Dagur


Dagur - 06.03.1979, Qupperneq 6

Dagur - 06.03.1979, Qupperneq 6
 Akureyrarkirkja. Messað n.k. sunnudag kl. 2 e.h. (Upphaf kirkjuviku) Sálmar 18, 125, 338, 50, 384. Fjölmennum á allar samverustundir kirkju- vikunnar. Sóknarprestar. Möðruvallaklaustursprestakall Guðsþjónusta að Bakka í Öxnadal n.k. sunnudag 11. mars kl. 2. e.h. Sóknarprest- Akureyrarkirkja. Föstuguðs- þjónusta í Akureyrarkirkju kl. 8.30 e.h. miðvikudag 7. mars. Sungið úr passíusálm- unum. 5, 1-5. 8, 17-19 og 23-25. 9, 1-5. P.S. Sunnudagaskóli Akureyr- arkirkju er á sunnudaginn kl. 11 f.h. Yngri börn í kap- ellunni og eldri börn í kirkj- unni. Öll börn velkominn. Sóknarprestar. Brúðhjón. Hinn 3. mars voru gefin saman í hjónaband í Akureyrarkirkju ungfrú Guðný Aðalsteinsdóttir skrifstofustúlka og Sigurður Þór Ákason bifvélavirki. Heimili þeirra verður að Steinahlíð 8 b. Akureyri. Leiðrétting. í síðasta blaði féll niður eitt orð í gjafalista til Grundarkirkju en þar átti að standa „Gefendur eru börn þeirra hjóna og tengdabörn. □ Rún 5979377 -1 I.O.O.F. 2 - 160398'/2 - Atkv. I.O.G.T. st. Ísafold-Fjallkonan nr. 1. Fundur fimmtudaginn 8 þ.m. kl. 8.30 e.h. í félags- heimili templara. Varðborg. Fundarefni: Reglan í dag. St. Brynja, St. Akurliljan og St. Norðurstjarnan boðnar á fundinn. Eftir fund. Kaffi. Gunnar Lórens sýnir lit- skyggnur og kvikmynd frá stúkustarfi. Æ.t. Kiwanisklúbburinn Kaldbakur. Hádegisverðarfundur laug- ardaginn 10. mars. Félagar úr umdæmisstjórn mæta. Stjórnin. Allir þroskaheftir. Stórdans- leikur verður haldinn að Hótel K.E.A. miðvikudag- inn 7. mars kl. 19. Allir fé- lagar í þroskahjálp einnig velkomnir. Þátttaka tilkynn- ist í síma 23635 (Kolbrún) f.h. á miðvikudag. Konur í styrktarfélagi vangefinna fundur á Sólborg miðviicu-' dag 14. mars kl. 20.30. Kon- ur í S.V.N. Spiiakvöld Sjálfsbjargar verður fimmtudag 8. mars kl. 20.30 í Alþýðuhúsinu. Mætið vel og stundvíslega. Allir vel- komnir. Nefndin. AUGLÝSIBIDE6I Gjafir og áheit. Til Biblíufé- lagsins kr. 25.000 frá Hjálm- ari Kristjánssyni og Ingveldi Svanhildi Pálsdóttur Kr. 10.000 Frá N.N. Til Akur- eyrarkirkju kr. 500 frá G.G. og til Strandakirkju kr. 600 frá sama Til Æskulýðsfélags Akureyrarkirkju kr. 1.000 frá Birgi og Lilju. Bestu þakkir. Birgir Snæbjörns- son. Kristniboðshúsið Zíon. Sunnu- daginn 11. mars sunnudaga- skóli kl. 11. Öll börn vel- komin. Fundur í kristni- boðsfélagi kvenni kl. 4. All- ar konur velkomnar. Sam- koma kl. 20.30. Kæðumaður Björgvin Jörgensson. Allir velkomnir. Hjálpræðisherinn. Fimmtudag 8. mars kl. 20.30 kvöldvaka m. happdrætti. Sunnudag 11. mars kl. 13.30 sunnudaga- skóli og kl. 17 samkoma. Þriðjudag 13. mars kl. 20.30 Hjálparflokkurinn. Verið velkomin. Fíladelfí Lundargötu 12. Sunnudaginn 11. mars verð- ur almenn samkoma kl. 20.30. Á þeirri samkomu mun Jón Viðar Guðlalugs- son kynna Gideonfélagið. Sunnudagaskóli kl. 11 f.h. hvern sunnudag. Öll börn velkomin. Biblíulestur hvern fimmtudag kl. 20.30. Verið velkomin. Fíladelfía. Lán til húsbyggenda Á fundi húsnæðismáia- stjórnar fyrir nokkru