Dagur - 02.06.1978, Blaðsíða 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
DAGTJR
LX. ARG.
Akureyri, föstudagur 2. júní 1978
34. tölublað
Fyrsta tölublað þessa árs af
riti samtaka áhugafólks um
áfengisvarnir er komið út. Það
á erindi til margra, því loks er
það viðurkennt, að mörg þús-
und manns eru áfengissjúkl-
ingar hér á landi og að
drykkjusýkin er nú skilgreind
sem sjúkdómur. Margar góðar
greinar eru í þessu hefti. En í
fljótu bragði virðist skilgrein-
ing hins heimskunna læknis,
E. M. Jellinek eftirtektarverð-
ust. Þar segir um þann stiga,
sem um 140 þúsund íslend-
ingar fara niður, og þar af um
20 þúsund alla leið niður,
vegna drykkju:
„Það byrjar alltaf með „al-
gengum drykkjuvenjum". Án
neyslú alkóhóls þróast alkó-
hólisminn auðvitað ekki.
Flestir stöðvast í þessari
tröppu. Þetta er kölluð sam-
kvæmisdrykkja.
Þú dreypir ekki lengur á
eingöngu í veislum, en þamb-
ar og leitar félagsskapar
þeirra, sem drekka mest.
Neyslan verður regluleg.
Þú drekkur það mikið að
kveldi, að þú manst ekki allt
sem gerðis, þó svo þú virðist
ekki hafa verið mjög drukk-
inn. „Sagði ég það“. „Man
ekkert hvenær ég kom heim“.
Minnisleysi.
Enn áttu góða von. Þú getur
haldið þér frá alkóhóli lang-
tímum saman, jafnvel í mán-
uði. En þegar þú drekkur, er
það ekkert smáræði. Þú ræður
ekki lengur. Missir stjórn.
Þú finnur upp allskonar af-
sakanir fyrir drykkju þinni,
því þú ert farinn að verða
hræddur. Afsakanir gegn
óviðráðanlegri drykkju.
Þú getur ekki stoppað, en
þú getur forðast þá sem gagn-
rýna drykkjuna og sjá mis-
notkunina. Þú ferð að drekka í
felum, aleinn. Drekkur í fel-
um.
Þú þjáist þegar þú vaknar
og hefur slæma samvisku. Þú
verður að slá á þjáningarnar
með alkóhóli til að geta
þraukað daginn. Þunglyndi.
Afréttari.
Nú varir drykkjan oft dög-
um saman, þar til þú ert
algerlega „búinn". Öllu er nú
fórnað fyrri alkóhólið, heim-
ilinu, fjölskyldunni, atvinn-
unni, peningum ogheilsu. Það
eitt sem máli skiptir, er ein
flaska í viðbót.“
Þessi skilgretning læknisins
er hér birt til athugunar, en
jafnframt minnt á, að á öllum
drykkjustigum er lækning
möguleg, aðeins ef hinn sjúki
viðurkennir vandamál sitt og
leitar hjálpar.
Við minnum á sameiginlega
framboðsfundi frambjóðenda
stjórnmálaflokkanna í Norður-
landskjördæmi í Þelamerkur-
skóla í kvöld (föstudagskvöld)
klukkan 21.00. Næsti fundur
verður í Laugarborg á morgun
klukkan 14.00. Þetta er nýmæli
í kosningabaráttu í kjördæm-
inu, en slíkir sameiginlegir
fundir hafa ekki verið haldnir
síðan Norðuriand eystra varð
eitt kjördæmi.
I
Sjómannadagur
V|f'“ y -
^ V-
# » • $
Sjómannadagurinn verður
haldinn hátíðlegur um helgina.
Hátíðarhöldin hefjast á morg-
un (laugardag) með því að
hraðbátar sigla um pollinn, en
síðan er kappróður. Tólf sveitir
taka þátt í róðrinum og þar af
eru sex kvennasveitir. Að
vanda er starfræktur veðbanki.
hádegi verður hátíðarhöldunum
framhaldið við sundlaugina.
Fulltrúar sjómanna og útgerðar-
manna munu flytja ávörp pg sjó-
menn verða heðraðir. Þá verður
keppt í stakka- og björgunar-
sundi. Einnig verður reiptog,
koddaslagur og ef að líkum lætur
verður leikin knattspyrna. Ef vel
viðrar verður hluti hátíðarhald-
Á sunnudaginn er sjómanna-
messa í Akureyrarkirkju, en eftir
anna á túninu norðan hús-
mæðraskólans.
Opið bréf til
vinstri flokkanna
í bæjarstjórn
Akureyrar á þessu kjör-
tímabili.
