Dagur - 02.08.1978, Blaðsíða 6
Frá lögreglu
Hinn 24. júlí varð bif-
reiðaárekstur nálægt
efstu Glerárbrúnni.
Tvær konur slösuðust og
bílamir skemmdust
mikið. Á fösludags-
kvöldið varð þriggja bíla
árekstur á mótum Ham-
arstígs og Oddeyrargötu,
án slysa á fólki. Einn
bíllinn skemmdist mik-
ið. Sama kvöld valt bíll
hjá Dvergsstöðum í
Hrafnagilshreppi, en
ekki urðu teljandi
meiðsli. Og enn gerðist
það um miðnætti sama
kvöld að bíl var ekið á
brúarstólpa Eyjafjarðar-
árbrúar og ónýttist hann
en ökumaður, sem var
einn í bílnum, slapp lítið
meiddur. Fjórir öku-
menn voru teknir um
helgina, grunaðir um
ölvun við akstur. Ölvun
var með meira móti og
voru um 20 í fanga-
geymslum lögreglunnar
um helgina.
Þá er þess en að geta,
að maður einn slasaðist í
fallhlífarstökki um helg-
ina.
Banna veiði
í Mývatni
Rannsóknir Veiðimálastofnunar-
innar á Mývatni í sumar hafa sýnt
að mjög lítið er af tveggja og
þriggja vetra bleikju í vatninu, en
þessir árgangar verða veiðanlegir
sumrin 79 og 80. Nokkuð virðist
enn vera eftir af fjögurra og fimm
vetra fiski og þessi fiskur er nú
mjög vænn eða I - 1,5 kg. að þyngd.
Að fengnum þessum niðurstöðum
taldi fundur í Veiðifélagi Mývatns
að rétt væri að friða þennan fisk nú
þegar, þannig að það sem eftir væri
af honum gengi óhindrað á rið-
stöðvamar í haust. Samþykkt var
að stöðva allar veiðar í vatninu frá
og með 25. júlí, þó með þeim und-
antekningum að hver bóndi má
ieggja tvö net til heimilisnota einu
sinni í viku fyrir sínu landi. Fyrir-
komulag veiðanna í Mývatni s.l. 2
ár hefur verið þannig að ekki hefur
verið leyft að hafa fleiri en 160 net í
vatninu samtímis. Þar áður var
áætiað að oft hefur verið 700 - 1000
net í vatninu samtímis.
Vinna að
hefjast við vegi
fram Eyjaf jörð
„Ég þori nú ekkert að fullyrða um
ásigkomulag veganna í fram-Eyja-
firði nema fara um þá fyrst, sem ég
hef ekki gert nýlega", sagði Guð-
mundur Svavarsson hjá Vegagerð-
inni. „Ég er nú fljótur að heyra ef
eitthvað er að vegum, og ég hef
ekki heyrt að þeir séu verri en vant
er“.
Að sögn Guðmundar verður
hafin vinna við vegina í fram Eyja-
firði innan mánaðar. Tvær fjár-
veitingar eru í þessa vegi, annars
vegar eru 18 milljónir í Eyjafjarð-
arbraut vestri og verður aðallega
unnið við Samkomugerði. Hins
vegar er 12 milljóna króna fjárveit-
ing í Eyjafjarðarbraut eystri, og
verður unnið þar við veginn fram
að Laugalandi.
6.DAGUR
Bosch iðnaðarverk-
færin
eru að byrja að koma.
Loftverkfæri ýmsar gerðir.
Alternatorar 12 og 24 volt.
Spennustillar í allar gerðir bíla og báta.
Varahlutir og viðgerðir.
Norðurljós sf
Furuvöllum 13 Ak. sími 21669
Höfum fyrirliggjandi og getum útvegar
Ignis- kæliskápa, uppþvottavélar,
þurrkara og eldavélar
Einnig hin vinsælu Girmi tæki svo sem ryksugur kr.