voru teknar ákvarðanlr um lán- veitingar, er samtals nema rúmum 2 milljörðum króna. Koma þær til útborgunar í marz og apríl. Hér er aðallega um að ræða byggingarlán, bæði viðbótarlán þeim til handa, er fengu frumlán og miðlán á síðasta ári, en einn- ig frumlán út á þær íbúðir, sem fokheldar urðu í október, nóvember og desem- ber-mánuði sl. Samtals nema byggingarlánin um 1190 miiljónum króna. Hér er einnig um að ræða lán til kaupa á eldri íbúðum og nema þau um 820 milljónum króna til kaupa á um það bil 630 eldri íbúðum. — Hagi segir upp. - - (Framhald af bls. 8). tilbúnar að mæta. Þannig er verð- bólgan stór þáttur á þessari stöðn- un hjá okkur. Á síðasta ári seldum við um 500 eldhúsinnréttingar og um 700 lengdarmetra í fataskápum. En samkvæmt þjóðhagsspá næstu fimm árin, þarf árlega eldhúsinn- réttingar í 2800 nýjar íbúðir og til stofnana, fyrirtækja og endurnýj- unar þarf einnig verulegt magn, svo árlegur markaður gæti verið um 4 þúsund eða meira. Verkefni vantar því ekki. Við fellum ekki alveg niður framleiðsluna, því eigendur Haga eru allir iðnaðarmenn og halda áf- ram vinnu, svo söluloforð standi og lágmarksframleiðslu verður fram haldið. En við vitum ekki enn hve þessi lægð verður löng og úr því verður framtíðin að skera, sagði Haukur Árnason að lokum. KAPPREIÐAR? Haldnar verða kappreiðar ef aðstæður leyfa á Bæjartjörninni við Aðalstræti, laugard. 10. mars kl. 14,30 (sunnud. til vara). Keppt verður í: Gæðingaskeiði 150 m skeiði nýliða 200 m skeiði Hver hestur keppi aðeins í einni grein. Veittir verða verðlaunapeningar Skráning í síma 21205 fyrir föstudag9. mars. Lokaæfing á fimmtudag kl. 5-7 e.h. á tjörninni. ÍÞRÓTTANEFND LÉTTIS. 6.DAGUR Alúöar þakkir fyrir auðsýnda samúö vegna andláts eiginmanns míns og fööur okkar EGGERTS DAVÍÐSSONAR frá Möðruvöllum Ásrún Þórhallsdóttir og dætur Bæjaryfirvöld (Framhald af bls. 5). ekki hefur komið neinn þrýsting- ur frá bæjaryfirvöldum á Akur- eyri. Það minnsta sem hefði verið hægt að gera er að láta fara fram rannsóknir á flugvallarstæði við Gáseyri. Þar sem Gáseyrin er norðar í firðinum og vegalengdin lengri úr suðri og aðflugið þar með lengra. Einnig væri hægt að byggja góða þverbraut á völlinn, þar sem hann er í mynni Hörgár- dals í þessu sambandi væri gam- an að sjá hve margir flugdagar til Akureyrar tapast vegna hliðar- Ingimar Sveinbjömsson. vinds. En ef það kæmi í ljós að veðurskilyrði væru síst hagstæð- ari á Gáseyri og að fáir flugdagar ynnust dettur hugmyndin auðvit- að uppfyrir.“ „Því hefur verið haldið fram, að það væri of misvindasamt á þessum slóðum, en engar rann- sóknir hafa verið gerðar í þessu tilliti. Það þarf að gera veðurfars- rannsóknir á Gáseyri í a.m.k. eitt ár um leið ættu að fara fram svipaðar rannsóknir á Akureyr- arflugvelli. Þá fyrst er hægt að segja eitthvað til um hvort þetta sé rétti staðurinn fyrir nýjan flug- völl. Ég vildi bæta því við, að þegar norðlæg átt er á Akureyri þá er eins og það myndist kólgu- bakki yfir Akureyri sem gerir það að verkum að erfitt er að fara inn með