Dagur - 12.12.1978, Qupperneq 8
DAGUR
Akureyri, þriðjudagur 12. desember 1978
Tvær bækur
Selabytta, éin af fjölmörgum myndum er prýða bókina.
Dalvíkur
Fyrra bindi komið út
rekur mannlífsþætti og sýnir
svipmyndir liðins tíma á trú-
verðugan og ljósan hátt.
Þó verkið sé þannig fyrst og
fremst um upphaf og þróun á
Böggvisstaðasandi leitar höfundur
víðar fanga í sögu sjósóknar —
annarra atvinnugreina og alls
mannlífs við Eyjafjörð og raunar
víðar.
Það er Dalvíkurbær, sem gefur
bókina út, en prentun fór fram hjá
Prentverki Odds Björnssonar á
Akureyri. Eftirtöku Ijósmynda
annaðist Jónas Hallgrímsson, Dal-
vík.
Á vegum Dalvíkurbæjar hefur
starfað nefnd, sem haft hefur um-
sjón með gerð og útgáfu bókarinn-
ar og einnig annast skipulagningu á
sölu hennar. í nefnd þessari eru
Júlíus Kristjánsson, Steingrímur
Þorsteinsson og Þorgils Sigurðsson.
Boðið hefur verið upp á áskrift á
bókinni þannig að hún verður send
áskrifendum beint frá útgefanda,
en auk þess verður hún til sölu á
nokkrum stöðum svo sem: POB
Akureyri, Versluninni Sogn, Dal-
vík, Bókabúð Jónasar, Akureyri og
nokkrum bókabúðum í Reykjavík.
Umboðsmenn útgefanda, er
annast sölu bókarinnar eru Jónas
Hallgrímsson, Dalvík, sími 61116
og Sigvaldi Júlíusson, Reykjavík,
sími 35267.
Ot er komið fyrra bindi af Sögu
Dalvíkur. Bókin er 470 blaðsíð-
ur að stærð í „Royal“ broti, með
um 400 myndum þ. á. m. lit-
myndum. Höfundur bókarinnar
er Kristmundur Bjarnason á
Sjávarborg og hefur hann þegar
hafið ritun síðara bindis sög-
unnar. Bókin greinir frá forsögu
og aðdraganda byggðar á
Böggvisstaðasandi (Dalvík) og
Þetta er síðasta myndin sem tekin var af Jóni.
Hann varð ekki eldri. 12_______I---------L_^|
Frá
nýrri
bókaút-
gáfu á
Akureyri
í haust tók til starfa á Akur-
eyri ný bókaútgáfa, Ögur, og
hefur hún nú sent frá sér tvær
bækur, Stripl í Paradís og
Þannig er ég — viljirðu vita
það. I bókinni Stripl i Paradís
eru smásögur eftir Ólaf
Jónsson, en síðari bókin er
rituð af Guðmundi Frímann
og fjallar um fyrstu ár æfi
hans.
Það er óþarft að kynna höf-
undana fyrir Norðlendingum,
og raunar landsmönnum öllum,
því þeir eru þekktir af fræði- og
ritstörfum. í bók Ólafs er sagt
frá þeirri óræðu mey Stefaníu,
koppnum hennar Sæunnar,
drykkjarkönnunni sem aldrei
var á sínum stað, að ógleymdu
stripli í Paradís. Um skáldskap
Guðmundar Frímanns hefur
margt verið ritað, en í þessari
bók fer hann oft á kostum, þar
er sagt frá leik og lærdómi, frá
öskutrogsbrúðkaupi o.fl.
Bókaútgáfan Ögur er hluta-
félag og framkvæmdastjóri þess
er Jóhannes Sigvaldason. For-
ráðamenn útgáfunnar boðuðu
blaðamenn á sinn fund fyrir
skömmu og kom m. a. frani að
þeir hafa í hyggju að gefa út
fleiri norðlenskar bækur, en
hvort af því verður ræðst af
viðtökum þeim er bækurnar
tvær hljóta.
§ Flestir trúa á
framhaldslíf
Nýtega var frá því skýrt, að
samkvæmt könnun dr. Er-
lendar Haraldssonar og
nemenda hans, tryðu 70-80%
fslendinga á framnaldslíf og
álíka margir teldu sig hafa
einhverja reynslu af dulrænni
starfsemi. Eru niðurstöður
athuganna, sem raunar voru
þrjár, komnar ut í bókarformi
um hina dulrænu reynslu
þjóðarinnar. Þessi bók heitír:
Þessa heims og annars.
