Dagur - 09.11.1978, Blaðsíða 6

Dagur - 09.11.1978, Blaðsíða 6
Héraðs- fundur (Framhald af bls. 4). okkar síra Pétri: „Héraðsfundur Eyjafjarðar prófastsdæmis haldinn að Árskógi 22. okt. 1978 minnir á þá hörmulegu staðreynd, að víða í heiminum eru menn fangelsaðir og pyntaðir fyrir skoðanir sínar. Fundurinn þakkar alþjóðahreyf- ingunni Amnesty International fyrir að vekja athygli á þessu böli og vinna gegn því. Fundurinn telur það vera frum- skyldu hvers þjóðfélags, að trú og skoðanafrelsi sé í heiðri haft og telur það brýnt erindi kristinnar kirkju að vinna að því að svo megi verða.“ Tillagan var samþykkt sam- hljóða atkvæðum. - Þá flutti síra Bjartmar Kristjáns- son á Laugalandi snjallt erindi um helgihaid. Síðan sleit prófastur fundi og þakkaði fundargestum komuna og óskaði þeim góðrar heimferðar og heimkomu. - (Fréttatilkynning) Konan mín JÓRUNN PÁLSDÓTTIR frá Ósi andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 6. nóvember s;l. Jarðsett verður að Möðruvöllum í Hörgárdal miðvikudaginn 15. nóvember kl. 13.30. Blóm og kransar afbeðið, en þeim sem vilja minnast hennar, er bent á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Einar Guttormsson Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför KRISTJÖNU GUÐLAUGSDÓTTUR Sérstaklega þökkum við læknum og starfsfólki Kristneshælis fyrir góða umönnun í veikindum hennar. Helga Jóhannesdóttir Sigtryggur Sveinbjörnsson Eiður Guðlaugsson Alúðar þakkir sendum við öllum þeim er auðsýndu okkur vináttu og samúð við andlát og jarðarför RÓSU THORARENSEN, Skarðshlíð 36a, Akureyri. Sævar Gunnarsson, Ingibjörg Eiríksdóttir, Þorgerður Sævarsdóttir, Hallfríður Sigurðardóttir, Hafliði Guðmundsson, Jón R. Thorarensen. Skógræktarfélag Tjamargeróis heldur afmælisfund sinn sunnudaginn 12. nóvember kl. 2 e. h. að Þingvallastræti 14, Mætið vel Stjórnin. Sálarrannsóknarfélag Akureyr- ar. Fundur miðvikudaginn 15. nóv að hótel Varðborg kl. 20.30 Fundarefni: Úlfur Ragnarsson læknir talar Stjórnin. Frá Sjálfsbjörg munið köku- basarinn í Laxagötu 5, sunnudaginn 12. nóvember kl. 15. Nefndin. Góðir bæjarbúar. Kvenfélagið Framtíðin þakkar öllum þeim er veittu félaginu stuðning í sambandi við fjáröflun okkar á flóamark- aðnum 2-4. nóv. Nýkomið Buxur m/föllum telpukápur stæröir 4-12 ára margar geröir Peysur nýjar gerðir Versl. Ásbyrgi o O hvetur alla landsmenn til að afla sér aukinna upplýsinga um störf minmr um Skipulag samvinnufélaganna felur i sér Kut8 ndvölluð á lýðræði og jafnrétti ;in reka viðskipti og þjónustu á ‘'íi1ss^ 1—ja áherslu á vörugæði og viðskiptagæði, þ.e. góðar vörur fyrir réttlát verð eru vettvangur fyrir samstarf framleiðenda og im aðilum til hagsbóta eru tæki fólksins til byggðaþróunar og byggðajafnvægis )gin leggja áherslu á eflingu álíslensks atvinnulífs Samvinnufélögin efla félagsþroska og um og reisn þjóðarinnar . ■■ . ,■■,:. ©

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.