Dagur - 13.02.1979, Blaðsíða 3
Verðmætaaukning
útfluttra iðnvara nam 58%
— Ullariðnaðurinn stærsta útflutningsgreinin
Útflutningur iönaðarvara nam á
árinu 1977 34.8 milljörðum
króna og hafði þá aukist úr 223
milljörðum árið áður eða um
56%. Af þessu var ál og álmelmi
rúmlega 77 þús. tonn á 23,6
milljarða en hafði verið 74 þús.
tonn á 14.9 milljarða árið áður.
Verðmætaaukning nam því 58%
en magnaukning 4%. Útflutn-
ingur iðnaðarvara án áls nam
samtals 11.2 milljörðum kr. en
hafði verið 7.4. Aukning í út-
flutningi hinna ýmsu iðnaðar-
vara landsmanna án áls hefur
því numið 51%.
Mesta aukning í magni og verð-
mæti var í skinnaiðnaði, en þar var
aukningin 78% í verðmæti úr 1092
m. kr. í 1974 m. kr. en magnið jókst
um 23%. Aukningin bæði í magni
og verðmæti milli áranna 1977 og
78 var í lagmetisiðnaði, en útflutn-
ingur hans jókst í verðmæti úr 1206
m. kr. í 2000 m. kr. eða um 67% en
magnið jókst um 7%.
Eins og áður er ullariðnaðurinn
langstærsta útflutninggreinin og
jókst útflutningur ullarvara úr 3441
m. kr. t 4529 m. kr. eða um 32%.
Hér varð aftur á móti mikill sam-
dráttur í magni, samtals 128 tonn.
Hér munar mest um samdrátt á
Sovétmarkaði er nam samtals 193
tonnum. Kísilgúrútflutningur dróst
lítillega saman af ástæðum sem
öllum er ljósar. Nú voru flutt út
rúmlega 20 þús. tonn á 226 millj.
Samtals nemur útflutningur of-
antaldra vörutegunda um 9.9 mill-
jörðum króna.
Málverkasýning
Iðunnar
Ágústsdóttur
Föstudaginn 16. febrúar kl. 9 síð-
degis opnar Iðunn Ágústsdóttir,
húsfreyja á Akureyri, málverka-
sýningu í Gallery Háhóli og sýnir
þar um 60 myndir. En opnunar-
dagur sýningar er jafnframt fæð-
ingardagur Elísabetar Geirmunds-
dóttur listakonu, móður Iðunnar.
Iðunn Ágústsdóttir hefur ekki
áður haldið sjálfstæða sýningu og
hefur ekki notið skólaaáms í mál-
aralist. Myndir hennar eru pastel-
málverk og teikningar. Sýningin
verður opin til kl. 8-10 virka daga
og kl. 3-10 um helgar. Henni lýkur
að kveldi 25. febrúar og er sölu-
sýning.
Hráefnisskortur hjá KJ & Co.
Meirihluti
starfsfolks án
vinnu
Vegna skorts á hráefni og þar sem samningar hafa ekki
náðst um sölu á niðursuðuvörum til Rússlands hefur
orðið að stöðva nær alla framleiðslu hjá K. Jónsson & Co.
Um 20 manns voru við vinnu í niðursuðuverksmiðjunni í
morgunn, en að sögn Kristjáns Jónssonar, verksmiðju-
stjóra, hefur orðið að senda um 80 starfsmenn heim.
Kristján sagði, að þetta ástand yrði vart til langs tíma og
átti von á að nær allir gætu horfið til fyrri starfa í næstu
viku.
0 Áelleftu
stund
Hrygningarstofn þorsksins er
orðinn svo veikur, að Haf-
rannsóknarstofnunin gerir
tillögur um mjög minnkandi
veiði á þessu ári. En það hafa
víst ekki allir gert sér Ijóst, að
á tólf ára valdatíma „við-
reisnar" var látið fljóta að
feigðarósi í þessu efni og það
dugði ekki minna en stjórn-
arskipti til þess að landhelg-
ismálið yrði tekið föstum tök-
um, undir forsæti Ólafs Jó-
hannessonar. Mega nú allir
sjá, og hefði fyrr mátt vera, að
gripið var í taumana á elleftu
stund.
Frá MARKAÐSVERSLUNINNI
HRÍSALUNDI
F. D. B. Kartöflumús 150 gr.
NESQVIK 800 gr.
NESQVIK 400 gr.
Tilboðs- verð. Hámarks- verð.
Kr. 276 306
Kr. 1.331 1.478
Kr. 711 789
Á FYLGIST
MEÐ
VÖRUVERÐINU
Matvöeudeild
HLJOM-
PLÖTU^e^
Hefst á föstudaginn
Stórkostlegur afsláttur.
Popp - Disco - Rock - Jass
Úrval af eldri plötum
Lítið inn og gerið góð kaup
t.i
HUÚMDEILD
HAFNARSTR. 91-95 - AKUREYRI - SlMI (96) 21400
Kaupum hreinar
LÉREFTSTUSKUR
PRENTVERK ODDS BJÖRNSSONAR HF.
TRYGGVABRAUT 18-20
Framsóknarmenn
Fjárhagsáætlun 1979
Almennur fundur verður n. k. fimmtudagskvöld ki.
8.30 í Hafnarstræti 90 um fjárhagsáætlun Akureyr-
arbæjar. Frummælandi Sigurður Óli Brynjólfsson.
Allir velkomnir.
Stjórnln
FRAMSÓKNARFELAG
AKUREYRAR
Opiðhús
er að Hafnarstræti 90
öll miðvikudagskvöld frá kl. 20-23.30.
Spil — Tafl — Umræður
Sjónvarp á staðnum
Lesið nýjustu blöðin
Kaffiveitingar
Allir velkomnir
DAGUR.3