Dagur - 24.04.1979, Blaðsíða 6

Dagur - 24.04.1979, Blaðsíða 6
Laugalandsprestakall. Messað verður í Hólum 29. apríl kl. 14. Safnaðarfundur eftir messu. Sóknarprestur. Akureyrarkirkja. messað n.k. sunnudag kl. 2 e.h. Séra Frank M. Halldórsson pre- dikar. Sálmar 32, 161, 21, 170, 51.B.S. Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur- eyri hefir borist gjöf að fjár- hæð kr. 350.000 til minning- ar um hjónin Jakobínu Halldórsdóttur og Hall Sigtryggsson frá Steinkirkju í Fnjóskadal. Börn hjónanna færðu sjúkrahúsinu þessa gjöf í tilefni þess að eitt- hundrað ár eru liðin frá fæðingu foreldra þeirra. F.h. stjórnar Fjórðungssjúkra- hússins þakka ég þessa höfðinglegu gjöf og óska gefendum góðs i framtíð. Torfi Guðlaugsson. Gjafir og áheit. Til Stranda- kirkju kr. 1500 frá ónefndri konu, kr. 2.000 frá R.J. kr. 5.000 frá S.F. og kr. 20.000 frá B.S.R. Til Hjálparstofn- unar kirkjunnar (sundlaug- arsöfnun) frá E.S. kr. 5.000 Bergsveinn Long kr. 5.000 frá S.S. kr. 10.000 og kr. 5.000 frá S.F. Bestu þakkir B.S. Sálarrannsóknarfélag Akureyr- ar. Fundur föstudaginn 27. apríl kl. 20.30 að Hótel Varðborg. Fundarefni: Örn Guðmundsson flytur erindi og sýnir skuggamyndir. Allir velkomnir. Stjórnin. Kvenfélagið Hlíf heldur fund í Amaróhúsinu fimmtudag- inn 26. apríl kl. 20.30. Flutt- ar verða m.a. skýrslur nefnda frá fjáröflunardeg- inum. Mætið vel og takið með ykkur nýja félaga. Stjórnin. □ HULD 59794257 IV/V Lokaf. Frá Guðspekifélaginu næsti fundur verður haldinn laug- ardaginn 28. apríl kl. 2 sd. Erindi flytur Örn Guð- mundsson (Sýnir litmyndir). Kvenfélagið Hjálpin. Aðal- fundur félagsins verður í Sólgarði föstudaginn 27. apríl kl. 9 e.h. Venjuleg að- alfundarstörf. Stjórnin. Bræðrafélag Akureyrarkirkju heldur fund í kirkjukapell- unni sunnudaginn 29. apríl að lokinni messu. Rætt um framtíðarstarfið. Árgjöld innheimt. Nýir félagar ávalt velkomnir. □ RÚN 59794307-L.F. H.&.V. Hjálpræðisherinn. Sunnudag- inn 29. apríl kl. 13.30 sunnudagaskóli og almenn samkoma kl. 17. Fíladelfía Lundargötu 12, Al- menn samkoma sunnudag- inn 28. apríl kl. 20.30. Söng- ur mússík, vitnisburðir, Fimmtudaginn 26. apríl al- mennur biblíulestur kl. 20.30 Sunnudagaskóli kl. 11 f.h. Öll börn velkominn. Fíladelfía. Kristniboðshúsið Zíon. Sunnu- daginn 29. apríl sunnudaga- skóli kl. 11. Samkoma kl. 17.00. Ræðumaður séra Frank Halldórsson Einnig sýnir hann myndir frá Páskahaldi í fsrael meðal Samverja, Gyðinga og krist- inna manna. Allir velkomn- ir. Geðverndarfélag Akureyrar heldur fjöldskylduskemmt- un og bingó í Dynheimum, laugardaginn 28. apríl kl. 14. Dagskrá: 1. ftalski söngvar- inn Reinard Geifler. 2) Gít- arleikarinn Örn Arason. 3) Leikþáttur í léttum dúr. 4)Danssýning. Jón Ragnars- son íslandsmeistari í diskó- dansi. 5) Trúðar koma í heimsókn. 