Dagur - 02.08.1978, Qupperneq 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
DAGUR
LXI. árg. Akureyri, miðvikudagur 2. ágúst 1978 46. tölublað
SÍS flytur inn 30 þúsund buxur
Unglingarnir sem unnu í garði sjúkrahótelslns
180 unglingar
í Vinnuskólanum
Hjónin Ingólfur Ármunnsson og
Hrefna Hjálmarsdóttir stjóma
Vinnuskóla Akureyrarbæjar. í hon-
um byrjuóu 180 unglingar á aldrin-
um 13 og 14 ára og þau vinna fjórar
klukkustundir á dag. Kaupið er 280
og 320 krónur á timann, eftir aldri.
Stærstu verkefnin í sumar eru
t.d. undirbúningur sáningu í flög
í bæjarlandinu og hvers konar
snyrting við allar bæjarstofnanir og
opin svæði. Rafveitan tekur af
okkur nokkur ungmenni í vinnu.
Skógræktin og hin almenna bæjar-
vinna við ýmsan léttan frágang.
leikvellirnir taka einnig af okkur
unglinga í vinnu og íþróttavöllur-
inn. Þá eru veruleg verkefni við
heyskap og götuhreinsun. Þá hefur
verið unnið að því að mála leik-
tæki. Vinnuskólinn starfar átta
vikur og honum lýkur í vikulokin.
Skemmtilegt verkefni, sem ný-
lega var unnið að var við lóð
sjúkrahótels Rauða krossins við
Skólastíg. Lóð þessi var mjög
sundurgrafin og þvi þurfti að „taka
hana í gegn“ og gera hana upp að
nýju og áþ tók þessa mynd þegar
unnið var að þessu verkefni.
ar. Verkefni innflutningsdeildar
er að þjónusta kaupfélögin, og ég
geri ráð fyrir að þeir hafi álitið að
það væri þörf á þessari þjónustu,
þ.e. þessari tískuvöru, og þá í
samkeppni við aðrar innfluttar
buxur. Okkar buxur hafa ekki
verið tískuvara hingað til, en nú
erum við eins og áður sagði að
hleypa á markaðinn nýjum bux-
um, með nýju sniði og úr nýju
efni.
Geir Hallgrímsson
reynir
stjórnarmyndun
Forseti íslands ákvað á mánu-
daginn að fela Geir Hallgríms-
syni myndun ríkisstjómar, er
hefði þingmeirihluta að baki sér.
Geir bað um frest til svars þar
til fram hefði farið fundur þing-
flokks síns og framkvæmda-
stjómar. Sá fundur var haldinn
síðdegis í gær, um það leyti sem
þetta blað var að fara í prentun,
en búist var við jákvæðu svari
forsætisráðherra.
„Sambandið hefur alltaf
flutt mikið inn af fatnaði,
meðal annars frá Marks
og Spencer og ég held að
þetta sé sjálfsögð þjón-
usta við neytendur“,
sagði Bergþór Konráðs-
son hjá Iðnaðardeild SÍS,
þegar blaðið leitaði álits
hans á því að Sambandið
flytur inn 30 þúsund
gallabuxur.
„Þessar buxur sem við flvtium
inn er gott og ódýrt merki, og við
teljum að þær falli ágætlega
saman við okkar framleiðslu. Það
er rétt að það hefur selst minna af
Heklu gallabuxunum núna en oft
áður, en við setjum á markaðinn
nú eftir sumarleyfi nýja tegund af
gallabuxum. Þá er alls ekki ólík-
legt, ef þessar innfluttu gallabux-
ur líka mjög vel, að við fáum
framleiðsluleyfi fyrir þeim hér á
Islandi."
„Það er nú svo að Sambandið
er oft í samkeppni við sjálft sig,
því deildirnar eru mjög sjálfstæð-
Brlttanla buxurnar sem Sam-
bandið flytur Inn.
Súlur
komnar
út
Út er að koma hjá Sögu-
félagi Eyfirðinga og undir f
ritstjórn þeirra Valdimars j
Gunnarssonar og Jó- (
hannesar Óla Sæmunds-j
sonar, 15. hefti norð-
lenska tímaritsins Súlna,
sem jafnframt er fyrra
hefti þessa árs. Þar ritarj
Stefán Aðalsteinsson um
lífsferil Guðfinnu Jóns- j
dóttur frá Sílastaðakoti, |
Einar Petersen á Kleif um |
fornminjar í Sólarfjalli,
Jóhannes Óli um Ólaf
blinda og Kristján fráj
Djúpalæk um drauga. S
Eiður Guðmundsson ritarl
Hörgdælingaþátt, Guð-
brandur Magnússon um
kolgrafir í Fljótum, Sig-
urður Draumland grein-j
ina Heiðabýlin, Þórhallur
Bragason um Héraðs- i
skjalasafnið á AkureyriJ
Aðalstein Ólafsson grein-
ina Eyfirskar vísur, Árni J. |
Haraldsson um óvenju-1
legan hagleiksmann, Áð-j
alsteinn Ölafsson um Ara j
Víðigerði og fleira er íj
hefti þessu, sem að efni erj
mjög fjölbreytt, sem áj
framansögðu er ljóst.
