Dagur - 22.02.1979, Side 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
DAGUR
LXII. árg.
Akureyri, fimmtudagur 22. febrúar 1979
12. tölublað
Olían hækkar
Ekkert lát er á olíuverð-
hækkunum á heims-
markaðinum. Gasolían
hækkaði um nær þriðj-
ung á átta dögum og
næsti farmur, sem hing-
að kemur, er talinn muni
hækka um 100%, ef þró-
unin verðursú, sem.spáð
er. Til eru í landinu
birgðir til nokkurra
vikna og þá skella verð-
hækkanirnar yfir.
Tímaritið Súlur
Norðlenska tímaritið
Súlur, síðara hefti ársins
1978 og hið 16. í röðinni
er að koma út. Útgef-
andi er Sögufélag Ey-
firðinga, en ritstjórar,
Jóhannes Óli Sæmunds-
son og Valdimar Gunn-
arsson. Ritið er yfir 120
blaðsíður, fjölbreytt að
efni. Höfundar eru:
Friðrik G. Olgeirsson.
Þórhallur Bragason, Jón
Kr. Kristjánsson, Guð-
rún Sigurðardóttir,
Helgi Símonarson, Jón
Bjarnason, Aðalsteinn
Ólafsson, Árni G. Har-
aldsson, Eríkur Sigurðs-
son, Stefán Aðalsteins-
son og Bernharð Har-
aldsson. Næsta hefti er í
undirbúningi.
.
§1!
B ■■
BH
Það er dýrt að
drekka
Á ári hverju eru yfir
2000 ökumenn teknir
fyrir ölvun við akstur hér
á landi.
Meira en 90% af
handtökum lögreglunn-
ar er vegna áfengis-
neyslu og 60% af hand-
tökum lögreglunnar er
vegna áfengisneyslu og
60% þeirra, sem leita til
slysavarðstofunnar í
Reykjavík, hefur slasast
undir áhrifum áfengis.
Vínneyslan virðist
hafa heldur slæm áhrif á
hjúskapinn. því 80%
hjónaskilnaða má rekja
til ofnotkunar áfengis
annars eða beggja aðila.
Á ári hverju eru 2500
íslendingar í „meðferð"
vegna áfengisneyslu og
annarra vímugjafa. Tal-
ið er, að áfengisbölið
kosti þjóðina
4.000.000.000 — fjóra
milljarða króna — og
verður það þó ekki allt
reiknað í peningum.
Besta
blótið um
langa hríð
Fosshóli 20. febrúar. Rólegt er í
sveitum, lítill snjór, greiðfært og
fé er beitt lítils háttar suður í
Bárðardalnum. Á föstudaginn
var þorrablót í Ljósvetningabúð.
Þar var yfir 300 manns troðið f
sæti og tókst ágæta vel. Sérstök
þorrablótsnefnd undirbvr hvert
þorrablót og kýs hún þá næstu
un,4ið og hún lætur af störfum.
Formaður hennar nú var Jónína
Björgvinsdóttir, útibússtjóri á
Fosshóli.
Þetta hesta þorrablót siðari tíma.
að ég tel. hófst með brag um nýju
hreppsnefndina og Viktor Guð-
laugsson flutti gamansama tölu um
daginn og veginn. Þá var barnaárs-
ins minnst á gamansaman hátt og
kennarar úr Stórutjarnarskóla,
Guðmundur Nordal og Helgi R.
Einarsson léku saman á klarinett og
(Framhald á bls. 2).
Þessi mynd var tckin af tæknimanni útvarpsins f qærmorg-
unn þcgar Páll ItciAar ræddi við Val Arnþðrsson i „bcinni
linu“. Kaffi hefur oft borið á góma f þcssum moraunþáttum
o){ Valur gaf úlvarpsmönnum dálitið af Bragakaffi og lét
svo ummælt, að hann óskaði að þcir þyrftu ckki að drckka
annað cn úrvalskaffi i náinni framtið.
Ekki hægt að afgreiða símapantanir í Glerárhverfi?
Til næg númer í sjálfvirku
stöðinni
Vart hægt að leggja símastrengi vegna fjárskorts
Það cru cinkum þcir scm hafa i hyggju að flytjast inn á þcssu ári og þvi næsta. scm
vcrða fyrir barðinu á niðurskurðinutn. Myndina tók á.þ. af hálfhvggðu raðhúsi við
Stapasiðu í (dcrárhvcrfi.