6)Bingó. ÍCynnir Birgir Marinósson Komið og styrkið gott málefni. Kurt Sonnenfeld tannlæknir verður fjarverandi frá 29. apríl til 20. maí. Næsta spilakvöld Sjálfsbjargar verður 26. apríl kl. 20.30 í Alþýðuhúsinu. Mætið vel og stundvíslega. Allir velkomn- ir. Nefndin. Kvenfélagið Hlíf þakkar af al- hug bæjarbúum og öðrum velunnurum félagsins fyrir frábærar móttökur og góðan stuðning á fjáröflunardegi félagsins sumardaginn fyrsta. Lifið heil og við ósk- um ykkur öllum góðs og gleðilegs sumars. Hlífarkon- ur. Basar hefir Kristniboðsfélag kvenna í Zíon þriðjudaginn 1. mai kl. 4. Margir góðir munir einnig kökur og blóm. Allur ágóði rennur til kristniboðsins í Konsó og Kenya. Nefndin. Landið helga í máli og myndum n.k. sunnudagskvöld kl. 9. Séra Frank M. Halldórsson sýnir myndir og hefur frá- söguþátt ísrael og kynnir jafnframt hvítasunnuferð þangað 29. maí n.k. í Akur- eyrarkirkju. Sóknarprestar. Brúðhjón. Hinn 12 apríl voru gefin saman í hjónaband í Akureyrarkirkju ungfrú Edda Sigrún Friðgeirsdóttir afgreiðslustúlka og Kristinn Bjömsson rafvirkjanemi. Heimili þeirra verður að Fjólugötu 20 Akureyri. Hinn 15. apríl voru gefin saman í hjónaband í Akureyrar- kirkju ungfrú Hanna Rúna Jóhannsdóttir húsmóðir og Jón Emil Ágústsson útgerð- artækninemi. Heimili Þeirra verður að Skíðabraut 5, Dalvík. Vorþing Umdæmisst. nr. 5 verður haldið sunnudaginn 6. maí kl. 8.30 að félags- heimili templara Varðborg U.T. Vorþing Þingst. Eyjafjarðar verður haldið laugardaginn 28. apríl kl. 8.30 að félags- heimili templara Varðborg. Þ.T. I.O.O.F. Rb. 2 = 1284258'/2 =9 III Kiwanisklúbburinn Kaldbakur. Fundur á Hótel K.E.A. fimmtudaginn 26. apríl kl. 7.15. Umræður og atkvæða- greiðsla um leiguhúsnæði fyrir klúbbinn. Áríðandi að allir mæti. Stjórnin. I.O.O.F. 2 — 1614278V2 — atkv. Stöðvun þorskveiða í netfrá l.maí Esperanto: Alþjóðlegt hjálparmál Sjávarútvegsráðuneytiö hefur ákveðið að stöðva þorskveiðar í net frá og með 1. mai n.k. á svæðinu frá Eystrahorni vestur og norður að Horni. I frétt frá ráðuneytinu segir: „Eins og fram hefur komið hefur sú ákvörðun verið tekin að stefna að því að þorskafli íslendinga fari ekki yfir 280-290 þúsund lestir á þessu ári. 1 fréttatilkynningu frá ráðuneyt- inu 27. mars sl. sagði m.a. að til athugunar væri að stöðva þorsk- netaveiðar á ákveðnum degi í vor með hliðsjón af aflabrögðum á vertíðinni. Þann 10. apríl s.l. höfðu um það bil 145 þúsund lestir af þorski bor- ist að landi á árinu eða allmiklu meira en gert hafði verið ráð fyrir og fyrri aðgerðir miðaðar við. Með hliðsjón af þessu hefur ráðuneytið ákveðið að frá og með 1. maí n.k. verði afturkölluð öll þorskfisknetaveiðileyfi á svæðinu frá Eystrahomi vestur og norður að Homi. Afturköllun þessi á leyfum tekur til allra báta sem veiðar stunda fyrir Suður- og Vesturlandi á vertíðinni á svæðinu frá Eystra- homi að Horni án tillits til þess hvaðan þeir eru gerðir út. Samkvæmt ákvörðun þessari er síðasti veiðidagur þessarar neta- vertíðar 30. apríl n.k. á svæðinu fyrir Suður- og Vesturlandi." 