Undanþága frá helgarvinnubanninu
Unnið í fiski hjá Útgerðarfélaginu um síðustu helgi
Firír sfðustu helgi var veitt undan-
þága frá helgarvinnubanni verka-
lýðsfélaganna á Akureyri. Var þvf
unnið í fiski hjá Útgerðarfélaginu
um helgina.
„Stjórn og trúnaðarmannaráð
tók þetta mál fyrir, vegna þess
mikla landburðar af fiski sem nú
er. Þar var samþykkt með aðeins
eins atkvæðis mun, að láta það
óátalið þó unnið yrði þessa helgi.
Þessi undanþága var háð því skil-
yrði að það væri rækilega tilkynnt
að það væri enginn skyldugur til að
vinna. Þetta var hugsað þannig að
þama gæti kormst að nýtt ólúið
fólk, sem vildi reyna að bjarga
þessum verðmætum", sagði Jón
Helgason, formaður Einingar.
Helgarvinnubann verkalýðsfél-
aganna stendur því áfram út ágúst,
þar sem aðeins var veitt undanþága
fyrir þessa einu helgi.
Oddur ráðinn
Oddur Björnsson, rithöfundur,
hefur verið valinn úr hópi
þriggja umsækjenda, sem leik-
hússtjóri hjá Leikfélagi Akur-
eyrar.
Oddur er Akureyringur að
uppruna, sonur séra Bjöms O.
Bjömssonar,
Glampandi veður
og mikið heyjað
Sauðárkróki 31. júlf. Nokkrir
bændur eru að ljúka fyrri slætti,
enda góðir þurrkdagar þeir síð-
ustu, þrátt fyrir lítilsháttar skúrir og
í dag er glampandi veður. Hey-
skapur er þó mjög á vegi í héraðinu
og stöku bændur rétt að byrja hey-
skapinn. Spretta er að verða sæmi-
leg, en var seint á ferðinni
Upp úr miðjum júlí mátti reka
stóð á afrétt. Þá þegar ráku bændur
stóð á Staðarafrétt og voru þá
margir hópar á ferðinni á leiö til
sumarhaganna. Stærsti reksturinn
mun hafa verið úr Hegranesi.
Togararnir hafa aflað mjög vel
undanfarið og unnið dag og nótt
báðum frystihúsunum. Þess má
geta, að hásetahluturinn eftir tvo
túra á einum togaranum okkar
nálgaðist milljón, og var það á
Drangey.
Um síðustu helgi var ákaflega
heitt veður og allir í önnum, svo
sem að líkum lætur á hábjargræð-
istímanum. G.Ó.
Góðaksturs-
keppni
bindindis-
manna
Félagar í Bindindisfélögum öku-
manna hafa lengi verið minna
áhyggjuefni tryggingarfélaga en
aðrir ökumenn. Víða um lönd, svo
sem í Skandinavíu, V-Þýskalandi
og víðar hefur þetta verið viður-
kennt í verki með lægri iðgjöldum
og meiri þjónustu hjá ýmsum þeim
viðskiptaaðilum, sem selja bif-
reiðaeigendum þjónustu sína, og er
vísir að þessu hér á landi. Þannig
eru iðgjöld kaskótrygginga hjá
Ábyrgð, tryggingarfélagi Bindind-
isfélags ökumanna nokkru lægra
en annars staðar.
Bindindisfélag ökumanna á Ak-
ureyri hafði góðaksturskeppni við
Lundarskóla 23. júlí. Átta karlar og
ein kona tóku þátt í keppninni, sem
er árleg og haldin á mörgum stöð-
um á landinu. En Stefán Jónatans-
Sigurvegararnir
son stjórnaði keppninni. Sigurveg-
arar urðu: Karl Magnússon, Daði
Hálfdánarson og Hjálmar Jóhann-
esson. Voru þeim afhent verðlaun
sín í kaffisamsæti á Hótel Varðborg
á laugardaginn, en hinir keppend-
urnir hlutu viðurkenningarskjal.
Stjórn Bindindisfélags Ökumanna
skipa: Jóhannes Hjálmarsson,
Stefán Snælaugsson, Björn Kristj-
ánsson og Sigurbjörn Sveinsson en
virkir félagar eru 53. Afhenti Jó-
hannes Hjálmarsson verðlaunin og
stjórnaði hófinu.