfengis, áður en þeir
komu inn á dansleik, en í svo
litlu magni og farið svo leynt
með, að þess hafi ekki orðið
vart, þrátt fyrir strangt eftirlit.
Slíkt getur enginn fortekið. En
hinu vil ég hiklaust andmæla
sem hreinum þvættingi, að ölv-
un á samkomum í skólanum,
verði hennar vart, sé nokkum
tíma látið óátalin. Þeir kenn-
arar skólans, sem annast leið-
sögn með félagslífi nemenda og
efirlit á samkomum, hafa rækt
það starf af fullkominni trú-
mennsku og fórnfýsi og hafa
lagt í það heiður sinn og metn-
að, að það takist vel. Þeir eiga
því allt annað skilið en aðdrótt-
anir um sviksemi, birtar í opin-
beru blaði. Ég vil nota þetta
tækifæri til að votta þeim
fyllsta traust og þakklæti. Á
sama hátt vil ég þakka forystu-
mönnum nemenda sjálfra fyrir
jákvæða afstöðu til heilnæmra
félagshátta, uppbyggjandi félags
starf og hollustu við skóla sinn.
Um þá framkomu Garðaskóla.
manna að hlaupa með ósannar
og ærumeiðandi ófrægingarsög-
ur um gestgjafa sína í opinber
blöð, verður það eitt sagt, að
slíkt þykir ekki fagur siður eða
drengskapur. Þó skal þeim fyr-
irgefið heils hugar fyrir æsku
sakir.
Með þökk fyrir birtinguna.
Sverrir Pálsson
skólastjóri G. A.
Lýkur prófi og leikur einleik
Kristinn Örn Kristinsson lýkur
á þessu vori burtfararprófi í
píanóleik frá Tónlistarskólan-
um á Akureyri. Kristinn leikur
opinberlega tónleikaefniskrá af
fullri lengd, og er það liður i
prófinu. Einnig mun hann flytja
píanókonsert eftir Hayden með
hljómsveit skólans í lok þessa
mánaðar. Kristinn hóf nám átta
ára gamall hjá Kristni Gests-
syni við Tónlistarskólann á
Akureyri, síðan hefur hamr
notið leiðsagnar Dýrleifar
Bjarnadótt)ur, Phílip Jenkins,
Helen Longworth, Önnu Áslaug
ar Ragnarsdóttur og núverandi
kennara hans, Thomas Jack-
man. Kristinn leikur á tvenn-
um einleikstónleikum næstu
daga. Þeir fyrstu verða í Frey-
vangi, fimmtuudaginn 28. apríl,
kl. 21, og eru sveitungar Krist-
ins hvattir til að sækja þá tón-
leika. Laugardaginn 30. apríl
kl. 3 e. h., leikur Kristinn á tón-
leikum skólans í Borgarbíói. —
(Frá Tónlistarsk á Akureyri)
verslunarrekstri í sölubúðum
kaupfélagsins.
Er námskeiðið skipulagt sam-
eiginlega af kennurum skólans
og verslunarstjórum Kaupfélags
Borgfirðinga.
Þetta námskeið er nýjung í
starfi Samvinnuskólans sem
miðar í fyrsta lagi að því að
gera nemendur hæfari til starfa
í verslunum að námi loknu og
í öðru lagi að auka tengsl hins
bóklega náms við dagleg störf
í atvinnulífinu. (Fréttatilk.)
Iðnaðurinn
Davíð Scheving Thorsteinsson
flytur erindi um stöðu íslensks
iðrtaðar á hádegisverðarfundi
Junior Chamber að Hótel KEA
laugardaginn 30. apríl kl. 12.15.
Forsvarsmönnum iðnfyrirtækja
í bænum er boðið á fundinn. —
Ræðumaður mun svara fyrir-
spurnum.
Þátttaka tilkynnist fyrir
föstudagskvöld í síma 21501 eða
21986.
