Dagur - 23.11.1978, Page 8
DAGUR
Akureyri, fimmtudagur 23. nóvember 1978
RAFGEYMÁR
í BÍLINN, BÁTINN, VINNUVÉLINA
VEUIÐ RÉTT
MERKI
Leikhúslíf á Sauðárkróki
ELTU MIG FELAGI
Fyrsta verkefni Leikfélags Sauðárkróks í vetur
Sauðárkróki 21. nóvember.
Leikfélag Sauðárkróks sýnir um
þessar mundir sjónleikinn Eltu
mig féiagi og hóf með þessum
gamanleik vetrarstarfsemi sina.
Frumsýningin var í Félagsheim-
ilinu Bifröst á sunnudaginn.
Leikstjóri er Haukur Þorsteins-
son en leiktjöld gerði Jónas Þór
Pálsson. Leikendur eru: Sigríð-
ur Hauksdóttir, Ólafur Jó-
hannsson, Hafsteinn Hannes-
son, Elsa Jónsdóttir, Hilmir Jó-
hannesson, Guðni Friðriksson,
Jón Ormar Ormsson, Frosti
Frostason, Jóhanna Björns-
dóttir og Haukur Þorsteinsson.
Leikstjóranum hefur tekist að
skila þessu verki vel æfðu. Ná leik-
ararnir miklum góðum hraða á
sýningunni, svo atburðarásin verð-
ur hröð og spennandi, enda
skemmtu sýningargestir sér vel
Þekkir
þorsk-
urinn
ekki
síld-
ina?
„Aflabrögð togara sem
gerðir eru út frá Siglufirði
hafa verið treg að undan-
fömu. Þeir hafa verið með
þetta frá 70 upp í 90 tonn.
Sigluvíkin kom inn s.l.
mánudag og landaði þá 90
tonnum. Sævík hefur verið á
línuveiðum að undanförnu og
hefur hún fiskað ágætlega,
þegar gefið hefur og beitt
hefur verið loðnu. Beitan
virðist vera mikið atriði, því
þegar báturinn hefur róið
með síld hefur aflinn dottið
niður. Kannski þekkir þorsk-
urinn ekki lengur síldina“.
Þetta var svar Sveins Björns-
sonar, verkstjóra hjá Þormóði
Ramma á Siglufirði, þegar
Dagur spurði hann um afla-
brögð báta fra Siglufirði.
Sveinn sagði einnig að stærri
bátamir væru byrjaðir á netum.
Andstætt því sem var í fyrra
hafa bátarnir fengið lítinn afla
til þessa.
„Dagný á að fara á veiðar
eftir að hafa legið við bryggju
síðan í haust. Hún á að fara að
veita fyrir Þórshafnarbúa og
væntanlega verður greitt fyrir
aflann í austfirskum gjaldeyri.
Sigurey er í þriðja túrnum.
Fyrst komu upp örðugleikar í
sambandi við frysti- og kæli-
kerfi, en ég held að þeir séu
komnir yfir það. Stálvík var í
klössun úti í Hollandi og er
núna í sínum fyrsta túr.“
minnugir þess, að hláturinn lengir
lífið.
Leikfélag Sauðárkróks mun
einnig sýna gamanleik þennan á
Hofsósi, og í Varmahlíð. Það hefur
einnig í hyggju, að fara með leikinn
til Blönduóss og Hvammstanga,
jafnvel til Siglufjarðar, ef færi og
veður leyfa. Formaður Leikfélags
Sauðárkróks er Guðni Friðriksson.
Aðrir í stjóm eru, Helga Hannes-
dóttir, Elsa Jónsdóttir, Hafsteinn
Hannesson og Jón Ormar Jónsson.
G.Ó.
Hvað cgerir
hitaveitan á
næsta ári?
Ákveðið hefur verið að fresta
tólfta áfanga hitaveitufram-
kvæmda á Akureyri, en það er
iðnaðarhverfið vestan Hörgár-
brautar. Áætlað er að ráðast í
eftirfarandi dreifikerfisáfanga á
næsta ári:
Áfangi 7. Iðnaðarhverfið nyrst á
Oddeyri. Þessum áfanga var frestað
í ár. Kostnaður er áætlaður 190
mkr. og tengigjöld 80 mkr. Dreifi-
kerfið í þessum áfanga verður tvö-
falt.
