Dagur - 06.03.1979, Page 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
DAGUR
LXII. árg.
Akureyri, þriðjudagur 6. mars 1979
15. tölublað
Kynningardag-
ur Vélskólans
Á laugardaginn munu
nemendur Vélskólans á
Akureyri kynna starf-
semi skólans. Vélskólinn
hefur aðsetur á þremur
stöðum á Akureyri og
því verður rafmagns-
fræðin kynnt í Iðnskól-
anum við Þórunnar-
stræti, smíðakennsla í
Glerárgötu 2b og véla-
salurinn við Laufásgötu.
Nemendur og kennarar
verða á öllum þessum
stöðum, reiðubúnir til að
svara spurningum bæj-
arbúa. Kynningin hefst
kl. 13 og lýkur kl. 17.
*
Kirkjuvika
Kirkjuvika hefst á Ak-
ureyri næsta sunnudag,
11. mars og lýkur 18.
mars. Þetta er ellefta
kirkjuvikan, sem Akur-
eyrarkirkja efnir til og
hefur greint frá dag-
skránni, en hún er fjöl-
breytt og eflaust verður
kirkjan vel sótt þessa
viku, svo sem jafnan
hefur verið.
*
Bændaklúbbs-
fundur
verður á Hótel KEA
mánudaginn 12. mars og
hefst kl.' 21.00 Frum-
mælandi verður Sigur- *.
jón Bláfeld Jónsson,
ráðunautur BÍ í loð-
dýrarækt. Ræðir hann
um minka- og refarækt
og þó sérstaklega sem
aukabúgrein.
*
Spádóms-
þráhyggja
Jarðvísindamenn hafa
látið fremur lítið yfir sér
síðustu mánuðina, en
einhver óróleiki hefur
einnig gripið þá sem lýs-
ir sér í þráhyggju þeirra í
að spá eldgosum. Og það
er Kröflusvæðið, rétt
einu sinni, sem þeir nú
telja að sé órólegt og
óróinn geti leitt af sér
verulega jarðskjálfta, og
jafnvel eldgos innan
skamms.
Ný Landsvirkjun
í uppsiglingu
með sameiningu Landsvirkjunar,
Laxárvirkjunar, Byggðalfnu og ríkisins
Hinn 6. október sl. skipaði
orkumálaráðherra, Hjörleifur
Guttormsson, nefnd til að gera
tillögur um stofnun landsfyrir-
tækis um meginraforkuvinnslu
hér á landi og flutning orkunnar
Þessi nefnd hefur lokið störf-
um og skilað einróma áliti til
ráðherra. Á blaðamannafundi af
þessu tilefni sagði orkuráð-
herra, að stefnt yrði að því að
koma hinu nýja fyrirtæki á
laggirnar á þessu ári.
Samkvæmt tillögum nefndar-
innar verða eigendur hins nýja
fyrirtækis í upphafi: Reykjavíkur-
borg, Akureyrarkaupstaður, og
ríkið, sem á að vera 50% eignaraðili
og 132 KV byggðalínur. Með
stofnun þessa fyrirtækis er m.a.
stefnt að sama heildsöluverði raf-
orku á öllum afhendingarstöðvum
á landinu og einnig að samræmdari
framkvæmdum en verið hefur.
Heimilt er að taka önnur raforku-
fyrirtæki en nefnd voru, inn í hina
nýju Landsvirkjun, en þó var ekki
talið eðlilegt að Krafla yrði innan
þessa ramma í byrjun.
Formaður nefndarinnar var
Tryggvi Sigurbjarnarson, en aðrir
nefndarmenn: Helgi Bergs, Egill
Skúli Ingibergsson, Jakob Björns-
son, Jóhannes Nordal, Kristján
Jónsson, Magnús E. Guðjónsson og
Valur Arnþórsson.