Hort tefldi
á Akureyri
Á sumardaginn fyrsta kom
tékkneski stórmeistarinn
Vlastimil Hort til Akureyrar og
tefldi við heimamenn. Var teflt
á 51 borði og komust færri að
en vildu. Úrslit urðu þau að
Hort vann 40 skákir, gerði 6
jafntefli og tapaði 5 skákum. —
Þeir sem sigruðu kappann voru:
Guðmundur Búason, Guð-
mundur Heiðreksson, Haukur
Jónsson, Jón Björgvinsson og
og Jón Jóhannsson, sem er 15
ára. Jafntefli gerðu: Guðmund-
ur Svavarsson, Gylfi Þórhalls-
son, Hreinn Hrafnsson, Smári
Ólafsson, sem er aðeins 15 ára
og Guðrún Árnadóttir, eina
konan, sem tók þátt í fjölteflinu.
Áhorfendur voru fjölmargir og
skemmtu sér vel.
20. apríl var haldið 15 mín.
skákmót í Félagsborg. Kepp-
endur voru 20 og tefldu þeir 7
umferðir eftir Monrad kerfi. —
Röð efstu manna:
1. Guðm. Svavarsson 6% vinn.
2. Jón Björgvinsson 6 vinn.
3. —4. Jóhann Snorrason 5 vinn.
3.—4. Guðjón Jónsson 5 vinn.
Skákstjóri var Albert Sig-
urðsson.
Frá Gallery Háhóli
Laugardaginn 23. apríl opnaði
Ingvar Þorvaldsson listmálari
málverkasýningu í Gallery Há-
hól. Ingvar sýnir 42 olíumál-
verk. Sýningin stendur til 1.
maí og er opin um helgar frá
15.00 til 22.00 og á virkum dög-
um frá 18.00 til 22.00.
(Fréttatilkynning)
Brunmótið í Hlíðarfjalli FH marði KA
Sl. laugardag var haldið brun-
mót í Hlíðarfjalli. Veður var
gott svo og skíðafæri. Brautar-
lengd í karlaflokki var 2,5 km
og fallhæð 600 metrar. Kepp-
endur voru 42 frá Akureyri,
Húsavík, Reykjavík og Dalvík.
Úrslit í mótinu urðu þessi.
Karlaflokkur:
Haukur Jóhannsso
Tómas Leifsson A
Bjarni Sigurðsson H
Björn Víkingsson A
Kvennaflokkur:
Aðeins tvær konur tóku þátt í
keppninni, og auk Sigríðar var
það Margrét Vilhelmsdcttir.
Tímavörðum var það hins veg-
ar á að tapa tíma Margrétar
en hún treysti sér ekki í aðra
ferð, og féll því úr keppninni.
Drengir 13—14 ára:
Ólafur Harðarson A 110.16
Stefán Ingvason A 111.56
A 96.16 98.11 Helgi Eðvarsson A 112.86
98.86 Stúlkur 13—15 ára:
100.51 Jónína Jóhannesd. A 76.80
Auður Aðalsteinsd. A 78.42
A 114.00 Nanna Leifsdóttir A 81.94
í síðustu viku léku í Hafnar-
firði FH og KA í bikarkeppni
KHSÍ. Leikurinn var mjög
góður hjá norðanmönnum, en
þeir höfðu yfirhöndina mest
allan leikinn og voru einu
marki yfir þegar nokkrar sek-
úntur voru til leiksloka, en
þá tókst FH-ingum að jafna
og varð því að framlengja leik-
inn. FH-ingar mörðu sigur í
leiknuum, en þeir sigruðu með
26 mörkum gegn 25.
Akureyrarmót í tvíþraut
Laugardaginn 9. apríl sl. var
haldið Akureyrarmót í tví-
þraut í íþróttavallarhúsinu á
Akureyri, þar sem lyftinga-
menn hafa æfingaraðstöðu. —
Keppendur voru 11 talsins.
Ágætur árangur náðist á mót-
inu. Jakob Bjarnason KA
setti íslandsmet unglinga í
snörun í 100 kg flokknum, en
hann snaraði 120 kg og bætti
um leið íslandsmet unglinga í
samanlagðri snörun og jafn-
hendingu. Þá setti Haraldur
Ólafsson, Þór, Akureyrarmet
í jafnhendingu og einnig í
samanlögðu, en hann keppir í
dvergvigt, og Viðar Eðvarðs-
son setti Akureyrarmet í snör-
un í sama flokki. Freyr Aðal-
steinsson náði mjög góðum ár-
angri í snörun í millivigtar-
flokknum, en hann snaraði
100 kg og er það aðeins 3,5 kg
frá gildandi íslandsmeti. Móts-
stjóri var Hjörtur Gíslason og
yfirdómari Guðmundur Svan-
laugsson. Úrslit mótsins urðu
þessi.