Áfangi 12. Iðnaðarhverfi vestan
Hörgárbrautar. Þessum áfanga var
einnig frestað í ár. Kostnaður er
áætlaður 100 mkr. en tengigjöld 30
mkr.
Áfangi 13. Glerárhverfi austan
Hörgárbrautar, þetta er blandað
hverfi þ.e. íbúðarhús nyrst en iðn-
aðarhverfi að sunnan. Áætlaður
kostnaður er 200 mkr. en tengigjöld
60 mkr.
Áfangi 14. Iðnaðarhverfi austan
Hjalteyrargötu. Dreifikerfið yrði
tvöfalt að hluta. Kostnaður er
áætlaður 110 mkr. og tengigjöld 40
mkr.
Áfangi 15. íbúðarhverfi norðan
Eiðsvallagötu. Áætlaður kostnaður
210 mkr. og tengigjöld 85 mkr.
Áfangi 16. Miðbær og íbúðar-
hverfi sunnan Eiðsvallagötu.
Kostnaður er áætlaður 230 mkr. og
tengigjöld 100 mkr. Nú er unnið að
deiliskipulagi fyrir miðbæ Akur-
eyrar. Ljóst er af þeim drögum, sem
þegar liggja fyrir, að uppi eru hug-
myndir um miklar breytingar á
miðbænum. Ekki er ljóst á þessu
stigi hvort nýtt skipulag verði sam-
þykkt fyrir næsta sumar, en ef ekki,
yrði lagningu dreifikerfis um mið-
bæ frestað. Ef skipulagið yrði hins
vegar samþykkt tímanlega, væri
eðlilegt að hraða gerð dreifikerfis í
miðbænum.
Áfangi II. Öngulstaðahreppur,
þ.e. bæirnir frá Þverá að Arnarhóli.
Áætlaður kostnaður er 100 mkr. og
tengigjöld 15 mkr. Gerður hefur
verið samingur milli Akureyrar-
bæjar og Öngulstaðahrepps um að
Hitaveita Akureyrarbæjar og Öng-
ulstaðahrepps um að Hitaveita
Akureyrar geri, eigi og reki hita-
veitu í hluta hreppsins. Fyrst um
sinn hefur verið samið um svæðið
frá Stór-Hamri að Arnarhóli en
það er sá hluti sem kostnaðarlega
kemur til greina.
Nú í haust er verið að gera
dreifikerfi frá Syðra-Laugalandi að
(Framhald á bls. 7).
Akureyri
að verða
sjoppubær
Okkar ágæta bæjarstjórn
hefur veitt hverjum þeim leyfi
til kvöldsölu er hafa vill, nú að
undanförnu. Vonandi verður
Akureyri þó ekki uppnefndur
sjoppubær, enda mál að Hnni
leyfisveitingum. Þegar eru 15
kvöldsölur í bænum, auk
þeirra matvöruverslana, sem
selja fram eftir kvöldum og
um helgar.
Bæjarstjórn hefur nú sam-
þykkt að ekki verði leyfð fleiri
nætursöluleyfi að sinni.
# Hvaðgerist
1,
Samkvæmt samningum á al-
mennt kaupgjald í landinu að
hækka um 14,13% hinn 1.
desember næstkomandi.
Stjórnvöld standa frammi fyr-
ir því, að með þeirri hækkun,
ef tif framkvæmda kæmi, yrði
enn einu verðbólguflóðinu
hleypt af stað. Allír stjórn-
málaflokkar á Alþingi og
málgögn þeirra gera sér þetta
Ijóst og bæði Alþýðuflokkur
og Alþýðubandalag, sem nú
eru ábyrgir stjórnarflokkar i
ríkisstjórn Ólafs Jóhannes-
sonar, reifa þá leið, að aðeins
helmingur kauphækkananna
komi til belnnar greiðslu, en
hliðarráðstafanir mæti kaup-
hækkunum að hálfu.
