Dagur - 26.05.1977, Qupperneq 7
Kjarnaland, útivistarsvæði bæjarins
Kjarakaup!
TÖLVUÚR 3 gerðir -
Rafhlaðan endist í 2 ár.
VerS: Kr. 15.500 og
kr. 9.000. Ábyrgð.
@) NESTIN
TRYGGVABRAUT 14
KRÓKEYRARSTÖÐ —
VEGANESTI.
Hallgrímur Indriðason skógfræðingur
gefur upplýsingar um útivistarsvæðið
m S>
■
Þegar litil skógarplanta er gróðursett, eru tré framtíðarinnar höfð
í Vinrra Ocr bnr cpm vpI fplr«;f fil. hrpfrðast hðU ekkl
Þegar blaðamaður Dags fyrr í vikunni lagði leið sína í
Kjamaskóg, var þar margt manna að kaupa tré og runna
í uppeldisstöðinni, fólk að vinna við skógræktina og hópur
léttklæddra ungra manna hljóp um trimmbrautir útivistar-
svæðisins.
Kjarnalandið er 100 hektarar að
stærð, eign bæjarins síðan 1974,
er Skógræktarfélag Akureyrar
afhenti bænum landið, en hef-
ur sjálft gróðrarstöðina, þar
sem tré og runnar eru aldir upp
og seldir á Akureyri og í ná-
grenni. Þetta land, sem byrjað
var að planta í 1952, er að verða
mjög fagurt og skjólsælt og
fríkkar með ári hverju. Það er
sem kjörið útivistarsvæði fyrir
bæjarbúa, enda til þess ætlast
að svo sé. Aðsókn í þetta land
vex ört með ári hverju. En for-
stöðumaður útivistarsvæðisins
og gróðrarstöðvar er Hallgrím-
ur Indriðason skógfræðingur.
Lét hann blaðinu í té nokkrar
eftirtaldar upplýsingar um stað-
inn og starfsemi þá, sem þar fer
fram.
Tvíþætt starfsemi fer fram í
Kjarnaskógi. Þar er gróðrarstöð
og þar er annast um skógrækt-
ina á hinu mikla útivistarsvæði
sem Kjarnaskógur er, ennfrem-
ur unnið að margs konar fram-
kvæmdum til að auðvelda notk-
un svæðisins. Um 20 manns
vinnur á þessum stað, um helm-
ingur unglingar. Þá annast sami
vinnuflokkur gróðursetningu
trjáa og runna á ýmsum opnum
svæðum bæjarins.
Mjög áríðandi er að ljúka
gerð þjónustuhúss í Kjamalandi
fyrir útivistarsvæðið, en til
þess vantar fjármagn, enn sem
komið er. Tilgangur þessa úti-
vistarsvæðis er sá, að sem allra
flestir, bæði ungir og gamlir
akureyringar, megi njóta útivist-
ar, svo að segja rétt við bæjar-
vegginn, í aðlaðandi og skjól-
sælu umhverfi.
Um ræktunina í gróðrarstöð-
inni er það að segja, að hún
hefur það hlutverk að fullnægja
eftir bestu getu eftirspurn eftir
trjáplöntum o. fl. hér á Akur-
eyri og í nágrannasveitum. Á
síðasta ári voru framleiddar 50
þúsund plöntur til gróðursetn-
ingar og tegundafjöldi er 25,
bæði trjáa og runna.
Nú í sumar verður unnið að
því að leggja slitlag á trimm-
brautir í Kjamalandi, koma
upp umferðamerkingum og lag-
færa göngustíga innan Svæðis-
ins.
í Kjarnaskógi eru hæstu trén
orðin 5 metra há. Sjálf er gróðr-
arstöðin 30 ára á þessu ári. Dag-
ur óskar fólki margra unaðs-
stunda í Kjarnaskógi í sumar
og mörg næstu sumur, um leið
og upplýsingar eru þakkaðar.
hjón
vegna þeirra kynna, sem slík rit
stuðla vissulega að á milli ís-
lendinga vestan hafs og hér
heima. Er útgáfa þessi í fullu
samræmi við þá skoðun mína
og störf á undanfömum árum
að vinna beri að þvi að sem <
flest af slíku tagi vestan um haf _
komi á prent hér heima, svo'
okkur verði ljósara en áður, hve
stóran skerf Vesturíslendingar
hafa lagt til þjóðarsögu okkar
og bókmennta.“
Minningarritið er 130 bls. og
í því eru nokkrar myndir, m. a.
af Helga og fjölskyldu hans.
