Dagur - 27.04.1977, Blaðsíða 8
DAGUR
Akureyri, miðvikudaginn 27. apríl 1977
SÓLAÐIR HJÓLBARDAR
r,Afbragð annarra kvenna"
Fjórða sýning Leikfélags Akur-
eyrar á ítalska gamanleiknum
Afbragð annarra kvenna var í
Samkomuhúsinu á sunnudag-
inn fyrir fullu húsi áhorfenda,
sem tóku sýningunni afburða
vel. Þrjár sýningar eru áætlaðar
síðar í þessari viku, sjá auglýs-
ingu í blaðinu í dag.
Þessi sjónleikur, sem jafn-
framt er síðasta verkefni LA á
þessu leikári, hefur hlotið
ágæta dóma, enda til hans vand-
að og má í því sambandi nefna
hinn kunna leik- og leikhús-
stjóra frá Wasaleikhúsinu í
Mikil atvinna
er í Hrísey
Hrísey 25. apríl. Feiknamikil
vinna hefur verið hér í Hrísey
að undanförnu. Héðan hefur
farið freðfiskur og mjöl, og nú
er verið að pakka saltfisk og
fer mikið af honuum bráðlega.
Bátar okkar voru að koma
vestan af Rifi og lögðu þeir
net í gær og eru að vitja um.
Tvö grásleppuúthöld eru í Flat-
ey og hafa fengið nokkum afla.
Snæfellið landaði 68 tonnum í
síðustu viku og kemur aftur um
næstu helgi.
Snjór er verulegur á eynni,
þó verulega hafi tekið síðustu
daga. Væntanlega verðum við
þá ekki vatnslausir í sumar, eins
og í fyrra, en þá var lítill snjór.
Ég held að sumarið sé að koma.
S. F.
Finnlandi, Kristinu Olsoni, en
aðarstoðarleikstjóri er Eyvind-
ur Erlendsson og leikarar eru
ellefu talsins.
Það má með sanni segja, að
leikhúsgestir skemmti sér vel
að þessu sinni, enda leikritið
víðfrægt, svo og höfundur þess,
Goldoni, sem skrifaði á sínum
tíma um 200 gamanleiki og
vakti ítlaska gamanleikinn til
nýs lífs. □
Áslaug Ásgeirsdóttir og Ása Jóhannesdóttir í hlutverkum sinum.
(Ljósmyndastofa Páls).
Norðurlandaf. Framsóknar
Norðurlandaferð Kjördæmis-
sambands framsóknarmanna
hér í kjördæminu hefst 13. júní.
Flogið verður frá Keflavík til
Kaupmannahafnar. Sunnubíll
flytur fólkið á hótel Absalon/
Selandia, skammt frá Ráðhús-
inu og Strikinu. Fararstjóri fer
í gönguferð með þeim er þess
óska. Á öðrum degi ferðarinnar
verður ekið til Helsingör og
farið með ferju til Helsingja-
borgar í Svíþjóð. Ekið verður
inn í Noreg yfir Svinesundbrú,
en gist í Sarpsborg. Á þriðja
degi verður haldið til Oslóar,
farin hringferð um borgina. Þar
sjá menn konungshöllina, Vige-
landsgarðinn, Holmenkollen
o. fl. Haldið verður síðdegis til
Raumaríkis, sem er helgur stað-
ur í augum norðmanna, þá að
Hamri við Mjörsvatn.
Til Lillehammer er farið á
fjórða degi, við Mjörsvatn, þar
sem Guðbrandsdalur hefst. Um
Guðbrandsdal verður ekið, en
sú leið er mjög fögur.