# Það þurfti
kjark til að
afhjúpa sig
Verði niðurstaðan sú að
samkomulag stjórnarflokk-
anna og vinnumarkaðarins
náist um kaupgjaldsmálin
fyrir desemberbyrjun, standa
launþegar í likum sporum og
eftir febrúarlög fyrrverandi
ríkisstjórnar og bráðabirgða-
lögin fyrir alþingiskosning-
arnar f vor bæði lögin um
kaupgjald og verðlag. Bæði
Alþýðubandalag og Alþýðu-
flokkur mótmæltu kröftug-
lega þessum lögum, nefndu
kaupránslög og Verka-
mannasambandið hóf út af
þeim langvínnan skæruhern-
að. Á þessu máli unnu
nefndlr flokkar sinn stórsigur
í kosningunum sl. vor. Má
vissulega fagna hinni nýju og
ábyrgu afstöðu þeirra nú, og
einnfg því, að þeir afhjúpa nú
sjálfir blekkingar sínar frá
fyrri helmingi ársins og til
þess þurfti nokkurn kjark.
# Góðar
kartöflur
Fáir borða kjöt eða fisk án
þess að kartöflur séu einnig á
borðum og deiia menn
stundum um það, hvort eigi
heldur að borða kartöflur
með fiski og kjöti eða kjöt og
fisk með kartöflum. En hvað
um það, kartöflurnar spruttu
vel í ár, þar sem vel var um
þær hugsað og þær eru venju
fremur góðar vegna lítillar
úrkomu,
Fyrstu kartöflurnar hér á
landi ræktaði prestur að nafni
Björn Halldórsson í Sauð-
lauksdal og fékk hann fyrstu
uppskeruna og jafnframt þá
fyrstu hér á landi haustið
1760. Þær eru nú á hvers
manns díski, en aðeins fá ár
hafa islendingar verið sjálf-
um sér nógir hvað þessa vöru
snertfr.
Grenivík
Heitara neðar?
Grenivík 21. nóvember. Fyrir um það bil hálfum mánuðu
fengum við jarðbor og er verið að bora eftir heitu vatni í landi
Grýtubakka, upp af gamalli sundlaug, sem þar er. Fljótlega
runnu þar upp 20 Iitrar af 30 stiga heitu vatni.
land. En fram að þessu hefur þó
verið talsverð vinna í frystihús-
inu, við að vinna upp þann fisk
sem til var.
Hér gengur allt sinn vanagang
og mannlífið er rólegt og gott.
ínflúensa hefur stungið sér niður
á nokkrum stöðum, en hefur ekki
haft slæm eftirköst svo vitað sé.
P.A.
Vonumst við nú til að fá heitara
vatn á meira dýpi, en bor þessi
getur borað 600 metra djúpar
holur. Þessi árangur er örvandi
þótt engu sé spáð um framhaldið,
og kannski er heitara neðar.
Hér hafa vegir ekki spillst til
þessa og var gott færi til Akur-
eyrar i morgun. Hins vegar gefur
ekki á sjó og berst enginn afli á
Líf og fjör í leikhúsi bæjarins
„Það er líf og fjör í leikhúsinu á
Akureyri. Fyrsta verkefni er
lokið, fyrst æfingum og svo sýn-
ingum á leikriti Kambans og
gekk það sæmilega vel,“ sagði
Þórey Aðalsteinsdóttir, leik-
kona, blaðinu, fyrir helgina.
Nú er Skugga Sveinn í fullri æf-
ingu. Dalvíkingurinn Theodór
Júlíusson fer með aðalhlutverkið
að þessu sinni en leikstjóri er Sig-
rún Björnsdóttir. Skugga Sveinn
verður frumsýndur um jólin og við
teljum hann fjölskylduleikrit, en
sérstakt barnaleikrit er ekki á dag-
skrá hjá okkur.
Þá er væntanlegur hingað Sig-
mundur Örn Eiríksson, sem leik-
stýrir „Stalín er ekki hér,“ sem
verður næsta verkefni LA. Þá er
þess að geta, sagði Þórey ennfrem-
ur, að Baldvin Halldórsson er að
koma hingað norður til skrafs og
ráðagerða um hlutverkaskiptingu í
Sjálfstæðu fólki eftir Laxnes, sem
hann leikstýrir síðar á vetrinum. í
ráði er einnig viðamikill söngleik-
ur.