Hitaveita Akureyrar hefur aug-
lýst eftir tilboðum í að koma upp
svartolíukatli til þess að gegna
hlutverki „toppstöðvar“, en með
því er átt við hitunarkerfi til
notkunar þegar dælur veitunnar
hafa ekki undan vegna bilunar
eða annarra orsaka.
Sú spurning hefur vaknað af
hverju ekki sé notað rafmagn í stað
Valur Arnþórsson, sem er
stjórnarformaður Laxárvirkjunar,
hefur reifað málið i bæjarstjórn
Akureyrar og gaf hún jákvæð svör.
Næsta skref í máli þessu er ef-
laust það, að gengið verður til
samninga á grundvelli tillagnanna,
og ef þeir takast kemur málið til
kasta löggjafans.
svartolíu og hafa ráðamenn hita-
veitunnar svarað því til að reiknað
hefði verið út að olían væri tví-
mælalaust hagkvæmari. Menn
hafa gefið sér þá forsendu að raf-
magn muni ekki vera tiltækt á þeim
tímum, sem stöðin á að starfa og
kjörin hefðu ekki verið nógu hag-
stæð. Auk þess er svartolíuketill
ódýrari en rafskautsketill. Stöð af
þessu tagi er aðeins notuð fáa daga
á ári.
Hitaveitan leitar tilboða í svartolíuketil
Olían hagkvæmari
en raf magnið?
Samkeppni
til lækkunar
á umferðarslysum
Umferðarnefndir Akureyrar,
Hafnarfjarðar, Keflavíkur,
Kópavogs og Reykjavíkur
hafa ákveðið að gera tilraun
með samkeppni til fækkunar
umferðarslysum. Á þessum
stöðum urðu alls 4.465 skráð
umferðarslys á síðasta ári, en
það er um 64%, allra um-
ferðarslysa á landinu. Sam-
anburður verður gerður fjór-
um sinnum á árinu, ársfjórð-
ungslega, í fyrsta skipti að
loknum marsmánuði. Til
viðmiðunar eru tölur sama
tímabils ársins áður.
Umferðarnefndirnar hafa
samvinnu við Umferðarráð sem
leggur fram skýrslur til saman-
burðar, þegar tölur yfirstand-
andi árs eru bornar saman.
Skráð umferðarslys og óhöpp
janúar-mars 1978 voru sem hér
segir: Reykjavík 696, Hafnar-
fjörður 138, Kópavogur 134,
Akureyri 101 og Keflavík 102.
Fundur um verk-
menntun
Stórátak
nauð-
synlegt
Stjórnir Félags málmiðnaðar-
fyrirtækja á Akureyri og
Sveinafélags járniðnaðarmanna
á Akureyri hafa boðað til fundar
laugardaginn 10. mars, kl. 13.30
að Hótel KEA þar sem fjallað
verður um stöðu verkmennta í
málmiðnaði á Akureyri.
Framsögumenn á fundinum
verða Guðmundur Tuliníus yfir-
verkfræðingur Slippstöðvarinnar,
sem fjallar um þörfina á átaki í
verkmenntun á Akureyri með sér-
stöku tilliti til málmiðnaðarins og
Helgi M. Bergs bæjarstjóri, sem
ræðir um byggingamál Iðnskólans.
Töluverð umræða hefur undan-
farið farið fram um nauðsyn þess
að efla verkmenntun á Akureyri og
oft verið bent á að iðnaðarbærinn
Akureyri hafi dregist verulega aft-
ur úr í þessum efnum. Með tilliti til
þess annarsvegar að iðnaðinum á
Akureyri er lífsnauðsyn að gert
verði stórátak í eflingu verklegra
mennta í bænum og hinsvegar að
bæjaryfirvöld munu væntanlega
innan tíðar móta stefnu sína í
framtíðaruppbyggingu framhalds-
skóla á Akureyri telja fundarboð-
endur að tímabært og raunar
nauðsynlegt sé að efna til þessa
fundar.
Fundurinn er opinn öllum