Dagur - 16.08.1978, Blaðsíða 3
Skýrsla um framtíðarrekstur Sauðárkróks
„Skýrsluna ætti
ekki að birta£<
— segir Þorsteinn Þorsteinson, bæjarstjóri
Brýnni framkvæmd slegið á frest á Husavík
Verbúðin ekki
fyrr en næsta ár
Frumteikning liggur fyrir
Nýja sjálfvirka símstöðin
Myndráþ.
Stækkun lokið í haust
„Við gerum ráó fyrir að stækkun
sjálfvirku stöðvarinnar verði lokið
í endaðan október. Hér er um að
ræða 1000 númera stækkun og
okkur telst til að rúmlega 400
manns bíði eftir sima svo ekki ætti
að vera neinn skortur á þeim í ná-
inni framtíð", sagði Gylfi Már
Jónsson, tæknifræðingur Lands-
símans á Akureyri.
Starfsmenn Landsímans
munu innan skamms hefja teng-
ingar hjá þeim sem eru á biðlista
hjá stofnuninni og sagði Gylfi að
ekki liði langur tími frá því að
stækkuninni yrði lokið og þar til
fólk gæti farið að notfæra sér
þjónustu Landsímans.
Tækjabúnaðurinn er fram-
leiddur í Svíþjóð, hjá hinu þekkta
fyrirtæki LM Ericsson. Að jafnaði
vinna 5 menn við að koma út-
búnaðinum fyrir í stöðinni og er
stækkunin beint framhald af 1000
númera stækkuninni í vetur, en
þá var gamla stöðin endanlega
lögð niður.
Framkvæmdir
á Hvammstanga
Töluverðar framkvæmdir hafa verið
við gatnagerð á Hvammstanga f
sumar. Verið er að endurbyggja
Norðurbraut og byggð hefur verið
ný brú á Ytri-Hvammsá, sem er rétt
utan þorpsins. Norðurbraut er um
700 metra löng og er skipt um allar
lagnir í henni. Þá er verið að vinna
að lagningu nýrrar götu, Hlíðar-
vegar, og er búið að sækja um sex
lóðir við hana.
Á vegum sveitarfélagsins er
áætlað að hefja byggingu fimm
leiguíbúða seinnihluta sumars,
einnig er verið að byggja búnings-
aðstöðu við væntanlega sundlaug.
Af öðrum byggingaframkvæmdum
er það að segja, að fimmtán íbúðir
eru í smíðum hjá einstaklingum.
Kaupfélag Vestur-Húnvetninga
er að byggja nýtt sláturhús á
Hvammstanga, og miklar endur-
bætur fara fram á Mjólkurstöðinni.
Opna Húsavíkurmótið
„Því miður hef ég ekki leyfi
til að upplýsa hvað stendur í
þessari skýrslu,“ sagði Þor-
steinn Þorsteinsson, bæjar-
stjóri á Sauðárkróki þegar
blaðið leitaði upplýsinga hjá
honum um skýrlsu, sem unn-
in var fyrir Sauðárkróksbæ af
Hagvangi í Reykjavík. Þor-
steinn Þorsteinsson var áður
starfsmaður Hagvangs og sá
um gerð þessarar skýrslu.
„Það á eftir að taka skýrsluna
fyrir á bæjarstjómarfundi, og í
henni er rætt um ýmis mál varð-
andi hagræðingu, verkskipulagn-
ingu og stjórnun þessa bæjar, sem
ég álít að eigi ekki að vera opinbert
mál.
Skýrslan fjallar aðallega um það
hvemig bókhaldi skuli hagað á sem
hagkvæmastan hátt, þannig að
upplýsingar fáist um reksturinn;
Fyrr á árinu var haldinn á Húsavík
undirbúningsstofnfundur vegna fél-
ags er átti að sjá um verbúðabygg-
ingu og stóðu þá vonir tii að hægt
yrði að hefja framkvæmdir í sumar
en lánastofnanir sjávarútvegsins
hafa neitað að lána nokkurt fjár-
magn á þessu ári. Frumteikning að
verbúðinni liggur fyrir og er áætluð
stærð hússins um 1000 fermetrar og
verður það á tveimur hæðum.
Margir útgerðarmenn á Húsavík
munu fá aðstöðu í húsinu þegar það
er risið, sunnan við hinn svonefnda
Suðurgarð, en fjöldinn allur er í
ófullkomnum og óhentugum ver-
búðum. Þar sem lán fást ekki í ár
hefur dregist að halda aðalstofn-
fund, en líklega verður um sam-
eignarfélag að ræða.
Að sögn Hauks Harðarsonar,
bæjarstjóra á Húsavík, byggði
Hafnarsjóður fyrir nokkrum árum
verbúð og á þeim tíma voru slíkar
byggingar styrktar af almannafé.