1 desember s.l. gekkst alþjóðlega csperentosambandið fyrir mann- réttindaviku í tilefni af 30 ára af- mæli mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna. Af þessu til- efni var rætt um mannréttindamál á fundi í Esperantistafélaginu Auroro í Reykjavfk og svohljóðandi ályktun gerð: Félagið fagnar aukinni umræðu um mannréttindi og vaxandi skilningi á mikilvægi þeirra fyrir einstaklinginn og heildina. I því sambandi bendir félagið á að einn snarasti þátturinn í mannrétt- indum er rétturinn til samskipta við annað fólk. Sá réttur takmarkast af tungumálakunnáttu viðkomandi ein- staklinga, því að samskiptaréttur manna sem skortir sameiginlegt tungu- mál til að ná sambandi hver við annan, er lítið nema nafnið tómt eftir að tækni til ferðalaga og fjarskipta hefur mjög auðveldað samband milli fjarlægra staða hefur þetta orðið mun ljósara en áður, og þörfin á hlutlausu alþjóðlegu hjálparmáli verður því æ berari og brýnni með ári hverju. Alþjóðlegt hjálparmál má ekki sam- tímis vera móðurmál neinnar þjóðar því að það gæfi henni mikil forréttindi fram yfir aðrar þjóðir um forystu og einokun í menningarmálum og stjórnmálum. Alþjóðamálið verður að vera hjálp- armál, en á ekki að koma í stað þjóð- tungna því að það á að efla einstakling- Útsala Útsala Útsala Verslunin Skemman Hafnarstr. 108 inn í samskiptum við fólk af öðrum þjóðtungum, styðja menningu einstakra þjóða og mannfélagshópa og þar með auðga mannlífið á jörðinni. Því er ætlað að svipta einangrunarhjúp málaglund- roðans af stórum þjóðum og smáum. Af þessum sökum beinir félagið því til íslenskra stjórnvalda að styðja notk- un esperanto í alþjóðlegum samskipt- um, þar sem það er eina alvarlega til- raunin sem gerð hefur verið með ár- angri til að leysa ofangreindan vanda og sýnt hæfni sína til þess á öllum sviðum mannlegra samskipta. Það væri og við hæfi að íslensk stjórnvöld ættu frum- kvæði að notkun þess af hálfu ríkis- stjórna á alþjóðavettvangi, fyrst meðal smáþjóða. Félagið minnir og á nauðsyn þess að útbreiða kunnáttu í esperanto meðal almennings, bæði á íslandi og erlendis. Því fleiri sem kunna alþjóðlegt hjálpar- mál, því minni verða tálmanir á sam- skiptum manna vegna málaglundroð- ans, og því raunhæfari verður réttur manna til samskipta. Námskeið í lakkblómagerð og glermálningu hefjast á næst- unni. Innritun í síma 22541 ÍBÚÐIR TIL SÖLU Erum að byrja á tveggja hæða raðhúsi við Steina- hlíð, íbúðin er 112 ferm. nettó.fimm herbergi og bílskúr. Upplýsingar gefnar eftir kl. 20 í símum 22959 og 24894. Kvisthagi s.f. Hjartans þakklœti til allra þeirra er glöddu mig á 80 ára afmæli mínu 16. apríl sl. Sérstaklega þakka ég sonum mínum og tengdadœtrum. Lifið heil. SIGURBJÖRG BENEDIKTSDÓTTIR Skarðshlíð 21 Eiginmaður minn KARL JÓNSSON frá Mýri, Víðimýri 11 Akureyri, lést 21. apríl. Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 27. apríl kl. 13.30. Fyrir hönd vandamanna. Björg Haraldsdóttir. Útför móður okkar MARÍU KRISTJÁNSDÓTTUR Rauðumýri 20, Akureyri sem lést 19. apríl sl. fer fram frá Akureyrarkirkju laugardaginn 28. apríl kl. 13.30. Fyrir hönd barna hennar, tengdabarna og annara vandamanna. Ruth Ingimarsdóttir. 6.DAGUR

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.