51.800, grillofnar kr. 38.800, brauðristar kl. 8.500,
hrærivélar kr. 19.850, hraðsuðukatla kr. 11.500,
kaffivélar kr. 17.950. Einnig jógurt vélar, hárblás-
ara, krullujárn, hnífabrýni, pelahitara, straujárn og
margt fleira
Opið allan daginn
Raftækni, Geislagötu 1, sími 24223.
“Wor
Fjölbreytt hollustuefni fyrir
margháttaða
hrörnun Ifkamans
KYNNIÐ YKKUR BÆTIEFNIN
^Nftatvörudeild
Hafnarstræti 91
Tjaldhimnar
Tjalddýnur - svefnpokar
bakpokar og grill
Laxahjól - stengur og línur
Sjónaukar -
myndavélar og filmur
HAFNARSTR. 91-95
Brúðhjón. Laugardaginn 22. júlí
voru gefin saman í hjónaband
í Akureyrarkirkju brúðhjónin
ungfrú Katrín Hallgrímsdóttir
og Einar Sólansson bifvéla-
virkjanemi. Heimili þeirra er
að Rofabæ 27, Reykjavík.
Minjasafnið á Akureyri er opið
daglega frá kl. 1.30. - 5 e.h.
Tekið á móti ferðafólki á öðr-
um tímum eftir samkomulagi.
Sími safnsins er 24162 sími
safnvarðar er 24272.
Ferðaféiag Akureyrar. Verslun-
armannahelgin 5-7. ágúst.
Seljahjallagil-Heilagsdal-
ur-Fremrinámur. Gönguferð:
' Ólafsfjörður-Hvanndal-
ir-Héðinsfjörður. Brottför í
báðar ferðir frá Skipagötu kl.
9. Næsta ferð: Laugar-
fell-Laufrönd.
Frá Sjálfsbjörg Akureyri. Fél-
agar velunnarar. Munið áður
auglýsta skemmtiferð um
Kelduhverfi og Axarfjörð 5 og
6 ágúst. Gleymið ekki að
panta far fyrir 1. ágúst svo
hægt verði að fá bílkost í
ferðina. Fjölmennum. Nefnd-
in.
Laus skólastjóra-
staða
Staða skólastjóra við grunnskóla Svalbarðs-
strandar er laus til umsóknar. Skólahúsnæði er
nýlegt ásamt áfastri íbúð.
Vegalengd til Akureyrar aðeins 18 km.
Umsóknarfrestur er til 15. ágúst.
Nánari upplýsingar veita:
Fræðsiuskrifsstofan á Akureyri og formaður
skólanefndar Bjarni Hólmgrímsson Svalbarði sími
96-23964
Fornsalan Fagrahlíð,
Lönguhlíð 2, Glerárhverfi.
Tilkynnir:
Nýkomnar bækur úr einkabókasafni. Gott úrval.
Meira væntanlegt.
Afgreiðslustími: kl. 16 - 18. Sími (96) 23331.
Nýtt hefti norðlenska tímaritsins SÚLUR verður til
afgreiðslu og sölu eftir næstu helgi.
Jóhannes Óli Sæmundsson
.t
Innilegar þakkir sendum við ykkur öllum, sem sýndu okkur
samúð og hlýhug, við andlát
ÞÓREYJAR ÞORLEIFSDÓTTUR,
Eiðsvallagötu 9, Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Kristneshælis, fyrir góða umönn-
un.
Guð blessi ykkur öll.
Vandamenn.
Þökkum ynnilega auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall sona
okkar er fórust 17. júní s.l.
Alma Stefánsdóttir, Ægir Þorvaldsson
Guðrún Benediktsdóttir, Stefán Arnþórsson
Halla Jónsdóttir, Anton Angantýrsson
Hekla Tryggvadóttir, Jón Jónsson
Þökkum af alhug auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
ALBÍNU BERGSDÓTTUR,
fyrrum Ijósmóður, Dalvík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki að Elliheimilinu Skjaldar-
vík.
Guðmunda Gunnlaugsdóttir,
Marinó Friðjónsson,
Guðlaug Antonsdóttir,
Reimar Þorleifsson,
Hulda Dóra Friðjónsdóttir
og böm.