Dagur - 22.02.1979, Qupperneq 6
Þetta cr spennandi íþrótt, en hættuleg. Strákarnir stukku niilli þeirra. Sjálfsagt hafa forcldrar þeirra bannað þeini
á milli jakanna og stundum munaði litlu aó þeir féllu á að stunda jakahlaup, en börn eru jú gleymin. Mynd: á.þ.
Enginn man
þvílíkt
snióleysi
Stórutungu 19. febrúar. ! janú-
armánuði fór frostið í 30 gráður
og var jafnvel enn meira niðri i
dalnum. En úrkoma hefur verið
svo litil að enginn man annað
eins. Þar sem venjulega er stór-
fenni, sést tæplega snjór nú. En
þessi berangur jarðarinnar hefur
valdið því, að grunnvatn hefur
lækkað í jörð og lækir og upp-
sprettur hafa minnkað eða
þornað.
Á sumum stöðum hefur þetta
valdiðerfiðleikum með neysluvatn.
Til er. að þurft hefur að flytja vatn,
að vísu ekki um langan veg. Þá
hefur berangur þessi valdið því. að
frost er óvenjulega djúpt í jörð og er
til. að frosið hafi í vatnslögnum.
En fátt er svo með öllu illt. að
ekki boði nokkuð gott. Aðstaða til
ýmiskonar félagsstarfa er fremur
góð, þegar búið er að hita bílinn.
Þar er um að ræða Ungmennafé-
lagið Eininguna, sem stofnað var 6.
desember 1892 og hefur starfað
óslitið síðan að ýmsum góðum
málefnum. Kvenfélag hefur einnig
starfað mjög lengi og hefur lagt
góðum málum lið og gerir enn.
Geta má þess, að það gaf til Lund-
arbrekkukirkju, rykkilín og
skrýddist sóknarpresturinn því í
fyrsta sinn á síðustu jólum. Þá má
ekki gleyma samtökum karla og
kvenna, sem ákveðið stefna að því
að fækka kílóum sínum. Þ. J.
Sveitahraðkeppni
B.A. hafin
Svcitahraðkeppni Bridgefélags
Akureyrar hófst sl. þriðjudags-
kvöld. Alls verða 4 umferðir. Þátt-
taka er mjög góð alls spila 15 sveit-
ir.
Röð efstu sveita er þessi
1. sveit Magnúsar Aðalbjörnss. 282
2. sveit Sigurðar Víglundss. 274
3. sveit Sveinbjörns Jónss. 273
4. sveit Stefáns Vilhjálmss. 272
5. sveit Jóns Stefánss. 271
6. sveit Þórarins B. Jónss. 265
Meðalárangur er 252 stig. — Önn-
ur umferð verður spiluð nk.
þriðjudagskvöld að Félagsborg.
Bræðrafélag
Akureyrar-
kirkju
Sunnudaginn 11. febrúar 1979 var
stofnað á Akureyri bræðrafélag
Akureyrarkirkju. Markmið félags-
ins er að vinna að eflinu safnaðar-
og félagsstarfs innan sóknarinnar. I
aðalstjórn voru kjörnir: Jón Sigur-
geirsson, Rafn Hjallalín, Björn
Þórðarson, Barði Benediktsson og
Gretar St. Melstað.
Félaginu bárust heillaóskir frá
Bræðrafélagi Langholtssóknar.
Ráðgert er, að næsti fundur verði i
kapellunni eftir messu þann 25.
febrúar og mun þá Otto Michelsen
verða gestur fundarins. En hann er
einn af brautryðjendum leik-
mannastarfs innan kirkjunnar. Ný-
ir félagar ávalt velkomnir.
Herstöðvaandstæð-
ingar Akureyri
Fundur verður haldin á Hótel K.E.A. sunnudaginn
25. febrúar kl. 14.30
Fundarefni. Rætt um aðgerðir 30. mars n.k. en þá
verða liðin 30 ár frá inngöngunni í NATÓ.
S.H.A.
Prangar lagðir niður
Iðnaðarmenn út með f irði
koma í akureyrsk félög
I síðustu viku var haldinn fundur
á Dalvík að tilhlutan Málm- og
skiðasmíðasambandsins og
Sambands byggingamanna eftir
að ósk hafði komið um það frá
15 - 20 félagsmönnum í iðnað-
armannafélaginu Drangar, en
innan vébanda þess eru iðnað-
armenn á Dalvík og Ólafsfirði.
Starfsemi Dranga hefur verið í
molum undanfarin ár og óskuðu
féiagsmennimir eftir inngöngu í
félögin á Akureyrí. Nú er fjallað
um umsóknirnar í viðkomandi
félögum og m. a. verða umsókn-
6.DAGUR
ir járniðnaðarmannanna teknar
fyrir á aðalfundi Sveinafélags
járniðnaðarmanna n. k. laugar-
dag.
Á fundinn mættu þeir Jón Snorri
Þorleifsson, frá Sambandi bygg-
ingamanna. Helgi Arnlaugsson. frá
Málm- og skipasmíðasambandinu.
ásamt Halldóri Arasyni frá Sveina-
félagi járniðnaðarmanna og Helga
Guðmundssyni frá Trésmíðafélagi
Akureyrar. Niðurstaða umræðn-
anna var sú að menn töldu árang-
ursríkast að leggja Dranga niður í
núverandi mynd og að iðnaðar-
mennirnir óskuðu eftir inngöngu í
félögin á Akureyri, þ. e. i Tré-
smíðafélagið og Sveinafélag járn-
iðnaðarmanna.
Annar fundur var haldinn s. I.
fimmtudag, þar sem umræður af
þessu tagi þarfnast tveggja funda.
Á þeim fundi var tekin formleg
ákvörðun um að leggja Dranga
niður.