Á fjárlögum þessa árs er gert ráð
fyrir 12 milljónum króna í síma-
línukerfi kaupstaða og kaup-
túna í Norðurlandskjördæmi
eystra. Heldur þykir okkur talan
lág, ef tekið er mið af því að
notaðar voru 34 milljónir króna
í framkvæmdir i landshlutanum
fram til mánaðamóta nóv/des á
s. I. ári. Niðurskurðurinn mun
t. d. hafa þau áhrif að stór hluti
nýrra íbúða í Glerárhverfi mun
ekki geta fengið síma, þótt til
séu næg númer í sjálfvirku sím-
stöðinni. Niðurskurðurinn verð-
ur enn hrikalegri þegar þess er
gætt að alls voru notaðar 23
milljónir króna til lagningar
jarðsímastrengja og í verklegar
framkvæmdir á vegum Póst og
Síma á Akureyri fyrstu ellefu
mánuði síðasta árs. Gera má ráð
fyrir að bæjarfélög á Norður-
landi eystra muni einnig líða
fyrir niðurskurðinn.
„Við fáum um það bil einn
þriðja þess fjár sem fékksi í fyrra i
linukerfi. Það verður ekki mikið úr
Skipulagsbreytingar hjá
KEA langt komnar
Á undanförnum misserum hefur verið unnið að skipulagsbreytingum
innan Kaupfélags Eyfirðinga. í framhaldi að því hefur kaupfélags-
stjórinn, Valur Amþórsson, ráðið sér tvo nýja fulltrúa.
Sigurður Jóhannesson verður
aðalfulltrúi í stað Arngríms
Bjarnasonar, sem lætur fljótlega af
störfum fyrir aldurs sakir. En einn-
ig hefur Þórgnýr Þórhallsson verið
ráðinn sem fulltrúi kaupfélags-
stjóra á sviði iðnaðar- og þjónustu-
greina. Sigurður tekur við sinu
starfi um miðjan mai n.k.
Báðir þessir nýju fulltrúar eru
fyrrverandi starfsmenn Kaupfélags
Eyfirðinga. Sigurður Jóhannesson
starfaði um árabil í Vöruinn-
kaupadeild félagsins en hefur und-
anfarin ár verið framkvæmdastjóri
Þórshamars hf. Þórgnýr Þórhalls-
son var um árabil deildarstjóri í
Véiadeild KEA en hefur undan-
farin ár verið umboðsmaður OLlS
áAkureyri.
Langt er nú komið þeim skipu-
lagsbreytingum, sem kaupfélags-
stjóri hefur unnið að að undan-
förnu, en þær fela i sér. auk ráðn-
ingar framangreindra fulltrúa,
ráðningu tveggja annarra fulltrúa,
Björns Baldurssonar, sem þegar er
fulltrúi á verslunarsviði og Magnús
Gauti Gautason, sem er fulltrúi á
sviði skipulags- og hagmála.
því. þegar við höfum í huga dýr-
tíðina sem geysar í landinu". sagði
Ársæll Magnússon. umdæmisstjóri
Pósts og síma í samtali við Dag. „í
sjálfvirku stöðinni á Akureyri eru
til númer sem eiga að duga í eitt og
hálft ár. miðað við þær áætlanir
sem hafa verið gerðar."
Á s. I. ári voru ekki til nægjan-
lega niörg laus númer í sjálfvirku
stöðinni á Akureyri. og því gátu
nýir notendur ekki fengið síma, en
nú er svo komið að jarðstrengi mun
skorta þegar líður á árið. Eins og
fyrr sagði mun það helst bitna á
nýjum ibúðum í Glerárhverfi.
Ástandið í afgreiðslu á nýjum sím-
um er nokkuð gott því búið er að
afgreiða allar þær pantanir sem
lágu fyrir.
Montið
heldur
mér
uppi
Gunnarssíöðum 20. febrúar. Nú
hef ég venju fremur mikið að
gera, því ég hirði 380 fjár og 30
gripi í fjósi og er auk þess eins-
konar framkvæmdastjóri við
byggingu hér á bænum og annast
útréttingar með tilheyrandi
ferðalögum. Er ég montinn af
þessu starfi og sagði strákum,
sem vinna hér, að það væri ekk-
ert annað en montið, sem héldi
mér uppi.
Á sunnudag fyrir rúmri viku fór
Skúli bóndi Ragnarsson. bóndi' á
Ytra-Álandi á vélsleða upp á Búr-
fellsheiði og fann þar þrjár kindur.
(Framhald á bls. 2).