Er hér með óskað eftir
því, að viðræður um sam-
starf í bæjarstjórn Akureyri
á þessu kjörtímabili verði
teknar upp milli fyrr-
greindra bæjarfulltrúa hið
fyrsta
Bæjarfulltrúar fram-
sóknarmanna munu mæta
til viðræðu viðræðufunda
um þetta samstarf. Sam-
hljóða bréf mun verða sent
fyrsta bæjarfulltrúa hinna
flokkanna.
F.h. bæjarfulltrúa
framsóknarmanna
á Akureyri.
Sigurður Óli Brynjólfsson
Eftirfarandi bréf var sent vinstri
flokkunum í bæjarstjórn Akur-
eyrar:
Skrifstofu Framsóknar-
flokksins, Hafnarstræti 90,
Akureyri, 30. maí 1978.
Á fundi stjórnar og full-
trúaráðs Framsóknarfélags
Akureyrar, sem haldinn var
í dag, var samþykkt tillaga
frá nýkjörnum fulltrúum
framsóknarmanna, ásamt
fyrsta varamanni þeirra í
bæjarstjórn, þar sem þeim
var heimilað að beita sér
fyrir viðræðum milli Al-
þýðubandalags, Alþýðu-
flokks og Samtaka frjáls-
lyndra og vinstri manna um
samvinnu í bæjarstjórn
Dagný seld austur!
Nú er nær fullvíst, að Raufar-
hafnarhreppur og Þórshafnar-
hreppur kaupi skuttogarinn
Dagnýju Sl frá Siglufirði, en
viðræður hafa staðið yfir í
nokkurn tíma. Verður kaup-
samningurinn væntanlega
undirritaðir í dag eða á morg-
un. Að sögn Stefáns Valgeirs-
sonar.fyrrverandi alþingis-
manns, er gert ráð fyrir því að
vinnslustöðvar kauptúnanna
skipti með sér afla togarans.
Kaupverð Dagnýjar er áætlað
um 300 milijónir króna. Það er
ekkert vafamál, að koma togar-
ans mun stuðla að auknu at-
vinnuöryggi á þessum stöðum. en
útgerð Rauðanúps og Fonts hefur
gengið fremur stirðlega. Rauði-
núpur er í slipp í Reykjavík og
bilanir í Fonti eru tíðar.
Dagný er tæpar 400 brúttó-
rúmlestir að stærð. Skipið var
smíð’dð árið 1966 í Hollandi. Eig-
andi er Togskip h/f á Siglufirði.
GAGNFRÆÐASKÓLi AKUREYRAR:
Merkum áfanga náð á sviði heilbrigðis-
og verslunarmenntunar á Akureyri
Gagnfræðaskólanum á Akureyri
var slltið í 48 skipti sl. miðviku-
dagskvöld. Alls innrituðust 611
nemendur í skólann í haust sem
leið og í fyrsta sinn útskrifar
skólinn nemendur sem hafa
stundað nám í tvo vetur á heil-
brigðissviði samkvæmt nýju
sniði. Þessir nemendur hafa
lokið bóklegu námi sjúkraliða
og eiga aðeins eftir mislangan
starfstíma á heilbrigðisstofnun-
um til að fá full réttindi sem
sjúkraliðar. Einnig eru í fyrsta
sinn, útskrifaðir nemendur eftir
tvö námsár á verslunarsviði. Þar
er um að ræða almennt verslun-
arpróf, sem er hliðstætt prófi frá
Verslunarskóla fslands.
Alls innrituðust 611 nemendur í
Gagnfræðaskóla Akureyrar sl.
haust eins og fyrr sagði. Samtals
stunduðu 137 nemendur nám við
framhaldsskólann, en 474 við
grunnskólann. Námsbrautir á
framhaldsskólastigi voru þrjár við
skólann, uppeldis-, viðskipta- og
heilbrigðissvið. Alls luku 9 prófi á
uppeldissviði, eftir tveggja ára nám
og 16 nemendur luku prófi á versl-
unarsviði og 12 nemendur á heil-
brigðissviði. Þá luku 168 nemendur
grunnskólaprófi. Hvað grunn-
skólaprófið varðar, má geta þess að
árangur var mjög ánægjulegur, en
86,3% nemendanna náðu fullum
réttindum til inngöngu í fram-
haldsskóla. í mars sl. var þreytt
(Framhald á bls. 7).
Séð yfir hluta gesta vlð skólaslitin. Fremst á myndinni sltja nokkrir kennarar Gagnfræða skóla Ak
Guðný Bergvinsdóttir náðl best-
um árangri í öðrum bekk fram-
haldsdeildar.