Dagur - 02.08.1978, Blaðsíða 8
DAGUR
Akureyri, miðvikudagur 2. ágúst 1978
Pétur Antonsson, forstjóri Krossanessverksmiðjunnar:
Hreinsitæki eru ekki á döfinni
Kostnaður við slík tæki áætlaður hundruðir milljóna króna
„Það er ekki á döfinni að
setja upp hreinsitæki á
Krossanessverksmiðjuna“,
sagði Pétur Antonsson for-
stjóri verksmiðjunnar, þeg-
ar blaðið leitaði til hans.
Allir Akureyringar
kannast við reykinn sem
oft leggst yfir bæinn í
norðanátt. Reykurinn er
illþefjandi, og lyktin hef-
ur löngum verið nefnd
peningalykt. Það eru sér-
staklega íbúar Glerár-
þorps sem þurfa að búa
við þennan ósóma. Þar
líða oft heilu vikurnar
þannig að ekki er hægt
að opna glugga, vegna
þessa, hvað þá þurrka
þvott á snúrum. Eru því
mikil óþægindi af þess-
um sökum.
„Þetta mál hefur verið rætt í
verksmiðjustjórninni, og hreinsi-
tæki eru á óskalista. En því miður
er fjárþörfin mikið meiri á öðrum
sviðum, þannig að ekki er komið
að þessu ennþá.“
Ákvörðunarvaldið í þessu máli
er í höndum verksmiðjustjórnar-
innar, en formaður hennar er
Helgi Bergs, bæjarstjóri. Það
hlýtur að koma að því að þetta
mál verði gripið föstum tökum,
þvi íbúar hverfa sem verða fyrir
barðinu á þessu hljóta að eiga
sama rétt og aðrir á hreinu lofti.
En kostnaðurinn er mikill. „Það
liggur Ijóst fyrir, að hann skiptir
hundruðum milljóna króna",
sagði Pétur Antonsson, verk-
smiðjustjóri.
Fulltrúar Heilbrigðiseftirlits
ríkisins voru hér á ferðinni í vor
og skoðuðu þeir verksmiðjuna
Reykurinn frá Krossanessverksmiðjunni stígur upp, og leggur
yfir bæinn. Mynd: G.M.
Starfsleyf ið er útrunnið
Skilyrði til vinnslu óuppfyllt
„Krossanessverksmiðja
fékk skilyrt starfsleyfi 2.
janúar 1974 og þá var
gert skylt að leggja frá-
rennsli út fyrir stór-
straumsfjöruborð innan
eins árs. Við rákum auð-
vitað augun strax í það nú
í vor, f jórum árum seinna,
að það hafði ekkert gerst.
Frárennslið kemur bcint
út úr bakkanum þarna“,
sagði Hrafn Friðriksson
forstöðumaður Heil-
brigðiseftirlits ríkisins.
„Það var einnig skilyrði að þeir
höguðu vinnslu með tilliti til
vindáttar og aldurs hráefnis,
þannig að sem minnst mengun
yrði í nálægum íbúðarhúsum."
Nú er fyrirhuguð stækkun
verksmiðjunnar og báðum við
Hrafn að segja álit Heilbrigðis-
eftirlitsins á því.
„í starfsleyfinu .segir, að verði
umtalsverðar breytingar á verk-
smiðjurekstrinum, og/eða um-
hverfi verksmiðjunnar skal
rekstrarleyfi endurskoðað. Sama
gildir ef umræddar mengunar-
varnir reynast ófullnægjandi.
Vegna þess að þarna hafa farið
fram umtalsverðar breytingar er-
um við með þetta starfsleyfi í
endurskoðun. Eins vegna þess að
þeir hafa ekki framkvæmt nauð-
synlegar varnaraðgerðir, sem
voru skilyrði fyrir starfsleyfinu."
„Það sem fyrst og fremst angrar
menn er auðvitað lyktin, og hún
stafar af aragrúa efnasambanda
sem að illmögulegt er að henda
reiður á. Það sem er í reyknum
annað, er það sem kemur fram
við bruna á olíu, brennisteins-
sýrlingur og kolsýringur. Annars
Eyjólfur Sæmundsson deildar-
verkfræðingur Heilbrigðiseftirlits
ríkisins hefur kynnt sér þessi mál
á Norðurlöndunum og gaf hann
Heilbrigðiseftirlitinu skýrslu um
helstu varnaraðgerðir sem að
gagni mættu koma.
í fyrsta lagi kemur til álita að
taka upp þvott á útblástursloftinu
í svonefndum efnahreinsiturnum.
í öðru lagi er hægt að brenna
útblástursloftið með svokallaðri
Hetland aðferð.
í þriðja lagi að breyta um
framleiðsluhætti og taka upp
Starfsleyfi verksmiðjunnar
hefur því runnið út einu ári eftir
að það var gefið út, því aðeins var
veittur eins árs frestur til að koma
frárennslinu út fyrir stórstraums-
fjöruborð.
vitum við alltof lítið um þessi
efni, en við teljum þó að í reykn-
um sé nýtrosamín, þó við vitum
ekki í hve miklu magni það er.