Á fimmta degi verður ekið til
20 íbúðir
Með bréfi dagsettu 21. mars sl.
tilkynnir Húsnæðismálastofnun
ríkisins, að á fundi húsnæðis-
málastjórnar hinn 1. mars sl.
hafi verið samþykkt að gefa Ak-
ureyrarbæ kost á láni úr Bygg-
ingarsjóði ríkisins til byggingar
samtals 20 íbúða, samkvæmt
lögum um leiguíbúðir sveitarfé-
laga. □
Þrándheims um Norður-Guð-
brandsdal, síðan yfir Dofrafjöll
til Oppdal, sem er vinsæll ferða-
mannastaður í Trollheimen. —
Gist í Þrándheimi. Á sjötta degi
verður haldið kyrru fyrir í
Þrándheimi og er þar margt að
skoða og á sjöunda degi verður
ekið um Gaulardal og gisting
tekin við hið fagra Siljanvatn.
Til Uppsala er farið á áttunda
degi ferðarinnar og síðdegis
komið til Stokkholms. Kvöld-
verður og gisting á hótel Jesúm.
Þannig hefur hver dagur mik-
ið að bjóða og yrði of langt upp
að telja, en tilhögun er frjáls
í Kaupmannahöfn, þegar þang-
að er komið á ný, áður en hald-
ið er heim á leið. í síðasta blaði
(brottfarartími rangur þar) var
getið þeirra manna, sem upplýs-
ingar veita um för þessa, og
vísast til þeirra fyrir þá, sem
eru að hugsa um þetta álitlega
ferðalag í júnímánuði. □
IM
ra
\h
o
• Sjö milljón
ungmenni
atvinnulaus.
I Ameríku og Vestur-Evrópu
eru nú sjö milljón ungmenni
atvinnulaus, og eiga sér ekki
glæsilegar framtíðarvonir.
Oraakir eru taldar þessar:
Námi í fjölmörgum löndum
er ekki beint nægilega að
þörfum atvinnulifsins. Skort-
ur er á tækifærum til að afla
sér iðn- og verkmenntunar.
Margir atvinnurekendur eru
tregir til að gefa ungu fólki
tækifæri til að spreyta sig.
Pólitískan vilja vantar hjá
mörgum aðilum til að skapa
ungu fólki fleiri atvinnu-
tækifæri.
• Frá Áfengis-
vamaráði.
t skýrslu Áfengis- og tóbaks-
verslunar ríkisins kemur
fram, að áfengissalan til
marsloka á þessu ári varð
samtals 1.47 milljarður
króna, og er söluaukning frá
fyrra ári nær 37%. Selt var
á og frá Akureyri áfengi fyr-
ir röskar 150 milljónir króna
þessa þrjá mánuði, en fyrir
116 milljónir á sama tíma í
fyrra. Nokkrar verðhækk-
anir hafa orðið.
• Þáttaskil?
Áfengisvandamálin á fslandi
voru hin mestu feimnismál
og eru það enn. En þau
þáttaskil hafa þó orðið, að
talað er um sjúkdóm, sem
lækna þurfi og um þann
sjúkdóm rætt opinskátt. —
Bæði karlar og konur hafa
komið fram í dagsljósið og
sagt hiklaust frá reynslu
sinni af áfengisvandanum og
hvemig hægt er að yfirvinna
hann. Hin opinbera umræða
er góðs viti og ný skilgrein-
ing á drykkjufýsn og nýjar
leiðir tíl úrbóta eru það
einnig.
Þótt drykkjumenn hiki ekki
við að kaupa áfengi dýru
verði, eru möguleikar til
þess stundum takmarkaðir,
og margir telja, að áfengið
mættí vera miklum mun
dýrara, þar sem hátt verð
yrði hemill á drykkjuskapn-
um. Má vera að svo sé. —
Áfengisvamaráð hefur reikn
að út, að ef brennivín hefði
hækkað jafn mikið í verði
frá 1967 og ýsan og kaffið
ættí flaskan nú að kosta 4.410
krónur, miðað við ýsuna, en
5.550 krónur miðað við kaff-
ið.
• F'eitar °s d/rar
konur.
fslendingar börðust um ald-
ir við hungrið og margir biðu
fullan ósigur. Nú er offitan
eitt af mestu áhyggjuefnun-
um. Félög, áhugafólk og
læknar berjast við þetta
vandamál. Þykist sá mestur,
sem flestum kílóum nær af
líkama sínum og annarra.