Rit um mývetnsk
í fyrstu hugðist Árni ljósrita
minningarritið, en féll síðar frá
því, og er það nú komið á prent
hér á íslandi, með nokkrum við-
auka. Má þar nefna endurminn-
ingar Sigurbjargar Stefánsson,
dóttur Helga og Þuríðar, um
foreldra sína, en Sigurbjörg er
búsett á Gimli í Manitoba. Þá er
í minningarritinu erfiljóð og
æviminning Þuríðar Jónsdóttur
eftir Sigurð Júl. Jóhannesson
lækni i Winnipeg. í minningar-
ritinu er ennfremur þáttur úr
bókinni „Að heiman og heim“,
eftir Friðgeir H. Berg, rithöfund
á Akureyri, greinin af Blöðum
Stephans G. Stephanssonar með
inngangi Haralds Bessasonar,
prófessors í Winnipeg, Minning-
ar um Helga Stefánsson úr rit-
inu Skuggsjá í Wynyard og að
lokum æviskrá fjölskyldunnar
sem birtist í Vesturíslenskum
æviskrám, II. bindi.
„Það var af ýmsum ástæðum,
að ég réðist í að gefa minningar-
ritið út,“ segir Árni í inngangs-
orðunum. „í fyrsta lagi vegna
þess framlag til íslenskra bók-
mennta og mannfræða sem ég
tel ritið vera og í öðru lagi
Hallgrímur Indriðason skógfræðingur er hér að skoða plöntur í
gróðrarstöðinni.
(Ljósm. E. D.).
Frá lögreglunni
Á föstudaginn var umferðaslys
á gatnamótum við Höephners-
bryggju. Urðu þar meiðsli á
þrem mönnum og annar bíllinn
eyðilagðist og hinn skemmdist
mikið.
Tveir menn hafa verið sviptir
ökuleyfi í þrjá mánuði vegna
gálauslegs aksurs.
Bilaskoðun stendur yfir og
f?E senn að ljúka, veruleg van-
höld eru á því, að eigendur öku-
tækja komi með þau til skoð-
unar og eru menn hvattir til
að láta það ekki dragast lengur,
þar sem nú verður farið að beita
aðgerðum af því tilefni. Þá er
þess að geta, að fyrir nokkru
áttu menn að hafa skipt um
dekk, ef þeir hafa notað nagla-
dekk í vetur. Ef svo ólíklega
vildi til, að enn væru einhverjir
bílar á nagladekkjum, ættu
menn að skipta hið bráðasta.
Smáhnupl hefur verið framið,
en flest af því tagi hefur fljót-
lega verið upplýst. Að öðru leyti
hefur verið fremur rólegt hjá
lögreglunni.
Það er myndarlegt framtak hjá
Árna Bjarnarsyni bókaútgef-
anda á Akureyri að gefa út
minningarrit um merk hjón úr
Mývatnssveit, sem flutti vestur
um haf og bjuggu í Vatna-
byggðum, en það voru þau Helgi
Stefánsson frá Arnarvatni og
Þuríður Jónsdóttir frá Gaut-
löndum. Helgi var hálfbróðir
Þorgils gjallanda, fluttist vest-
ur 1890, þá hálfþrítugur, tók
mikinn þátt í félags- og fram-
faramálum og lést aðeins fimm-
tugur að aldri. Þetta minningar-
rit er byggt á litlu kveri, sem
félagar Helga í bindindishreyf-
ingunni í Wynyard bjuggu til
prentunar og var gefið út 1920.
í ritinu voru fjórar minning-
argreinar og þrjú erfiljóð eftir
vini Helga og nágranna, og
nágranna, og einnig nokkrar
greinar, sem Helgi hafði sjálfur
skrifað um ýmis hugðarefni sín,
bindindismál, þjóðrækismál, fé-
lagsmál og fréttabréf, allt ágæt-
lega vel ritað, þrungið af hug-
sjónum og góðvild til samferða-
mannanna.
FULLUNNIÐ GLUGGAEFNI
unnið úr fyrsta flokks þurrkaðri furu
MJÖG HAGSTÆTT VERD
Kr. 754.00 pr. Im með söluskalti.
Einnig gluggalistar úr sama efni
á kr. 80,00 pr. Im með söluskatti.
TÖKUM AÐ I OKKUR GLUGGASMÍÐI
ASALGEIR&VIDARr
BYGGINGAVERKTAKAR
FURUVELLIR 5
AKUREYRI ICELAND
P. O. BOX 209
SfMAR (96)21332
OG 22333
Nýkomið
Terylene kápur.
Sumarkjólar.
Jakkar.
Blússur stærðir 38—50.
Tækifærismussur og
buxur og margt fleira.
MARKAÐURINN
DAGUR•7