• „Hjálp að
handan“
Könnunin náði til nær þús-
und manna. Draugatrú er
mikil, samkvæmt upplýsing-
um þessarar bókar og kynni
fólks af dulrænni starfsemi er
náði þá til 100 manns. En
huglækningar eru fólgnar í
því, sem nefnt er „hjálp að
handan", þ. e. hjálp frá látn-
um læknum fyrir milligöngu
einhvers lækningamiðils og
hafa fjölmargir Norðlending-
ar og fólk í öllum landshlut-
um, verulega reynslu í þeim
efnum. Venjulega taka lækn-
ingamiðlar ekkert fyrir starf
sitt.
0 Peningalykt
Á fundi heilbrigðisnefndar
fyrir nokkru var rætt um
Krossanesverksmiðju og
voru mættir á fundinum Pétur
Antonsson, framkvæmda-
stjóri Krossanesverksmiðju
og Helgi M. Bergs, bæjar-
stjóri, formaður verk.smiðju-
stjórnar. Formaður sagði frá
framkvæmdum sem á döfinni
eru. Áætlað að soðkjarna-
mikil. Yfir 40% höfðu leítað til tæki verði sett upp næsta
huglækna og níu af hverjum sumar og byrjunarfram-
tíu töldu sig hafa haft gagn af kvæmdir við hreinsibúnað
því. Var þessí síðast talda haustið 1979 og yrði þeim
niðurstaða talin svo merki- framkvæmdum lokið á árinu
leg, að hún var endurtekín og 1980.
Trycgvi Gíslason, formaður skipulagsnefndar, skýrir skipulag miðbæjarins á fundi
sem haldinn var fyrir skömmu með fulltrúum fjölmiðla. Mynd: á.þ.
Miðbæjarskipulagið:
Fjölsóttur fundur í
Möðruvöllum *
n.k. fimmtudag
Á sunnudag boðaði skipulagsnefnd og bæjarstjóri til almenns borg-
arafundar um miðbæjarskipulagið. á Möðruvöllum, húsi Mennta-
skólans á Akureyri. Fundurinn var f jölsóttur, en talið er að hátt í 200
manns hafi komið á hann. Sýning á tillöguuppdráttum arkitekta á
skipulagi miðbæjar á Akureyri var opnuð á föstudag og þar sem
fundurinn á sunnudag varð jafn fjölsóttur og raun bar vitni var
ákveðið að framlengja sýninguna og halda annan borgarafund n.k.
fimmtudag.
Oft er hætta í baðherbergi!
Baðherbergið er talið með hættu-
legustu stöðum íbúðarinnar að
því er varðar rafmagn.
Húðin er einangrandi og ver
okkur nokkuð fyrir rafmagni, en
þegar hún er rök, á rafmagn auð-
velt með að komast inn í líkam-
ann.
Allt of margir hafa beðið bana
við að snerta rafmagnstæki í
baðherbergi. Rafmagnstæki hafa
jafnvel dottið ofan í baðker og
valdið dauðaslysi. Einnig hafa
böm beðið bana við að snerta út-
varpstæki í baðkerinu.
Útvarpstæki, plötuspilari og
sjónvarp sem tengd eru við raf-
lögn hússins má ekki hafa inni i
baðherbergi.
Sérstakar kröfur eru gerðar í
reglugerð rafmagnseftirlitsins um
raftæki í baðherbergi, svo sem
lampa og rafmagnstæki.
Snertu aldrei rafmagnstæki
þegar þú ert í baðkerinu.
Agnar Árnason.
Verður krónan hundrað
sinnum verðmeiri?
Nú mun ákveðið að viðskipta-
ráðherra leggi fram á Alþingi
frumvarp til laga á breytingu
íslensks gjaldmiðils. Gert er
ráð fyrir, að krónunni verði
breytt og gerð hundrað sinnum
verðmeiri en hún er nú. Af því
tilcfni verða prentaðir nýir
seðlar og ný mynt slegin.
Seðlabankinn hefur gert tillög-
ur að breytingum þessum, sem
áætlað er að komi til fram-
kvæmda að rúmlega ári liðnu.
Talið er, að breyting á íslenskum
gjaldmiðli, þar sem hver króna
verður hundrað sinnum verð-
meiri, geti haft áhrif í baráttunni
gegn verðbólgu. Má vera að svo
sé, en þá aðeins að margt annað
komi til samtímis.
Formaður skipulagsnefndar,
Tryggvi Gíslason, setti fundinn og
Helgi M. Bergs flutti stutt ávarp.
Svanur Eiríksson arkitekt skýrði
hugmyndir arkitektanna að skipu-
laginu, en þá var fundargestum
boðið að bera fram fyrirspurnir.
Mikill áhugi var fyrir skipulaginu
meðal fundargesta. Rúmlega 40
manns gerðu fyrirspurnir og at-
hugasemdir sem flestar hnigu að
skipulagningu umferðargatna og
nýtingu á svæðinu. Fundurinn stóð
í rúmar 4 klukkustundir. Ákveðið
var að boða aftur til borgarafundar
n.k. fimmtudagkvöld kl. 21.