Dagur - 30.11.1978, Qupperneq 1
I MIKLU
ÚRVALI
GULLSMiÐIR
, SIGTRYGGUR & PÉTUR
1 AKUREYRI
DAGXJR
LXI. árg.
Akureyri, fimmtudagur 30. nóvember 1978
75. tölublað
Baggaböndin
Rosknir menn í Skjald-
arvík bregða gjarðir og
fleira, sem hestamenn
nota oft en vantar
stundum. Baggaböndin,
sem til falla á vetrum og
er að mestu fleygt á
bæjum, væru vel þegin í
Skjaldarvík. Árni
Haraldsson í Böggla-
geymslu KEA á Akur-
eyri veitir baggaböndum
móttöku, ef bændur
vildu koma þeim þangað
og hann mun síðan
komá þeim í réttar
hendur.
Norðmenn voru
í ,,bindindi“
Norðmenn voru margar
vikur í einskonar bind-
indi vegna verkfalls
starfsmanna áfengis-
verslunarinnar þar í
landi. Sala áfengis jókst
mjög í “Svíþjóð á sama
tíma vegna kaupa Norð-
manna þar, en áfengis-
neyslan í Noregi var þó
mjög lítil, miðað við
venju, þennan tíma.
Áhrifin létu ekki á sér
standa: Slysum fækkaði,
færri leituðu til afvötn-
unarstöðva, handtökum
ölvaðra fækkaði og af-
brot urðu færri. Verk-
falli starfsmanna áfeng-
isverslana er nýlega lok-
ið.
•K*
Fullveldis-
tónleikar
Tónlistarskólinn á Ak-
ureyri efnir til fullveld-
istónleika í sal skólans,
sunnudaginn 3. des. kl.
17. Flutt verða verk eftir
íslenska höfunda, söng-
lög eftir ýmis tónskáld,
fiðlusónata eftir Jón
Nordal, ísl. þjóðlög fyrir
píanó og sessó eftir Haf-
liða Hallgrímsson og
kvartett og píanóstykki
eftir Leif Þórarinsson.
Flytjendur eru Kennar-
ar og nemendur Tónlist-
arskólans. Aðgangur er
ókeypis. Jafnframt verða
laugardagstónleikar kl.
13 að venju, en þeir eru
einnig ókeypis og
haldnir vikulega. Rétt er
að benda fólki á ágæta
fyrirlestra Leifs Þórar-
inssonar um kvartetta
Beethovens, en þeir eru
á þriðjudögum kl. 20.30.
(Fréttatilkynning)
"■
y-.. A'i
SJálfvirka símstöðiná
Akureyri stækkuðum
10OO númer á moraun
Á morgun, föstudag, verður tek-
in í notkun 1000 nr. stækkun
sjálfvirku símstöðvarinnar á
Akureyri. Um leið verður hægt
að afgreiða þá sem eiga pantaða
síma og má gera ráð fyrir að það
verði hægt næstu eitt og hálft til
tvö ár án frekari stækkunar. Nú
er að verða um eins og hálfs árs
bið frá því að númeralaust varð
og liggja fyrir um 450 pantanir
og 30 millistöðva flutningar sem
ekki hefur verið hægt að af-
greiða fyrr en nú. Ekki er lokið
við uppsetningu sima á öllum
þessum pöntunum en unnið er
að því að fullum krafti, helstu
erfiðleikar eru línuleysi í eldri
hverfum bæjarins og að fólk er
ekki heima.
Með þessari stækkun er lokið
mikilli breytingu í sjálfvirku sím-
stöðinni á Akureyri þar sem 1.
áfangi var útskipting sjálfvirku
langlínumiðstöðvarinnar.
2. áfangi var útskipting á 1000 nr.
i stað eldri gerðar sjálfvirku sím-
stöðvarinnar hér á Akureyri
3. áfangi var síðan 1000 nr.
stækkun þannig að með því er
símstöðin orðin 5000 nr.stöð. Þrátt
fyrir þessa stækkun eru fyrirsjáan-
legir erfiðleikar á því að hægt verði
að afgreiða síma í ný hverfi á næsta
ári vegna vöntunar á stofnlínum frá
símstöð þar sem ekki liggur fyrir
samþykkt á lagningu þeirra vegna
fjárskorts.
Kísiliðjan í Mývatnssveit
DæSingu lokið
Framleiðslan hefur sjaldan gengið betur
Fyrir skömmu hættu starfsmenn Kísiliðjunnar í Mývatnssveit að
dæla kísilgúr úr Mývatni. Á þessu ári hafa fengist u.þ.b. 60 þúsund
tonn af kísilgúr úr vatninu og á það magn að endast verksmiðjunni
til vors. Nú standa yfir athuganir hvernig draga megi úr rykmengun í
verksmiðjunni og vonast er til að mengun af þessu tagi verði úr
sögunni innan tíðar. Þess má geta að athuganir á ryki í Kísilverk-
smiðjunni voru gerðar í fyrsta sinn s.l. sumar.
í sumar var dælt í þró nálægt
verksmiðjunni, en um % hlutar
kísilgúrsins fóru í nýja þró sem er
utan sprungusvæðisins. Sú þró var
byggð í sumar. Fyrstu máuði ársins
var ein af gömlu þrónum notuð, en
hún bilaði hvað eftir annað og olli
það verulegum erfiðleikum.
