Dagur - 30.11.1978, Blaðsíða 7

Dagur - 30.11.1978, Blaðsíða 7
Ibúð til sölu Til sölu er íbúð við Borgarhlíð 4. íbúðin er 141 ferm. með bílskúr. Hitaveita komin á staðinn. Hún verður fokheld á næstunni og til afhendingar. Uppl. gefur Fagverk s.f. Konráð Árnason sími 23024. Húsbyggjendur athugið Eigum til sölu 10 óskemmdar innihurðir. Hurðirnar eru úr eik, hengslaðar með skrám, karmar fylgja. Einnig höfum við til sölu 6 handlaugar í borð og neysluvatnskút ca. 500 lítra (150 mínútulítra) Upplýsingar í síma 21757. Hús til sölu Tilboð óskast í gamalt íbúðarhús á jörðinni Hamri í Svarfaðardalshreppi. Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Tilboðum skal skila til oddvita Svarfaðardalshrepps fyrir ármót og gefur hann upplýsingar um húsið ef óskað er. Sími 61332. Nýju Yamaha orgelin eru sannkölluð undratæki Gránufélagsgötu 4 Sími22111 NÝVERZUINI opnarföstudaginn l.des. GIÆSILEGAR GJAFA- VÖRURFRA JASMIN! ÚTSKORNIR TRÉMUNIR- T.a.m. boró, hillur, lampafastur og bakkar. BALI-styttur, handskornar. KOPARVÖRUR: T.a.m. kartastjakar, skálar, könnur og blómavasar. LEOURVÖRUR: Saólaveski og töskur. SILKISLÆÐUR, (pure). Raykelsi og raykelslsker. SJÓN ER SÖGU RÍKARI Austurlenzk undraveröld! V00/ID/ HAFNARSTRÆTI Erum að taka upp glæsilegt úrval af alls konar skíöavörum. Blissard skíði, LOOK skíðabindinga. Skíðastafi. Skíðabúninga f. unglinga og dömur. Skíðahúfur. Uvex og Barrufaldi skíðagleraugu. Skíðahanska. Skíðapoka. Moonboots. Skíðabuxur. Skíðastafi. Skíðaáburð f. svig og göngu tugi teg. Garmont skíðaskó. Suveren gönguskó o. m. fl.. Foreldrar ath. að ódýru barna-skíðasettin í gjafapökkunum eru að koma næstu daga, og eins og áður fást þau aðeins hjá okkur. Brynjólfur Sveinsson h.f. Skipagötu 1, sími 23580. — Þorleifur Þorleifsson . . (Framhald af bls. 5). Margréti, sem gift er Georg Jóns- syni. Dætrum sínum og barna- börnum unni hann mjög. Þótt Þorleifur Þorleifsson dveldi lengst ævi sinnar á Akureyri, glat- aði hann aldrei uppruna sínum og hélt órofa tryggð við sveit sína og fornvini í Öngulsstaðahreppi, enda má með sanni segja, að hann hafi verið bóndi bæði að upplagi og uppeldi. Hestamaður var hann og hafði einnig yndi af sauðfé. Hann stundaði smábúskap á Akureyri fram á elliár. Mörg síðustu æviárin var Þor- leifur vistmaður á Dvalarheimilinu Hlíð og þótt hann yndi þar hag sínum, þráði hann undir það síð- asta að leggja af stað í síðustu för sína. Guð og gæfan fylgi honum. E. D. Rækju- veiðar (Framhald af bls. 1). Samkvæmt upplýsingum Jóns Helgasonar, verkstjóra í rækjuverksmiðjunni á Húsavík, verður farið á miðin eftir helgi og ástandið kannað á nýjan leik. Tæplega verður það til að bæta atvinnuástandið á Húsavík og Kópaskeri, ef veiðarnar stöðvast í langan tíma. „Það var sérstaklega mikið af síld í afla bátanna, en svo virðist vera að þorsk- og ýsuseiði séu í minna mæli en áður“, sagði Jón Helgason. „Alls stunda tíu bátar rækjuveiðar frá Húsavík og a.m.k. sex bátar eru á rækju frá Kópa- skeri“; Fari svo að rækjumiðunum í Öxarfirði verði lokað til langs tíma mun það hafa alvarleg áhrif á at- vinnuástandið á Húsavík og Kópa- seri. Jón sagði að á milli 30 og 40 manns ynnu hjá rækjuvinnslunni á Húsavík og auk þess eru rúmlega 20 sjómenn á bátunum tíu. Sveit Alf reðs Pálssonar efst Nú er lokið 5 umferðum í sveita- keppni Bridgefélags Akureyrar. Úrslit í þeirri umferð urðu þessi: Jón — Þórarinn 20—0 Stefán — Sigurður 11—9 Páll—Jónas 20 + 3 Alfreð — Ævar 20 -r- 5 Ingimundur — M. A. 20 + 3 Sveinbjörn — Gissur 11—9 Röð efstu sveita er þessi: 1. sveit Alfreðs Pálssonar 73 stig 2. sveit Páls Pálssonar 68 stig 3. sveit Þórarins B. Jónssonar 64 stig 4. sveit Jóns Stefánssonar 60 stig 5. sveit Ingimundar Árnasonar 59 stig 6. sveit Sigurðar Víglundssonar 56 stig Sjötta umferð verður spiluð n. k. þriðjudagskvöld og spila þá saman sveitir Alfreðs og Páls. DAGUR.7

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.