Fluguvigt:
1. Garðar Gíslason, KA
(50 kg — 62,5 kg) 112,5 kg
2. Gylfi Gíslason, Þór
(40 kg — 57,5 kg) 97,5 kg
Garðar og Gylfi eru tvíburar
og keppa fyrir sitt hvort félag-
ið.
Dvergvigt:
1. Haraldur Ólafsson, Þór
(62,5 kg — 80 kg) 142,5 kg
2. Viðar Edvardsson, KA
(63 kg — ógilt) 63,0 kg
Fjaðurvigt:
1. Kristján Gunnarsson, KA
(45,0 kg — 65,0 kg) 110,0 kg
Léttvigt:
1. Gísli Ólaísson, Þór
(62,5 kg — 80,0 kg) 142,5 kg
Millivigt:
1. Ármann Benjamínsson, KA
(65,0 kg — 87,5 kg) 152,5 kg
2. Freyr Aðalsteinsson, Þór
(100,0 kg — ógilt) 100,0 kg
Léttþungavigt:
1. Kristján M. Falsson, KA
(110,0 kg, 130,0 kg) 240,0 kg
2. Sigmar Knútsson, Þór
(77,5 kg — 115,0 kg) 192,5
100 kg flokkur:
1. Jakob Bjarnason, KA
(85,0 kg, 120,0 kg) 205,0 kg
Borðtennisdeild
Ungir menn stofnuðu Borð-
tennisdeild innan KA á sunnu
daginn. Stjórn hennar skipa:
Guðmunddur B. Halldórsson,
form., Pétur Ringsted, ritari
og Zophonias Árnason gjald-
keri. Fyrirhugað er að senda
tvo menn til keppni á Islands-
mótið um næstu mánaðamót.
Æfingatímar auglýstir síðar.
Blakmót UMSE
Blakmóti UMSE er nýlega
lokið. Fimm lið tóku þátt í
keppninni. Umf. Framtíðin
sigraði, vann alla sína leiki,
en það lið hefur sigrað í öll-
um blakmótum sem UMSE
hefur haldið. Annars urðu úr-
slit þessi:
1. Umf. Framtíðin 8stig
2. Umf. Æskan 6 stig
3. Umf. Skriðuhr. 2 stig
4. Umf. Svarfd. 2 stig
5. Skíðafél. Dalvíkur 2 stig
íslandsmótið í blaki
Nýlokið er íslandsmóti í blaki
1. deildar. Þróttur frá Reykja-
vík sigraði, en lið UMSE hafn-
aði í neðsta sæti. Þessvegna
þurftu eyfirðingar að leika
aukaleik um tilveru sína í 1.
deild við það lið sem var núm-
er tvö í annarri deild, en það
var Breiðablik úr Kópavogi.
Þeim leik er nú lokið og sigr-
uðu eyfirðingar með yfirburð-
um: 15—0, 15—5 og 15—4. —
Leikur því lið UMSE áfram í
1. deild næsta keppnistímabil,
en annað norðlenskt lið leikur
þar einnig, því Völsungar frá
Húsavík vann aðra deildina
nú í vetur.
Albertsmótið
Þremur leikjum er nú lokið í
Albertsmótinu svokallaða. Á
Húsavík gerðu Völsungar og
KA jafntefli í marklausum
leik, en sama dag sigraði Þór
Reyni á Árskógsströnd með
einu marki gegn engu, og var
það Jón Lárusson sem skoraði
markið. Á laugardag áttu Völs
ungar og Þór að leika hér á
Akureyri, en Völsungar
mættu ekki til leiks, en á
sunnudag léku KA og Reynir
og sigraði KA með fjórum
mörkum gegn engu. Mörk KA
skoruðu Gunnar Blöndal og
Sigurbjörn Gunnarsson. —
Næsti leikur í mótinu verður
á miðvikudagskvöldið og þá
leika KA og Þór, og eru þá
áhorfendur kvattir til að mæta
á Sanavöllinn og hvetja sína
leikmenn.
Lið U.M.S.E. í 1. deild í blaki.
4 * DAGUR
DAGUR•5