Valaheiðinni til að snúa við og lenda út. Oft er hægt að fara sjónflug frá Hjalteyri og suður- undir Svalbarðseyri, en þá tekur við þessi bakki sem kemur stund- um í veg fyrir lendingu". Húsvíkingar feti framar! I dag er málum þannig háttað að á Akureyri verður að vera 5 km skyggni og 1000 feta skýjahæð svo völlurinn geti talist fær. Völl- ur þeirra Húsvíkinga verður inn- an tíðar mun betri en Akureyrar- völlur hvað þessu viðkemur, en við verðum að bæta því við, að aðstöður allar eru gerólikar. Húsvíkingar hafa barist fyrir því að fá blindaðflugskerfi og þessar vikurnar er verið að gera lagfæringar á núverandi kerfi. Næsta sumar verður því hægt að lenda í 1,5 km skyggni. Það segir sig sjálft að hægt verður að fljúga oftar til Húsavíkur en Akureyrar við samsvarandi skilyrði. Til samanburðar má geta þess að vélar geta lent á blindflugsbraut f Reykjavík í 1 km skyggni og í 300 feta skýjahæð. Það er ekki hægt að nota þá tegund tækja, sem Húsvíkingar fá á Akureyrarflugvelli. Við fáum ekki strax tæki sem gætu hentað honum, en eins og kom fram áðan eru þau enn í hönnun“, sagði Ingimar. Úr því að enn verður að bíða ' um sinn eftir réttum tækjabúnaði, leitaði Dagur álits Ingimars á því hvað hægt væri að gera til úrbóta nú þegar. „í mörg ár höfum við flugmenn farið fram á það við stjórnvöld að fá leiðarljós til að aðstoða okkur við að komast frá Svalbarðseyri inn með Vaðlaheiði og þau myndu líka gera okkur kleift að meta skyggnið. I vissum tilfellum er ástandið ekki eins slæmt og það virðist vera úr stjómklefa vélarinnar, en ef væru sterkir blikkandi ljósvitar til að leiða okkur inn með hlíðinni, þá væri oftar hægt að lenda. Þessi mál eru eitthvað að skýrast — þegar er komin viti hjá Jódísarstöðum, en meira þarf að gera áður en gott getur talist. T.d. væri nauðsynlegt að fá blikkvita í suður af vellinum til að sýna okkur stefnuna á mið- línu brautarinnar. Þetta er líka á óskalista Félags islenzkra atvinn- uflugmanna og sömuleiðis bygg- ing nýs radióvita á Oddeyri, sem myndi aðstoða mikið við flugtak- ið. Vitamir og radióvitinn eru ekki kostnaðarsamar fram- kvæmdir sem við getum ekki staðið undir“. Þotur og núverandi völlur fara ekki saman „Með góðu aðflugi og stað- setningu á flugvelli á Akureyri væri mikið unnið. Við getum tekið sem dæmi þoturnar, sem í dag geta aðeins lent á Keflavík- urvelli og í Reykjavík. Það koma alltaf þeir dagar, sem vélarnar geta ekki lent á þessum stöðum og verða því að fljúga aftur út. En ef væri fyrir hendi góður völlur á Akureyri gætu þær hæglega lent þar og beðið færis. Akureyri er t.d. vel sett hvað hótel snertir og aðstöðu alla fyrir farþega. Hitt er svo annað mál að ekki byggjum við völl eingöngu fyrir umferð af þessu tagi, en fyrr eða síðar renn- ur upp sá dagur að Flugfélagið tekur þotur í notkun á innan- landsleiðum. Ef enn væri sami völlurinn á Akureyri gætu hæg- lega skapast meiri takmarkanir á notkun vallarins en er í dag. Þetta er þróunin og við henni verðum við að vera búnir“.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.