Ekki er vitað með vissu hve
margir eiga rétt á að ganga i Tré-
smíðafélag Akureyrar og Sveinafé-
lag járniðnaðarmanna.
Kristniboðshúsið Zfon. Sunnu-
daginn 25. febr. sunnudaga-
skóli kl. II. Fundur í
Kristniboðsfélagi kvenna kl.
4. Allar konur velkomnar
Samkoma kl. 20.30 Ræðu-
maður Guðmundur Óskar
Guðmundsson. Tekið á móti
gjöfum tii kristniboðsins.
Allir velkomnir.
Spilavist N.L.F.A. verður í
Alþýðuhúsinu sunnudaginn
25. febr. n.k. kl. 8.30 sd. Góð
verðlaun. Aliir velkomnir.
Nefndin.
Akureyringar. Munið kökubas-
ar knattspyrnudeildar KA á
Hótel Varðborg laugardag-
inn 24. febr. kl. 15.00. Missið
ekki af bæjarins bestu kök-
um. Knattspyrnudeild KA.
Gjafir til Stærra-Árskógskirkju
1978 Anna Stína, 3.000.
Ónefndir gefendur, 17.800.
Ólöf Gunnlaugsdóttir.
5.000. Filipía Jónsdóttir,
5.000. Guðmundur Njáls-
son, 5.000. Sigríður Jóns-
dóttir, 5.000. minningargjöf
um Jóhönnu Sólbjörgu Jó-
hannesdóttur og Sigurð
Kristjánsson, frá börnum
þeirra. Jóhönnu og Sigur-
páli, 30.000. Minningargjöf
úm Kristján H. Jensson.
gefin af systur hans. Helgu
Jensdóttur. 25.000. Enn-
fremur barst kirkjunni að
gjöf rykkilin frá Huldu Vig-
fúsdóttur og Jóhannesi R.
Traustasyni. og einnig loft-
ljós í anddyri kirkjunnar frá
Gíslínu Vigfúsdóttur og
Hjalta Bjarnasyni. Gefend-
um færðar kærar þakkir.
Sóknarnefnd.
Bollu og kökubasar heldur
kvcnnasamband Akureyrar
í Alþýðuhúsinu laugardag-
inn 24. febrúar kl. 3 e.h.
komið og kaupið gómsætar
kökur. Stjórnin.
/0RÐ0flfiSÍNS\
pÆ——
Maöurinn minn og faðir okkar
EGGERT DAVÍÐSSON,
frá Möðruvöllum,
andaðist 19. febrúar. Jarðarförin fer fram frá Möðruvöllum i
Hörgárdal mánudaginn 26. febrúar kl. 3. Minningarathöfn verð-
ur í Akureyrarkirkju sama dag kl. 1. Þeir sem vilja minnast hans
eru beðnir að láta Mööruvallakirkju njóta þess.
Ásrún Þórhailsdóttlr og dætur.
Þökkum auðsýnda samúö og vináttu vegna andláts fööur okkar
JÓHANNESARLAXDAL
Tungu Svalbarðsströnd
öllum sem heiðrað hafa minningu hans sendum við hugheilar
þakkir.
Theodór, Helena,
Anna, Ester,
Björn og Henrý Laxdal.
NY GERÐ DIESELVÉLA
Undanfarin fimm ár hefir ný gerð
dieselvéla verið í þróun á Ítalíu. hjá
Stabilimenti Meccanici VM. en
verksmiðjan er meðal tíu stærstu
vélaframleiðenda í heiminum.
Nýja vélin er talin vera mesta bylt-
ing í byggingu lítilla dieselvéla um
áratuga skeið, en dieselvélin hefir
tekið litlum breytingum gegnum
árin, að öðru leiti cn því að sífellt
hefir verið unnið að því að gera
hana léttari og þýðgengari. Fram
að þessu hafa dieselvélar verið
kældar á sama hátt og bensínvélar.
með vökva eða lofti. Nýja vélin frá
VM er frábrugðin venjulegum
dieselvélum að mörgu leiti en aðal-
breytingin felst í kælingunni sem er
alger nýjung og nýtir kosti beggja
fyrri kælikerfa en er laus við galla
þeirra. Það er smurolian sem nýtt er
á einfaldan hátt til þess að kæla
vélina, sem að byggingu er eins og
venjuleg vatnskæld vél, en í stað
vatns, umlykur nú smurolian
strokkveggina og flytur hitann í
varmaskiftir sem kælir oliuna með
lofti. Oliunni er cinnig dælt upp í
stimplana og stendur stöðug buna
upp í stimpilkollana. Olían virkar
mjög hljóðdeyfandi og er vélin því
mun gangþýðari en gengur og ger-
ist um dieslevélar, auk þess sem
stærð hennar er mjög lítil miðað við
orku.
Hávaðamælingar sýna að VM
vélin er 7 - 8 db hljóðlátari en vélar
af hefðbundnuni gerðum og reyk-
mælingar sýna umtalsvert hreinni
útblástur, aðallcga vegna heppilegs
ganghitastigs vélarinnar og sér-
stakrar hönnunar á sprengihólfi.
Byggingarlag vélarinnar gerir
hana fyrirferðaminni og léttari en
ef um vatns- eða loftkælda vél væri
að ræða og er 27 HA vél aðeins 175
kg. með gír og 70,5 HA vél vegur
aðeins 240 kg. án girs. Vélarnar fást
13,5 - 27 - 40,5 - 54 og 70.5 hestafla
og með margsk.onar aflútlökum.
ástengdum. svo sem rcimskífum.
olíudælum, loftpressum og fleiru
sem til hagræðis má vcrða i fiski-
bát.
AUGLÝSi í DEGI