Með nýjum hafnarlögum eru ver-
búðir ekki lengur styrkhæfar fram-
kvæmdir. Gamla húsið er engan
veginn nægjanlega stórt og má
hvemig beri að haga innheimtu til
að ná sem bestum árangri o.s.frv.“
Skýrsla þessi var gerð í maí s.l. og
hefur eins og áður sagði enn ekki
verið gerð opinber. Blaðið bar það
undir Þorstein hvort honum fyndist
þetta ekki óeðlilega langur tími.
„Mitt álit er það, að svona
skýrslur eigi ekki að vera opinber
plögg, en í kringum kosningarnar
héma held ég að þessi skýrsla hafi
fengið meiri útbreiðslu en ég tel
heppilegt. Skýrslan hefur nú beðið
afgreiðslu vegna þess að við erum á
miðjum framkvæmdatíma, en ég
reikna með að við vinnum eftir
henni og þeim endurbótum sem
ráðlagðar eru í vetur að því leyti
sem þær verða samþykktar í bæj-
arstjórn. En ég lít svo á að það séu
önnur mál sem séu meira knýjandi
nú í augnablikinu, t.d. fjármögnun
framkvæmda," sagði Þorsteinn
Þorsteinsson, bæjarstjóri á Sauðár-
króki að lokum.
segja að útgerðarmönnum sé mis-
munað á Húsavík.
Þegar farið var að hyggja að
byggingu verbúðarinnar kom fljótt
í ljós að mikið ósamræmi myndi
verða á leigu í gamla og nýja hús-
næðinu og því ákváðu yfirvöld að
núverandi verbúð yrði lögð fram
sem hlutafé og leigan samræmd.
Einnig leggja útgerðarmenn fram
verulegt fjármagn. En það verða
ekki eingöngu einstaklingar sem
munu fá aðstöðu í húsinu, hafnar-
vörður fær þar aðsetur, Fiskiðju-
samlagið aðstöðu til ísframleiðslu,
starfsmenn hafnarinnar kaffistofu
og togaraútgerðin fær einnig inni.
„Það sem tafði stofnun félagsins
og framkvæmdir var það að Fisk-
veiðasjóður synjaði okkur um lán á
þessu ári og sögðust talsmenn
hinna sjóðanna haga sér eftir því“,
sagði Haukur Harðarson. „Lána-
stofnanir eru til í landinu sem eiga
að lána til framkvæmda eins og
þessarar, en svona verkefni virðast
koma á eftir lánum til bygginga
skipa og báta. Nú skildi maður ætla
að samræmi ætti að vera í þessum
málum, en það virðist ekki vera“.
Opna Húsavíkurmótið 1978 í
golfi var haldið dagana 29. - 30.
júlí á Katlavelli, velli Golfklúbbs
Húsavikur í fegursta veðri. Keppt
Karlar ún forgjafar:
Halldór Rafnsson GA 156 högg
Jón Halldórsson Gó 160 högg
Árni Jónsson GA 161 högg
Karlar með forgjöf
Axel Rcynisson GH 136 högg
Halldór Svanbergsson GA 137 högg
Pálmí Þorsteinsson GH 140 högg
Konur án forgjafar
Sigriður B. Ólafsdóttir GH 202 högg
Jónina PálsdóttirGA 217 högg
Amhciður Jónsdóttir GH 239 högg
var í þrem flokkum og var þátt-
taka góð, 48 keppendur. Úrslit
urðu sem hér segir.
Kcnur með forgjöf
Sigríður B. Ólafsdóttir GH 154 högg
Jónína Pálsdóttir GA 169 högg
Amheiður Jónsdóttir 191 högg
Unglingar án forgjafar
Jón Gunnarsson GA 154 högg
Baldur Svanbjörnsson GA 161 högg
Ágúst Magnússon GA 171 högg
Unglingar með forgjöf
Kristján Hjálmarsson GH 135 högg
Baldur Sveinsson GA 139 högg
Jón Gunnarsson GA 142 högg
Nýráðinn
sveitarstjóri
í Mývatnssveit
Jón E. Friðriksson hefur verið
ráðinn sveitarstjóri í Mývatns-
sveit. Jón er Mývetningur að
uppruna, en hefur unnið und-
anfarið sem skrifstofustjóri hjá
Sauðárkróksbæ. Hann tekur við
af Jóni Illugasyni sem nú lætur
af störfum.