Nýtrósamín er þekkt af því að
vera krabbameinsframkallandi í
dýrum,“ sagði Hrafn Friðriksson.
gufuþurrkun, samfara brennslu
lyktarefna undir gufukötlum eða
eyðingu þeirra í efnahreinsiturn-
um.
Langflestar loðnu- og fiski-
mjölsbræðslur á Islandi eru -með
olíuþurrkun, sem eykur skaðsemi
mengunarinnar.
„Fyrst þegar við vorum að gefa
út starfsleyfin, var álitið að
hækkun reykháfa væri lausn.
Síðan hefur komið í ljós að það er
engin algild lausn á vandanum,"
sagði Hrafn Friðriksson for-
stöðumaður Heilbrigðiseftirlits-
ins.
Er reykurinn skaðlegur
Hvað er til varnar?
ásamt heilbrigðisnefnd Akureyr-
ar. Jóhannes Sigvaldason, for-
maður nefndarinnar, sagði að
það væri „ekki hægt að tryggja
þetta algjörlega reyklaust, nema
flytja verksmiðjuna“.
Fyrirhugað er að stækka
Krossanessverksmiðjuna og
verður þá brætt á hverjum degi
yfir sumartímann. „Við ræddum
þetta við verksmiðjustjómina“,
sagði Jóhannes, „og sögðum
henni að þetta væri afskaplega
óþægilegt fyrir bæjarbúa.“
0 Jákvæðar
njósnir
Fyrir skömmu hófst, í útvarp-
inu, þáttur er ber nafnið Fjöl-
þing. Markmið þáttarins er að
stuðla að bættri umferðar-
menningu og eiga ökumenn
að skrá þá bíla sem, að þeirra
dómi, hafa sýnt sérstaka til-
litssemi í umferðínni. Öku-
menn eru beðnir um að skrifa
á blað skrásetningarnúmer
viðkomandi ökutækis og ör-
stutta lýsingu á hvað öku-
maðurinn gerði jákvætt. Síð-
an á að senda bréfið til þátt-
arins og í haust fær sá öku-
maður viðurkenningu, sem
flestar ábendingar sendir
Ennfremur fær sá ökumaður
sem oftast er tilnefndur og
fær flest stíg eftir sumarið,
sæmdarheitið „ökumaður
ársins 1978“. Utanáskriftin
er: Þátturinn Fjölþing, Ríkis-
útvarpinu, Skúlagötu 4, 101
Reykjavík.
0 Stefnt í
rétta átt
Áfengis- og tóbaksverslun
ríkisins, ÁTVR, seldi alls um
444 tonn af tóbaki árið 1977.
Var það um 33.7 tonnum eða
7% minna en árið áður. Tó-
bakssalan 1977 nam um 2 kg
á hvern íslending. Miðað við
þyngd eru sígarettur rúmlega
75% af sölunni, reyktóbak um
11.4%, vindlar um 10%, nef-
tóbak rúmlega 3.5% og
munntóbak aðeins um
0.03%. Sést af þessu að
mestailt tóbakið er reykt,
einungis tuttugasti og áttundi
hlutinn er neftóbak og munn-
tóbak.
Áberandi er hve hluti nef-
tóbaks í heildarsölu hefur
farið jafnt og þétt minnkandi
hér á landi. Það var til dæmis
fuliur áttundi hluti tóbakssöl-
unnar árið 1960 svo að ekki
sé farið iengra aftur í tímann.
Þessi hnignun á vinsældum
neftóbaksins er gott dæmi
um hve tískan skiptir miklu
máli. Þeir sem berjast gegn
reykingum telja að með sam-
stilltu átaki megi fljótlega
kveða niður reykingatískuna
og þá verði ekki langt að bíða
að draumurinn um reyklaust
land verðí að veruleika.
% 336,7 milljónir
samvinnu-
manna
í yfirlití frá Alþjóðasamvinnu-
sambandinu kemur m.a.
fram, að nú eru taldir
336.667.519 féiagsmenn f
samvinnufélögum innan
þess. Þar af eru 156 milljónir í
Evrópu, 112 milljónir í Asíu,
62 milljónir í Ameríku, 3
milijónir í Afríku og 3 milljónir
Ástralíu. Samvinnufélög eru
rúmlega 667 þúsund, og eru
samvinnusparisjóðir flestir,
240 þúsund, landbúnaðar-
samvinnufélög koma næst í
röðinni, en þau eru 215 þús-
und, og færri eru neytenda-
samvinnufélög, bygginga-
samvinnufélög, framleiðsiu-
samvinnufélög og fiskveiða-
samvinnufélög.
Þessar ungu stúlkur héldu hlutaveltu og gáfu ágóðann tll Elllhelmilis
Akureyrar. Þær heita (f. v.) Bergþóra Njálsdóttir, Ásta Birglsdóttir og Ingi-
björg Lóa Birgisdóttir.