„Við áttum í örðugleikum fyrsíu
fjóra mánuði ársins, en það voru
afleiðingar sandmengunar sem
stafaði af viðgerðum á þrónum,"
sagði Vésteinn Guðmundsson.
framkvæmdastjóri Kísilverksmiðj-
unnar. „Eftir að við fengunt nýtt
hráefni í vor hefur þetta gengið
ágætlegá. Gert er ráð fyrir að verk-
smiðjan framleiði 21 þúsund tonn á
þessu ári. Miðað við framleiðslutap
fyrstu fjóra mánuðina er þetta
meiri framleiðsla en undanfarin ár.
Mest höfum við framleitt árið 1974,
en þá komst framleiðslan í tæp 25
þúsund tonn. Á undanförnum ár-
um hefur salan ekki alltaf haldist í
hendur við framleiðsluna, en núna
gerir hún það.“
Rauðsokkahatíð
á Akureyri
Rauðsokka hátíð verður haldin
á Akureyri n.k. laugardag, 2.
desember. Munu rauðsokkar
flytja þar aðalþætti dagskrár
hátíðarinnar „Frá morgni til
kvölds,“ sem nýlega var haldin í
Reykjavík við mikla aðsókn og
frábærar undirtektir.
Hátíðin verður 1 Sjálfstæðishús-
inu og hefst kl. 2 eh. með flutningi
samfelldrar dagskrár, „ Tal og tónar
um samskipti karls og konu. “ Síðan
verður skipt upp í umræðuhópa um
ákveðna þætti jafnréttismála og
getur fólk þá fengið sér kaffi um
leið ef það kýs. Umræður standa í
uþb. klukkutíma, en að þeim lokn-
um lesa nokkrar konur úr eigin
verkum og vísnasöngvarar flytja
ljós og lög.
Þrettán rauðsokkur úr Rvík af
báðum kynjum koma norður yfir
heiðar af þessu tilefni, en áhuga-
fólk um jafnréttismál á Akureyri
undirbýr umræðurnar og sér um
móttökur. Meðal þeirra sem þarna
koma fram eru Auður Haralds-
dóttir, Norma Samúelsdóttir og
Ingibjörg Haraldsdóttir, sem lesa
úr eigin verkum og Silja Aðal-
steinsdóttir les frásagnir Rögnu
Steinunnar Eyjólfsdóttur verka-
konu í Vestmannaeyjum. Þau sem
Eftir helgina hlýnaði skyndilega í veðri og afleiðingarnar létu ckk á sér standa.
Götur Akureyrar flóðu í vatni og snjóruðningstæki af ýmsum gerðum og stærðum
höfðu næg verkefni. Mynd: á.þ.
RÆKJUVEIÐAR í ÖX-
ARFIRÐI STÖÐVAÐAR
Á mánudag og þriðjudag fór Hilmar J. Hauksson, fiskifræðingur og
starfsmaður útibús Hafrannsóknastofnunarinnar á Húsavík með Ásgeir
ÞH á rækjumiðin í Öxarfirði og taldi fjölda seiða í afla rækjubátanna.
Reyndist hann vera of mikill og var ákveðið í gærmorgun að stöðva veið-
arnar- (Framhald á bls. 7).
syngja og spila eru Stella Hauks-
dóttir, Vestmannaeyjum, Kristín Á.
Ólafsdóttir, Akureyri og Hjördís
Bergsdóttir og Jakob S. Jónsson úr
Reykjavík. Dagný Kristjánsdóttir
hefur tekið saman samfelldu dag-
skrána og stjómar flutningi hennar.
Þess er vænst, að þeir sem áhuga
hafa á jafnréttismálum fjölmenni á
hátíðina, bæði karlar og konur.
Aðgangur er kr. 1000, en ókeypis
fyrir börn í fylgd með fullorðnum.
Haft verður ofanaf fyrir þeim
meðan foreldrarnir taka þátt í um-
ræðum.
Slæmt atvinnu-
ástand á Húsavík
Nokkuð óvissuástand ríkir
nú í atvinnumáium Húsvík-
inga. Starfár það m.a. af erf-
iðum gæftum og litlum afla
bátanna. Sem dæmi má nefna
að í s.l. viku vann bæði fast-
og lausráðið fólk í Fiskiðj-
unni á Húsavík í einn dag, en
það fyrrnefnda var alla dag-
ana í vinnu. Lítið hefur verið
um atvinnu hjá Rækjuvinnsl-
unni.
Útlitið er svart hvað viðvíkur
iðnaðarmönnum og verkamönn-
um f byggingariðnaði og sömu
sögu er að segja um bflstjóra.
Samkvæmt upplýsingum frá
skrifstofu vcrkalýðsfélaganna á
Húsavfk hafa bílstjórar á eigin
bflum að jafnaði vinnu í tvo daga
f viku. Undanfarin ár hefur at-
vinnuleysi ekki gætt hjá bfl-
stjórum fyrr en upp úr áramót-
um. Miðað við fyrrí ár eru Iftil
verkefni framundan f bygging-
ariðnaði, en til þessa hefur eng-
inn iðnaðarmaður látið skrá sig
atvinnulausan.