Þannig hafa tímamir breyst
hér á landi. í sumum löndum
þar sem gjafvaxta konur eru
mjög mikils metnar tíl verðs,
em þær eftirsóttastar sem
feitastar eru. Sinn er siður í
landi hverju.
• Til minnis.
Þrátt fyrir endurteknar
áminningar um það hér í
blaðinu, að auglýsingar þurfa
að berast ekki síðar en á
mánudögum (skrifstofan op-
in til kl. 7 e. h.) bíða margir
til þriðjudags og eru þá orðn-
ir of seinir. Er því á þetta
minnt einu sinni enn, ef það
gætí komið einhverjum að
gagni. Margar auglýsingar
em tímabundnar og þar sem
ný vinnubrögð era upp tekin
í prentsmiðju var nauðsyn-
legt að setja þessar reglur
um auglýsingamóttökuuna.
Heildarvelta K. Þ. varð hálfur þriðji
milljarður á síðasta ári
Dagana 19. og 20. apríl sl. var 96. aðalfundur Kaupfélags
Þingeyinga haldinn í félagsheimilinu á Húsavík. Rétt
til fundarsetu höfðu 120 fulltrúar og af þeim voru mættir
114. Auk þeirra sátu fundinn kaupfélagsstjóri, stjóm fé-
lagsins og ýmsir trúnaðarmenn, og nokkrir aðrir félagsmenn.
Formaður kaupfélagsstjómar,
Teitur Bjömsson, og kaupfé-
lagsstjórinn, Finnur Kristjáns-
son, fluttu skýrslur um starf-
semi félagsins á árinu 1976 og
kaupfélagsstjóri las reikninga
þess og skýrði þá.
Sú nýbreytni hafði verið tek-
in upp á árinu, að fulltrúi starfs-
manna K. Þ. tók sæti á stjórnar-
fundum með málfrelsi og til-
lögurétti.
Vefnaðarvörudeild flutti í
nýtt húsnæði á annarri hæð í
verslunar- og skrifstofubyggingu
félagsins, og gjörbreyttist að-
staða hennar til batnaðar við
það. Þá flutti einnig efnalaug
félagsins í nýtt húsnæði. Unnið
var að ýmsum fleiri lagfæring-
um á aðstöðu félagsins á Húsa-
vík.
Heildarvelta Kaupfélags Þing
eyinga varð á árinu 1976 tveir
og hálfur milljarður króna. —
Þegar tekið hafði verið tillit til
löglegra afskrifta á eingum fé-
lagsins var tekjuafgangur á
rekstrarreikningi þess tvær og
hálf milljón króna.
Rekstrarkostnaður hafði vax-
ið mjög frá fyrra ári, vaxta-
kostnaður t. d. um helming. í
vinnulaun hafði félagið greitt á
árinu um tvöhundruð tuttugu
og átta milljónir króna. Inn-
stæður félagsmanna í viðskipta-
reikningum og innlánsdeild
höfðu vaxið. Skuldir í viðskipta-
reikningum voru með meira
móti um áramót, en n. 1. helm-
ingur af aukningu þeirra hefir
nú verið greiddur.
Á fundinum voru gerðar
ályktanir um verðlagsgrund-
völl landbúnaðarins, um
fræðslu- og félagsmál, og fleiri
mál vom þar til umræðu og af-
greiðslu.
Endurkosnir voru aðalmenn
í stjórn félagsins, Jóhann Her-
mannsson, Sigurjón Jóhannes-
son og Teitur Björnsson. Vara-
menn í stjórn voru endurkosnir,
Óskar Sigtryggsson og Þráinn
Þórisson.
Einnig voru endurkosnir, að-
alendurskoðandi, Hjörtur
Tryggvason og varaendurskoð-
andi, Jón Jónasson.
Á fundinum var þess minnst,
að hinn 20. febrúar sl. voru
níutíu og fimm ár frá stofnun
Kaupfélags Þingeyinga og sjö-
tíu og fimm ár frá stofnun Sam-
bands íslenzkra samvinnufélaga.
(Fréttatilkynning).