Nýráðinn
bæjarstjóri
á Húsavík
Bæjarstjórn Húsavikur ákvað á
fundi sfnum, þann þriðja ágúst sl.,
að ráða Bjarna Aðalgeirsson,
sveitarstjóra á Þórshöfn, sem
bæjarstjóra á Húsavik næsta
kjörtimabil. Kemur Bjami til
starfa þann fyrsta september
næstkomandi. Bjarni Aðalgeirs-
son er fæddur á Húsavfk árið 1943
og em foreldrar hans þau Berg-
þóra Bjarnadóttir og Aðalgeir
Sigurgeirsson. Áður en Bjami hóf
störf sem sveitarstjóri á Þórshöfn
var hann kaupfélagsstjóri á sama
stað. Eiginkona Bjama er Þór-
halla Sigurðardóttir.
Leikfélag Akureyrar
Fjölbreytt verkefnaval næsta vetur ★
Stjóm Leikfélagsins hefur
sent frá sér fréttatilkynningu
sem fer í heild hér á eftir:
Leikhússtjóri hefur verið ráðinn
Oddur Bjömsson, leikritahöfund-
ur. Hann er stúdent frá MA og
lagði stund á leikhúsfræði í Vínar-
borg í tvö ár. Hann hefur starfað
við Þjóðleikhúsið um tíu ára skeið
og leikrit hans hafa verið sýnd þar
og víðar.
Leikhússtjómin leggur áherslu á
aukna fjölbreytni í verkefnavali og
sem besta nýtingu þeirra starfs-
krafta, sem leikhúsið hefur yfir að
ráða.
Fyrsta verkefni vetrarins verður
„Þess vegna skiljum við“ eftir
Guðmund Kamban. Þetta verkefni
var sýnt í Þjóðleikhúsinu 1952 og
þykir eitt af öndvegisverkum
skáldsins. Þetta leikrit hefur þá
sérstöðu meðal verka Kambans, að
þar er tekið á mannlegum vanda-
málum með léttleika og kímni.
Leikstjóri hefur verið ráðinn
Haukur J. Gunnarsson. Hann hef-
ur stundað nám m.a. í Englandi og
Japan og undanfarið unnið við
leikstjóm hjá ýmsum leikfélögum
úti á landi. En í vetur mun hann
setja á svið tvö leikrit við Trönder-
lag Teater í Þrándheimi. Auk þess
er hann ráðinn til að stjóma flutn-
ingi á leikriti eftir Jökul Jakobsson í
íslenska sjónvarpinu.
Annað verkefnið verður „Sjálf-
stætt fólk“ eftir Halldór Laxness, í
nýrri leikgerð Baldvins Halldórs-
sonar, sem mun einnig annast leik-
stjóm. Verkið var sýnt í Þjóðleik-
húsinu 1972, 60 sinnum fyrir fullu
húsi.
Um sama leyti hefjast æfingar á
barnaleikritinu, sem að þessu sinni
verður „Skugga-Sveinn' Matthías-
ar Jochumssonar, sem er leiksýning
fyrir unga sem aldna. Leikstjóri
hefur verið ráðinn Sigrún Bjöms-
dóttir.
I jánúar hefjast æfingar á leikrit-
inu „Stalin er ekki hér“ eftir Vé-
stein Lúðviksson. Það var sýnt í
Þjóðleikhúsinu á síðasta leikári við
mjög góða aðsókn og vakti mikla
athygli og umræður. Enn hefur
ekki verið ákveðið með leikstjórn.
Vorverkefni félagsins verður
söngleikur, sem sýndur hefur verið
víða um heim undanfarin ár við
mikla hrifningu. Efni söngleiksins
er sótt í sígilda sögu Cervantes um
Don quixote. Undirbúningur að
sýningunni er þegar hafinn. Leik-
stjóri verður Haukur J. Gunnars-
son, en leikmynd gerir Alister
Powel, sem að undanfömu hefur
starfað í Þrándheimi. Hann mun
einnig gera leikmynd að jólaverk-
efni Þjóðleikhússins.
Leikhússtjómin hefur ráðið eft-
irtalda 6 leikara á A-samning: Að-
alstein Bergdal, Gest E. Jónasson,
Sigurveigu Jónsdóttur, Svanhildi
Jóhannesdóttur, Viðar Eggertsson
og Þráinn Karlsson. Einnig verða
ráðnir tveir leikarar á B-samning,
auk tveggja tæknimanna, en frá
þeim samningum hefur ekki verið
gengið.
Stjómin hefur ákveðið að gang-
ast fyrir leiklistarnámskeiði á kom-
andi vetri, jafnt fyrir byrjendur og
þá, sem áður hafa sótt slík nám-
skeið.
I aðalstjórn LA eru: Guðmundur
Magnússon, formaður, Þórey Að-
alsteinsdóttir, ritari og Heimir
Ingimarsson, gjaldkeri.
DAGUR.3